Morgunblaðið - 09.11.1957, Blaðsíða 15
Laugardagur 9. nóv. 1957
MORGVNBL4B1Ð
15
— Utan úr heími
Framh. af bls. 8
inn á miðjan aldur. Þetta er eitt
af því, sem gerir hann svo raun-
verulegan í augum lesendanna.
Nú eru svo margar bækur
komnar út um Maigret lögreglu-
foringja, að við vitum næstum
allt um hann. Við vitum, hvar
hann er fæddur, uppi í sveit. Við
vitum, hvað faðir hans gerði:
bústjóri á stórum búgarði. Við vit
um, hvar hann fæddist: í þorp-
inu Allier skammt frá Nantes á
vesturströnd Frakklands. Við
vitum, hvað hann ætlaði að
verða: læknir. Við vitum, hvern-
ig hann gerðist leynilögreglu-
maður: hann var fyrst götulög-
reglumaður, síðan skrifari lög-
reglustjóra. Við vitum hvenær og
hvernig hann varð ástfanginn
konu og giftist henni. Við vit-
um, hvernig hann hækkaði í tign
og varð lögregluforingi, við þekkj
um flesta siði hans, takta hans,
við vitum hvernig táin á skóm
hans er, hvaða tóbakstegund hann
reykir, hvaða kaffi honum finnst
bezt.
Maigret er harðstjórinn
Sumir segja, að Simenon hafi
verið hinn mesti harðstjóri, þeg-
ar hann skapaði persónuna. Mai-
gret fékk ekki sjálfur að ráða
því, hvaða kaffi honum þætti
bezt, það var náttúrlega rithöf-
undurinn sem ákvað það. En ef
menn kynnast Simenon, þá kom-
ast menn að annarri niðurstöðu,
— það er sem sé Maigret sem er
harðstjórinn. Eftir honum verð-
ur Simenon að hegða sér. Sim-
enon verður að reykja tóbakið
hans Maigret og hann verður að
tileinka sér alla takta hans.
Maigret leynilögregluforingi er
sögupersóna, en hann er orðinn
ljóslifandi sögupersóna. Fyrir
nokkrum árum gaf Maigret út
sjálfsævisögu sína. Hún var
nokkuð annars eðlis en leynilög-
reglusögurnar, sem Simenon
skrifar venjulega. Þetta voru
minningar og í leiðinni leiðrétti
Maigret ýmis konar misskilning,
sem komið hefði fram hjá Simen-
on varðandi ævi hans.
Það er því engin furða, þótt
starfsmönnum á skrifstofu
frönsku leynilögreglunnar finn-
ist stundum, að Maigret sé kom-
inn ljóslifandi á meðal þeirra og
seztur við skrifborðið sitt.
— Jón Arason
Framh. af bls. 9
Það hefur gengið prýðilega
þennan áratug. Ég fékk ágæta
konu og mér hefði ekki liðið
svona vel, ef ég hefði ekki fengið
hana. Hún heitir Hannveig Ein-
arsdóttir, er Skaftfellingur að
ætt. Áður bjó ég með konu í 30
ár og átti eina dóttur með henni
og nú hefur hún eignazt 10 börn
Það er óhætt að segja, að hún hafi
bætt fyrir syndir feðranna! Jú,
það er ágætt að gifta sig sjötugur.
Það þarf að vanda vel til þess
sem lengi á að standa. Það er
ekki eins og þegar unglingarnir
eru að hlaupa saman án lítillal
kynna, en æskan er bráðlát, ég *
ætti sízt að dæma um það, þar
sem ég átti telpuna ekki 20 ára
gamall. Ég má víst varlega dæma,
en ég hætti þá líka. Það var voða-
legur hlutur að lenda í almenn-
ingsálitinu á þeim tímum. Að því
leyti er betra að lifa núna. Þröng-
sýnin ætlar ekki lengur allt að
drepa, þó að hún loði við okkur
ennþá. En við skulum ekki hafa
þetta lengra, segir Jón Arason
að lokum. Ég ætla bara að segja
þér, hvernig ég vildi skilja við,
en það verður að vera glænýtt
eins og ýsan frá Steingrími:
Þegar nálgast stundin stríð,
stend ég fljóts á bökkum
kveðja vil ég land og lýð
og lífið sjálft með þökkum.
Og nú mætti halda áfram fram
á rauða nótt segir Jón og brosir
um leið og hann gengur út og
kveður mig:
öngu kvíða eg því kann
er ég mæli þanninn
því yfir fljótið öruggan
á ég ferjumanninn.
M.
Innilegar þakkir til allra, sem heiðruðu mig og glöddu
á áttræðisafmæli mínu.
Óskandi ykkur alls góðs.
Jón Jónsson,
frá Flatey.
