Morgunblaðið - 10.10.1957, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 10.10.1957, Blaðsíða 14
14 MORCVTSBLAÐIÐ Fimmtudagur 10. okt. 1957 Stúlka eða unglingspiltur óskast til afgreiðslustarfa í kjöt- búðina Langholtsvegi 17. — Upplýsingar í Slang- arholti 24, efri hæð, eftir kl. 8, sími 14598. Ungiingur piltur eða stúlka, óskast til sendiferða. TRYGGINGARSTOFNUN RÍKISINS Laugavegi 114 Vélbátar Til sölu eru 2 vélbátar, annar sem nýr 70 smálesta, hinn 39 smál. 10 ára með ónýtri aflvél, en að öðru leyti í góðu standi. Bát þessum getur fylgt ný 235 ha. Mann- heim-dieselvél ef óskað er. — Nánari uppl. veita þeir Þorgils Ingvarsson og Björn Ólafs bankafulltrúar í Landsbankanum í Reykjavík. LANDSBANKI ÍSLANDS Þorgerður minningarorð ÞAÐ var blíða og alúð, sem var aðalsmerki á skapferli hennar. Alúð í starfi, alúð við vini sína og alúð í frændrækni. Ævi hennar var að vísu stutt, en henni var vissulega vel varið, því hvarvetna flutti hún með sér kærleika, umhyggju og hjálp- semi. Þorgerður Sigfúsdóttir, eða Gerða eins og hún oftast var kölluð, var fædd 24. marz 1925, dóttir Sigfúsar skipstjóra á Isa- firði, síðar kaupmanns í Reykja- vík, Guðfinnssonar Einarssonar Hálfdánssonar á Hvítanesi og konu hans Maríu Kristjánsdóttur Sveinssonar, sem lengst af bjó að Bæjum á Snæfjallaströnd. Hún var því af hreinu vestfirzku bergi brotin í báðar ættir. Foreldrar hennar eignuðust 8 börn og kom- ust 7 til fullorðinsára. Hún átti því láni að fagna að eiga dá- samlegt æskuheimili, enda mun vandfundin betri og samstilltari fjölskylda en þessi. Þetta heimili hefur alla tlð verið þekkt fyrir gestrisni og ástríki og fór alúð Gerðu heitinnar vel í þessu and- rúmslofti. Sigfúsdóttir Bernskuárum sínum eyddi hún á ísafirði, þar sem hún gekk í barna- og gagnfræðaskóla, enda voru bernskustöðvarnar henni alla tíð mjög kærar. Til Reykja- víkur fluttist hún með foreldrum sínum 16 ára gömul. Árið 1946 fór hún í ársdvöl til Danmerkur og stundaði þar húsmæðranám. Eftir heimkomuna vann hún verzlunarstörf, en hugur hennar mun þó hafa hneigzt til annarra starfa. Hún hóf nám í Ljósrhæðra skóla íslands haustið 1949 og lauk þaðan prófi haustið 1950. Síðan starfaði hún sem ljósmóðir á fæðingardeild Landsspítalans í 2 ár. Við erum því margar mæð- urnar, sem í dag í huganum send- um Gerðu þakklæti okkar og Ijósubarnanna fyrir kunnáttu hennar og hjálpsemi. Árið 1954 fór hún til Noregs og Danmerkur til aukins hjúkrunarnáms. Síðast- liðin tvö ár starfaði hún öðru hverju við hjúkrunarstörf og var við þau er hún veiktist fyrir mán- uði síðan. Auk góðs uppeldis var Gerða því vel menntuð og starf- söm stúlka. Hún átti allt það til sem nýtan þjóðfélagsþegn, góða eiginkonu og móður má prýða. Hún giftist 19. nóv. 1955 Guð- mundi Þorlákssyni, prentara. Þau eignuðust eina dóttur, Guðlaugu, sem nú er rétt eins árs gömul. Þau höfðu því stofnsett heimili fyrir aðeins tveimur árum þegar hið sviplega fráfall hennar bar að. Ég votta eiginmanni, foreldr- um og öðrum ástvinum