Morgunblaðið - 09.11.1957, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 09.11.1957, Blaðsíða 16
ÓPERUFLOKKUR frá ríkisleik- húsinu í Wiesbaden er kominn til Reykjavíkur til að sýna söng- leik Mozarts, Cosi fan tutte, í Þjóðleikhúsinu. Fyrsta sýningin «r í kvöld. Blaðamenn hittu hina þýzku gesti í gær. Fyrirliði hópsins, dr. Schramm leikhússtjóri, ræddi nokkuð um þessa fyrstu heim- sókn þýzks óperuflokks til ís- lands, um starfið í söngleikahöll- um Þýzkalands, nýjustu óperur þýzkra tónskálda — og um Moz- art og Cosi fan tutte. Leikstjór- inn sagði, að þessi gamansama ópera væri e.t.v. fegursti söng- leikur snillingsins og yrði nú flutt íslendingum á þann hátt, I sem tíðkazt í Þýzkalandi, þar sem byggt er í senn á fornum erfðavenjum og nýjum hugmynd um. Leiktjöld frá Wiesbaden hafa verið sett upp á sviði Þjóðleik- hússins. Þau eru einföld og ný- tízkuleg í sniðum, öll kolsvört í grunninn, en skreytt með fín- gerðu, hvítu strikaflúri. í kvöld kl. 8 kemur svo hinn dimmraddaði Svisslendingur Pet er Lagger fram á sviðið í gervi Don Alfonso og gengur frá sínu fræga veðmáli við 2 unga liðsfor- ingja (Heinz Friedrich og Rein- hold Bartel) um að hann geti slökkt loga kærleikans í brjóst- um ástmeyja þeirra. Þarf að vísu mikið til, því að meyjarnar eru hinar trygglyndustu lengi vel. Spretta af þessu hinir flóknustu I atburðir. Er ekki að efa, að allir verða í kvöld í jafngóðu skapi og þeir, sem ljósmyndari Mbl. sá á sviði Þjóðleikhússins í gær. Á mynd- inni eru: dr. Schramm, söngkon- urnar Lois Toman (Dorabella, önnur af ástmeyjunum) og Trude Kortegast (Despina, hin ráð- snjalla þjónustustúlka), flautu- leikarinn Kehrmann, óperusöng- konan Marianne Dorke (Fiordil- igi, hin kærastan), Hirschfeld, ambassador Þjóðverja á íslandi og Vilhjálmur Þ. Gíslason, for- maður Þjóðleikhúsráðs. (Ljósm.: Ól. K. M.). Utanríkisráðuneyti íslands óskaði þess að sendiherra Rússa fengi að tala í útvarp * Lofgjörð um kommúnistabyltinguna vakti undrun og andúð hlustenda ÞAÐ vakti mikla athygli útvarpshlustenda sl. fimmtudagskvöld er sendihcrra Rússa hér á landi tók að flytja ræðu í útvarpið að loknum kvöldfréttum. Var tilefni þess afmæli rússnesku byltingar- innar. Hefur það yfirleitt ekki tíðkast að sendiherrar erlendra ríkja j flyttu útvarpsræður á þjóðhátíðardögum landa sinna. Þessi minning hins rússneska byltingarafmælis í Ríkisútvarpinu mun hafa farið fram samkvæmt óskum íslenzka utanrikisráfiu- neytisins. Vakti þetta rússneska útvarp mikla andúð meðal fjölda hlustenda, enda gersamlega óvenjulegt. „Umfram allt að varðveizlu friðar“ Ræða sendiherrans var fyrst og fremst lofgjörð um kommúnista- byltinguna og lýsing á árangri hennar. Kvað hann utanríkis- málastefnu Sovétríkjanna „miða umfram allt að varðveizlu frið- ar“ eflingu jafnræðisviðskipta ríkja á milli á grundvelli gagn- kvæmrar tillitssemi. Þróun, vin- áttu og samstarfs allra þjóða. Það hefur verið og er enn stefna vor að öll deilumál þjóða beri að að leysa á friðsamlegan hátt“, sendiherrann. Varðarkaffi í Valhöll \ dag kl. 3-5 s.d. Hvað mundi ungverska þjóðin segja um framkvæmd þessarar yfirlýsingar í verki? Eða Eist- lendingar, Litháuar og Lettar? Sovétrikin og ísland Undir lok raéðu sinnar minntist sendiherra Rússa nokkuð á skipti íslendinga og Rússa. Komst hann m.a. að orði á þessa leið: „Það er álit manna í Sovétríkjunum að þau auknu verzlunarviðskipti, er þróast hafa milli Sovétríkjanna og íslands árin eftir stríðið, hafi skapað grundvöll fyrir góð sam- skipti landanna á öðrum sviðum einnig. Efling góðra samskipta landa vorra mun einnig gera sitt til að efla málstað friðarins í heiminum". Vekur tortryggni Þessi ummæli hljóma ekki illa. íslendingar vilja góð samskipti við allar þjóðir, einnig Rússa. En fyrir nokkrum dögum lýsti annar af ráðherrum kommúnista í ríkis- stjórn íslands því yfir, að ekki mætti gagnrýna Rússa vegna þess, hve mikil viðskipti þeir ættu við okkur. Slík afstaða gef- ur óneitanlega tilefni til tor- tryggni gagnvart þeirri sam- vinnu, sem sendiherra Rússa tal- ar um að fylgja eigi verzlunar- viðskiptunum „á öðrum sviðum einnig“. f sambandi við friðar- yfirlýsingarnar má á það benda, að hingað til hefur friðarvið- leytni Rússa byggzt á því einu að krefjast skilyrðislausrar undir gefni