Morgunblaðið - 28.05.1957, Page 23
Þriðjudagur 28. maí 1957
MORCTllV BLAÐIÐ
23
Uaadir smásjánni
London, 27. maí.
IDAG létu fulltrúar Rússa og Bandaríkjamanna í afvopnunar-
nefnd S. Þ. í ljós vilja stjórna sinna til þess að hefja samn-
ingaviðræður um takmarkaða afvopnun. Lloyd, utanríkisráðherra
Breta, sagði og í þinginu í dag, að nú væri fyrst ástæða til þess
að vona að einhver árangur næðist af fundum afvopnunarnefnd-
arinnar, en samt varaði hann fólk við því að vera of bjartsýnt
í dag kom afvopnunarnefndin
saman í London eftir 11 daga
fundarhlé. í nefndinni eiga sæti
fulltrúar Bretlands, Bandaríkj-
anna, Frakklands, Kanada og
Rússlands. Fundarhléið notuðu
fulltrúarnir til þess að fara heim
og ráðgast við stjórnir sínar og
vitað er, að Bandaríkjastjórn hef-
ur falið fulltrúa sínum, Harold
Stassen, að leggja fram nýjar til-
lögur, sem menn telja mjög at-
hyglisverðar.
- / ★ / -
Þess vegna var fceðið með
mikilli eftirvæntingu eftir því
að Stassen tæki til máls á
fundi nefndarinnar í dag, enda
þótt efni tillagnanna sé nokk-
— New York Times
Framh. af bls. 14.
kunnugt í New York, að umferð-
artafir verða á 43. stræti og
Times Square á laugardagskvöld-
um, þegar verið er að aka blað-
inu út á tugum og hundruðum
vörubíla.
Þetta vandamál verður leyst í
nýju byggingunni. Eru ágætar
flutningaæðar allt umhverfis
þetta svæði og rúmgott er inni á
svæðinu sjálfu íyrir vörubíla og
einnig liggja járnbrautarteinar
þangað inn.
LÍKÖN TIL SÝNIS
f sambandi við smíði hins nýja
húss hefur stjórn New York Tim-
es látið gera líkön af hinum fyrir-
huguðu vinnusölum. Eru likön
þessi höfð til sýnis víða í görnlu
byggingunni og er leitað álits
starfsfólksins á fyrirkomulags-
atriðum.
. . 4
SKIPAUTGCRB RIKISINS
/ESJA“
austur um land til Seyðisfjarðar
hinn 2. júní. Tekið á móti flutn-
ingi til Fáskrúðsfjarðar, Reyðar-
fjarðar, Eskifjarðar, Norðfjarð-
ar, Mjóafjarðar og Seyðisfjarðar
í dag. Farseðlar seldir á morgun.
Vinna
Hreingerningar
Vanir menn. Fljót og góð vinna.
Sími 7959. — ALLI.
Félagslil
Fram — knattspyrnumeim.
Æfingaleikur verður milli I. og
II. fl. A á Iþróttavellinum á Mel-
Unum kl. 8 annað kvöld. Æfing
verður hins vegar á Framvellin-
um kl. 9 fyrir meistara og II. fl.
B. — Ncfndin.
Ferðafélag íslands í Heiðmörk í
kvöld kl. 8 frá Austurvelli til að
gróðursetja trjáplöntur í landi fé-
vinsamlega beðnir um að fjöl-
menna.
Samkomur
Fíladelfía
Biblíulestur kl. 8,30.
Allir velkomnir.
I. O. G. T.
St. Verðandi nr. 9. Fundur í kvöld
kl. 8,30 e.h.
1. Inntaka nýliða
2. Kosning fulltrúa til stórstúku-
þings.
S. önnur mál.
Æt.
urn veginn kunnugt. Þetta fór
samt á annan veg, því að Stas-
sen lagði engar tillögur fram.
Víst þykir, að þær hafi
verið afhentar hinum fulltrú-
unum í ncfndinni og Stassen
vilji, að þeir hafi rannsakað
þær gaumgæfilega og tekið af-
stöðu til þeirra áður en þær
verða lagðar opinberlega fram
og ræddar.
