Morgunblaðið - 09.11.1957, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 09.11.1957, Blaðsíða 8
8 MOKGVISBT 4ÐIÐ Laugardagur 9. nóv. 1957 JlfawginitlrlitMfr Cftg.: H.t. Arvakur, Reykjavik. íramkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson. Aðamtstjórar: Valtýr Stetánsson (ábm.) Bjarm Benediktsson. Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur. Einar Asmundsson. Lesbók: Arm Ola, sími a3045 Auglysingar: Arni Garðar Kristinsson. Ritstjórn: Aðalstræti 6. Auglýsingar og algreiðsia: Aðalstræti 6. Sími 22480 Asknítargjald kr 30.00 á mánuði innanlands. I lausasölu kr i.50 eintakið. HAGNÝTUM AUÐLINDIR LANDSINS IITAN ÚR HEIMI 1 Höfundurinn Georges Simenon (t. v.) og kvikmyndaleikarinn Jean Gabin (t. h.). Báðir með reykjarpípu Maigrets. Hin Ijósiifandi sögupersóna -amsóknarmenn fóru lengi W vel ekki dult með það, að " þeir sæktu höfuðkraftinn til stjórnmálabaráttu sinnar í fjandskap til Reykjavíkur. Þá héldu þeir, að fjölgun fólks við sjávarsíðuna mundi verða bana- biti sveitanna. Þess vegna varð, að þeirra áliti, að standa eftir föngum á móti uppbyggingu bæj- anna og þá einkum Reykjavíkur. Þeir töldu hvert nýtt átak til að tryggja lífsafkomu fólksins hér vera landsbyggðinni hættulegt. Af þeim sökum snerust Fram- sóknarmenn í fyrstu með fullum fjandskap gegn virkjun Sogsins. Ein af ástæðunum, er þeir færðu fram til afsökunar þingrofinu vorið 1931, var sú hætta, sem þeir töldu fjárhag þjóðarinnar stafa af þeim fjárglæfrum, að ríkisábyrgð yrði veitt fyrir Sogs- virkjun. Það var ekki fyrr en eftir nokkurra ára þóf, að Fram- sóknarmenn fengust til að láta af augljósri andstöðu við þessa mannvirkjagerð. ★ Hugurinn var þó enn hinn sami. Eftir að Sjálfstæðismenn höfðu undir forystu Jóns Þor- lákssonar tryggt framgang Sogs- virkjunarinnar, sneru þeir sér að lagningu hitaveitu fyrir Reykja- vík. Nú eru allir sammála um, að í betra fyrirtæki hafi ekki verið ráðist hér á landi. Á meðan það var í undirbúningi, mætti það ótrúlegum erfiðleikum, bæði inn- anlands og utan. Erfiðleikaná utanlands var þó hægt að yfir- stíga jafnskjótt og þáverandi valdamenn á íslandi létu af sín- um fjandskap. En slík „góðvild“ þeirra til þessa nytjamáls fékkst ekki fyrr en þjóðstjórnin var mynduð vorið 1939. Síðan hefur margt gerzt. Hald- ið hefur verið áfram að virkja Sogið eftir því, sem þörf og geta hefur sagt til um. Þær virkjanir hafa átt meiri þátt i margháttuð- um framförum á landi hér, en menn í fljótu bragði gera sér grein fyrir. Ekkert eitt mannvirki hefur sýnt betur en virkjun Sogsins, hvernig hagsmunir þéttbýlis og strjálbýlis eru saman tvinnaðir. Gjörbreytingin, sem orðið hefur á lífi sveitafólksins við að fá raf- magnið í sína þjónustu, væri óhugsandi, ef fjárhagsgrundvöll- ur virkjananna væri ekki lagður með rafmagnsnotkun þéttbýlis- jns. Hér hefur sannast svo, að ekki verður um deilt, að velfarn- aður þjóðarheildarinnar er kom- inn undir því, að fylgt sé kjör- orði Sjálfstæðismanna um, að stétt standi með stétt. ★ Þetta eru nú svo augljós sann- indi, að jafnvel Framsóknarmenn treysta sér ekki til að neita þeim. En sjálfshyggjan er sú sama og áður. Úr því að þeir treysta sér ekki lengur til að standa á móti framförunum, þá gera þeir blygð- unarlausa tilraun til að eigna sjálfum sér heiðurinn af þeim. Undanfarið hefur Tíminn þrá- stagast á því, að það sé að þakka núverandi stjórnarflokkum, und- ir forystu Eysteins Jónssonar, að lán hafi fengizt til þeirrar virkj- unar Efra-Sogs, sem nú er hafin. Trúi hver, sem trúa vill. Innan- lands segja stjórnarflokkarnir mikla örðugleika stafa af „íhalds- arfinum". Og þeir láta svo að taka muni bæði ár og dag að eyða þeim arfi. Et} út á