Morgunblaðið - 10.10.1957, Page 1
síðui*
dögunum á heimili hans í Washington. Ræddust þeir við í 4 klukkustundir, og bar m.a. á góma
ástandið við austanvert Miðjarðarhaf, afvopnuarmálin og önnur mikilvæg alþjóðavandamál.
Eftir fundinn sagði Gromyko, að viðræðurnar hefðu verið mjög gagnlegar, og þeir hefðu getað
haldið þeim áfram allan daginn. Myndin er tekin af ráðherrunum eftir fundinn. Gromyko er til
vinstri, en að baki þeim stendur Georgi Zarubin, sendiherra Rússa í Bandaríkjunum.
Eisenhower telur enga hættu
af rússneska gervihnettinum
Grjótkast í Os/ó
OSLÓ, 9. okt. — Sir Cecil Sugden
hershöfðingi, yfirmaður íer-
styrkja Atlantshafsbandalagsins
í Norður-Evrópu, varð fyrir að-
kasti og meiðslum í Kolsaas í
Osló í dag, þegar hópur manna
lét í ljós andúð sína á komu
þýzka hershöfðingjans Hans
Speidels til Noregs í dag.
Speidel, sem er yfirmaður herja
Atlantshafsbandalagsins í Mið-
Evrópu, kom í fyrstu opinberu
heimsókn sína til Noregs í dag.
Um 500 manns, aðallega verka-
menn og vélamenn á Fornebu-
flugvellinum, höfðu saínazt sam-
an og biðu eftir þýzka hershöfð-
ingjanum og föruneyti hans, sem
átti að koma kl. 10:45 eftir norsk-
um tíma. Margir báru mótmæla-
spjöíd með norskum, þýzkum og
enskum áletrunum, þar sem skor-
að var á hershöfðingjann að fara
heim aftur.
Hæfður í hnakkann
Sir Cecil Sugden og herráðsfor-
ingi hans, Cooper hershöfðingi,
komu rétt fyrir kl. 11. Mannfjöld-
inn hélt, að sir Cecii væri Speidel
hershöfðingi og byrjaði að hrópa
til hans og kasta grjóti að honum.
Einn steinninn hæfði sir Cecil í
hnakkann. Hann meiddist aðeins
lítillega, en var greinilega mjög
reiður, segja sjónarvottar.
Speidel hafði hins vegar lent á
Rygge-flugvellinum, um 60 km
fyrir sunnan Osló. Þar voru engir
herforingjar Atlantshafsbanda-
lagsins til að taka á moti honum,
og fór hann beint til höfuðborg-
arinnar í bifreið.
Mótmælafundur
Mótmælafundur gegn komu
Speidels til Noregs var auglýstur
kl. 6 í kvöld eftir norskum tíma
í hjarta Osló-borgar. Að fundm-
um standa norsku stúdentasam-
tökin og ýmis önnur félög, meðal
þeirra norski kommúnistaflokk-
urinn.
Um 3000 manns söfnuðust í
kvöld saman á torginu fyrir fram
I an háskólann í Osló til að taka
þátt í mótmælagöngu stúdenta-
samtakanna. Meðlimir 15 félags-
samtaka, bæði pólitískra og ópíli-
tískra, tóku þátt í göngunni, og
fór hún fram án nokkurra meiri
háttar árekstra við lögregluna.
SAN MARINO, 9. október. —
Samningaumleitanir milli ríkis-
stjórnanna tveggja í San Marino,
þeirrar, sem mynduð var eftir
að kommúnistar misstu meiri-
hluta á þingi og stjórnar kom-
múnista, sem neitaði að leggja
niður völd, standa enn yfir. —
Komin er á ró í dvergríkinu.
Helzta umræðuefni stjórnanna
er, hvenær halda skuli nýjar
kosningar. Kommúnistar vilja
nýjar kosningar 3. nóvember í
ár, en stjórn andkommúnista
vill, að kosningar verði haldnar
á tilsettum tíma árið 1959.
Faubus vill að svertiiigjabörn hætli
skólagöngu af frjálsum vilja
WASHINGTON, 9. okt. — Á
vikulegum fundi sínum við frétta
menn í dag sagði Eisenhower
Bandaríkjaforseti, að gervihnett-
ir Rússa fælu ekki í sér aukna
hernaðarhættu fyrir Bandaríkin.
Jafnframt óskaði hann rússnesk-
um vísindamönnum til hamingju
með hina velheppnuðu tilraun
sína og tilkynnti, að Bandaríkja-
menn mundu senda fyrsta gervi-
hnött sinn upp í háloftin í des-
ember.
