Morgunblaðið - 01.12.1957, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 01.12.1957, Blaðsíða 11
Sunnudagur 1. des. 1957 MOnailVBT 4ÐTÐ 11 Þorsteinn Císiason sím- sijóri, SeyBisfirdi 70 ára ÞORSTEINN GISLASON sím- Islandi. Var það árið 1913 og stjóri og póstmeistari á Seyðis- firði verður 70 ára 2. des. n. k. Þorsteinn er fæddur á Seyðis- firði 2. desember 1887. Foreldrar hans voru Gísli Jónsson gull- smiður og dannebrogsmaður og kona hans Anna Kristín Jóns- dóttir. Standa að Þorsteini stórnaerkar settir á Austurlandi, sem alþekkt- ar eru að gáfum, hagleik og mannkostum. Gísli sál. Jónsson var t. d. al- bróðir séra Bergs Jónssonar í Vallanesi, föður Jóns Bergsson- ar á Egilsstöðum og hálfbróðir hins mikla kennimanns, séra Jóns Bjarnasonar í Winnipeg. Anna, móðir Þorsteins, var i móðurætt af Eiríksstaðaætt, en í föðurætt af Möðrudalsætt. Eru þessar ættir báðar þjóðkunnar. Það kom líka fljótt í ljós, að Þorsteinn bar af öðrum ungum mönnum á Seyðisfirði, bæði að því er tók til andlegs og líkam- legs atgjörvis. Hann varð fljótt mikill íþrótta- maður, stundaði fjallgöngur, skíðahlaup og skauta. En af bar hvað allt lék í höndum hans. Hann er listaskrifari og teiknari ágætur, og völundur hvort sem er á tré eða málma. Músíkalskur er hann prýðilega og spilaði á fiðlu betur en gerð ist hér á landi í ungdæmi hans og var um skeið ein af máttar- stoðunum í hornaflokki á Seyð- isfirði. Ekki var andlegt atgjörvi hans minna þó ekki gengi hann menntaveginn. í október 1906 hóf Þorsteinn ritsímanám hjá Mikla norræna ritsímafélaginu á Seyðisfirði, og var skipaður símritari 1. júlí 1907. Fulltrúi stöðvarstjórans var hann skipaður 1. feb'r. 1917 og stöðvarstjóri á Seyðisfirði 1. sept. 1926. — 1. apríl 1930 var póst- afgreiðslan á Seyðisfirði samein- uð símanum og var Þorsteinn þá jafnframt skipaður póstmeistari þar. Öll störf sín hefur Þorsteinn rækt með stakri alúð og sam- vizkusemi og er kunnátta hans annáluð. Sem dæmi um hana, og snilli hans, má geta þess, að hann smíð- aði með hliðsjón af erlendum bókum fyrstu loftskeytastöðina á er fróðleg grein um pað í 1. tbl. X árg. Símablaðsins árið 1925. Mun óhætt að segja, að engin sú bilun gæti komið fram á sím- stöðinni á Seyðisfirði, sem Þor- steinn var ekki fær um að gera við. En gáfur og gjörvuleiki eru lítils virði, ef ekki færi saman1 með þeim mannkostir. Er þar stytzt frá að segja, að ekki þekki ég vammlausari mann í öllu framferði sínu og grandvarari en Þorstein Gíslason. Þorsteinn er einn af þeim mönnum, sem telja verður gæfu- menn. Hann hefur átt því láni að fagna að hafa með höndum starf, sem hann hefur áhuga á og hefur ráðið fullkomlega við. — Hann hefur notið vináttu og virðingar samstarfsmanna sinna og samferðamanna. Og það sem mest er um vert, hann hefur eignazt eiginkonu, sem hefur verið honum ástríkur og sam- hentur förunautur, Margréti, dóttur Friðriks bankastjóra Kristjánssonar á Akureyri. Hef- ur hún búið manni sínum og kjördóttur þeirra, sem nú er gift, friðsælt og elskulegt heimili. Ég nota þetta tækifæri til þess að færa Þorsteini vini mínum og fjölskyldu hans ástarþakkir fyrir órjúfandi tryggð og vináttu frá því er ég fyrst man eftir mér. — Bóka ég að hann megi eiga eftir að lifa lengi enn við góða heilsu með fjölskyldu sinni. Lárus Jóhannesson. Skrifstofuhúsnæði til leigu nú þegar í nýja Hamarshúsinu, fallegt útsýni yfir höfnina. Upplýsingar í skrifstofu vorri. HAMAR H.F. i Síðdegiskaffi Konur úr fulltrúaráði Alþýðuflokksins gangast fyr- ir kaffisölu frá kl. 2—6 í dag í Ingólfscafé. ((Gengið inn frá Ingólfsstræti og Hverfisgötu). Alls konar góðgæti verður á boðstólum. kaffið í Ingólfscafé í dag. Urekkið 3HELL-benzín með I.C.A. hindrar glóðarkveikju og skammhlaup í kertum og kemur þannig í veg fyrir óþarfa benzíneyðslu og orkutap í hreyflinum. — Þér akið því lengri vegalengd á hverjum benzínlítra. BETRI NÝTNI — AUKIN ORKA — JAFNARI GANGUR A. Jóhannsson & Smith H.f. BRAUTARHOLTI 4 — Sími 2-42-44. Í3 S4F4 Blönefuí qrMÍSmáf oq mýkjandi LANOLIN] 13-13 sápan hefur nú verið bætt með þvi að blanda í hana hinu græðandi og mýkj- andi UANOL.IN. — Þetta ásamt efninu G— 11, sem verið hefur í henni frá upphafi og hefur þá eiginleika að vera bæði bakteríu- drepandi og iykteyðandi, gerir 13-13 sáp- una óviðjainanlega.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.