innileg- ustu samúð mína og minna um leið og ég kveð þessa ljúfu frænku mína. „Þú, sem að hér harmar það ljós, sem var tekið Smekkvísi í frágangi og fegurð í útliti, ásamt einfaldleik í meðförum gerir Parker 61 hríf- frá þér, trúðu því, kærleikans kraftur kveikir það aftur“. Halldóra Einarsdóttir. ÞORGERÐUR er dáin. Mér varð hverft við er ég heyrði helfregn- ina. Þó hafði ég vitað að hún lá mikið veik i sjúkrahúsi, en að svo stutt væri til vistaskiptanna fyrir henni, kom mér á óvart. „Þeir sem guðirnir elska deyja ungir". Ég kynntist Þorgerði sálugu í æsku okkar, en lítið þó. Næst lágu leiðir okkar saman er við störfuðum báðar á Fæðingar- deild Landsspítalans, og breytt- ust þá kynni okkar í vináttu, sem aldrei bar skugga á, en varð til þess að við fórum saman til út- landa. Eftir heimkomuna lágu leiðirnar enn saman, við hjúkr- unarstörf, og var svo þar til hún veiktist. Það var ekki hægt annað en þykja vænt um hana. Betri vin- konu gat enginn átt eða eignazt. Hún vildi gjöra og gjörði allt sem hún var beðin um, til hjálpar hverjum sem þess þurfti með og í hennar valdi stóð. Hún mátti aldrei aumt sjá, án þess að bæta ástandið hverju sinni. Kunningi okkar beggja sagði við mig, er við töluðum saman um fráfall hennar. „Mér fannst hún vera engill“. Þessi fáu orð eiga að vera vin- arkveðja, virðing og hinzta þakk- læti mitt til hennar. S. M. ÉG átti því láni að fagna að hafa kynni af Þorgerði um 10 ára skeið og bar aldrei skugga á þau kynni, enda hefði slíkt verið næsta ólíklegt svo óvenjulega dagfarsgóð og heilsteypt sem hún var. Það er vissulega erfitt fyrir ástvini hennar að sætta sig við að húi, skuli vera hrifin svo andi gjöf! Þessi algjörlega nýi penni fyllist bleki á aðeins 10 sekúndum með háræðakerfi eingöngu! Ennfremur áfyllingarskaptið er hreint að lokinni áfyllingu ... hreinsar sig sjálft. Hinn fagri Parker 61 er vissulega til- valinn fyrir yður til gjafa handa þeim sem þér viljið bezt. Eini sjálfbJekungurinn með sjálffyllingu ... án nokkurra hreyfihluta Verð: 61 Heirloom penni: Kr. 866,00. Settið: Kr. 1260,00 61 Heritage penni: Kr. 787,00. Settið: Kr. 1102,00 Einkaumboðsmaður: Sigurður H. Egilsson, P. O. Box 283 Reykjavík. Viðgerðir annast: Gleraugnaverzlun Ingólfs Gíslasonar, Skólavörðustíg 5, Reykjavík. CP3-3® .skyndilega á brott af s.ionarsvið- mu á blómaskeiði lífsins, þegar i-amtíðin virtist brosa við henni og þau hjónin höfðu búið sér glæsilegt heimili og eignazt elsku lega litla dóttur, sem nú er á öðru ári. En enginn veit hvenær kallið kemur og þá er gott að vera vel undir það búinn, og geta kvatt með hreina samvizku. Og það gat Þorgerður heitin. Með breytni sinni, einlægni og hjarta- hlýju ávann hún sér traust og bylli allra sem kynntust henni. Það verða því mörgum þung spor að kveðja hana í hinzta sinni. En bjartar og fagrar minningar munu vera þeim, sem sárast eiga um að binda, mikil huggun og ityrkur í sorg þeirra. Hvíldu í friði. Mágur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.