Varðandi alþjóðlegt eftirlit
með gervihnöttum sagði forset-
inn, að ummæli Dulles utanrík-
isráðherra hefðu verið misskilin
og rangtúlkuð, þegar hann gerði
rússneska gervihnöttinn að um-
talsefni á þriðjudag og ræddi til-
lögu Rússa um sameiginlegt eft-
irlit Rússa og Bandaríkjamanna
með framleiðslu og notkun gervi
hnatta. Margir hefðu túlkað um-
mæli utanríkisráðherrans á þann
veg, að Bandaríkin gætu hugsað
sér að semja um eftirlit með
gervihnöttum án tillits til afvopn
unarvandamálsins. í þessu sam-
bandi las Eisenhower upp á ný
þær yfirlýsingar, sem utanríkis-
ráðuneytið birti á þriðjudaginn.
Er þar lögð áherzla á, að í af-
vopnunartillögum Vesturveld-
anna sé ákvæði um, að tekið verði
til athugunar vandamál gervi-
hnattanna á alþjóðlegum grund-
velli, en ekki aðeins samið um
það milli tveggja ríkja.
Enginn mælikvarði á
rannsóknir Bandaríkjanna
Forsetinn sagði ennfremur, að
allt sem hugsanlegt væri að flýtt
gæti fyrir þróun rannsókna á eld-
flaugum og gervihnöttum væri
nú gert í Bandaríkjunum. Hins
vegar hefði honum ekki verið það
á móti skapi, að Bandaríkjamenn
væru komnir enn lengra en raun
bæri vitni á þessum vettvangi,
og þá einkum að því er varðaði
þekkingu manna á mótstöðu ým-
issa málma gegn hitanum úti í
geimnum.
Eisenhower benti á, að Banda-
ríkin rannsaki vandamálin í sam-
bandi við fjarðstýrð skeyti og
gervihnetti hvort fyrir sig, svo
að ekki verði tafið fyrir skjótri
þróun fjarstýrðu eldflauganna.
Þegar um gervihnettina ræðir, er
ekki hægt að líta á árangurinn af
þeim rannsóknum sem mæli-
kvarða á, hve langt við erum
komnir í rannsóknum okkar á
geimförum og ferðum milli
hnatta, sagði forsetinn. Við hóf-
um ekki rannsóknir okkar á
gervihnöttunum með það fyrir
augum að halda uppi einhvers
konar kapphlaupi við aðrar þjóð-
ir, heldur sem lið í alþjóðlegum
rannsóknum jarðeðlisfræðiársins.
Hefur ekkert njósnagildi
Þegar Eisenhower var spurður,
hvort bandaríski flugherinn væri
að hans áliti orðinn úreltur, svar-
aði hann með afdráttarlausri
neitun. Hann kvað rússneska
SIDNEY, Ástralíu, 9. okt. — Tutt-
ugu infæddir menn á Nýju
Guienu hafa fengið hræðilegan
sjúkdóm, Kuru, sem helzt mætti
nefna hlútursýki á íslenzku. Þeir
eru að hlæja sig í hel á sjúkra-
húsinu í Okana á austanverðri
Nýju Guineu.
Sir MarFarlane Burnet, frægur
læknir í Melbourne, segir, að
þessi sjúkdómur sé sennilega arf-
gengur, en mjög fágætur Hann
leiðir nær undantekningarlaust
ti 1 dauða. Hingað til hafa 70 inn-
fæddir menn tekið sóttina
Einn af starfsmönnum sjúkra-
hússins í Okana sagði: „Veggir
gervihnöttinn vart hafa nokkurt
verðmæti sem rannsóknartæki á
öðrum hlutum jarðarinnar, og
mundi þess áreiðanlega langt að
bíða, að hægt yrði að nota hann
í því augnamiði.
Þegar lögð voru fyrir forsetann
segja bandarískir
vísindamenn
MOSKVU, 9. okt. — Rússneskir
vísindamenn reikna með því, að
gervihnöttur þeirra muni haldast
á lofti enn um langt skeið. Sam-
kvæmt fréttum Moskvu-útvarps-
ins styttist hringferðatími hans
um 3 sekúndur á dag. Klukkan
2 e.h. í dag hafði hnötturinn far-
ið um 3 milljónir kílómetra og
farið sjötugasta hring sinn um-
hverfis jörðina.
Frá rannsóknarturni í St.
