Morgunblaðið - 25.10.1957, Síða 16
VEÐRIÐ
Vestan SV-skúrir eða él.
242. tbl. — Föstudagur 25- október 1957.
Ljósafoss 20 ára
Sjá bls. 9.
Bœrinn Svarfagil brann í gœrkvöldi nokkru
eftir að 2 brœður höfðu ráðizt á bóndann
Þykir þér ekki loga vel liafði
annar þeirra sagt við bóndann
SEINT í gærkvöldi bárust austan úr Þingvallasveit ugg-
vænleg tíðindi. Tveir menn höfðu ráðist inn á bæinn í Svarta-
gili, þar sem Markús bóndi býr nú einn um þessar mundir.
Árásarmennirnir, sem eru bræður héðan úr Reykjavík, höfðu
lagt hendur á hinn rúmlega sextuga bónda, sem tókst að
ilýja. — Nokkru eftir að hann hafði komizt niður í Þing-
vallabæ til séra Jóhanns Hannessonar þjóðgarðsvarðar, var
því veitt eftirtekt, að bjarma sló á himinninn yfir Svartagili.
Eldur var kominn upp í bæjarhúsinu.
í gærkvöldi átti Mbl. tal við
séra Jóhann Hannesson þjóð-
garðsvörð.
Það var á milli kl. 7 og 7,30 að
Markús bóndi í Svartagili kom
hingað til mín, sagði séra Jóhann,
til að leita liðveizlu, því tveir
menn hefðu komið heim í Svarta
gil og ráðizt á sig, Voru
þeir með byssu, að vísu
skotfæralausa, en höfðu slegið
Markús með ..kefti hennar. Voru
áverkar sýnilegir í andliti og á
höfði hans. Kvaðst Markús hafa
komizt undan í bíl þeim, er þeir
bræður hefðu komið í og með
honum danskur maður og stúlka,
sem verið höfðu með árásarmönn
unum í bílnum. Ekki höfðu þau
þó tekið neinn þátt í aðförinni.
Frá Þingvallabæ hringdi Mark-
hús til hreppstjórans á Kárastöð-
um, og barst fregnin um árásina
á Svartagilsbóndann fljótt út um
sveitina.
Klukkan mun vart hafa verið
meira en 10 mínútur yfir 8 þegar
bjarmi sást á himni yfir Svarta-
gili frá Vatnkoti og um líkt leyti
sást frá Hrúsastöðum að eldur
logaði í bæjarhúsinu.
Meðan þessu fór fram var leit-
að til lögreglunnar í Reykjavík,
svo og til slökkviliðsins, sem
kvað með öllu tilgangslaust að
senda bíla austur, því bæjarhús-
ið myndi verða hrunið áður en
brunaverðir kæmust á vettvang.
Þegar blaðið talaði við séra
Jóhann, höfðu honum ekki borizt
fregnir af handtöku árásarmann-
anna. Ekki var ástæða til að
ætla, að þeir hefðu komizt und-
an. Lögreglumenn voru, sem fyrr
segir, sendir til hjálpar, og auk
þess hröðuðu allmargir Þingvalla
GYLFI Þ. Gíslason ráðherra, sem
í ríkisstjórninni fer með inái þau
er snerta Efnahagssamvinnustofn
unina, flutti í gærkvöldj frásögn
af fundi þeim sem stofnunin hélt
fyrir nokkru í París, þar sem
rætt var um hið fyrirhugaða fri-
verziunarsvæði.
Fund þennan sátu með ráðherr-
anum þeir dr. Jóhannes Nordal
hagfræðingur Landsbankans sem
sérstaklega hefur kynnt sér þetta
mál og Hans Andersen sendiherra
hjá Efnahagsamvinnustofnuninni.
í ræðu sinni komst ráðlierrann
m.a svo að orði:
Það sem gerist' þessum málum
kann að vera örlagaríkt fyrir oss
íselendinga, sem eigum afkomu
okkar undir útflutningi meir en.
aðrar þjóðir. Aukin viðskipti og
greiðir markaðir fyrir afurðir er-
lendis eru íslendingum lífsnauð-
syn, í því getur falizt hætta að
vera utan við samtök, þar sem
bændur hraðað för sinni að
Svartagili. Er ÞingvallabænJur
voru á leið að Svartagili með öll
þau handslökkvitæki, sem tiltæk
voru hjá séra Jóhanni í Þing-
vallabæ, höfðu þeir mætt bræðr-
unum á veginum.
