Morgunblaðið - 17.11.1957, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 17.11.1957, Blaðsíða 1
24 síður istkvnnínn ! Piiieau fer til tunáat við Dulles Morgunblabsins Kristján H. Magnúss f DAG hefst sýning á verkum eftir Kristján heitinn Magnússon listmálara á vegum listkynning- ar MorgunblaSsins. Kristján H. Magnússon vgr fæddur á ísafirði 6. marz árið 1903. En hann lézt aðeins 34 ára gamali. Var hann þá orðinn þekktur listmálari. Hann hóf ung ur listnám hér heima en hélt fljótlega til Vesturheims. Stund- aði hann nám við Listaháskólann í Boston árin 1921—1926. Síðan hélt hann listnámi sínu áfram við „The National Academy of Des- ing“ í New York. Að námi loknu var honum boð- ið að sýna verk sín við ýmsa listaskóla í Bandaríkjunum, m.a. í Pennsylvaníu og New York. Á næstu árum hélt hann ennfremur margar sjálfstæðar sýningar bæði i Bandaríkýunum og Evrópu og hlaut ágæta dóma fyrir verk sin. Fyrsta opinbera listasafnið, sem keypti af honum listaverk var „Worcester art museum“ í Banda ríkjunum. Fleiri erlend söfn, eink um í Bandarikjunum keyptu verk hans. Hér heima hélt Kristján Magn- ússon einnig margar sýningar á þessum árum, bæði í Reykjavík og á ísafirði og seldi fjölda mál- verka. Á vegum listkynnlngar Mbl. eru nú til sýnis 5 olíumálverk eftir hann og fjórar teikningar. Mun marga fýsa að sjá listaverk þessa listamanns, sem féll frá í blóma lífsins. En við hann voru vissulega miklar vonir tengdar. Olíiumálverkin, sem til sýnis eru eftir hann eru þessi: Frá Þingvöllum, Brim, sem er frá Vestmannaeyjum, Ófullgerð hugmynd, Gleiðarhjalli, sem er frá ísafirði og Innan frá Öræfum. Þrjú þessara málverka eru til sölu hjá syni listamannsins, Magnúsi Kristjánssyni, listmál- ara, Þingholtsbraut 49, Kópa- vogi eða hjá afgreiðslu Morgun- blaðsins. Gegn geimskeytum WASHINGTON 16. nóv. — Skýrt var frá því í Klrtland í Nýju Mexico í gærkvöldi, að 16 banda- rískir vísindamenn ynnu nú að smíði nýs varnarvopns, flugskeyt is, sem beitt yrði gegn óvinageim- skeytum. Þetta nýja flugskeyti á að bera kjarnorkusprengjur. í fréttinni sagði og, að vísindamennirnir hefðu nú nær Iokið við rannsókn- ir sínar á áhrifum af kjarnorku- sprengingu í geimnum. Frakkar sótfu ekki þingmannafundinn í gœr PARÍS, 16. nóv. — Frönsku þingmennirnir sóttu ekki fund þingmannaráðstefnu Nato-Iandanna í dag. Forseti ráðstefnunnar sagði á fundin- um í dag, að hann hefði gert ítrekaðar tilraunir til þess að fá áformum Frakka hreytt, en árangurslaust. — Kvaðst hann vona, að Frakkar mundu sækja ráðstefnurnar í framtíðinni. Á fundinum voru gerðar marg- ar samþykktir þar sem þingmenn létu í Ijós þær skoðanir að nauðsyn bæri til nánari viðræðna þingmanna bandalagsríkjanna — og nánari samvinnu ríkjanna. Lögð var áherzla á það, að banda lagsríkjunum bæri að jafna all- an ágreining sín í milli áður en Mnstakar stjórnir tækju ákvarð- anir, sem stofnuðu samvinnu NATO-ríkjanna í voða. H örmulegt flugslys LONDON 16. nóv. — Fjögurra hreyfla flugbátur, er lagði upp frá eyjunni Wight við Englands- strönd í gær, snéri aftur eftir skammt flug vegna bilunar í ein- um hreyflinum. Skömmu áður en flugbáturinn átti að lenda rakst hann á hæð á eyjunni og varð eitt eldhaf á svipstundu. 43 menn fórust, en 15 af þeim, er með flug- vélinni voru var bjargað — og voru þeir allir fluttir í sjúkrahús. Tvísýnt er um líf tveggja. Meðal hinna látnu voru þrjú brúðhjón og flugfreyja, sem var að fara í fyrstu flugferð sína. Flugstjórinn, sem einnig fórst, átti að baki sér 10 þús. flugstund- ir. Hermenn, sem voru að æfingu í nánd við slysstaðinn, fóru á vett vang til þess að reyna að bjarga farþegunum. Mættu þeir nokkr- um þeim, sem komust út úr brenn andi flakinu illa á sig komnir, með flakandi sár og brennandi klæði. Segja hermennirnir, að átakanlegt hafi verið að heyra angistarópin frá flakinu — þar sem fólkið barðist um lokað inni. Fengu hermennirnir ekkert að gert vegna eldhafsins og brunnu sem fyrr segir 43 inni. Foringjar al- heimskommun- ismons á iundi J.ONDON, 16. nóv. — Um 600 erlendir kommúnistaforingjar sitja um helgina fund með komm únistaforingjiunum í Kreml, er þetta fjölmennasti fundur