Skálað
BÚDAPEST, 27. maí. — f dag
var tilkynnt í Búdapest, að náðst
hefði samkomulag milli Kadar-
stjórnarinnar og Rússa um stöðu
Rauða hersins í Ungverjalandi.
Efni þess hefur ekki verið fcirt.
Gromyko og Sjúkov voru meðal
þeirra, er ræddu málið við menn
Kadars, og í kvöld sitja þeir
fagnað félaganna í Búdapest.
Guðrún S.
Sigurðordóttir
F 6. des. 1915. — D 12. maí 1957
Kveðja frá vinkonu.
í gegnum sorgarhúmið, mér hlýj-
ar röddin þín.
Ég hef svo margt að þakka þér,
elsku vina mín.
Því mikil var tryggð þín og minn
inganna fjöldi
að mínum huga safnast við ævi
þinnar kvöld.
Frá æskunnar vordögum mest ég
minnist þín,
þau mildu ljúfu kynni, mér eins
og geisli skín.
Mig gleðja nú þær stundir, er
sumarkvöldin síð
við saman máttum una og ræða
um liðna tíð.
Með þér var gott að dvelja, því
lund þín hrein og heið,
frá heift og mannlífssárum, oft
benti rétta leið.
Og vinkonum þínum þú varst svo
trygg og góð
sú vinátta er auðlegð í minning-
anna sjóð.
Ó, himneski faðir, þeim vertu
vörn og hlíf,
sem vitund hennar tengdu svo
fast við þetta líf.
Með ljósgeislum vorsins, þú liðin
ert á braut.
Við látum þakkaróma þér fylgja
í Drottins skaut.
— Mmnmgarorb
Framh. af bls. 17
ólst upp á fögrum æskustöðvum
í föðurhúsum í stórum systkina-
hóp. 17 ára fór hún suður til
Reykjavíkur, byrjaði að nema
hjúkrunarfræði, en hætti því og
giftist 23. sept. 1924 eftirlifandi
manni . sínum Guðlaugi Guð-
mundssyni bryta. Voru þau í far-
sælu hjónabandi í 32 ár, eign-
uðust 3 syni, einn dó ungur, Jón-
as eldri, tveir lifa, Jónas og Ósk-
ar, sem kvæntur er Dýrleifi
Tryggvadóttur og eiga þau 2
synií sem voru yndi og eftirlæti
ömmu sinnar.
Verksvið og lífsferill Sigur-
línar var fyrst og fremst heimil-
ið, að því hlúði hún alla tíð, og
var ein ágætasta húsmóðir, sem
hugsazt getur, öll verk léku í
hendi hennar, hver svo sem þau
voru. Er líka sagt að í hennar
ætt séu dugnaðar- og vinnumenn
miklir. Fór Sigurlín ekki var-
hluta af þeim arfi eða öðrum
kostum hinna beztu ætta, sem að
henni stóðu. Ekki hirti hún um
að fara brautir fjöldans, heldur
valdi sér sína eigin leið. Var hún
heilsteyptur persónuleiki og
mannkostakona, sem ekkert
aumt mátti sjá. Sigurlín var fríð-
leikskona, höfðingleg og hvar-
vetna veizluprýði og hátíðar-
ljómi þar sem hún var, glaðlynd
og hispurslaus í umgengni, un-
andi heimilisfegurð, blómum og
fagurri músík. Las alla tíð mikið
af bókum, kunni vel að meta góð
an skáldskap, hafði mikla kímni-
gáfu, sá ætíð broslegu hliðar lífs-
ins initt í alvörunni. Sigurlín var
mjög frásneydd smjaðri og hrósi
og cðrum smáborgarahætti,
dæmdi fólk eftir atgervi, en ekki
peningum eða mannvirðingum.