Annar þeirra, en hann mun
hafa eitthvað verið í vinnu hjá
Markúsi í sumar er leið, hafði þá
átt að segja við Markús, glaður
í bragði: — Þykir þér ekki loga
vel?
Þessu á Markús að hafa svarað
á þessa leið:
— Nú ert þú víst orðinn
ánægður?
sig ósvikin farsóttareinkenni. —
Veikin hefur færzt mjög í auk-
ana síðustu dagana, og má segja
að hún sé komin í algleyming:
Heilu fjölskyldurnar liggja, veik-
indaforföll á vinnustöðum eru orð
in mikil og tveim skólum var
lokað í gær.
Þó flenzan hafi aukizt svona
gífurlega, þá hagar hiin sér eins
og hún hefur gert frá því fyrst
tók að bera á henni og fylgikvilla
gætir nær ekkert. Leggja læknar
áherzlu á, að fólk fari gætilega
helztu keppinautar okkar eru þátt
takendur. Hins vegar er hér við
mörg vandamál að etja.. Sérstak-
lega hlýtur afstaða íslands að
mótast af því, hvort eða að hve
miklu leyti fríverzlunin cekur til
fiskafurða eða ekki. Þá skiptir
það og meginmáli hver áhrif frí-
verzlunin hefði á afkomu atvinnu
veganna og hvort hægt er að fá
fjármagn til þess að byggja upp
nýjar framleiðslugreinar og
styrkja þær, sem fyrir eru.
Ráðherrann kvaðst á fundinum
hafa gert grein fyrir hagsmunum
fslendinga varðandi viðskipti
við lönd hins fyrirhugaða fríverzl
unarsvæðis. Að sjálfsögðu geta
íslendingar ekki mótað afstöðu
sína fyrr en frumvarp að fríverzl-
unarsamningi aðildarríkja Efna-
hagssamvinnustofnunarinnar ligg
ur fyrir. En ríkisstjórnin mun
fylgjast nákvæmlega með öllu
sem í þessu miklisverða máli ger-
ist, sagði ráðherrann að lokum.
Árásarmaðurinn hafði svarað
um hæl: — Já, eg er vel ánægð-
ur!
Þegar blaðið átti tal við séra
Jóhann Hannesson, hafði hann
skömmu áður hitt Markús bónda
aftur. Hafði hann sagt hon-
um að bæjarhúsið væri alveg
brunnið. Hefði þekjan fallið inn
um kl. 9,30 og þá var farið að
loga í hlöðunni. Kúnum hafði
Markús sjálfur getað bjargað út.
— Allir innanstokksmunir voru
óvátryggðir.
o--- • ----o
Þegar blaðið átti síðast tal við
lögregluvarðstoíuna í gærkvöldi,
höfðu ekki borizt nánari fregnir
að austan eða af handtöku
bræðranna. Vitað var hverjir þeir
voru. Hefur annar þeirra a. m. k.
komizt í kast við lögregluna.
o---- •----o
Bærinn Svartagil stendur í um
það bil 10 km frá Þingvallabæ,
suðvestanvert við Ármannsfell
og er er þar mjög afskekktur.
Sem fyrr segir var Markús einn
í Svartagili. Dóttir hans var ný-
farinn þaaðn ásamt börnum sín-
um tveimur.
leggist tafarlaust og íara varlega
eftir sjúkraleguna.
Skrifstofa borgarlæknis hefur
tjág blaðinu, að í gærmorgun
hafi tveir skólar verið óstarf-
hæfir vegna þess, hve fjarvistir
kennara og nemenda voru mikl-
ar. í svonefndum Lindargötuskóla
vantaði helming kenr.araliðsins
og 38% nemenda. í gagnfræða-
deild Miðbæjarskólans mættu
aðeins fáir nemendanoa. Voru
það þessir skólar sem loka varð.
Að meðaltali vantaði 31% nem
enda í skólana í gær en 25% í
fyrradag.
í fjölmörgum fyrirtækjum er
ástandið slæmt vegna þess hve
margir hafa veikzt síðustu dag-
ana.
