Morgunblaðið - 25.10.1957, Blaðsíða 15
F'östudagur 25. október 1957
MORGVVBL4Ð1Ð
15
Merkjasöludagui Barnaverndar
félaganna fyrsto vetrardag
Sfarf félaganna hefur verið mikið um aiif land
STJÓRN Barnaverndarfélags
Keykjavíkwr átti í gær viðtal við
fréttamenn í tilefni þess, að hinn
árlegi merkjasöludagur barna-
verndarfélaganna um land allt
er á morgun, fyrsta vetrardag.
I»á verða merki félaganna seld
og einnig bókin Sólhvörf, sem
Hannes J. Magnússon skólastjóri
á Akureyri hefur frumsamið. —
Verð bókarinnar er 15 krónur,
en merkin kosta 5 krónur.
í kvöld, föstudag, flytur frú
Aðalbjörg Sigurðardóttir erindi
í útvarpið um barnaverndarmál.
Barnaverndarfélag Reykjavík-
ur var stofnað 1949. Síðan hafa
verið stofnuð barnaverndarfélög
víðs vegar í landinu og eru þau
nú alls 10. Ágóðinn af merkjum
þeim er félögin selja 1. vetrar-
dag og bókinni Sólhvörf, rennur
til félaganna sjálfra og verja þau
honum síðan til þeirra verkefna
sem hvert félag starfar að á sviði
barnaverndarmála. Félögin
hafa með sér- landssamband og
heldur það aðalfund á tveggja
ára fresti. Síðasti aðalfundur var
haldinn í sumar á Akureyri. —
Landssambandið nýtur ekki opin
berra styrkja, en fyrir núverandi
Alþingi liggur beiðni um fjár-
veitingu frá Landssambandinu
til að styrkja erindreka til þess
að ferðast um landið í þeim er-
Ölöf Kafliða-
dóttir - minning
I DAG er til moldar borin Ólöf
Hafliðadóttir, Stórholti 24. Hun|
var fædd 24. febr. 1878, dáin 17. |
okt. 1957. — Foreldrar hennar
voru Hafliði Þorsteinsson og
Þórdís Jónsdóttir. Hún var fædd
að Litlabæ í Kjós. Foreldra sína
missti hún í æsku og varð
snemma að mæta alvöru lífsins.
Systkinin voru þrjú — tveir
bræður, Jón og Hafliði, — báðir
dánir. Þó systkinin gætu ekki
verið samvistum í æsku, var sér-
staklega ástrikt á milli þeirra,
og á tímabili héldu þau heimili
saman.
Árið 1907 tók Ólöf að sér brauð
sölu fyrir Guðmund Bjarnason,
bakara sem þá var nýbyrjaður að
reka brauðgerðarhús hér í bæ —
en lengst hafði hún á hendi sölu
frá bakaríi Sveins Hjartarsonar
og hélt hún því starfi í 50 ár,
eða þar til hún fór á sjúkrahús
í síðastl. janúarmánuði. Lengst
var hún til núsa á Bergstaða-
stræti 3 — yfir 30 ára bil —
Eftir að hún kom af sjúkrahús-
inu, fluttist nún að Stórholti 24
og minntist hún með aðdáun og
þakklæti þeirrar umönnunar og
velvildar, sem hún mætti þar hjá
því fólki, sem hún dvaldist hjá.
Það segir sig sjálft, að á svona
löngu starfstímabili kynntist
„Lóa“ (sem hún var oftast köll-
uð af viðskiptavinum sínum),
mörgu fólki, og margir henni.
Sérkenni þessarar konu voru
glaðlyndi, hógværð og árvekni í
að leysa sem bezt af hendi þau
verk, sem hún vann, og að vera
öllum mönnum góð, sem hún
náði kynnum af. Fórnfýsi hennar
við þá sem erfitt áttu á einhvern
hátt og hún fékk tækifæri að
hlynna að, voru henni meira
verðmæti en veraldargæði.
