Morgunblaðið - 10.10.1957, Blaðsíða 19
Fimmtudagur 10. okt. 1957
UORGVNBT4ÐIÐ
19
tslenzka sundfólkið iogðist I
Asíuflenzn og gut litið keppt
— en þeir sem kepptu náðu góðum árangri'
HÓPUR ísl. sundfólks fór um s.l. mánaðarmót til Rostock í A-Þýzka-
landi í keppnisferð. Var sunddeild Ármanns boðið í gagnkvæmt
boð fyrir heimsókn þýzkra sundmanna hingað, og fóru 3 Ármenn-
ingar ásamt Guðm. Gíslasyni ÍR og Helga Sigurðssyni Ægi. Lítið
varð úr keppni, en gott sem það var, því sundfólkið lagðíst flest
í Asíuinflúenzu og varð af keppninni.
Stórmót
Flokkurinn er kominn heim,
nema tveir og hafði blaðið tal af
Pétri Kristjánssyni í gær. Skýrði
hann svo frá m.a.:
Mótið sem við vorum boðin til
var í Rostock og þangað boðið
fjölda útlendinga. Voru keppend-
ur hátt á annað hundrað eða tvö
hundruð og þarna voru flokk-
ar m.a. frá Svíþjóð, Finnlandi og
Póllandi. Mótið fór fram í nýrri
og stórglæsilegri sundhöll sem
Fétur — 2 í 100 m.
félagið Empor í Rostock er skrif-
að fyrir, en hún er ein sú glæsi-
legasta sem ég hefi séð. Rúmar
hún um 4 þús. manns í sæti og
laugin sjálf er unaðsleg og glæsi-
leg. Áhorfendasvæðin voru sneisa
full.
Góður árangur
Við mættum öll í sundhöllinni
á laugardag og ég keppti í 100
m skriðsundi. Sigurvegari varð
A. Salamon Póllandi á 58,3, en
ég varð annar á 59,1 sek. Þriðji
varð Belczyk Póllandi á 59,4 sek.
og 5. Egil Nylenna Noregi 59,6.
Alls voru keppendur 13.
Guðmundur Gísiason keppti í
100 m baksundi og fór vel af
stað. Keppnin var hörð en hann
var greiniiega annar við 75 m
markið. Þá skeði það að af slysni
kveikti einn starfsmanna sund-
hallarinnar á Ijósum í botni laug-
arinnar, en það þýðir að sund-
menn eigi að hætta — keppnin
sé ógild vegna einhvers galla.
Sumir hættu en tveir héldu á-
fram m.a. Guðm. En sundið var
dæmt ógilt í heild.
Við tókum og þátt í 4x100 m
f jórsundi þennan dag. Guðmund
ur synti baksundið á 1:11,8 mín
og skilaði 7 m forskoti í okkar
riðil sem var veikari riðillinn.
Einar Kristinsson synti bringu
sundið á 1:20,0 og tapaði öllu for-
skotinu. Pétur synti * flugsundið
á 1:13,1 og Helgi skriðsundið á
1:03,3. Heildartími okkar var
4:47,8 mín og við urðum nr. 5.
Sigurvegarar urðu Pólverjar á
4:37,3 sveit Berlinar önnur á
sama tíma, sænsk sveit þriðja á
4:42,5 4. Empor Rostock 4:46,1,
ísland nr. 5, Finnland nr. 6
4:55,9. Alis voru sveitirnar 8
talsins.
Asiulnfluenza
Aðfaranótt sunnudagsins veikt
umst við öll aí Asiuinfluenzu
nema fararstjórinn ögmundur
Guðmundsson og Helgi Sigurðs-
son. Við höfðum flest um 39 stiga
hita er við vöknuðum nema
Ágústa Þorsteinsdóttir sem var
hressari. Hún fór til sundhallar-
innar ásamt Helga. Þar skoðaði
læknir hana og bannaði henni
þátttöku enda var hiti hennar
þá 38,4.
Helgi synti því einn þennan
dag, keppti í 400 m skriðsundi
og varð annar á 4:57,3 mín. Sig-
urvegari var Klaus Göhlich,
Berlin á 4:52,7 3. Egil Nylenna
Noregi á 5:02,5. AIIs voru kepp-
endur 10.
Flokkurinn skiptist
Það veiktust sem sagt allir í
flokknum nema Helgi Sigurðsson
og fararstjórinn Ögmundur Guð-
mundsson. Sagði Pétur að þau
hefðu öll legið allþjáð þennan
dag (sunnudaginn). Á mánudags
morgun voru þau enn með háan
hita og Guðmundur veikastur
með yfir 40 stig. Þá var ákveðið
að allir tækju ferjuna til Gedser
og héldu sem fyrst heim, nema
Guðmundur sem ekki var ferða-
fær og varð fararstjórinn ög-
mundur, eftir hjá honum. Ætluðu
þeir að taka ferjuna á þriðju-
dagskvöld og munu þeir hafa
gert það, enda var Guðmundur
að hressast á mánudagskvöld er
hin fóru.
