Morgunblaðið - 25.08.1957, Qupperneq 3
Sunnudagur 25. ágúst 1957
MORCUISBT.AÐIÐ
3
Sérstukur rannsóknir hér d landi
d jarðeðlisfræðidrinu vegna legu
íslands i Norðurljésabeltinn
Samtal v/ð Þorbjörn Sigurgeirsson um
nýstofnaða segulmælingastöð og fleirc
Þórir Þórðarson, dósent:
FYLGDIN
HANN TÓK af sér armbands-
úrið og losaði sig við lykla-
kippuna, síðan gekk hann í
áttina að litlu gluggalausu,
nýsmíðuðu timburhúsi. —
Ég ætla að slökkva á tækj-
unum, sagði hann, þið dokið
aðeins við á meðan.
Það var Þorbjörn Sigur-
geirsson framkvæmdastjóri
Rannsóknarráðs ríkisins og
væntanlegur prófessor í eðlis-
fræði við Háskóla ísland og
forstöðumaður geislamæling-
arstofu, sem komið verður á
laggirnar, sem þetta sagði.
Litla gluggalausa húsið, er
segulmælingastöð Rannsókn-
arráðs ríkisins, hin fyrsta hér
á landi, sem byrjaði „að
mæla“ rnn síðustu mánaða-
mót. Eru þær mælingar einn
liður vísiildalegra athuganna,
sem hér fara fram í sambandi
við yfirstandandi Jarðeðlis-
fræðiár. Þorhjörn hafði tekið
af sér armbandsúrið til þess
að valda ekki truflunum á
segulmælingatækjunum, sem
komið hefur verið fyrir í
segulmælingastöðinni, við
Leiruvog.
Þorbjörn kom að vörmu spori
og bauð okkur að koma inn í
mælingastöðina. í þessu litla
húsi er ekkert járn, sem hefur
truflandi áhrif á mælitækin.
Sökkull hússins er úr vikri, ó-
járnbentum. — Vikurinn er alveg
„dauður“, þ.e.a.s. ekkert segul-
magnaður. Naglar og skrúfur eru
úr málmi sem ekki er segul-
magnaður. I tveim litlum her-
bergjum standa sex segulmælar
á sökklum, steyptum úr kvarzi.
Þorbjörn bað okkur fyrir alla
muni að koma ekki við tækin,
það væri búið að kosta ótrúlega
vinnu að stilla þau nákvæmlega
af, minnsta snerting gæti rask-
að og valdið skekkjum.
Jónhvolf — Norðurljós
og segulmælingar
— Þessar segulmælingar, er
það framlag okkar til hinna um-
fangsmiklu jarðeðlisfræðirann-
sókna á Jarðeðlisfræðiárinu?
— Jú, þær eru það. — Undir-
búningsnefnd Jarðeðlisfræðiárs-
ins sem hafði yfirumsjón með
öllum undirbúningi og fyrir-
komulagi rannsóknanna óskaði
eftir því, að hér færu fram rann-
sóknir á þeim hluta segulsviðsins,
sem stafar frá rafstraumum í
háloftunum, jónhvolfinu, eins og
það er kallað á íslenzku. Þær
segultruflanir, sem af þeim stafa,
standa í sambandi við norður-
ljósin og útbreiðsluskilyrði fyrir
útvarpssendingar.
Þessar truflanir eiga rót sína
að rekja til breytinga, sem verða
í sólinni, sólgosa, sólbletta og
annars umróts. Þá sendir hún frá
sér strauma af rafeindum og
fleiri hlöðnum ögnum. Það eru
þessar agnir, sem verka á há-
loftin í nokkur hundruð kíló-
metra hæð frá jörðu. Hefur
Landssími íslands með höndum
athuganirnar á jónhvolfinu en
Veðurstofan norðurljósaathugan-
irnar.
Veðurstofan starfrækir mynda
vél, sem er þannig úr garði gerð,
að hún getur tekið myndir af
öllu himinhvolfinu í einu. Tekur
myndavélin eina mynd á mínútu
fresti meðan dimmt er. Úr jón-
hvolfsrannsóknastöð Landssím-
ans er send útvarpsbylgja á 15
mín. fresti allan sólarhringinn,
beint upp í háloftin. Þar speglast
hún í hinum jónuðu loftlögum-
og endurvarpast aftur til jarð-
ar og gefur þá sjálfritandi mæli-
tæki til kynna hæð. þessarar laga
yfir jörðinni. — Erum við þá
komnir að þriðja þætti rannsókn
anna, en það eru segulmæling-
arnar sem hér fara fram, sagði
Þorbjörn.