Ólöf var óvenjulega vel gefin
kona og margir báru undir „Lóu“
vandamál sín og fóru sælli af
hennar fundi. Ég er persónulega
þakklát fyrir að hafa kynnzt þess
ari góðu konu og ég veit að slíkt
mæla margir aðrir, sem haft hafa
kynni af henni og allar minning-
ar um hana fela í sér, að þarna
var kona með barnshjarta, með
öruggri trú á algóðan guð.
Blessuð sé minning hennar.
Viktoría Bjarnadóttir.
indum að vekja áhuga fólks á
barnaverndarmálum.
Styrkir fólk til sérnáms.
Eitt af aðalverkefnum Barna-
vei r. k élags Reykjavíkur er að
styrkja fólk til sérnáms erlend-
is, sem varðar barnavernd. —
Hefur það styrkt marga til slíks
náms, til dæmis varðandi stjórn
heimila vangefinna barna,
kennslu tornæmra barna, geð-
vernd barna, vinnulækningar og
fleira mætti telja. Nú hefur fé-
lagið mikinn áhuga á því að
styrkja kennara til náms erlend-
is, sem taka vildi að sér að læra
að kenna lesblindum börnum.
Þá má geta þess að félagið lagði
fram 60 þús. kr. til kaupa á hús-
búnaði fyrir Skálatúnsheimilið er
það tók til starfa.
Mikil starfsemi.
Barnaverndarfélögin úti á landi
vinna einnig mikið að margvís-
legum barnaverndarmálum og
skal hér aðeins drepið á nokkuð
af starfseminni, hjá þeim félög-
um sem gáfu skýrslur um starf-
semi sína á síðasta Landssam-
bandsfundi, en þar mættu full-
trúar frá öllum félögunum nema
Vestmannaeyjum, og er þess
vegna engin skýrsla þaðan.
Barnaverndarfélag Akureyrar
starfrækir leiksóla fyrir þriggja
til fimm ára börn.
Barnaverndarfélag Hafnar-
fjarðar styrkir dagheimili Verka
kvennafélagsins Framtíðarinnar
og í sumar tók það þátt í að koma
upp sumardvalarheimili fyrir
börn.
Barnavemdarfélag Akraness
rekur dagheimili fyrir tveggja
til þriggja ára börn að sumrinu
í samvinnu við kvenfélag Akra-
ness og hefur einnig styrkt Skála
túnsheimilið.
Barnaverndarfélag Siglufjarð-
ar , starfrækir gæzluleikvöll að
sumrinu.
Barnaverndarfélag Keflavíkur
hefir eftirlit með útivist barna
á kvöldin og er nú að undirbúa
sumardvalarheimili.
Barnaverndarfélag ísafjarðar
hefir eftirlit með útivist barna
og lætur til sín taka í umferðar-
málum vegna slysahættu. Það
rekur sjálft dagheimili og hefur
tekið þátt í að koma upp leik-
velli.
Barnaverndarfélag Húsavíkur
aðstoðar kvenfélag staðarins með
rekstur dagheimilis og hefir haft
tómstundavinnu og er nú að
koma upp vinnuskóla fyrir ung-
linga.
Barnaverndarfélag Stykkis-
hólms hefir beitt sér fyrir því, að
þar verði bætt úr lögreglueftir-
liti. Það undirbýr nú leikvöll og
í vor gekkst það fyrir að starf-
ræktir voru skólagarðar, fyrir
börn 9—12 ára.
Merkjasalan
Barnaverndarfélagið í Reykja-
vík biður nú foreldra að leyfa
börnum sínum að selja merki fé-
lagsins á laugardaginn, en af-
greiðslustaði þeirra má sjá í aug-
lýsingum blaðanna. Þá vill það
einnig beina þeirri ósk til for-
eldranna að láta börnin vera vel
klædd. Tvö kvikmyndahús ætla
að bjóða sölubörnunum á kvik-
myndasýningar, en það eru
Stjörnubíó og Nýja bíó. Auk þess
fá börnin 10% í sölulaun.
