Morgunblaðið - 25.10.1957, Blaðsíða 11
Föstudagur 25. október 1957
MORClIlSnT 4ÐIÐ
11
Sextugur í dag:
Pétur Björnsson
kaupmaður og erindreki
PÉTUR BJÖRNSSON er íæddur
25. okt. 1897 í Brekkukoti við
Stóru-Akra í Blönduhlíð. Bjuggu
þar þá foreldrar hans, Stefanía
Jóhannesdóttir og Björn Guð-
mundsson. Höfðu þau flutzt þang
að frá Borgarey í Vallhólmi, en
voru komin í Hólminn utan af
Reykjaströnd, frá I/.gveldarstöð-
um. Þar byrjuðu þau búskap
1891, en þá giftust þati. Faðir
Björns bjó um hríð á Ingveldar-
stóðum, þangað kominn vestan
frá Hafstöðum, en Guðmundur
var Gunnarsson, hreppstjóra á
Skíðastöðum Gunnarssonar,
og voru þau systkini mörg og
tápmikil, en móðir Björns var
Valgerður Ólafsdóttir frá Mal-
landi. Skíðastaðamenn eru at-
hafna- og dugnaðarforkar, enda
hafa margir þeirra komizt í áln-
ir. Þegar Björn Guðmndsson var
ungur maður á Reykjaströnd
inni, bjó á Reykjum á Reykja-
Strönd Páll Halldórsson, fluttur
þangað úr Ólafsfirði, og kona
hans Jónanna Jónsdóttir. Var
Páll seinni maður hennar, en af
fyrra hjónabandi hennar var
Stefanía. Jóhannes Jóhannesson,
faðir hennar, drukknaði vorið
1875, og var Stefanía þá tveggja
ára. Sá Jóhannes var Skagfirð-
ingur, fæddur í Kjartansstaða-
koti 1844, sonur Jóhannesar Pét-
urssonar frá Geirmundarstöðum,
bróður Jóhanns hreppstjóra á
Brúnastöðum. — Þau Björn og
Stefanía urðu eftir, þegar móðir
hennar og stjúpfaðir með börn-
um sínum hurfu af landi brott
vestur um haf. — Ekki undu
ungu hjónin lengi í Brekkukoti,
enda er það rýrðarkot og nú fyr-
ir nokkru komið í eyði. Brugðu
þau búi 1898, og gerðist þá Björn
ráðsmaður á Bakka í Viðvíkur-
sveit, en kona hans var þar með
börnin í húsmennsku. Frá Bakka
lá leiðin út að Á í Unadal, og
bjuggu þau hjón þar 1906—1915,
Voru þeir feðgar oft kenndir við
Á eftir það. Árið 1915 fluttizt
fjölskyldan til Siglufjarðar, og
síðan hefir Pétur átt heima þar.
Nauðugur fór hann frá Á, því að
hann hafði dreymt stóra drauma
um góðbúskap, og harmaði hann
um sinn flutninginn á mölina,
en þar kom, að það greri kring-
um hann á Siglufjarðareyri, eink
um í óeiginlegri merkingu.
Pétur Björnsson er einn af
beztu borgurum Siglufjarðar og
einn þeirra manna, sem sett hef-
ir svip á bæinn. Framan af
fékkst Pétur við allskonar vinnu,
og fyrsta félagsmálastarf hans
var í verkamannafélagi á Siglu-
firði. Var hann í Stjórn þess í 7
ár.
Árið 1926 hóf Pétur verzlun í
bænum og rekur hana enn. Hefir
hann alltaf verzlað með nauð-
synjavörur. — Helztu hugðar-
efni hans hafa verið bindindis-
mál, kirkjumál og bókasafnið, þó
að fleira hafi hann látið til sín
taka, eins cg búskap um skeið.