við á allt í einu að hafa létt svo til við brottför „íhaldsins“ úr ríkisstjórn að þá hafi lánsfé legið laust fyrir. Hér skýtur óneitanlega skökku við. Sannleikurinn er sá, að hið eina sem núverandi ríkisstjórn hefur gert í þessum efnum er að tengja Sogs-lánið með óviður- kvæmilegum hætti við áfram- haldandi dvöl varnarliðs hér á landi. Enginn af núverandi valda mönnum ætti að vita betur en Ey- steinn Jónsson, að á meðan fyrrv. ríkisstjórn var við völd vildu hvorki þeir ráðherrar, sem mál- ið var borið undir, né borgar- stjóri tengja þetta tvennt saman. Af þeim sökum var ekki hirt um að fylgja eftir þeim lánsmögu- leikum, er fyrir hendi voru í Bandaríkjunum vorið 1956. Ef Eysteinn Jónsson veit þetta ekki, þá sannar það einungis algert áhugaleysi hans um málið. Þá er það og nógsamlega kunn- ugt, að sumarið 1956 lágu fyrir boð um mikla lánsmöguleika í Þýzkalandi, bæði til Sogsvirkj- unar og annarra framkvæmda. Er sannast sagt óskiljanlegt af hverju núverandi ríkisstjórn hef- ur ekki fylgt því máli betur eftir. Sogslán var þess vegna hægt að fá. Hitt er annað mál, að ein- mitt Eysteinn Jónsson hafði kraf- izt þess, að ýmsar aðrar fram- kvæmdir væru látnar ganga á undan. Og ef treglega gekk um fjárútvegun til þeirra sumra, væri honum þá ekki sæmst að minn- ast, hver var fjármálaráðherra á þeim árum og áskildi sjálfum sér rétt til ákvörounar um allar lánsútveganir? Hér sem ella lenda Framsókn- arrnenn í fullkomnum mótsögn- um í málflutningi sínum af því að þeir hverfa af hinni beinu braut sannleikans og lenda í ósannindaklungrinu, þar sem hvert rekst á annars horn. ★ Engir fagna því fremur en Sjálfstæðismenn, sem haft hafa alla forustu í þessu máli frá upp- hafi vega, að virkjun Efra-Sogs er tryggð. Stefnuleysi og fum Framsóknar verður hins vegar berara með hverjum degi. Til skamms tíma hafa þeir hælt sér af hinni stórfelldu aukningu tog- araflotans, sem V-stjórnin þykist hafa beitt sér fyrir, en enn birtist þó í orðum einum. Nú skyndi- lega byrjar Tíminn skrif um, að fiskimiðin séu uppurin og full- komið glapræði sé að bæta fleiri togurum við það eyðilegg'ingar- starf. í þess stað fjölyrðir Tíminn um nauðsyn á stórfelldri virkj- un fallvatna. Tíminn hefur því um sinn horfið frá sinni fornu kenningu um, að þéttbýlið sé höfuðfjandi sveitanna. Ef þar væri um sanna hugarfarsbreyt- ingu að ræða, ber að fagna henni. En því miður gefur reynslan ástæðu til fullrar tortryggni. Valfarnaður þjóðarinnar bygg- ist á hagnýtingu allra orkulinda þ.á.m. á áframhaldandi virkjur fallvatna. í þeim efnum hafa Sjálf stæðismenn hingað til haft for ystuna og svo mun enn verða. Hin ljóslifandi f AÐALSKRIFSTOFU frönsku leynilögreglunnar í París stend- ur stórt skrifborð með skjölum og stórum öskubakka, sem á liggja margar reykjapípur. Við þetta skrifborð er þægilegur skrifstofustóll. En í stólinn sezt aldrei neinn maður. Ef maður spyr svo leynilög- reglumennina, hver eigi þetta skrifborð, hver hérna hafi bæki- stöð, svara þeir: — Þetta or skrifborðið hans Maigret. Þá skiljum við, hvers vegna eigandi skrifborðsins sést aldrei. Hann er ekki til í hinu raun- verulega lífi. Hann er aðeins sögupersóna, ein frægasta skáld- sagnapersóna í frönskum bók- menntum í dag. Með reykjarpípuna Hafi maður lesið sögurnar af Maigret leynilögreglumanni, má þó vera að manni finnist hann ekki svo óraunverulegur. Hafi maður lesið 20—30 bækur um það sem á daga hans hefur drif- ið, getur verið, að í næsta skipti, sem maður heimsækir skrifstofu frönsku leynilögreglunnar, þá finnist manni Maigret sitja við skrifborðið sitt, kveikja sér í reykjarpípu og hugleiða hin vandasömu úrlausnarmál lög- reglunnar. Frægð Maigret lögreglumanns