Morgunblaðið - 21.07.1957, Blaðsíða 13
Sunnudagur 21. júlí 1957
MORCVTiBL AÐIÐ
13
4 herbergfa íbúð
í Hlíðunum, getur góður vélsmiður fengið leigða sem
annast vill viðhald véla og verkfæra hjá traustu iðnfyrir-
tæki í Reykjavík. Tilboð merkt: Samstarf — 7828 send-
ist Morgunblaðinu fyrir 29. júlí.
Tilkynníng til símanotenda
í Reykjavík og Hafnarfirði
Mánudaginn 22. júlí kl. 9.00 verður byrjað að taka
á móti greiðslu afnotagjalda fyrir 3. ársfjórðung svo
og annarra gjalda til Landssímans, sem féllu í gjald-
daga í júlímánuði.
Innheimta Landssímans er nú flutt í vesturálmu
Landssímahússins, Thorvaldsensstræti 4, inngangur
gegnum garðinn frá Aðalstræti og Kirkjustræti.
í Hafnarfirði er tekið á móti greiðslu í landssíma-
stöðinni, Austurgötu 11.
Póst- og símamálastjórnm.
ÚT S ALA
á
ULLARKÁPUM
JÖKKUM
KJÓLUM
REGNKÁPUM
LAUGAVEGI 116
tíTSALA
BYRJAR X MORGLIM
HATTAR frá kr. 50.00
DÖMUTÖSKUR frá kr. 50.00
SLÆÐUR frá kr. 20.00
MORGUNKJÓLAR frá kr. 95.00
BLÚSSUR, HANZKAR o. fl.
^Jlattalúk JJevtLiauili
.eijtefavitear
Laugaveg 10
AÐ GEFNU TILEFNI
birfir útgefandi timaritsins „SATT"
eftirfarandi ummæli 20 manna:
HAIXDÓR KILJAN LAXNESS, rith.
Saga Eiríks á Brúnum í heftum yðar er
alveg einstaklega vel orðuð. Ég hafði ó-
blandna ánægju af að lesa sögu Eiríks í þessu
vandaða bókmenntalega formL
ÞÓRBERGUR ÞÓRÐARSON, rith.
Margt af því, sem ég hef lesið í „Satt“
s. 1. þrjú ár, finnst mér með því skemmti-
legasta sem ég hef lesið á íslenzku í seinni
tíð.
DR. GUÐNI JÓNSSON, skólastjóri:
„Satt“ er skemmtilegt rit og vandað að
efni og frágangi. Sumar greinar, sem þar
hafa birzt, einkum um innlend efni, eru
snilldarverk. Málið á ritinu er að mínum
dómi mjög til fyrirmyndar.
SIGRÍÐUR J. MAGNÚSSON, frú:
Ég hefi lesið allmörg blöð af tímaritinu
„Satt“ og ekki fundið neitt er kallast geti
siðspillandi. Ritið flytur í hverju blaði, ásamt
auðmeltu efni, íslenzkan fróðleik og afburða-
vel ritaða þætti eins og t. d. frásagnirnar um
baróninn á Hvítárvöllum, Eirík á Brúnum,
Bólu-Hjálmar o. fl.
BJÖRN ÞORSTEINSSON, sagnfr.:
Ég vil einungis biðja háttvirtan útgefanda
að hvika ekki af þeirri braut, sem hann hefur
fylgt til þessa, og fá ísl. almenning til lestrar
rit vandað að málfari og skemmtilegt, með
listrænum frásögnum um íslenzka atburði.
AGNAR ÞÓRBARSON, rlth.:
1 tímaritinu „Satt“ eru margir þættir, sem
að stíl og frásagnarlist mættu vera öðrum
ritum til fyrirmyndar.
DR. PÁL.L ÍSÓLFSSON, tónskáld:
Tímaritið „Satt“ hefur veitt mér marga
ánægjustund. Þar birtast oft ágætar greinar
um margvísleg efni og sumar snilldarvel
ritaðar.
GUNNAR EINARSSON, útgefandi:
Ég álít tímaritið „Satt“ gott tímarit. Ritið
hefur flutt fjölda greina um innlend og er-
lend efni, sem skráðar hafa verið af nær-
færni og smekkvísi, og yfirleitt er ritið skrif-
að á svo góðu íslenzku máli, að þar standa
ekki önnur íslenzkt rit framar.