Segist Pétri svo frá, að sér hafi
fundizt hann skulda Skagfirð-
ingum sínum eitthvert átak. Ár-
ið 1944 átti hann þess kost að
eignast jörð og bú í Skagafirði,
og rak hann búið í nokkur ár,
eða meðan börn hans voru að
komast á legg. Húsaði hann jörð
ina vel og gerði miklar jarðabæt
ur. Þóttist nú Pétur að þessu
búnu hafa greitt Skagafirði
skuldina, er honum fannst hvíla
á sér, áður en hann gerði Garð-
inn frægan.
Mörg trúnaðarstörf hefir Pét-
ur Björnsson rækt fyrir Siglu-
fjarðarkaupstað. Bæjarfulltrúi
var hann eitt kjörtímabil, í nið-
urjöfnunarnefnd um hríð, í
stjórn Búnaðarfélags Siglufjarð-
ar um 20 ár og í stjórn Bóka-
safns bæjarin* hefir hann verið
frá 1938, og hefir safnið tekið
miklum stakkaskiptum á þessum
árum. Telur það nú um 12 þús-
undir binda. Á enginn maður '
meiri þátt í vexti safnsins en Pét-
ur. Þá hefir Péijur verið í sókn-
arnefnd um 20 ár og jafnan látið
sér annt um kirkju sína.
Má með sanni segja, að hann
hafi verið gæfumaður. Góðir og
göfugir foreldrar leiddu hann
ungan á farsældarveg. Góð at-
gerviskona var honum gefin og
mannvænleg börn og honum hef-
ir auðnast að vinna að fram-
gangi góðra mála.
„Guð í hjarta, Guð í stafni
gefur fararheill“.
Síðast en ekki sízt er að nefna
starfsemi afmælisbarnsins á sviði
bindindismála. Pétur gerðiíit
templar árið 1926, gekk í stúk-
una „Framsókn“, og hefir verið
stoð hennar og stytta síðan, á-
samt konu sinni, Þóru Jónsdótt-
ur frá Yztabæ. Þau giftust 2. júní
1928, og segir Pétur það konu
sinni ag þakka, hvað hann hafi
unnið að bindindismálum og öðr
um góðum málum. Frú Þóra hef-
ir lengi verið gæzlúmaður barna
stúkunnar „Eyrarrósin“ með á-
gætum, og sex ár var hún stór-
gæzlumaður unglingastarfs í
Stórstúku Islands, og gegndi hún
því starfi með framúrskarandi ár
vekni og beitti sínum miklu hæfi
leikum til eflingar starfinu, og
studdi maður hennar hana með
ráðum og dáð. —Ég hefi stund-
um hugsað um það, ef hvert þorp
og kaupstaður á íslandi hefði sl.
mannsaldur átt Þóru og Pétur
með sína „Framsókn" og „Eyrar-
rós“, þá myndi margt betur
horfa nú en raun ber vitni um í
bæjum íslands og þorpum. Þessi
hjón hafa unnið ómetanlegt starf
fyrir mannfélagið. — Auk stúku-
starfsins hefir „Sjómanna- og
gestaheimilið" á Siglufirði að
verulegu leyti hvílt á herðum
þeirra hjóna, og var Pétur aðal-
hvatamaðurinn að Stofnun þess
1939, en frá þeim tíma hefir stof
an verið rekin með dálitlum
styrk frá Góðtemplarareglunni,
til blessunar fyrir sjómennina,
sem þar hafa margir varðveitt
heilbrigt líf sitt í véum þessa
heimilis. Fyrsta vinna Péturs á
Siglufirði var að hjálpa til að
koma upp norska sjómannaheim
ilinu. — Pétur hefur unnið mikið
menningar- og björgunarstarf
um ævina. Hann er maður ráð-
hollur og góðgjarn, og hafa marg
ir notið þess.