í blaðburðarlið Mbl. hefur
flenzan höggvið stórt skarð, svo
við jaðrar að blaðadreifingin sé
í molum. — Þjóðleikhúsið hefur
orðið að fella niður sýningar á
Tosca vegna veikinda í leikenda-
liði.
í nærsveitum Reykjavíkur er
veikin einnig mjög farin að herja.
Reykholtsskóla hefur t.d verið
lokað af völdum fienzunnar.
Á fundi, sem haidinn var s.l.
mánudag og sóttur var af lækn-
unum Bendikt Tómassyni skóla-
yfirlækni, dr. Jóni Sigurðssyni
borgarlækni og Haraldj Guðjóns-
syni aðstoðarlækni hans svo og
fræðslustjóra og skólastjórum
barna- og gagnfræðaskóla bæjar-
ins var ákveðið, að skólarnir
skyldu senda borgarlæknj dagleg
ar skýrslur um forföli.
Frá 5.U.5.
LANDBÚNAÐARRÁÐ-
STEFNAN verður sett i dag
kl 10 í Valhöll.
Sambandsþingið hefst í
fyrramálið kL 9,30 í Sjálf-
stæðishúsinu.
Afsfaða lekin er frv. að frí-
verzlunarsamningi liggur fyrir
— sagði Gylfi Þ. Gíslason í útvarpsræðu í gær
Nú er inflúenzan komin
á faraldursstig í bænuir
Tveim skólum lokað í gærmorgun.
INFLÚENZAN hefur nú tekið á
Táknrænn atburður í Garðastræti
Þegar starfsmenn í rússneska sendiráðinu í Garðastræti voru
fyrir hádegi í gær, að draga hinn rauða fána Sovétríkjanna
að hún í tilefni dags Sameinuðu þjóðanna, gerðist það af
óhappatilviljun, að fáninn festist í hálfa stöng og varð ekkl
leystur þaðan fyrr en eftir VA klst. Óhappið mun hafa orðið
þannig, að starfsmennirnir festu fánann í fyrstu öfugt við
snúruna svo hann stóð á haus. Ætluðu þeir þá að draga hann
niður, en í storminum vafðist fáninn um stöngina. Fjöldi
fólks sem gekk eftir Túngötunni á leið í hádegismat veitti
þessu athygli og þótti atburðurinn táknrænn, því að á þessum
degi 24. október var eitt ár liðið síðan rússneskir skriðdrekar
réðust í fyrsta skipti inn í Búdapest til að skjóta á ungverska
alþýðu.
Enn slys
KLUKKAN 8,30 í gærkvöldi
varð enn umferðarslys her
í bænum. Kona um fimmtugt,
varð fyrir bíl á Laugarnes-
vegi og stórslasaðist.
Seint í gærkvöldi var rann-
sókn þessa slyss mjög skammt
á veg komin. Þá var t. d. ekki
vitað hver hin slasaða kona
er. — Hún hafði verið flutt
meðvitundarlaus í sjúkrahús
og var enn í öngviti er síðast
fréttist. — Var hún með mik-
inn áverka á höfði og víðar
og annar fótur hennar var
brotinn.
Konan hafði orðið fyrir
fólksbíl á miðjum Laugarnes-
vegi eða því sem næst fyrir
utan húsið Laugarnesveg
79. Ekki var vitað hvort fleiri
eða færri höfðu orðið sjónar-
vottar að slysu þessu. Við
þá óskar rannsóknarlögregl-
an hafa samband sem fyrst.
Hver fékk bílinn !
HVER hlaut bifreiðina í happ-
drætti Krabbameinst'élags Reykja
víkur? Hún kom á nr. 22156 og
málverkið á 15257. Grammófón-
inn hlaut Laufey Jakobsdóttir
Presthúsabraut 31 Akranesi, og
hefir hún þegar vitjað vinnings-
ins.
Fulltrúaráðsfundur
/ Keflavlk
FULLTRÚARÁÐ Sjálfstæðls-
flokksins i Keflavík heldur fund
í Sjálfstæðishúsinu í kvöld kL
8.30 s.d.
Rætt um bæjarmál o. fl. N?.uð-
synlegt að fulltrúar mæti vel ©g
stundvíslega.