Morgunblaðið - 21.07.1957, Blaðsíða 7
Sunnudagur 21. }úlí 1957
MORCVNBLABIÐ
1
Hann á áreiðanlega eftir að
koma aftur.
★
ÞEGAR sjómaðurinn með barða-
stóra hattinn var farinn, héldum
við Júlíus áfram tali okkar, eins
og ekkert hefði í skorizt. Hann
sneri sér að umhverfinu og stöðu
mannsins í því, og lét síðan nokk-
ur orð falla um pólitík:
— Það eru fáir menn svo and-
lega sterkir, að umhverfið hafi
ekki mikil áhrif á þá. Umhverfið
og þær aðstæður sem maðurinn
býr við ráða úrslitum um við-
horf hans og breytni. Ég skal
segja þér dálitla sögu, þó að hún
komi ekki þessu máli beint við:
Þegar ég var strákur, þekkti ég
mann sem var svo gjöfull, að
hann gaf mér alltaf tvær krónur,
ef ég sótti hestana hans í haga.
Það var mikill peningur í þá
daga, en hann sá ekki í hann,
enda hafði hann það sæmilegt,
átti hvorki of mikið né of lítið
Umhverfið hafði ekki spillt hon-
um. Seinna komst þessi sami msð-
ur í álnir og græddi á tá og fingri.
Fór þá svo, að hann hafði meiri
áhuga á að næla sér í tvær krón-
ur en gefa þær. Síðar missti hann
heilsuna og tapaði af einhverjum
ástæðum mestum hluta eigna
sinna. Þá gat hann komið til
kunningjanna og beðið þá um að
gefa sér tvær krónur. Með öðrum
orðum: hann getur gefið, safnað
og betlað, allt eftir þvi hverjar
ytri aðstæður eru í það og það
Skipti. Það eru ákaflega fáir sem
eru svo andlega sterkir, að þeir
geti boðið umhverfinu byrginn.
En þeir eru þó til sem betur fer.
Það eru til svo sjálfstæðir menn,
að ekkert getur brotið þá á bak
aftur. En heyrðu annars, veiztu
hvað er sjáifstæði? Nei, mér datt
það í hug, að þú vissir það ekki.
Sjálfstæði er það, að sækja það
eitt til annarra sem maður getur
borgað fuliu verði. En það er
varla hægt að segja, að það sé til
lengur I ckkar þjóðfélagi. Nú fá
allir styrki, ja nema fátækir skó-
smiðir. Áður fyrr þótti það mikil
og óbærileg niðurlæging að fara
á sveitina, menn vildu heldur
svelta en að lenda í þeim ósköp-
um. En nú er þetta orðið öfugt.
Nú eru menn fyrst orðnir sjálf-
stæðir, þegar þeir eru farnir að
lifa á styrkjum: þeir geta nefni-
lega lagt þá til hliðar.... Nei,
elskan mín, ég hef ekki minnzt á
pólitík ennþá, vil helzt ekkert
minnast á hana. Frá mínum bæj-
ardyrum séð eru aðeins til tveir
flokkar á íslandi,. Annar fylgir
heimspólitík Rússans í einu og
öllu, hinn Bandaríkjamanna. Já
— já, þetta er svona einfalt. því
miður. Ég er þeirrar skoðunar,
að við eigum sem minnst að
skipta okkur af heimspólitíkinni,
a.m.k. í bili. Við eigum aðeins að
sýna þessum stórveldum fulla
kurteisi og taka ofan fyrir þeim
báðum, eins lengi og við getum
hagnazt fjárhagslega á þeim. Við
erum ekki Þorleifur á Háeyri....
★
— JÁ, ég hef alltaf lafað í leðr-
inu, segir Júlíus skóari um ieið
og hann stendur upp og setur
gamlan pússrokk í gang. Við
skósmiðirnir skiptum við margt
fólk og verðum því með tímanum
miklir heimspekingar og góðir
mannþekkjarar. En nú er mér
sagt, að enginn vilji læra skó-
smíði. Þetta er víst ekki talið
skemmtilegt fag. En það heíur
þó marga góða kosti. Hugsaðu
þér bara allt það fólk, sem hefur
komið til mín og rabbað við mig
á vinnustofunni. Ég hef haft
tækifæri til að kyonast fjölda
manna. Og á ég að segja þér,
hverjum augum ég lít á þetta
fólk? Það er miklu betra en við
höldum. Það er aðeins undir okk-
ur sjálfum komið, hversu gott
það fólk er, sem við umgöngumst.