komm- únistaforingja frá öllum löndum heims. Ekki hefur verið gefin út nein tilkynning um umræðuefni ráðstefnunnar, en talið er, að kommúnistarnir ræði fyrirhugað- an fund forsætisráðherra NATO- ríkjanna og það, hvaða ráðstaf- anir verði bezt að gera til þess að spilla árangri þess fundar. að Pineaiu muni reyna að kynna sér til hlítar samskipti Banda- ríkjanna og Túnis. Franski varnarmálaráðherrann sagði í ræðu í gær, að afstaða Breta og Bandaríkjamanna til Frakka og vopnasendingar þeirra til Túnis væri samstöðu NATO- ríkjanna hættuleg. — Hann kvaðst þess fullviss, að ekkért mundi fá Frakka til þess að breyta um stefnu í Alsírmálun- um, ekki einu sinni bandamenn þeirra, Bretar og Bandaríkin. Fyrirœtlanir Caillards Var skorað á forsætisráðherra ! og utanríkisráðherra bandalags- ríkjanna að koma oftar saman og ræða vandamálin. Þá var og gerð samþykkt, sem hvatti til þess að haldin yrði Atlantshafs- ráðstefna 1959, en þá er NATO 10 ára. o—®—o Tilkynnt hefur verið, að Pineau utanríkisráðherra Frakka, ræði við Dulles utanríkisráðherra Bandaríkjanna í Washington í næstu viku. Munu þeir ræða vopnasendingar Bandaríkja- manna til Túnis svo og væntan- lega ráðstefnu forsætisráðherra NATO-ríkjanna í París í næsta mánuði. Segir franska útvarpið, Samkvæmt áreiðanlegum heim ildum hefur Gaillard, forsætis- ráðherra Frakka nú í hyggju að fá stjórnir Bretlands og Banda- ríkjanná til þess að gefa opinbera yfirlýsingu um að báðar stjórn- irnar styðji stefnu Frakka í Alsírmálunum. Talið er, að Frakkar muni frekar sætta sig við vopnasendingarnar til Túnis að slíkum yfirlýsingum fengn- um. Sem kunnugt er, tóku Bretar Framh. á bls. 23 Að undanförnu hefur Amer, varnarmálaráðherri Egyptalands, dvalizt í Moskvu og rætt við kommúnistaforingjana í Kreml. Hafa fundir verið tíðir og mikil Ieynd hvílt yfir þeim. I þessu tilefni hafði egypzki sendiherrann í Moskvu boð inni fyrir Rússana einn daginn og er Amer hér á myndinni með þeim Krúsjeff og Búlganin. Enginn sjómaður til íslands fyrr en allar skuldir hafa verið greiddar á íslandi 1958 — áður en fær- | félagið vita um það þegar í stað. eyskir sjómenn ráða sig til starfa Að lokum er því lýst yfir, að á íslandi fyrir næsta ár. I enginn færeyskur sjómaður megi Þá eru færeyskir fiskimenn, | ráðast á ísl. fiskiskip fyrr en sem eiga inni af kaupi sínu á nýr samningur hefur verið gerð- fslandi hvattir til þess að láta ur og félaginu tilkynnt það. Bandarískar eldflauga- stoðvar erlendis ? ÞÓESHÖFN, 16. nóv. — Stjórn félags færeyskra fiskimanna hélt fund í gær og ræddi innstæður færeyskra sjómanna hjá íslenzk- um aðilum svo og kjör þeirra á íslandi. Stjórnin birti að fund- inum loknum yfirlýsingu og eru aðalatriði hennar þau, að stjórn- in telur það ófrávíkjanlega kröfu til íslenzkra útgerðarmanna og gjaldeyrisyfirvalda, að greiddar verði allar eftirstöðvar af kaupi færeyskra sjómanna frá 1957 og samið væri um yfirfærzlu á nettótekjum færeyskra sjómanna Glæsilegur sigur MANILA 16. nóvember — Ljóst er, að Garcia, frambjóðandi þjóð- ernissinna flokksins við forseta- kosningarnar á Filippseyjum, hef ur unnið glæsilegan sigur í kosn- ingunum. Hann er nú 61 árs að aldri og tók við af fyrrverandi forseta Magsaysay, er hann lézt í flugslysi í marz sl. NEW YORK, 16. nóvember. — Bandaríski varnarmálaráðherr- ann hefur látið svo um mælt, að Bandaríkin þarfnist eldflauga- stöðva í öðrum Nato-ríkjum en Bretlandi. Kvað hann mál þetta verða eitt aðalumræðuefni for- sætisráðherrafundar Nato-land- anna í desember nk. Kvað hann flugskeyti nú mundu verða áhrifamesta vopn Nato-ríkjanna. Kvað hann varnarmálaráðuneyt- ið vilja fá þessar stöðvar „í skot- færi“ við hugsanlegan óvin. — Sagði hann og, að sennilega myndi hermönnum frá fleiri Nato-löndum en Bandaríkjunum falið að fara með vopn þessi í væntanlegum eldflaugastöðvum, ef samkomulag næðist við banda lagsríkin í máli þessu. PARÍS 16. nóv. —- Margir létu lífið og aðrir særðust í járnbraut- arslysi í S-Frakklandi, er vöru- flutningalest og fullhlaðin fólks- flutningalest rákust á. Síðustu fregnir herma, að 26 lík hafi fundizt í brakinu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.