Pétur sagði að það hefði verið
slæmt að Ágústa og Guðmundur
gátu ekki keppt. Skriðsund
kvenna vannst á 1:09,4, lakari
tíma en met Ágústu og baksundið
vannst á 1:10,0 og annar maður
hafði 1:13,8. Má ætla að Ágústa
hefði unnið eða orðið nr. 2 í
versta falli og Guðm. hefði örugg
lega átt að ná 2. sæti. Með slíka
útkomu hefði ferðin verið stór-
glæsileg.
Vlnna
Annasl hreingerningar
GUNNAR JÓNSSON
Sími 23825.
—- Handritamálið
Framh. af bls. 11
Dönsk blöð segja, að hann sé
aðallega meðal lýðháskólanna og
mun það mjög að þakka starfi
Bjarna Gíslasonar. En talsvert
fleiri fylla þann flokk, og fer
fjölgandi, það er mér vel kunn-
ugt. Er þar mest um vert, að
meiri hluti danskra ráðherra
styður þennan vinaflokk betur en
undanfarið, og einkum þá menn,
sem skrifa — í vorn stað — í
dönsk blöð. Þeir fá stundum ónot
hjá kunningjum sínum — en
þakkarbréf frá íslandi eru þeim
þá kærkomin. Það er engin ágizk
un mín. Það er heldur ekki vansa
laust fyrir ísland, að eina Kaup-
mannahafnardagblaðið, sem allt-
af hefir stutt að heimflutningi
handritanna, síðan farið var að
tala um þau, Kristilegt Dagblað,
skuli vera ófáanlegt í bókabúð-
um Reykjavikur, þótt mörg ðnn-
ur dönsk blöð séu þar á boðstól-
um. í hvert skipti, sem ég kem
til Hafnar, tel ég mér skylt að
taka hlýlega í hönd ritstjórans,
vonandi gjöra það fleiri landar
minir. Hann á það _ skilið, og
gleymir því ekki. En íslendingar
þurfa að gjöra meira en þakka
einstökum Dönum. Sögufróðir og
pennafærir menn þurfa að skrifa
í dönsk blöð og svara árásar-
greinum, og helzt ættu einhverjir
að skipa sér við hlið Bjarna
Gíslasonar, og leitast við að
flytja erindi um málið í sem
flestum æskulýðsfélögum Dana,
þar sem engin er skilnaðargremja
— og í stjórnmálafélögum, þar
sem sennilega verður nú reynt —
af öðrum — að vekja þá gremju.
Hefði Bjarni átt 4 eða 5 slíka
starfsbræður undanfarin ár, væru
handritin líklega komin heim.
Sigurbjörn Á. Gíslason.
I. O. G. T.
St. l'revja nr. 218
Fundur í kvöld kl. 8,30. Félag
ar, f jölmennið. — Æ.t.
Helgi — 2 í 400 m.
Æfingarskiiyrðin
En minnisstæð verður ferðin,
sagði Pétur, eigi að síður Mót-
tökurnar voru góðar og laugin
ógleymanleg. Þessa sundlaug hafa
sundmenn út af fyrir sig og er
hún ekki opin almenningi nema
miðvikudaga og laugardaga. Hví-
lík skilyrði miðað við okkur sem
höfum aðgang að okkar laug 6
tíma á viku.
Sælan eystra
Pétur sagði að ekki ríkti vel-
sæld í Rostock í A-Þýzkalandi,
Þegar þau lágu veik sótti að
þeim ákafur þorsti en vatn var
ekki til — af því er lítið sem
ekkert vegna eitrunar í því.
Mjólk er skömmtuð og fengu
þau sáran skammt enda eru
Islendingar vanir mikilli
mjólk. Gosdrykkir eru engir
til. Svona er nú sælan þar
eystra.
Félagslíl
Sunddeild K.R.
Sundæfingar eru byrjaðar og
verða í vetur í Sundhöll Reykja
víkur eins og hér segir:
Börn: Þriðjudaga kl. 7,00—
7,40 e.h. — Fimmtudaga kl. 7,00
—7,40 e.h.
Fullorðnir: Þriðjudaga kl. 7,30
—8,30 e.h. Fimmtudaga 10 7,30—
8,30 e.h. Föstudaga kl. 7,45—8,30
eftir hádegi.
Sundknaltleikur: Mánudaga kl.
9,50—10,40 e.h. Miðvikudaga kl.
9,50—10,40 e.h.
KR-ingar! Mætið vel á æfingar.