Stjórn Barnaverndarfélags
Reykjavíkur skipa nú próf. Matt
hías Jónasson, Símon J. Ágústs-
son próf. og frú Lára Sigurbjörns
dóttir. í varastjórn eru Kristján
Þorvarðarson læknir, Jón Auð-
uns dómpróf. Magnús Sigurðsson
skólastjóri, Kristinn Björnsson
sálfræðingur og Svava Þorleifs-
dóttir fyrrv. skólastjóri.
Samsfarf Breta og
Bandaríkjamanna
í kjarnorkutækni
WASHINGTON, 24. okt. —
Harold Macmillan forsætisráð-
herra er nú staddur í höfuðborg
Bandaríkjanna. Hann hefur set-
ið á tali við Eisenhower forseta.
í dag. var tilkynnt að mikill
árangur hefði orðið af viðræð-
um þeirra. Hafa þeir ákveðið að
taka upp mjög nána samvinnu í
framleiðslu kjarnorkuvopna og
flugskeyta.
í sambandi við það mikla áfall
Vesturveldanna að Rússar urðu
fyrstir til að senda á loft gervi-
tungl vár það gagnrýnt harðlega,
hve allt tæknilegt samstarf Breta
og Bandaríkjamanna hefur verið
í molum. En orsök þess er hinar
ströngu öryggisreglur, sem
Bandaríkjamenn hafa um alla
hernaðartækni.
Nú munu bæði Bretar og
Bandaríkjamenn skipa nefndir
sem ætlað er það hlutverk að
koma á víðtækum skiptum á
tæknileyndarmálum í sambandi
við framleiðslu kjarnorkuvopna
og flugskeyta. — NTB
ítalskur lœknir fœr
Nóbels-verðlaun
STOKKHÓLMI 24. okt. — Karol
ínska stofnunin í Stokkhólmi
ákvað í dag að veita ítalska lækn-
inaim prófessor Daniel Bovet Nó-
belsverðlaun í læknisfræði. Verð
launin hlýtur hann fyrir að hafa
fundið upp aðferðir til að fram-
leiða á efnafræðilegan hátt deyf
ingarlyfið „Curare“, sem áður
var eingöngu hægt að vinna úr
jurtum eftir aðferðUm frum-
stæðra Indíána í Brasilíu.
Prófessor Bovet fæddist í Sviss
landi 1907, en hann gerðist ítalsk-
ur ríkisborgari 1947, þegar hann
var skipaður yfirmaður læknis-
rannsóknarstofu ítalska ríkisins.
—NTB
Félagslíf
Fram — handknattl-'iksdeild.
Síðustu æfingar fyrir Reykja-
víkurmótið eru í kvöld. Mætið
öll. — Þjálfarinn.
Aðalfundur íþróttafélags Kefia-
víkurflugvallar
verður haldinn í Sjálfstæðishús
inu í Keflavík sunnudaginn 27.
okt. kl. 20. — Venjuleg aðalfund-
arstörf. — Rætt um vetrarstarf-
semina. — Áríðandi að félagar
fjölmenni. — Stjóm IKF
Ármenningar!
Æfingar í kvöld í íþróttahús-
inu. — Stóri salurinn: kl. 7 frj.
íþróttir. Kl. 8 fimleikar karla. —
Minni salurinn: kl. 7 öldungafl.
fiml., kl. 9 Ju-jitsu. Mætið vel. —
Stjómin.
Knattspyrnufél. Valur.
Knattspyrnuæfingar félagsins
verða í KR-húsinu í vetur, sem
hér segir: — 3. fl. sunnud. kl.
9,30. — 4. fl sunnud. kl 10.20. —
M-fl., 1. fl., II. fl. laugard, kl.
7,40, —
Farfuglar. >
Munið vetrarfagnaðinn f Heiða
bóli á laugard. Ferð upp eftir kl.