Ég vil af alhug þakka öllum þeim er glöddu mig með
heimsóknum, gjöfum og skeytum á sextugsafmæli mínu
þann 30. okt. sl.
Guð blessi ykkur öll.
Lára Þórhannesdóttir,
Blönduholti, Kjós.
Hjartans þakkir fyrir gjafir og aðra vinsemd mér auð-
sýnda á 85 ára afmælinu.
Guð blessi ykkur öll.
Guðbjörg Jóhannsdóttir,
Kleppsmýrarveg 3.
é^ncjlnn LúL
ja^naót
a vi
apenm
u ann ^
PARKER KÚLUPENNI
Hinn nýi Farker kúlu
penni er se eim. sem
gefur yður kost á að
velja um fjórar odd-
breiddir . . . odd við
yðar hæfi.
Hinti nýi i 'arker kúlu
penni er sá eini með
haldgóðu, óbrjótan-
legu nælon skapti og
demantfægðum
málmoddi.
^
Hinn nýi t-arker kúlu
penni veitir yður
fimm siniinm íengri
skrrft en AL.LIR
VENJULEGiR
KÚI.UPEiNNAR . .
sannað af öruggri
reynslu.
Hinn nýi Farker kúlu
penni skriíar leik-
andi létt og geíur allt
af án þess að klessa.
Skrnt með honum er
tekm giid af bönkum.
(LLncli.
iát í áratucji
▼erS: Parker kúlupenni: Frá kr. 62.20 til kr. 276.00 — Fylling kr. 25.00.
Einkaumboðsmaður Sigurður H. Egilsson, P. O. Box 283 Reykjavík
Viðgerðir annast: Gxeraugnaverzlun ingólfs Gíslasonar, Skólavörðustig 5 Rvík
BP2-24
Innileg þökk til þeirra er gerðu mér 60 ára aímselið ó-
gleymanlegt. Lifið heil.
Finnbogi H. Finnbogason.
Lokaö
allan daginn í dag
vegna jarðarfarar
Timburverzlunin Völundur hf.
Móðir mín, tengdamóðir og amma
ÁRNFRÍÐUR ÁRNADÓTTIR,
Haðarstíg 22, lézt í Landsspítalanum föstudaginn 8. þ. m.
Steingrímur Jónsson,
Ragnheiður Ingibergsdóttir
og synir.
Hjartkær eiginmaður minn og faðir okkar
KRISTJÁN TORFASON, bankafulltrúi,
lézt á Bæjarsjúkrahúsinu 8. þ. mán.
Sesselja Ottesen Jósafatsdóttir
og synir.
mmmmmmmmmmKmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmammmmmmmmmmmmammmmmmmmmmmmmm
Maðurinn minn,
JÓN SIGURÐSSON frá Kaldaðarnesi,
lézt í Landsspítalanum 31. okt. — Útförin hefur farið
fram í kyrrþey, eftir ósk hins látna.
Fyrir hönd barna minna og annarra aðstandenda.
Anna Guðmundsdóttir.
Hjartkær dóttir okkar og systir
JÓNA BJÖRG ÓSKARSDÓTTIR
frá Fáskrúðsfirði andaðist í Lanc%.pítalanum aðfaranótt
föstudags 8. nóvember.
Oddný Þórormsdóttir,
Óskar Jónsson
og börn.
Vinkona okkar
LOVÍSA EIRÍKSDÓTTIR,
andaðist á Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund 8. þ. m.,
94 ára að aldri.
María Júlíusdóttir,
Halldóra Gísladóttir,
Valgerður Jónsdóttir.
KRISTÍN KRISTJÁNSDÓTTIR
lézt sl. nótt í Elliheimilinu í Reykjavík.
Jarðarförin auglýst síðar.
Systkinin frá Mýrarhúsum.
ÞORVARÐUR GUÐBRANDSSON
Bakka á Kjalarnesi, sem lézt 3. þ.m. verður jarðsunginn
frá Brautarholtskirkju mánudaginn 11. þ.m. kl. 2 síð-
degis. Bílferð verður frá B.S.R. kl. 13.15.
Blóm vinsamlegast afbeðin.
Börn hins látna.
MARÍA GUÐMUNDSDÓTTIR
andaðist að heimili sínu Suðurlandsbraut 9, 1. nóv. —
Jarðarförin fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 12.
nóvember kl. 10.30 árdegis.
Fyrir mína hönd og annarra aðstandenda.
Iljalti Einarsson, málarameistari.
Jarðarför konunnar minnar
GEIRFINNU JÓMUNDSDÓTTUR
fer fram frá Hiíðardalsskóla þriðjud. 12. nóvember kl. 2
e.h. Jarðsett verður frá Hjalla.
Ingibjartur BjarnasMi.