og fylgi við þeirra eigin stefnu. Nú síðast hafa fulltrúar Rússa í afvopnunarnefndum Sameinuðu þjóðanna lagt þar niður störf vegna þess að þeir hafa ekki einir geta ráðið þar öllu. Bálför Jóns Sigurðs- sonar frá Kaldaðar- nesi BÁLFÖR Jóns Sigurðssonar frá Kaldaðarnesi, fyrrverandi skrif- stofustjóra Alþingis fór fram í Fossvogskapellu í gær. Hófst hún með _því að Einar Vigfússon og Páll ísólfsson léku samleik á cello og orgel. Þá söng karlakór sálm- inn Á hendur fel þá honum. Síðan flutti séra Jón Auðuns dómprófastur kveðjuorð en að þeim loknum var á ný samleikur á cello og orgel. Þá var sunginn sálmurinn Hærra minn guð til þín. Athöfn- inni lauk í kirkjunni með því að sungið var síðasta versið úr Allt eins og blómstrið eina. Sýning Félags áhugaljósmyndara opnuð í Listamannaskálanum í da" Skjaldborg segir upp samningum Ein stéttarfélagið innan vé- banda Alþýðusambands íslands, félag það sem klæðskerar eru aðilar að Skjaldborg, hefur sagt upp kaup- og kjarsamningum fyr- ir félagsmenn sína. Um síðustu mánaðarmót var samningunum sagt upp. Klæð- skerameistarafélagið hefur haldið einn fund með ráðamönnum Skjaldborgar. Þær kröfur eru gerðar að grunnkaup klæðskera hækki um 8—9%. Síðan þessi fundur var haldinn hefur annar ekki verið boðaður. Samningarn- ir renna út hinn 1. desember næstkomandi. Geta má þess að formaður Skjaldborgar er Helgi Þorkels- son klæðskeri, sem verið hefur einn helzti forsprakki kommún- ista innan verkaiýðsheryfingar- innar hér í bænum. Slys við Akraneshöfn AKRANESI, 8. nóv. — Laust eftir hádegi gerðist það, er verið var að skipa upp vörum úr Helga felli, að járnbiti slóst í höfuðið á einum verkamanninum, Jóni Andrési Benediktssyni, til heim- ilis að Akurgerði 9. Marðist hann og skarst á höfði, leið í ómegin við höggið og marðist á fæti, er hann féll á hafnargarðinn. Var þegar kallað á sjúkrabíl, er flutti Jón Andrés upp í sjúkrahús. — Reyndust meiðsli hans miklu tninni en á horfðist í fyrstu, og fékk að fara heim til sin, er lækn rinn hafði gert að meiðslum íans. —Oddur. <osið í niðurjöfn- marnefnd Á FUNDI bæjarstjórnar aðfara- nótt föstudags var kosið í nið- urjöfnunarnefnd Reykjavíkur. Kosningu hlutu: Guttormur Er- lendsson, Einar Ásmundsson, Sig- urbjörn Þorbjörnsson, Björn Kristmundsson og Haraldur Pét- ursson. Varamenn eru: Björn Snæ- björnsson, Þorvarður Jón Júlíus- son, Eggert Jónsson, Halldór Jakobsson og Eyjólfur Jónsson. * í DAG kl. 4 opnar borgarstjórinn í Reykjavík, Gunnar Thoroddsen sýningu Félags áhugaljósmynd- ara í Reykjavík í Listamannaskál anum. í dag verður sýningin aðeins opin fyrir gesti, en almenn ingi á morgun. Mun hún standa yfir í tvær vikur frá kl. 14—22, virka daga og 10—22 sunnudaga, Þetta er í annað sinn sem Fé- lag áhugaljósmyndara heldur hér sýningu. Fyrri sýningin var hald in í Bogasal Þjóðminjasafnsins árið 1954. Voru á henni innan við 100 myndir. Var hún mjög vel sótt. Þessi sýning er öllu yfirgrips- meiri en hin fyrri. Á henni eru hátt á annað hundrað svart- hvítra stækkana, áhugamanna og atvinnuljósmyndara bæði er- lendra og innlendra. Þá verða sýndar daglega yfir 200 litskugga myndir. Einnig er Ijósmynda- tækjasýnig frá ýmsum Ijósmynda verzlunum í bænum. fHeim- dallur Fjöltefli ó morgun SKÁKMEISTARINN Guðmund- ur Ágústsson teflir fjöltcfli við Heimdellinga í Valhöll á morgun kl. 2. Málfundafélagið Óðinn: Almennur launþega- fundur á morgun Rætt um verðstöðvunarstefnu rikis- stjórnarinnar Á MOGUN kl. 2 e.h. heldur Málfundafélagifi Óðinn, félag sjálf- stæöisverkamanna og sjómanna almennan launþega-fund í Sjálf- stæðishúsinu og verður Bjarni Benediktsson ritstjóri frummæl- andi á fundinum. Umræöuefni fundarins er: Verðstöðvunarstefna rikisstjórnarinnar. Hefur dýrtíðin stöðvast? ALLT SJÁLFSTÆÐISFÓLK VELKOMIÐ Þetta mun vera fyrsti almenni fundurinn sem hin nýkjörna stjórn Málfundafélagsins Óðins efnir til og er ekki að efa að launþegar munu fjölmenna á þennan fund. Framsögumaður á fundinum er eins og áður segir Bjarni Bene- diktsson ritstjóri en umræðuefni fundarins er mál, sem snertir alla launþega, hin svokallaða verðstöðvunarstefna ríkisstjórnarinnar. Hefur dýrtíðin stöðvazt? Allt Sjálfstæðisfólk er velkomið á fundinn meðan húsrúm leyfir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.