7.30 frá Búnaðarfélagshúsinu og
Hlemmtorgi. Stúlkur hafið kökur
með. —
Samkomur
Filadelfía. — Biblíulestrar kl.2, 5
og 8,30. — Allir velkomnir.
Kristniboðsvikan.
Séra Guðmundur Óli Ólafsson,
Torfastöðum, talar á kristniboðs-
samkomunni í húsi KFUM og K
í kvöld kl. 8,30. — Auk þess verð-
ur einsöngur og sagt 'rá kristni-
boði. — Allir velkomnir.
Kristniboðssambandið.
Brezka sendiráSið
sýnir kvikmyndir
BREZKA sendiráðið hefur und-
anfarna vetur haldið uppi kvik-
myndasýningum á laugardögum
í Tjarnarbxói. Hafa þar oft og
iðulega verið sýndar mjög góðar
myndir og nú ætlar sendiráðið að
taka upp sýningar á ný og verður
hin fyrsta á morgun í Tjarn-
arbíói kl. 2.
Þá verða sýndar þar 5 myndir.
Sýnd verður mynd frá hinni
frægu Edinborgarhátíð, þá er þar
umferðarmyndin „Það gæti verið
þú“, þá er mynd um brezku kon-
ungsættina. Þá er mynd frá
Afríku og loks er mynd fráTanga
nyika í Afríku.
Sýning þessi er ókeypis og
stendur yfir í um það bil hálfa
aðra klukkustund.
Spaak í Bandaríkj-
unum
WASHINGTON, 24. okt. — Paul
Henri Spaak, framkvæmdastjóri
NATO, kom í dag til Banda-
ríkjanna í 10 daga heimsókn. —
John Foster Dulles utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, tók á móti
honum á flugvellinum í Washing-
ton. Spaak mun m. a. ræða við
Eisenhower forseta og Macmill-
an forsætisráðherra Breta, sem
um þessar mundir er staddur í
.Washington. — Reuter.
Bing Crosby giflir sig
á gamalsaldri
LAS VEGAS 24. október. — Kvik
myndasöngvarinn Bing Crosby,
sem er 53 ára, kvæntist í dag 23
ára kvikmyndastjörnu að nafni
Cathy Grant. Fyrri eiginkona
Bings lézt fyrir fimm árum. —
Hann og Cathy hafa þekkzt 1
mörg ár. —NTB
Slæmar alvinnu-
horfur í Stykkishólmi
STYKKrSHÓLMI, 24. okt. —
Fundur var haldinn í Verkalýðs-
félagi Stykkishólms í gærkveldi.
Var hann mjög fjölmennur og var
fundarefnið atvinnuhorfur fólka
í kauptúninu og hafði formaður
félagsins, Kristinn B. Gíslason
framsögu í málinu.
Urðu umræður talsverðar. Að
lokum var samþykkt samhljóða
eftirfarandi tillaga:
Fjölmennur fundur í Verka-
lýðsfélagi Stykkishólms, haldinn
23. okt. 1957 vill vekja athygli
Alþingis og ríkisstjórnarinnar á
mjög alvarlegum atvinnuhorfum
í Stykkishólmi. Fundurinn treyst
ir því, að þessir aðilar bregði
skjótt við og geri raunhæfar að-
gerðir til hjálpar í þessum efnum.
— Ámi.
Hjartanlegustu þakkir færi ég öllum þeim er glöddu
mig með gjöfum, heimsóknum og skeytum á 70 ára af-
mæli mínu 18. okt. sl.
Guð blessi ykkur öll.
Gísli Jóhannesson,
Sauðárkróki.
gott úrval
Ullarjersey
mikið litaúrval
MARKAÐURINN
Hafnarstræti 11
Móðir okkar
HALLA ÞOBSTEINSDÓTTIR,
lézt að heimili sínu, Grettisgötu 56 A, Reykjavík, 21. þ. m.
Jarðsett verður í Hruna, laugardaginn 26. þ. m. kl. 3
eftir hádegi.
Börnin.