Formaður áfengisvarnanefnd-
ar hefir Pétur verið á Siglufirði,
frá því er þærjiefndir komu til
sögunnar. Loks er að geta starfs
afmælisbarns vors í þjónustu
áfengisvarnaráðs. Þegar ráð
þetta var stofnað fyrir þremur
árum siðan og ég var skipaður
formaður þess, var mér ljóst, að
því aðeins fengi starf áfengis-
varnanefndanna náð tilgangi
sínum, að ráðnir væru vel hæfir
menn til þess að ferðast milli
nefndanna, vekja áhuga þeirra á
starfinu, samræma störf þeirra
og starfsháttu og stofna til sam-
vinnu við sem flesta menningar-
aðilja í þjóðfélaginu. Áfengis-
varnaráð féllst á ráðningu Pét-
urs Björnssonar sem erindreka,
og er þetta þriðja árið, sem hann
starfar að áfengisvörnum fyrir
ráðið. Er þar skemmst frá að
segja, að hann hefir í þessu starfi
áunnið sér traust og virðingu á-
fengisvarnaráðs og vinsældir og
álit áfengisvamanefndanna. Tel
ég, að Pétur hafi unnið 'stórvirki
þessi misseri. Ber þar margt til:
Ið fyrsta, að hann er þaulvanur
félagsmálastarfi. Annað, að hann
kann manna bezt að þoka fram
merkinu, án þess að hafa sig mik-
ið í frammi. Hann er fáorður, en
gagnorður. Þriðja, að hann hefir
óbilandi trú á málstaðnum, sem
hann hefir tekið að sér. Fjórða,
að hann kann að velja menn til
starfa. Fimmta ,að hann er traust
ur eins og bjarg. Pétur Björnsson
er óþreytandi. Hann hefir ferð-
ast milli áfengisvarnanefndanna
í hverjum hreppi og kaupstað
um gervallt Norður- og Austur-
land, og sums staðar hefir hann
komið tvisvar og þrisvar. Enn
fiemur hefir hann ferðast hér
syðra í nágrenni Reykjavíkur og
í sl. mánuði vestra, um Dali og
sveitir Austur-Barðastranda*-
sýslu. — Skýrslur Péturs en»
glöggar, og hann kann mætavel
að greina milli meginatriða og
aukaatriða, og er það mikilsvert.
Heimili Péturs og Þóru er góð-
frægt. Þau eiga fjögur mannvæn-
leg börn, og hefir hann aflaS
þeim góðrar menntunar.
Við áfengisvarnaráðsmenn árn
um Pétri Björnssyni allra heilla
á sextugsafmælinu, kunnum hon-
um beztu þakkir fyrir mikið og
gott starf á vettvangi bindindis-
málanna og vonum, að rið fáum
að njóta krafta hans sem lengst.
Persónulega þakka ég hugljúfa
samvinnu vini mínum, reglu- og
starfsbróður.
Brynleifur Tobiasson.
Gatan fullgerð
næsta vor
GATNAGERÐARDEILD bæjar-
ins hefur skrifað bæjarráði út af
gatnagerðinni milli Bræðraborgar
stígs og Framnesvegar. Þar var
skipt um jarðveg vegna þess að
verkfræðingar töldu jarðveginn,
sem þar var, ekki vera nægilega
tryggan þá er gatan yrði mai-
bikuð. Nú segja verkfræðingarnir
að næsta vor verði hægt að mal-
bika þennan vegarkafla, þá verði
nýi jarðvegurinn nægilega siginn
og þjappaður.
Stofnsett 1911
Ódýrir
karlmannafrakkar
Frá kr 497,oo
Einhnepptir og tvíhnepptir
poplin og gaberdine-frakkar
í mörgum litum
Þér fáið ódýrasta vetrar-
t r akka n n h j á O K K U R
Nýkomnír
Tékkneskir Karlmannaskór
með leður og svampsólum.
Aðalstrœti 8 Laugavegi 20 — Laugavegi 38
Snorrabraut 38 — Garðastræti 6
Ódýrir
Sterkir
Þægilegir