6 mælar í stöðinni
Þessi mælitæki, sem þið sjáið
hér á þessum hvítu marmara-
plötum gefa fullkomna mynd af
segulkraftinum, stærð hans og
stefnu. Þessi tæki eru stöðugt í
gangi allan sólarhringinn. Þau
skrá allar þær breytingar, sem
verða á segulsviðinu á ljósnæm-
an pappír, sem er á tveim sívaln-
ingum og ganga þeir fyrir úr-
verki. Á pappírinn rita þau í
„fyrstu línu“ stærð hins lóðrétta
hluta segulkraftsins, í aðra línu
lárétta hlutann og í þá þriðju
kemur fram áttavitastefna eða
misvísun segulnálarinnar. Mæli-
tækin og sívalningarnir með hin-
um ljósnæma pappír eru í sam-
bandi við þessa klukku, segir Þor
björn, og sýnir okkur allstóra
„pendúlklukku". Hún gefur Ijós-
merki á 5 mín. fresti og kemur
það inn á línuritið. Þessi klukka
verður að vera rétt og ekki má
skakka meiru en 1 einustu sek.
á tímaákvörðunum. Það verður
því að fylgjast nákvæmlega með
gangi hennar. Það er gert með því
að bera hana saman við merkja
sendingar frá sérstökum tíma-
merkjastöðvum í Ameríku og
Evrópu. Ég spurði Þorbjörn
hvort klukkan væri þá alveg rétt
núna. — Hún er 1% sekúndu á
undan, sagði hann og brosti. —
Einu sinni á dag
Ég hefi komið hingað einu
sinni á dag síðan segulmælinga-
stöðin tók til starfa, til þess að
skipta um línuritspappír og fram
kvæma mælingar. Þegar hann
hefur verið framkallaður, er unn
ið úr gögnunum. Það þarf að
finna meðaltal hvers hinna
þriggja þátta segulskraftsins á
hverjum klukktíma. Úr því verða
svo mynduð mánaðarmeðaltöl og
ársmeðaltöl. Ennfremur er mælt
hversu örar breytingar verða á
segulsviðinu á hverjum tíma.
þegar tekin eru meðaltöl yfir
lengri tíma jafnast út hinar öru
breytingar, sem stafa frá raf-
straumum í háloftunum. Það
kemur svo í ljós að nokkur var-
anleg breyting verður á segul-
sviðinu frá ári til árs.
— Og hvaðan stafa svo þær?
Líklega alla leið frá hinum
bráðna jarðkjarna, en þar á meg-
inhluti segulsviðsins upptök sín.
Þessi kjarni hefst um 3000 km.
undir yfirborði jarðar, þ.e.a.s.
I 10. KAPÍTULA Markúsarguð-
spjalls segir frá því, er maður
nokkur gekk fyrir Jesúm og bað
hann svars við þeirri spurningu,
sem lá honum þungt á hjarta:
„Góði meistari, hvað á eg að gera
til þess að eg erfi eilíft líf?“ Mað-
ur þessi hafði hlustað á marga
góða ræðumenn útlista lögmálið
og lagt sig í framkróka til þess að
halda allt það, sem í lögmálinu
var boðið. Hann var trúhneigður
maður, „kirkjurækinn", siða-
vandur. En ekkert hafði enn full-
nægt þrá hans að eignast full-
vissu þess, að líf hans væri i sam-
ræmi við vilja Guðs. Hann fann
sárt til þess, að Guð var ekki
raunverulegur í lífi hans. Trúin
var honum skoðun og siðaboð
trúarinnar hélt hann vegna þess
að þau voru honum leiðin til full-
vissunnar. En hann var jafnnær.
Hann fann sig ekki höndlaðan af
Guði, hann fann sig ekki hlut-
takandi í sigri Guðs yfir dauð-
anum. Hann var á valdi forgengi-
leikans, átti ekki það líf, sem
"kallast eilíft.
Þeir eiga tal saman, Jesús og
maður þessi. Jesús kemst brátt
að því, hvar er að finna orsökina
fyrir vanlíðan hans. Hann þráir
að eignast Guðs líf, sem öllu er
fórnandi fyrir, en í hugskoti hans
leynist andstaða gegn því að
fórna því, sem var honum lcær-
ast: auðæfin, því að hann var
maður auðugur. Jesús Segir við
hann: „Eins er þér vant. Far þú
og sel allar eigur þínar og gef fá-
efri mörk hans eru um miðja
vegu á milli jarðarmiðju og yfir-
borðs. Það er ekki vitað með
vissu hverjar eru orsakir þessa
hluta segulssviðsins, þó allt þyki
benda til að það séu rafstraum-
ar í hinum bráðna kjarna, og að
fnjög náið samband sé á milli seg-
ulsviðsins, rafstraumanna og
vökvastraumanna í jarðkjarnan-
um.
Ég treysti' mér ekki til þess
að fara nánar út í þetta. Spurn-
ingin sem ég hafði spurt Þor-
björn, var nú orðin það flók-
in fyrir mig, að við tókum aft-
ur að ræða um þessar mælingar
meira almenns eðlis.
ísland vantaði stöð
Þorbjörn sagði mér að slíkar
segulmagnsmælingastöðvar sem
þessi væru starfræktar í vel
flestum löndum heims.
Mælingarnar gefa vissa vísbend
ingu um breytingar þær sem
verða í iðrum jarðar. Hingað til
hefur verið tilfinnanlegur skort-
ur á segulmælingastöð hér á
landi, sagði Þorbjörn. ísland er
langt frá öðrum löndum og svæð-
ið umhverfis þa^hefur því ekki
verið rannsakað sem skyldi.
