Morgunblaðið - 17.11.1957, Síða 17
Sunnudagur 17. nóv. 1957.
MORGVTSBLAÐÍÐ
*T
Nýr og spennandi bókaflokkur fyrir ungar stúikur:
MÖGGU-BÆKU Rl\l AR
Möggu bækurnar eru skrifaðar af þekktri skáldkonu, Wenche Norberg Schulz, sem
einkum hefur lagt fyrir sig að skrifa telpnasögur. — Fyrsta bókin í þessum vinsæla
bókaflokki heitir
MAGGA og leynifélagið
og fjallar ujm fjórtán ára stúlku, Möggu, sem dvelur sumar-
langt í afskekktu sveitaþorpi, þar sem sjaldan skeður neitt
sögulegt. En þrátt fyrir það bregður nú svo við, að þetta
verður hið sögulegasta fyrir Möggu jafnöldru hennar, Marit,
dóttur ferjumannsins, og tvo unga félaga þeirra, sautján ára
pilta. Sá, sem veldur því, að eitthvað gerizt í lífi þessara
vina okkar, er verzlunarstjóri Samvinnufélagsins í þorp-
inu, Níels, eða glott-púkinn, eins og hann er vanalega kall-
aður, vegna þess að hann brosir svo smeðjulega í viðurvist
annarra. Og það er einmitt þetta viðurstyggilega bros, og
meðferð hans á aumingjanum, Jens fávita, að leynifélagið
grunar, að eitthvað óhreint leynist bak við. — Fylgist með
MÖGGU bókunum frá byrjun. — Þær eru skemmtilega
skrifaðar og mjög spennandi.
SIGGA og félagar
Þetta er sú þriðja í röðinni af hinum vinsælu SIGGU-
bókum, eftirlæti allra ungra stúlkna. Þessi bók fjallar um
lif og starf hinna ungu vinkvenna, Siggu, Solveigu, Tönju
og Vibeku, í skóginum. En hámark viðburðanna er, þegar
þær komast í kynni við dularfullan draug, sem virðist halda
sig nálægt heimkynnum þeirra. — Þessi kynni leiða til þess,
að þær komast á sporið eftir illræmdum smyglaraflokki, er
hyggst nota skóginn fyrir myrkraverk sín. En hinir harð-
svíruðu smyglarar hafa áreiðanlega ekki reiknað með því,
að þessar ungu stúlkur yrðu þess valdandi, að þeir að lokum
yrðu settir undir lás og slá. En auðvitað nútu hinir ungu
vinir okkar aðstoðar við þessa hetjudáð, og má þar fyrst
nefna Axel, bróður Siggu, sem í öllu reyndist ráðagóð hetja,
þegar unnið var að handtöku smyglaraflokksins, og kom þá
í góðar þarfir hinn nýi vélbátur hans, Haförninn, sem hann
hafði unnið í happdrætti. En í sambandi við bátinn skeða
mörg ævintýri.
TARZAN-sögurnar
eru sennilega víðlesnustu skemmtisögur í veröldinni. Ævin-
týrin sem þessi snjalla hetja ratar í og þær ótrúlegustu
þrautir, sem honum tekst ætíð að leysa, koma hugmynda-
fluginu á hreyfingu, og lesandinn fylgir honum af lífi og
sál á hinum hættulegu ferðum hans. Þessar Tarzan-sögur
'hafa komið út á íslenzku og fást hjá öllum bóksölum:
Tarzan — Tarzan snýr aftur — Tarzan og dýrin — Sonur
Tarzans — Tarzan og gimsteinar Ópar — Villti Tarzan —
TARZAN HINN ÓGURLEGI — Tarzan og gullna ljónið —
Tarzan og dvergarnir — Tarzan einvaldur skógarins —
Tarzan og tvífarinn — Tarzan og pardusmennirnir — Á
næstunní kemur út: TARZAN OG TÝNDA BORGIN.
Landið okkar
Landið okkar, hin ágæta bók Pálma Hannessonar,
fæst hjá bóksölum og umboðsmönnum Bókaútgáfu
Menningarsjóðs.
Aðalútsala: Bókabúð Menningarsjóðs, Hverfisgötu 21,
Reykjavík, pósthólf 1398, sími 10282.
Verð kr. 115.00 ób., 150.00 í skinnlíki, 195,00 í skinn-
bandi.
Félagsmenn Bókaútgáfu Menningarsjóðs frá 20% af-
slátt frá útsöluverði.
Félagsmenn í Reykjavík: Félagsbækurnar 1957 eru
komnar út. Gjörið svo vel og vitjið þeirra í bókabúð-
ina, Hverfisgötu 21. — Kaupið jólabækurnar hjá yðar
eigin forlagi og njótið þeirra hlunninda, sem það
býður.
Bókaútgáfa Menningarsjóðs.
UIMGLR MAÐUR
Reglusamur, ungur maður með prófi frá Verzlunarskóla í
London og unnið hefur sem sölumaður í Reykjavík, óskar
eftir verzlunaratvinnu.
Þeir, sem vildu sinna þessu, leggi nöfn sín á afgr. MbL
auðk. „1957 —3313“.
Hefur þú ráð á ú hafa möguleika á að vinna
Skattfrjálsa íbúd
fyrir 100 krónur
HEPPNI
Símnotandi!
Þér verður tilkynnt í síma samstundis og dr áttur hefir farið fram,
aðÞITT SÍMANÚMER hafi hlotið vinning... skattfrjálsa íbúð.