Mjög var hún að allri skapgerð
lík fornkonum vorum, drengur
góður, eins og sagt var um Berg-
þóru á Bergþórshvoli, hreinlund-
uð og hóvær. Hún var hin mesta
og bezta móðir og þess vegna
sárt saknað af sonum sínum,
elskurík eiginkona og amma.
Líf hennar var barátta eins og
flestra og það gekk á ýmsu hjá
henni sem öðrum, en hún var
baráttumanneskja í eðli sínu og
óx við hverja raun. Hún átti við
heilsuleysi að stríða, sem bagaði
hana mjög, svo að hún naut sín
ekki að fullu. Dauða hennar bar
brátt að og meðan hún hafði enn
mikla lífsorku. Trú hennar var
sú, að dauðinn væri aðeins ferð
á annað tilverustig. Hún sagði, að
þegar hún væri dáin, ætlaði hún
að ferðast um og sjá það sem
hún hefði ekki séð. Á yngri ár-
um hafði húh ferðazt víða um
lönd og var það æ ríkt í hug
hennar.
Þess bið ég guð í hæstri hæð að
veita henni ósk sína að ferðast
og sjá dýrðarhnetti vetrarbraut-
anna og sjá almættisverk skapar-
ans, og að lokum mun tjaldið
milli lífs og dauða dregið frá og
ráðgátan mikla ráðin. — G. P.
BÍLAMÁLUN
Ryðbætingar, réttingar, viðgerðir.
Bílvirkinn, Síðumúla 19.
Sími 82560.
Bíll til sölu
mjög vel með farinn.
OPEL CARAVAN til sölu. — Til sýnis að Þjórsárgötu 3,
í Skerjafirði.
Aðalfundur
H.F. Eimskipafélags íslands verður haldinn ,í fundarsalnum
í húsi félagsins í Reykjavík, laugardaginn 1. júní 1957 og
hefst kl. 1,30 e. h.
Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir hluthöfum og
umboðsmönnum hluthafa á skrifstofu félagsins í Reykjavík
dagana 27.-29. maí næstk. frá kl. 1—5 e. h.
Stjómin.
Ástkær eiginkona mín
ÓLÖF JÓNSDÓTTIR,
Laxárdal, Gnúpverjahreppi, andaðist í Landakotsspítala
26. þ. m.
Ilögni Guðnason.
Konan mín
GUÐBJÖRG GIS SURARDÓTTIR,
verður jarðsungin frá þjóðkirkjunni í Hafnarfirði, miðviku-
daginn 29. maí kl. 2. — Athöfnin hefst með bæn að heimili
hinnar látnu Álfaskeiði 53, kl. 1.30.
Þeim, sem óska að minnast hinnar látnu, er vinsamlegast
bent á líknarstofnanir.
Ingvi Jónsson.
Jarðarför mannsins míns
BJARNA GUÐMUNDSSONAR
frá Bóli, fer fram frá heimili mínu í Hveragerði miðviku-
daginn 29. þ.m. kl. 10 árdegis. Jarðsett verður að Torfastöð-
um kl. 2 sama dag. — Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeim
sem vildu minnast hans, er bent á Blindravinafélag fslands.
María Eiríksdóttir.
Útför föður okkar
GUÐMUNDAR GESTSSONAR
trésmiðs frá Arnardal, fer fram frá Fossvogskirkju I dag
28. maí klukkan 2 síðdegis.
Blóm afbeðin.
Gestur Guðmiundsson,
Benedikt Guðmundsson,
Kristján Guðmundsson,
Illugi Guðmundsson.
Móðir mín tengdamóðir og systir
GRÓA HELGADÓTTIR,
Suðurgötu 7, verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Reykja-
vík, miðvikudaginn 29. þ. m. kl. 1,30.
Jarðsett verður í gamla kirkjugarðinum.
Bjarni Bjarnason, Margrét Guðbjartsdóttir,
Helga Helgadóttir.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við fráfail eg
jarðarför mannsins míns
JÓNS SIGURÐSSONAR
bónda í Hraunsási.
Aðalheiðiur Jóhannesdóttlr.