— Hvernig starfið hefur gengið?
Ég held það hafi gengið ágæt-
lega. Ég man ekki eftir því, að
nein af blessuðum frúnum hafi
lltsala
Útsalan hefst á morgun, mjög mikill afsláttur af
okkar nýkomnu MODEL-HÖTTUM
Hattaverzlunin ,„hjá BÁRU“
Austurstræti 14.
NÝKOMIÐ
Bremsuborðar í metravís
Útvarpsstangir
Samlokur
Hljóðkútar í margar
tegundir eldri bfla
Bremsuhnoð margar teg.
Koparfittings fyrir bíla
Þvottabustar fyrir bíla
Smursprautur
Topplykla- og stjörnu-
lyklasett
Mottur í bfla
Hjólbarðar 600x16
grófriflaðir
ORKA HF.
Laugavegi 166 — Reykjavík
kastað í mig skó. Okkur hefur
alltaf samið ágætlega. Ég kalla
þær „elskurnar mínar", það kem-
ur sér ágætlega, þú skilur....
Og Júlíus heldur áfram:
— Annars eigum við að um-
gangast menn með mikilli varúð,
og nauðsynlegt er að virða skoð-
anir annarra — í hófi. — Vinur
minn nokkur, sem oft kom niður
í Aðalstræti, var alltaf ákafiega
ánægður með mig, þegar skoðanir
okkar féllu saman. En þegar við
vorum ósammála, sagði hann, að
skoðanir mínar væru einber vit-
leysa. Ég reyndi margoft að sann-
færa hann um, að ég hefði rétt
fyrir mér, en tókst ekki. Þá greip
ég einu sinni til þess örþrifaráðs
að segja við hann: Mínar skoð-
anir eru ekki frekar vitleysa en
þínar. Munurinn á okkur er að-
eins sá, að þú sérð suður að Tjörn,
en ég sé suður fyrir Tjörn. Og
með það fór hann.
Hestamaðurinn, skóarinn og
sérfræðingurinn í praktískri lífs-
fílósófiu hefur talað.
M.
Mikil nýiækt
og vegobætur
ÞÚFUM, 19. júlí — Nú er unnið
að vegagerð hér í hreppnum. Var
tekið lán til þess að bera ofan í
Vestfjarðarveg þar sem rutt var
með ýtu í fyrra. Er nú vinna
byrjuð og batnar vegasambandið
mikið við það í sveitinni. Jarð-
ýta fer nú bæ frá bæ og vinnur
að jarðabótum hjá bændum. Eru
nú á hverjum bæ mikil lönd tek-
in til ræktunar. —P. P.
ÍBLÐ
Tvð tfl þrjú herbergi, eldhús og snyrtiherbergi vtlja
barnlaus, roskin hión leigja ífó 1. sept. eða 1. okt. —
Tilboð sendist afgreiðslu Morgunblaðsins lyrir
næsta þriðjudagskv. merkt: Skrifstofustjóri — 5Ö86.
Til sölu ódýrt
notað og nýtt timbur, krossviður,
masonite, blómakassar og gler. —
Einnig sýningarskápar með gleri og
Ijósum. Uppl. í síma 15416.
Aluminíum
plöfur
Báraðar 7, 8, 9, 10 feta langar
Sléttar 0,6; 1,0; 1,2 og 1,5 mm þykkar
ORKA HF.
Gunnar Jónsson
Lögmaður
við undirrétti og hæstarétt. '
Þingholtsstræti 8. — Sími 18259.
Laugavegi 166 — Reykjavík
Bananar innihalda mikið af alhiiða auðmeltanlegri
fæðu, sem fullnægjir fljótt orkuþörf líkmans og byggir
upp mótstöðuafl gegn sjúkdómum.
Bananar innihalda A, B, C, G-fjörefni, ávaxtasykur
steinefm og fjölda annarra nauðsynlegra næringarefna.
Kaupið Banana meðan verðið er lágt. —
Kaupið fullþroskaða Banana frá Bananasölunni.
MJÖLNISHOLTI 12 SÍMC I 98 80
daglego fullþzoskaðir
til sælgætis og matar
Knattspymumót íslands 1. deild
í kvöld klukkan 20,30 keppa
Fram og Hafnfirðingar
Dómari: Ingi Eyvinds Línuverðir: Valur Benediktsson og Einar Hjartarson
— Mótanefndin