ÆVAR R. KVARAN, leikari:
Sumt af því, er ég hef lesið og bezt þótt
ritað um þjóðleg efni, hefur einmitt birzt
í „Satt“.
SIGURBUR ÓLASON, hæstaréttarlögm.:
Tímaritið „Satt“ er að mínum dómi með
betra lesefni til skemmtunar og fróðleiks,
sem völ er á, og þó sérstaklega frásagnir þess
af gömlum dómsmálum hérlendum og öðrum
merkum atburðum liðins tíma.
'XÓMAS GUÐMUNDSSON, skáld:
Sitthvað það, sem ég hef lesið í timarrtinu
„Satt“, ber að mínum dómi af flestu því, sem
hér er skrifað, bæði um listrænan frásagnar-
hátt og vandað málfar.
SIGURÐUR GRÍMSSON, lögfræðingur:
Ég hef fylgzt með og lesið „Satt“ frá þvi
að það hóf göngu sína, af þeim ástæðum, að
mér finnst það yfirleitt fróðlegt og skemmti-
legt og framúrskarandi vel ritað.
ELÍNBORG LÁRUSDÓTTIR, rithöf.:
„Satt“ er vel skrifað, skemmtilegt aflestr-
ar, og flytur oft mikinn fróðleik.
GUNNAR M. MAGNÚSS., rithöf.:
Ég hef yfirleitt ekki lesið þýdda efnið í
tímaritinu „Satt“, en íslenzku greinarnar
hafa dregið mig að sér, m. a. þættirnir um
Bólu-Hjálmar og Vogsósaklerkinn, og gefið
ritinu mikið gildi í mínum augum.
ÓLAFUR HANNSSON, menntaskólakennari:
Ég tel tímaritið „Satt“ standa fyllilega
jafnfætis hinum beztu erlendu tímaritum
að fjölbreytni og fræðandi efni. Sérstaklega
tel ég greinar tímaritsins um ýmis þjóðleg
íslenzk efni hafa mikið menningargildL
LÁRUS PÁLSSON, leikari:
Það sem ég hef lesið í tímaritinu „Satt“,
þykir mér bæði fróðlegt og skemmtilegt, sér-
staklega íslenzku þættirnir, sem ritaðir eru
á óvenju kjarnmiklu máli.
RAGNAR JÓNSSON, forstjóri:
Margar greinar í „Satt“ eru ritaðar af
hreinni snilld.
ÓLAFUR FRIÐRIKSSON, rithöf.:
Mánaðarritið „Satt“ er að minu áliti fróð-
legt og skemmtilegt. Það er ritað á liðugu og
góðu máli, og hef ég ekki rekist þar á þá
óþarfa bersögli, í glæpa- og kynferðismálum,
sem nú tíðkast mjög á voru landi.
JÓN P. EMILS, lögfr.:
Sumir hlutar sakamálaréttarhalda eru þess
eðlis, að ekki er æskilegt, að þeir fari út fyrir
veggi dómsala. Önnur atriði í sakamálafiæð-
um eru mjög hugleikin til fróðleiks og til þess
fallin að birtast opinberlega. Tímaritið „Satt"
hefur að dómi mínum fullkomlega tekizt að
draga markalínuna milli þessara tveggja
tilvika.
LÁRUS JÓHANNESSON, hæstaréttarlögm.:
Ég les tímaritið „Satt“ reglulega, því að
mér finnst það vandað bæði til efnis og orð-
færis. Sérstaklega hef ég ánægju af að lesa
sakamálasögurnar, og eru þær, sem ég þekki
til eftir öðrum leiðum, rétt með farnar og
vandaðar.
IPAISIA tannkrem
inniheldur hið bakteríueyðandi
WD-9 (Sodium Lauryl Sulfate),
er varnar tannskemmdum og
heldur munninum hreinum og
frískum klukkutímum saman. —
æit yðar að tannkremi, sen
er bæði bakteríueyðandi o/
bragðgott, er nú lokið.
★ IPANA freyðir betur
★ IPANA hreinsar betur
★ IPANA er drýgra
★ IPANA er bragðbetra
Heildsölubirgðir:
O. Johnson & ICaaber h£
Bezf að auglýsa í MORGUNBLADINU