Morgunblaðið - 08.12.1957, Síða 2

Morgunblaðið - 08.12.1957, Síða 2
MORGVNBl 4ÐIÐ Sunnudagur 8. des. 1957 2 Veruleg tekjoaukning á starfsárino nægði ekki til að mæta tilkostnaði Nær 1 millj. kr. ha AÐALFUNDUR Flugfélags ís- lands fyrir árið 1956 var haldinn föstudaginn 6. desember 1957 í Kaupþingsalnum í Reykjavík. Formaður félagsstjórnar, Guð- mundur Vilhjálmsson setti fund- inn og stjórnaði honum, en fund arstjóri var Jakob Frímannsson. Framkvæmdastjóri Flugfélags íslands, Örn O. Johnson flutti skýrslu yfir reksturinn á árinu og skýrði efnahags- og reksturs- reikninga. í skýrslu framkvæmdastjórans kom m.a. fram, að farþegum með flugvélum félagsins fjölgaði mjög á árinu, eða í innanlands- fluginu um 25 af hundraði og millilandafluginu 49, 8 af hundr- aði miðað við árið áður. Innanlandsf lugið: Innanlandsfluginu var hagað svipað árið 1956 og árið áður, en ferðum fjölgað á helztu flugleið- inn félagsins, t.d. voru farnar tuttugu ferðir vikulega miiii Reykjavíkur og Vestmannaeyja yfir sumarmánuðina. Flugvéla- kostur félagsins til innanlands- flugs var á árinu: Fjórar Dakota flugvólar, tveir Catalína flugbát- ar og emnig voru Skymasterflug- vélarnar „GULLFAXI" og „SÓL- FAXI“ teknar til innanlandsflugs öðru hvoru. Farþegafjöldinn á flugleiðum innanlands var 55.480 og er það 25% aúkning frá árinu áður. Mesti farþegafjöldi á einni flugleið var milli Reykjavikur og Akureyrar 17.113 farþegar, en næst eru Vestmannaeyjar — Reykjavík með 11.821. farþega. Vöruflutningar innanlands námu 1.179 lestum og jukust um 26%. Póstflutningar námu 144 lestum og jukust um 32%. Flugfélag íslands hélt uppi reglubundnum flugferðum milli tuttugu og eins staðar á landinu. Millilandaf lugið: Þótt innanlandsflugið gengi vel, varð þó ennþá meiri aukning I millilandaflugíriu. Yfir sumar- mánuðina voru farnar sex ferðir í viku milli fslands og útlanda og áætlunarferðum haldið uppi til sömu staða og áður: Kaupmanna- hafnar, Osló, Glasgow, Hamborg- ar og London. Mestur var farþegafjöldinn milli Kaupmannahafnar og lli á rekstri F. í. Reykjavíkur, 6633 farþegar, en alls voru farþegar í áætlunar- flugferðum félagsins 12.627. Auk áætlunarflugferða voru farin mörg leiguflug og voru í þeim ferðum fluttir 2.907 far- þegar. Heildartala farþega í milli- landafluginu árið 1956 var því 15.534 sem er 49,8% meira en árið áður. Flestar leiguferðirnar voru farnar til Grænlands og var m.a. flogið til þessara staða: Thule, Station Nord, Syðri Straumfjarð- ar, Angmagsalik, Narsauak og Meistaravíkur. Rekstur félagsins Sem fyrr segir starfrækti Flug- félag íslands átta flugvélar á ár- inu, þar af tvær Skymaster flug- vélar, fjórar Dakota flugvélar og tvo Catlína flugbáta. Alls voru fluttir með flugvélum félagsins 71.014 farþegar og varð aukning á heildartölu þeirra 29,7%. Vöruflutningar jukust einnig verulega. Fluttar voru 1.495 lestir og varð aukning 27,7%. Þá varð auknig á póst- flutningum. Fluttar voru 179,7 lestir. Aukning 31% miðað við árið áður. Alls flugu flugvélar félagsins 8.922 klukkustundir á árinu og er það heldur meira en að ein flugvél þess hefði verið á lofti allt árið. Starfsfólki fjölgaði nokkuð vegna aukinnar umsetningar og var um tvö hnudruð að meðaltali allt árið. Af þessum hóp eru fimm tíu áhafnarmeðlimir (flugmenn, leiðsögumenn, vélamenn og flug freyjur). Rekstursafkoman Tekjur félagsins jukust allveru lega á árinu miðað við árið áður. Brúttótekjur námu kr. 39.448.606. 51. Þar af voru tekjur af rekstri flugvéla kr. 39.338.986.55 (árið áður voru tekjur af sama lið kr. 28.722.806.72). Tekjur félagsins af fluginu 1956 skiptast þannig, að af millilandafluginu eru tekjur kr. 24.200.368.44, en af innanlands fluginu kr. 15.188.618.11. Þótt tekjur félagsin ykjust þannig verulega, óx reksturkostn aðurinn hlutfallslega meira, aðai lega vegna hækkaðs kaupgjalds og verðhækkana. Kostnaður við rekstur félagsins varð á árinu kr. 40.410.536.91. og varð því óhagstæður um kr. 961.930.40. Hlutafé félagsias jókst á árinu um kr. 515.500. Fargjöld voru óbreytt á árinu bæði innanlands og milli landa. Stjórn Flugfélags fslands Að lokinni skýrslu fram- kvæmdastjórans, fór fram stjórn arkjör og var stjórnin endurkjör in, en hana skipa: Guðmundur