Morgunblaðið - 30.10.1957, Blaðsíða 16
VEÐRIÐ: Hvass SA, rigning
siðdegis
jjwMto§>ií»
Ferðapisfill
eftir séra Sigurð Einarsson.
Sjá bls. 9.
246. tbl. — Miðvikudagur 30. október 1957
Einstök ringulreið i herhúðum
vinstri stjórnarinnar
Yfirlýsingar leiðtoganna um efna-
hagsmálin stangast hver á við aðra
EINSTÖK ringulreið og upplausn ríkir nú í herbúðum vinstri
s'jórnarinnar. Gefa ráðherrar hennar og aðrir leiðtogar út hverja
yfirlýsinguna á fætur annarri í efnahagsmálunum, sem stangazt þó
hver við aðra.
Þannig lýsir fjármálaráðherra þeirri skoðun sinni í útvarps-
umræðum frá Alþingi að útgerðin standi mjög höllum fæti. Fé-
lagsmálaráðherra kommúnista lætur hins vegar mjög vel yfir af-
komu hennar og telur hana enga aukna aðstoð þurfa. t gær birtir
svo blað kommúnista þá skoðun Eðvarðs Sigurðssonar frá Dags-
brúnarfundi, að hann „vilji ekkert fuliyrða" um það, hvort út-
gerðin þarfnist aukinnar aðstoðar um næstu áramót.
Ástæða er til þess að rekja
er til þess
ummæli þessara leiðroga vinstri
stjði-narir.nav nokkru i ánar. Kem
ur þá íóðin fyrst uð v.mmælum
F.ysteins Jónssonar íjurmálsráð-
herra í íjáijagaræðu lians fyrir
skiimmu.
Komst hr: n þar að orði á þessa
leið:
22% minna aflaverðmæti
„Betur sézt, hvað hér hefur
gerzt, ef athugaður er annars
vegar fjöldi þeirra skipa, sem
haldið hefur verið til veiðanna
úthaldsdagar þeirra, og hins veg-
ar aflaverðmætið á þessu ári og
uridanfarið. Hef ég látið áætla
þetta og getur ekki skakkað að
ráði. Kemur þá í ljós. að ef mið-
að er við fjölda skipa og úthalds-
daga á vetrarvertíð annars veg-
ar 1955 og hins vegar s. 1. vet-
ur, að aflaverðmætið nú á ver-
tíömni er raunverulega um 29%
minna en 1955 miðað við fram-
lagið til veiðanna. Og er við tök-
um á sama hátt meðaltal áranna
1954 til 1956 og berum saman við
vertíðina í vetur, þá kemur í
ljós, að aflinn í vetur er um
22% minni af magni en meðal-
afli þessara ára, miðað við út-
haldsdaga og bátafjölda".
Þetta sagði fjármálaráðherra í
útvarpsumræðunum um daginn.
Er auðsætt, að hann gerir ráð
fyrir mjög aukinni þörf aðstoð-
ar við útveginn á næstu vetrar-
vertíð.
Engra ráðstafana þörf
f þessum sömu útvarpsumræð-
um talaði annar af ráðherrum
vinstri stjórnarinnar, félagsmála-
ráðherra kommúnista. Hann
komst m. a. að orði á þessa leið
í ræðu sinni:
„Verðlag á heimsmarkaðnum
er nú tiltölulega stöðugt. Líkur
eru til, að engar ráðstafanir þurfi
•ð gera til hjálpar útgerðinni“.
Félagsmálaráðherrann,
flokksbróðir sjávarútvegsmála
ráðherrans, heldur því með
öðrum orðum fram, gagn-
stætt því, sem fjármálaráð-
herrann gerði, að allt sé í Iagi
hjá útgerðinni og „að engar
ráðstafanir þurfi að gera til
hjálpar“ henni.
Edvarð „vill ekkert fullyrða“
Loks kemur svo yfirlýsing frá
öðrum flokksbróður sjávarútvegs
málaráðherrans, Edvarð Sigurðs-
syni, einum aðal „verkalýðsleið-
toga“ kommúnista. „Þjóðviljinn"
segir í gær frá ræðu, er hann
flutti á Dagsbrúnarfundi s. 1.
sunnudag. Kemst blaðið að orði
um hann á þessa leið:
„Edvarð kvað mikið velta á
því, að hve miklu leyti ráð-
stafanirnar, er gerðar voru
s. 1. vetur, myndu duga til
þess að skipin gætu haldið
óhindrað áfram um næstu
áramót. Um það kvaðst hann
ekkert vilja fulyrða“.
Hver er niðurstaðan?
Niðurstaðan af yfirlýsingum
stjórnarherranna um afstöðuna
til sjávarútvegsins og þarfa hans
er þá þessi:
Fjármálaráðherrann telur hann
standa mjög höllum fæti og þörf
aukinna ráðstafana til stuðnings
honum. Félagsmálaráðherrann
segir „að engar ráðstafanir þurfi
að gera til hjálpar útgerðinni".