Petrozavods í norðanverðu Rúss-
sjúkrahússins nötra öðru hverju
af brjálæðiskenndum hlátursrok-
um. Nokkrir hinna 70 sjúklinga
eru þegar að dauða komnir. Þeir
eru algjörlega úttaugðir af hiátri.
Brátt munu þeir lamast alger-
lega og deyja“.
Starfsmaðurinn kvaðst hafa
frétt, að eitt þorp í fjöllunum
væri fullt af hlæjandi konum og
körlum. Nú er verið að gera sér-
staka rannsókn á upptökum cg
útbreiðslu þessa óvenjulega
sjúkdóms. Sjúkdómunnn var
fyrst „uppgösvðaur" af bandarísk
um lækni, dr. Carleton Gajdusek,
sem nýlega dvaldist 15 mánuði í
Ástralíu.
LITTLE ROCK, 9. okt. — Orval
Faubus fylkisstjóri í Arkansas
sagði í dag, að hann sæi enga
aðra lausn á ástandinu, sem skap
landi var fylgzt með hnettir.um
aðfaranótt miðvikudags, og var i
þá hægt að ákveða fjarlægð hans
með tilliti til stjarnanna án nokk-
urra erfiðleika. Hálfri mínútu
eftir að hnötturinn hvarf yfir
sjóndeildarhringinn sást hluti úr
eldflauginni, sem flutti hnöttinn
út í geiminn, en þessi hluti fylgir
hnettinum eftir.
Rannsóknir Bandaríkjamanna
Vísindamenn bandaríska flot-
ans hafa lýst því yfir, að rann-
sóknir þeirra á gervihnettinum
séu ekki í samræmi við þær nið-
urstöður sem vísindamenn ann-
arra landa hafa komizt að, íefni-
lega að hnötturinn sé að hægja
á sér og nálgast jörðina. Þegar
hnötturinn fór yfir Washington
kl. 11 f.h. i dag, heyrðust greini-
leg merki frá honum. Útreikning-
ar, sem gerðir voru klukkustund
síðar, sýndu að hnötturinn fór
umhverfis jörðina á nákvæmlega
96 mínútum, eða sama tíma og
hann hefur farið þessa vegalengd
síðan hann hóf hringferðir sínar
á föstudaginn. Aðrir bandariskir
vísindamenn hafa og látið í Ijós
þá skoðun, að hnötturinn sé ekki
að nálgast jörðina. Hins vegar
hafa nokkrir þeirra bent á, að
hnötturinn sé ekki alltaf jafn
nærri jörðinni, og gæti það bent
til þess, að hann sé annað hvort
að breyta stefnu við og við eða
„lækka flugið“.
azt liefði eftir að blökkumanna-
börn l'engu aðgang að skólanum
í Litfle Rock, en þá, að svert-
ingjabörnin hætti af fúsum og
frjálsum vilja að sækja skólann.
Faubus lét þessi orð falla á
fundi við blaðamenn. Hann kvað
það samt ekki útilokað að hægt
væri að finna einhverja málamiðl
un, en þessa stundina virtist ekki
önnur Jausn fyrir hendi. Þegar
hann var spurður, hvað hann
hefði haft í huga, þegar hann
sagði fyrir nokkru, að nú væri
þörf á aflsöppunartíma í Little
Rock, kvað hann óróann í borg-
inni verða að fá tíma til að fjara
út, svo fólk fengi tíma til að
melta þá hluti, sem reknir hafa
verið niður í hálsinn á þeim
með byssustingjum.
Bandarísk
geimflaug
BIRMIN GHAM, Alabama, 9. okt.
— Á næstu vikum munu Banda-
ríkjamenn senda eldflaug 6.500
kílómetra út í geiminn, segir
bandaríska blaðið „Birmingham
News“ í dag. Eldflauginni verð-
ur skotið frá eynni Eniwetok á
Kyrrahafi. Blaðið skýrir frá því,
að hér sé um að ræða 4ra-þrepa
eldflaug, og verður flogið 30 kíló-
metra í loft upp í sérstökum þar-
tilgerðum loftbelg. Þaðan verður
henni síðan skotið út í geiminn
með 27.000 kílómetra hraða á
klukkustund.
NEW YORK, 9. okt. — í dag
krafðist fulltrúi Indlands á Alis-
herjarþingi S.Þ. þess, að Kasmír
málið yrði strikað út af dagskrá
Öryggisráðsins.
Þeir eru að hlæja sig í hel
Framh. á bls. 2
Gervihnötturiim nálgast ekki jörðina