Þetta hefur verið þeim mun til-
finnanlegra sem ísland hefur þá
sérstöðu að liggja í því sem jarð-
eðlisfræðingar kalla Norðurljósa
belti. í því gætir mest áhrifa á
segulsviðið frá rafstraumum í há-
loftunum. Það er því hvergi of-
Frh. á bls. 10
tækum og munt þú fjársjóð eiga
á himni. Kom síðan og fylg mér“.
En maðurinn „varð dapur í
bragði við þau orð og fór burt
hryggur, því að hann átti miklar
eignir".
Samtalið hefur ekki verið
styttra en svo, að Jesú hefur gef-
izt tími til þess að kynnast mann-
inum og persónulegum vandamál
um hans. Og guðspjallið greinir
frá því, að Jesú hafi farið að
þykja vænt um manninn við þau
kynni. Hann hefur séð einlægrti
hans og hispursleysi, þrotlausa
leit hans að hinni einu sönnu
trú, sem honum tókst ekki að
finna, hvernig sem hann vandaði
líferni sitt, hversu smásmyglis-
lega sem hann hélt hvern staf-
krók lögmálsins. Af mikilli mann
þekkingu sér Jesús, hvað að er:
hann er ekki frjáls. Auðæfi hans
eru honum fjötur um fót. Hann
vill allt leggja á sig, aðeins eitt
er geymt í læstri kistu í afkima
hugskots hans: ástin til auðæf-
anna. Hann er með öðrum orð-
um ekki reiðubúinn til þess að
leggja út á djúpið í trú og frjáls-
ræði vonarinnar, sem treystir
Guði. Hann vill vera öruggur um
sjálfan sig. Vogun er honum
sjálfsmorð. Guð er ekki Guð fyr-
ir honum.
Sagan greinir ekki frá því,
hvort það voru heldur orð Jesú
um auðæfin, sem fældu hann fré
eða orð Jesú, er hann sagði: Fylg
þú mér. Það skiptir heldur ekki
máli. Þar sem persónugerð hans
var eins og hún var, þurfti hann
að losa sig við auðæfin til þess
að geta fylgt Jesú. Þau voru hon-
um „fleinn í holdinu". Þau freist-
uðu hans. Þau stóðu á milli hans
og Guðs. Hann fór burt dapur.
Vér vitum ekki hvort hryggðin
sú risti nógu djúpt til þess að
knýja hann til Jesú öðru sinni.
Guðspjöllin eru þögul.
Þessi fundur Jesú og manns
þessa vekur hrollkenndar tilfinn-
ingar í brjósti lærisveinanna. —
Jesús ræðir við þá og þeir spyrja:
Hver getur þá orðið hólpinn?
Hver getur fylgt þér? Hvernig «r
manninum það kleift að stíga
skref trúarinnar og gefa sig Guði
á vald? Svar Jesú er skorinort:
Sá sem tekur skrefið, tekur það
ekki sjálfur. Sá sem fylgir Jesú,
gerir það ekki í eigin mætti held-
ur fyrir Guðs kraft.
Það er erfitt að fylgja Jesú.
Það er manninum ofraun að
gjörast lærisveinn. Auðæfin eru
ekki ástæðan í sjálfu sér, þótt
þau eigi sinn þátt í þessu atviki,
sem hér er greint frá. Það væri
að snúa við öllu Nýja testament-
fólgna að hafna framfæri sínu og
iacJ i nsaf nfgas ge nui
lifa á ölmusugjöfum. Þessum
*úni Jesú reyndust auðæfin fjöt-
ur um fót, öðrum eitthvað annað.
Það sem gerir torfarna eftirfylgd
Jesú er nauðsyn þess, að læri-
sveinninn hafni sjálfum sér. Þótt
hann hafni auðæfum og öUum
heiminum, er hann engu nær,
hafni hann ekki sjálfum sér og
gangi vilja Guðs á hönd. Það er
alkunn auglýsingabrella sumra
trúflokka, að hrópa hátt um það,
hversu einfalt það sé að ganga
Guði á hönd, og að þá muni öll
vandamál leysast af sjálfu sér.
Hér talar Jesús um það, hversu
torvelt það sé að ganga inn í guðs
ríkið. Torvelt er það vegna þess,
að manninum er það óeiginlegt
að treysta Guði fremur en sjálf-
um sér. Fylgd Jesú er torfarin
leið. Sá.sem fara vill þá leið, geri
sér grein fyrir tormerkjunum,
„reikni út kostnaðinn“ Að fylgja
Guði er að fórna goði sjálfsdýrk-
unar, sjálfsþótta. Að vilja íylgja
Jesú er að vilja það, sem Guð vill,
að lifa baráttu eiginviljans við
Guðs vilja, að leita sífellt leið-
sagnar Guðs anda, að hlíia þeirri
leiðsögn, að segja með Páli: Sjálf
ur lifi eg ekki framar, heldur
lifir Kristur í mér.
Segulmælingastöðin við Leiruvog.
Þorbjörn Sigurgeirsson við þrjá segulsviðsmælanna.
(Ljósm. Mbl.: Gunnar Rúnar)