Edvarð Sigurðsson kveðst hins
vegar „ekkert vilja fullyrða“ um
þarfir útvegsins í þessum efnum.
Þegar hér er komið, er ekki
ólíklegt að almenningur spyrji:
Hver er hin raunverulega
stefna vinstri stjórnarinnar gagn-
vart sjávarútveginum, eða á hún
yfirleitt nokkra stefnu í málum
hans?
Fisklandanir í Reykja-
vík ekkert nýtt fyrir-
brigði
Tilkynning frá Bœjarutgerð Reykjavikur
AÐ gefnu tilefni og til að fyrir-
byggja misskilning, skal það hér
með upplýst, að togarar Bæjar-
útgerðar Reykjavíkur hafa á yf-
irstandandi ári lagt upp afla inn-
anlands sem hér segir:
ísaður fiskur, lagður á land í
Keykjavík, 9.824.188 kg.
ísaður fiskur, lagður á land á
Ólafsfirði og ísafirði, 282.090 kg.
Isaður fiskur, lagður á land hér
lendis, samtals 10.106.283 kg.
Saltfiskur, lagður á land í Rvík,
4 507.907 kg.
Framangreint yfirlit er miðað
við mánaðamótin ágúst/sept. að
því er sum skipin snertir, en mis-
munandi tíma í október að því er
öðrum viðkemur.
Yfirlitið nær þó ekki til þeirra
120.510 kg. sem bv. „Ingólfur
Arnarson" lagði hér á land í gær
og í dag.
Reykjavík, 29. október 1957,
Bæjarútgerff Reykjavíkur.
★
Af þessu er það auðsætt að
Tíminn fer með fjarstæðu eina í
gær, er hann reynir að þakka sér
fisklandanir Ingólfs Arnarsonar í
ReykjavíkU
Ófærð á fjallvegum
Orðsending frá
Morgunblaðinu
VEGNA inflúenzutaraldurs
vantar börn til blaffburðar.
Meðan þannig stendur a þarf
blaðið að fá börn og unglinga
til að hlaupa í skarðið og íaka
að sér btaðburð
Börn þau, sem vilja hjálpa
til eru vinsamlegast beðin að
hringja til afgreiðslu Morgun-
blaðsins, sími 22480, eða korna
og tala við afgreiðsluna Aðal-
stræti 6.
ÓFÆRT hefur verið síðan um
helgina á fjallvegum Norðan-
lands og hafa vegir teppzt víða.
Blaðið hafði tal af Norðurleiðum
í gærkvöldi og spurðist fyrir um
færðina.
Öxnadalsheiði lokaðist á sunnu
dagskvöldið og var verið að opna
hana í gærdag. Langferðabíll frá
Norðurleiðum var þá á leið yfir
bana á leið suður í gær, ásamt
nokkrum vörubílum. Var ýta á
Undan bílunum.
I gær var Holtavörðuheiði ill-
fær yfirferðar, en einnig þar var
áætlunarbíll Norðurleiða að brjót
ast norður yfir. Var hann vænt-
anlegur að Blönduósi kl. 7 í gær-
kvöldi, en sá bíll ætlaði að halda
áfram til Varmahlíðar í gær-
kvöldi.
Á Vatnsskarði var talsverður
þæfingur í gær, en vegurinn ekki
ófær stórum bílum. Þar var engin
ýta til aðstoðar og ekki heldur
á Holtavörðuheiði.
19. Iðnþing íslendinga
sett í Hafnarfirði í gœr
Guðjön Magnússon þingforseti
1 GÆR setti Björgvin Frederik-
sen, forseti Landssambands iðn-
aðarmanna, 19. Iðnþing íslend-
inga. Er þingið haldið í Alþýðu-
húsinu í Hafnarfirði.
í ræðu sinni við þetta tækifæri
minntist Björgvin Frederiksen
þess, að aldarfjórðungur er lið-
inn, síðan landssambandið var
stofnað. Rakti hann nokkuð starf
sambandsins á þessum tima og
gat þeirra manna, sem mest hafa
látið að sér kveða innan vébanda
þess. Taldi hann þar fyrsta þá
Helga Hermann Eiríksson, sem
var fyrsti forseti sambandsins, og
Sveinbjörn Jónsson, sem var for-
maður Iðnaðarmannafélags Ak-
ureyrar, þegar sambandið var
stofnað.
Björgvin ræddi síðan um mál
þau, er þingið fær til úrlausnar,
og bar fram þá ósk, að það mætti
reynast heilladrjúgt í störfum.
Fyrir þinginu liggja m.a. þessi
mál: Iðnfræðsla og iðnskólar,
framhaldsnám og meistarapróf,
skatta- og tollamál, innflutning-
ur iðnaðarvara og iðnaðarvinnu,
Iðnaðarbankinn og lánaþörf iðn-
aðarins, fríverzlun Evrópu, skipu
lagsmál landssambandsins, skipu-
lagsmál byggingariðnaðarins, hús
næðisþörf iðnaðarins og iðnsýn-
ingar. .
