Morgunblaðið - 17.11.1957, Page 17

Morgunblaðið - 17.11.1957, Page 17
Sunnudagur 17. nóv. 1957. MORGVTSBLAÐÍÐ *T Nýr og spennandi bókaflokkur fyrir ungar stúikur: MÖGGU-BÆKU Rl\l AR Möggu bækurnar eru skrifaðar af þekktri skáldkonu, Wenche Norberg Schulz, sem einkum hefur lagt fyrir sig að skrifa telpnasögur. — Fyrsta bókin í þessum vinsæla bókaflokki heitir MAGGA og leynifélagið og fjallar ujm fjórtán ára stúlku, Möggu, sem dvelur sumar- langt í afskekktu sveitaþorpi, þar sem sjaldan skeður neitt sögulegt. En þrátt fyrir það bregður nú svo við, að þetta verður hið sögulegasta fyrir Möggu jafnöldru hennar, Marit, dóttur ferjumannsins, og tvo unga félaga þeirra, sautján ára pilta. Sá, sem veldur því, að eitthvað gerizt í lífi þessara vina okkar, er verzlunarstjóri Samvinnufélagsins í þorp- inu, Níels, eða glott-púkinn, eins og hann er vanalega kall- aður, vegna þess að hann brosir svo smeðjulega í viðurvist annarra. Og það er einmitt þetta viðurstyggilega bros, og meðferð hans á aumingjanum, Jens fávita, að leynifélagið grunar, að eitthvað óhreint leynist bak við. — Fylgist með MÖGGU bókunum frá byrjun. — Þær eru skemmtilega skrifaðar og mjög spennandi. SIGGA og félagar Þetta er sú þriðja í röðinni af hinum vinsælu SIGGU- bókum, eftirlæti allra ungra stúlkna. Þessi bók fjallar um lif og starf hinna ungu vinkvenna, Siggu, Solveigu, Tönju og Vibeku, í skóginum. En hámark viðburðanna er, þegar þær komast í kynni við dularfullan draug, sem virðist halda sig nálægt heimkynnum þeirra. — Þessi kynni leiða til þess, að þær komast á sporið eftir illræmdum smyglaraflokki, er hyggst nota skóginn fyrir myrkraverk sín. En hinir harð- svíruðu smyglarar hafa áreiðanlega ekki reiknað með því, að þessar ungu stúlkur yrðu þess valdandi, að þeir að lokum yrðu settir undir lás og slá. En auðvitað nútu hinir ungu vinir okkar aðstoðar við þessa hetjudáð, og má þar fyrst nefna Axel, bróður Siggu, sem í öllu reyndist ráðagóð hetja, þegar unnið var að handtöku smyglaraflokksins, og kom þá í góðar þarfir hinn nýi vélbátur hans, Haförninn, sem hann hafði unnið í happdrætti. En í sambandi við bátinn skeða mörg ævintýri. TARZAN-sögurnar eru sennilega víðlesnustu skemmtisögur í veröldinni. Ævin- týrin sem þessi snjalla hetja ratar í og þær ótrúlegustu þrautir, sem honum tekst ætíð að leysa, koma hugmynda- fluginu á hreyfingu, og lesandinn fylgir honum af lífi og sál á hinum hættulegu ferðum hans. Þessar Tarzan-sögur 'hafa komið út á íslenzku og fást hjá öllum bóksölum: Tarzan — Tarzan snýr aftur — Tarzan og dýrin — Sonur Tarzans — Tarzan og gimsteinar Ópar — Villti Tarzan — TARZAN HINN ÓGURLEGI — Tarzan og gullna ljónið — Tarzan og dvergarnir — Tarzan einvaldur skógarins — Tarzan og tvífarinn — Tarzan og pardusmennirnir — Á næstunní kemur út: TARZAN OG TÝNDA BORGIN. Landið okkar Landið okkar, hin ágæta bók Pálma Hannessonar, fæst hjá bóksölum og umboðsmönnum Bókaútgáfu Menningarsjóðs. Aðalútsala: Bókabúð Menningarsjóðs, Hverfisgötu 21, Reykjavík, pósthólf 1398, sími 10282. Verð kr. 115.00 ób., 150.00 í skinnlíki, 195,00 í skinn- bandi. Félagsmenn Bókaútgáfu Menningarsjóðs frá 20% af- slátt frá útsöluverði. Félagsmenn í Reykjavík: Félagsbækurnar 1957 eru komnar út. Gjörið svo vel og vitjið þeirra í bókabúð- ina, Hverfisgötu 21. — Kaupið jólabækurnar hjá yðar eigin forlagi og njótið þeirra hlunninda, sem það býður. Bókaútgáfa Menningarsjóðs. UIMGLR MAÐUR Reglusamur, ungur maður með prófi frá Verzlunarskóla í London og unnið hefur sem sölumaður í Reykjavík, óskar eftir verzlunaratvinnu. Þeir, sem vildu sinna þessu, leggi nöfn sín á afgr. MbL auðk. „1957 —3313“. Hefur þú ráð á ú hafa möguleika á að vinna Skattfrjálsa íbúd fyrir 100 krónur HEPPNI Símnotandi! Þér verður tilkynnt í síma samstundis og dr áttur hefir farið fram, aðÞITT SÍMANÚMER hafi hlotið vinning... skattfrjálsa íbúð.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.