—— Stjórnin.
St. Dröfn nr. 55
Fundur í kvöld kl. 8,30. Kosning
embættismanna. — Æ.t.
St. Andvari nr. 265
Fundur í kvöld kl. 8,30 Endur-
upptaka, inntaka. Hagnefnd sér
um kappræður. Hlustað á leikþátt
í útvarpsdagskrá. Fjölsækið.
— Æ.t.
Þingstúka Reykjavíkur
Fundur annað kvöld kl. 8,30 að
Fríkirkjuvegi 11. — Fundarefni:
1. Stigveiting.
2. Einar Hannesson: Ferða-
saga á þing norrænna ung-
templara.
3. Séra Árelíus Níelsson: Und-
irbúningur að stofnun sam-
bands ungtemplara.
4. önnur mál.
Kaffi eftir fund. Félagar, fjöl-
Sunddeildir K.R. og Ármanns
Skemmtifundur verður haldinn
föstudaginn 11. október kl. 9 í K.
R.-húsinu. — Fjölmennið.
Skemmtinefndirnar.
Ægiringar!
Sund- og sundknattleiksdeildin
halda aðalfund n.k. mánudag kl.
8 e.h. að Grundarstíg 2A (skrif-
stofa ISÍ II. hæð). — Stjórnirnar.
Þróttur — Handknattlciksdeild
Æfing hjá Mfl., 1. fl. og 2. fl.
karla, í kvöld kl. 8,30 að Háloga-
landi. — Stjórnin.
ÁRMANN
Æfingar í kvöld í íþróttahúsinu.
Stóri salur: kl. 7 1. fl. kvenna. Kl.
8 2. fl. kv; kl. 9 íslenzk glíma.
Mætið vel og stundvíslega.
— Stjórnin.
Handknattleiksdeili' Ármanns
Mætið öll á æfingu í kvöld. —
Kl. 6 3. fl. karla; kl. 6,50 kvenna-
mennið og komið með nýja stig-1 flokkur; kl. 7,40 meistara-, 1. og
félaga. — Þingtemplar. I 2. flokkur karla. — Stjórnin.
Ný tveggju herb. íbúð
við Kleppsveg, til sölu. — Nánari upplýsingar gefur:
Málflutningsskrifstofa Einars B. Guðmundssonar,
Guðl. Þoriákssonar og Guðrn. Péturssonar, Aðalstræti 6,
(Morgunblaðshúsinu) Símar 1-20-02, 1-32-02 og 1-36-02
Hafnarfjörður
Dansskóli Hermanns Ragnars
tekur til starfa fimmtud. 17. okt
í GT-húsinu, Hafnarfirði.
Kennt verður: Barnadansar m.
a. dansar sem ekki hafa verið
kenndir hér áður. Gamlir og ný
ir dansar m.a. Mambo cha-cha-
cha og Calypso. — Framhalds
flokkar fyrir þau böm sem
voru í fyrra. Byrjendaflokkar
fyrir börn og unglingaflolckur í
„Lalin-American“ dönsum.
Innritun og uppl. í síma 50363 frá kl. 9—12 f.h. daglega
Hjartans þakkir til allra þeirra, nær og fjær, sem
glöddu okkur á 50. hjúskaparafmælinu 28. september,
með gjöfum, blómum, skeytum, himsóknum og hlýjum
handtökum. — Guð blessi ykkur öll.
Ingibjörg Björnsdóttir, Þorgeir Jónsson
StykkishólmL
Jarðarför konunnar minnar
GUÐRÚNAR HÁKONARDÓTTUR
fer fram laugardaginn 12. okt. og hefst með húskveðju
að Bakkastíg 1, kl. 11 árd. — Jarðsett verður að Hvals-
nesi kl. 2 sama dag.
Magnús Þórarinsson.
Faðir okkar og afi
EINAR JÓNSSON
sjómaður, Njálsgötu 69, verður jarðsunginn frá Frí-
kirkjunni föstudaginn 11. okt. kl. 2. — Húskveðja fer
fram frá heimili hins látna kl. 1. — Blóm eru vinsam-
legast afþökkuð. — Þeir, sem vildu minnast hans láti
Dvalarheimili aldraðra sjómanna njóta þess. — Útvarpað
verður frá kirkjunni.
Sigurður Einarsson, Vigberg Einarsson,
Valur Einarsson, Diana Einarsdóttir
og barnabörn.
Útför konu minnar
SIGRÍÐAR KORNELÍUSDÓTTUR
fer fram frá Dómkirkjunni föstudaginn 11. október kl.
2,30. — Athöfnin hefst með bæn á heimili hinnar látnu,
Bárugötu 11, kl. 1,45.
Fyrir mína hönd og dætra okkar
Óskar Sigurðsson.