í gær voru kjörnir embættis-
menn þingsins. Guðjón Magnús-
son, Hafnarfirði, var kjörinn for-
seti, Vigfús Sigurðsson, Hafnar-
firði, 1. varaforseti, og Finnur
Arnason, Akranesi, 2. varafor-
seti. Ritarar voru kosnir Sigur-
oddur Magnússon og Jón E.
Ágústsson, Reykjavík.
Þingið sendi forseta íslands
sérstaka kveðju.
A þingsetningarfundinum
fluttu iðnaðarmálaráðherra og
bæjarstjóri Hafnarfjarðar ávörp
og árnuðu þingfulltrúum heilla.
Til þings var kominn í gær 51
íulltrúi, en nokkrir hafa boðað
komu sína í dag.
Næsti fundur verður í dag kl.
10 f. h.
Friðrik dró töluna 13
— vunn Teschner
FRIÐRIK ÓLAFSSON tekur um þessar mundir þátt í svokallaðri
svæðakeppni sem er undanrás í keppni um heimsmeistaratitilinn.
Mótið fer fram í Wageningen í Hollandi og taka þátt í því 18 skák-
menn frá 15 löndum.
Röð skákmanna (töfluröð), er
þannig: 1) Uhlmann(Austur-
Þýzkaland), 2) Donner (Hol-
land), 3) Alster (Tékkjslóvakíu),
4) Szabo (UngverjaL), 5) Diick-
stein (Austur-Þýzkal.), 6) Hann
inen (Finnl.), 7) Teschner (V-
Þýzkal.), 8) Stalberg (Sviþjóð),
9) Ivkov (Júgósl.), 10) Trifonu-
vic -Júgóslafíu), 11) Larsen (Dan
mörk), 12) Nibhaus (V-Þýzkal.).
13) Friðrik Ólafsson, 14) Kolorov
(Búlgaríu), 15) Lindblom (Nor-
egi), 16) Clark (Englandi), 17)
Orbaan (Holland) 18) Troianescu
(Rúmeníu).
Úrslit fyrstu umferðar
Fyrsta umferð fór fram á
mánudag og urðu úrslit þessi:
Ulhman vann Troianescu, Donn
er vann Orbaan, Alster vann
Clark, Szabo vann Lindblom,
Larsen vann Stáhlberg. Jafntefli
varð hjá Teschner og Nibhaus og
hjá Ivkov og Trifonuvic. Biðskák
varð hjá Duekstein og Kolorov
og hjá Hanninen og Friðrik.
Önnur umferð var tefld í gær-
kvöldi og fór þannig: Friðrik
vann Teschner, Szabo vann Clark
Alster vann Orbaan. Jafntefli
gerðu Troianescu og Trifonuvic,
einnig Larsen og Ivkov, Nibhaus
og Stálberg, einnig Kolarov og
Hanninen. Biðskák varð hjá Uhl-
man og Donner og Lindblom og
Duckstein.
Eftir þessar tvær umferðir
hafa aðeins tveir menn tvo vinn-
inga, þeir Alster og Szabo. — í
3. umferð teflir Friðrik við Stal-
berg og hefir svart.
Þrjú börn í snjú. — Ljósmyndari Mbl., Ólaíur K. Magnússon, túk myndina í Reykjavík í gær.
Aðalfundur Týs í
Kópavogi í kvöld
f KVÖLD heldur Týr, félag ungra
Sjálfstæðismanna í Kópavogi,
aðalfund sinn að Melgerði 1 og
hefst fundurinn kl. 8,30. — For-
maður félagsins, Kristinn Wium,
flytur skýrslu stjórnarinnar,
lesnir verða upp reikningar félags
ins og loks verða almennar um-
ræður.
Félag ungra Sjálfstæðismanna
í Kópavogi er eina stjórnmála-
félag æskunnar í Kópavogi og
hefur starfsemi þess verið með
miklum blóma. Eru félagsmenn
hvattir til að fjölmenna á aðal-
fundinn.
Spilakvöld Sjálfsfæð
isfél. í Hafnarfirði
I KVÖLD kl. 8,30 halda Sjálf-
stæðisfélögin spilakvöld í Sjálf-
stæðishúsinu og verður að venju
spiluð félagsvist og verðiaun
veitt. — Kvöldvaka Stefnis, sem
haldin var sl. föstudagskvöid var
vel sútt. Var fyrst spiluð félags-
vist en síðan dansað. — Næsta
kvöldvaka verður haldin innan
skamms.
STYKKISHÓLMI, 29. okt. — Iðn-
skólinn í Stykkishólmi var sett-
ur sl. sunnudag. Skólastjóri er
Ólafur Haukur Árnason, sem
einnig er skólastjóri barna- og
unglingaskólans. Nemendur eru
8. — Árni.