hefur ekki aðeins borizt út um Frakkland. Sögurnar um hann voru eitt uppáhalds lestrarefni Roosevelts Bandaríkjaforseta. í þýðingum hefur Maigret talað 28 tungumál. Ótal kvikmyndir hafa verið gerðar um líf hans. Og fjöldi hinna frægustu kvik- myndaleikara hefur gert sitt ýtrasta til að gefa þessari frægu sögupersónu blæ raunveruleik- ans. Frægastir þeirra eru máske franski kvikmyndaleikarinn Michel Simon og enski kvik- myndaleikarinn Charles Laugh- ton. Og nú er það ætlunin, að hinn heimsfrægi kvikmyndaleik- ari Jean Gabin taki að sér hlut- verk Maigret. Gabin er strax farinn að lifa sig inn í líf lög- reglumannsins. Og þá er það sérstaklega einn vani, sem Gab- in hefur nauðsynlega orðið að læra. — Það er að reykja pípu. Vinir Gabins tóku eftir því ekki alls fyrir löngu, að hvar sem hann fór stóð reykjarpípan út úr munnvikinu á honum. Allt- af var hann að troða í hana bessu ilmandi tóbaki og kveikja : henni. Og þeir spurðu: — Ertu orðinn svona sparsamur, að þú Maigret tímir ekki að kaupa þér sígarett- ur? Gabin svaraði ekki, heldur glotti bara. En nú er það komið upp. Hann er farinn að lifa sem söguper- sónan Maigret lögregluforingi. Og vel má vera, ef við heim- sækjum skrifstofu leynilögregl- unnar í París, að við sjáum lög- regluforingjann allt í einu sitja þar ljóslifandi, þótt hann beri máske svip Jean Gabin kvik- myndaleikara. Nafnið varð til 1928 Maigret lögregluforingi hefur orðið til í huga franska rithöf- unarins Georges Simenon. Það var árið 1928, sem hann skrifaði nafnið Maigret í fyrsta skipti á blað. Nafnið var byrjunin. Síð- an hefur hann haldið áfram að skapa persónuna, klæða hana holdi og blóði, skapa henni eðlis- einkenni, hugsun, sérvizku og alls kyns siði. Þegar Simenon var ungur drengur í Liege í Belgíu, fór hann stundum með föður sínum í sundlaug eina þar í borginni. Þar sátu karlmennirnir oft sam- an allsnaktir í sólbaðsskýlinu og röbbuðu við hvern annan um heima og geima. Einn var sá persónuleiki, sem Simenon kynnt ist á baðstað þessum. Það var gamall lögregluforingi, sem lát- ið hafði af embætti. Hann hafði mikið yndi af að segja frá þeim ævintýrum og lögreglumálum, sem hann hafði starfað við. Margar af þessúm frásögnum voru mjög spennandi og dreng- urinn hlustaði hugfanginn á, hvernig gamli lögregluforinginn hafði glímt við hina verstu glæpamenn og haft sigur. Þess- ar endurminningar hans úr bernsku eru ein sterkasta stoð- in undir tilveru Maigret lög- regluforingja. Fáum árum síðar, um tvítugs- aldur gerðist Simeon blaðamað- ur við belgiska blaðið Gazette de Liege. Var hann þá sendur út af örkinni til að fylgjast með frægum sakamálum. Þetta átti við hann og frásagnir hans af glæpamálunum þóttu afburða spennandi og skemmtilegar. Þeg- ar hann varð var þessara vin- sælda, datt honum í hug, að máske ætti hann að skrifa leyni- lögreglusögu og sjá hvort hún hlyti ekki sömu vinsældir eins og blaðagreinarnar. Þá var það sem Maigret fædd- ist á hvítu blaði í rbvél Simen- I ons. Hann hafði ekki lesið sög- urnar af Sherlock Holmes sem þó eru svo frægar. Sköpun lög- regluforingjans Maigret er því að mestu sjálfstæð, enda er persónan önnur, en tíðkast í leynilögreglusögum. Venjulegur maður Maigret er ekki eins snjall og Sherlock Holmes. Hann er í rauninni ósköp venjulegur mað- ur. Leynilögreglumaðurinn Poi- rot, sem Agatha Christie hefur skapað er einnig framúrskarandi gáfaður. Hann er svo vitur, að hann veit eiginlega allt. Fólki finnst hann jafnvel óraunveruleg- ur, hann veit svo mikið. Maigret er aðeins venjulegur maður, kom Framh. á bls. 15 Enski kvik- myndaleik- arinn Charies Laughton gæddi Maigret lífi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.