Vilhjólmsson, Bergur G. Gíslason, Björn Ólafsson, Jakob Frímanns son og Richard Thors. í vara- stjórn voru kosnir, Jón Árnason og Sigtryggur Klemenzson og endurskoðendur þeif Eggert P. Briem og Magnús Andrésson. Margir fundarmanna tóku til máls og var framkvæmdastjóran- um, Erni O. Johnson þökkuð vel unnin störf í þágu félagsins. Byggingafram- kvæmdir á ReySar- arfirði REYÐARFIRÐI, 7. des. Byrjað var á barnaskólabyggingu í haust á Reyðarfirði. Miðar verkinu vel áfram og hefur verið unnið sleitu laust að byggingunni til þessa. Er nú lokið við byggingu kjall- arans og verður ekki haldið lengra á þessum vetri. Þá eru, nokkur íbúðarhús í b-yggingu og hefur einnig verið haldið áfram vinnu við þau. —Arnþór. Gils, Skálda eg „Bláa békin" Á SIÐASTA bæjarsljórnarfundíi «agði Gils Guðmundsson, að nú mundi í undirbúningi bókaútgáfa 'lijá Sjálfstæðisflokknum eins og jáfnan fyrir bæjarstjómarkosning- ar. Væri á fjögurra ára fresti gef- 'in út stefnuskrá og myndabók, sem kölluð væri Blái- bókin, en sem hunn kvaðst heldur vilja kalla Skáldu. Gunnar Thoroddsen borgarstjóri talaði næstur á eftir Gils og sagði m. a.: Gils Guðmundsson velur stefnuskrá okkar Sjálfstæðismanna í bæjarmálum, Bláu bókinni, hið Verk eftir Sveinbjörn Sveinbjörnsson flutt á út varpstónleikum í kvöld Handrit hans í Landsbókasafninu hafa verið rannsokuð að undanförnu í KVÖLD kl. 8,20 efnir Ríkis- útvarapið til tónleika í hátíða- sal háskólans. Verða þar flutt verk eftir Sveinbjörn Svein- björnsson prófessor, og hafa sum þeirra aldrei verið flutt op- inberlega áður. Dr. Páll ísólfs- son stjórnar Hljómsveit Ríkis- útvarpsins, sem Ieikur, en óperu söngvararnir Guðrún Á. Símon- ar, Guðmundur Jónsson og Þor- Sveinbjörn Sveinbjörnsson steinn Hannesson syngja svo og Dómkórinn í Reykjavík. Verkin, sem flútt verða, eru þessi: íslenzk rapsódía -fyrir hljóm sveit. Sönglögin: Sverrir konungur, Vetur, The Challenge of Thor. War og Aldamótin. Kantata fyrir einsöngvara, kór og hljómsveit, samin í tilefni af komu Friðriks 8. til íslands 1907 við kvæðaflokk eftir Þorstein Gíslason. Ó, Guð vors lands. Tónleikunum í kvöld verður útvarpað, en aðgangur að hátíða- sal háskólans er öllum heimill meðan húsrúm leyfir. í grein í tónleikaskránni ritar útvarpsstjóri um prófessor Svein björn Sveinbjörnsson og undir- búning þessara tónleika. Þar seg- ir m. a.: Sveinbjöm Sveinbjörnsson (1847—1927) skipar ávallt heið- urssess meðal íslenzkra tón- skálda. Hann ól að mestu leyti aldur sinn erlendis. Hann samdi samt lög við ýmsa ágæta texta og fór það í vöxt á seinni árum hans. Um skeið átti hann þá heima í Reykjavík og hér var hann borinn til síðustu hvíldar. Fyrir nokkru skrifaði ég frú E. Sveinbjörnsson eg fékk heimild hennar til þess að skoða í hand- ritakistu manns hennar, sem send hafði verið Laudsbókasafninu til varðveizlu, og einnig heimild til þess, að Ríkisútvarpið ynni úr handritunum og léti flyjta verk- in, og benti frúin sjálf sérstak- lega á nokkur þeirra. Það kom í ljós, að þarna var um mikinn og góðan fjársjóð að ræða, þarna voru ekki ein- ungis eiginhandarrit að ýmsum verkum, einkum sönglögum, sem alkunn eru nú, heldur voru þarna einnig handrit að verkum, sem óþekkt eru, og aldrei höfðu verið flott, bæði sönglög, kórlög og hl j ómsveitarverk. Hefur síðan verið að því unniS á vegum Tónlistardeildar útvarps ins, einkum Fritz Weisshappel, að kanna þessi handrit og Ijósprenta þau og búa til flutnings. títvarps- hljómsveitin flytur nú fyrstu tónleikana undir stjórn dr. Páls ísólfssonar. Ársrit Sögufélags ísfirð inga komiÖ út „AÖ kvoldi" IjóÖ 09 rit- geröir eftir Karl Finn- hogason KOMIN er út bók eftir Karl Finnbogason, fyrrum skólastjóra á Seyðisfirði, er nefnist „Að kvöldi“. Eru þar birt kvæði, sög- ur, ræður og ritgerðir eftir hann. Sr. Sveinn Víkingur hefur valið efnið og búið það til prentunar. í formála, þar sem sr. Sveinn ritar um Karl Finnbogason, segir m. a.: „....þessi bók hefur að geyma nokkur sýnishorn af ljóð- um hans og ritgerðum. Verður þar með lesandanum jafnframt leyft að skyggnast inn í hugar- heim þessa gáfaða manns og kynnast nokkru af því, sem hann hugsaði og ritaði bæði í bundnu máli og óbundnu. Sumt er að vísu aðeins brot, ófáguð og skrif- uð í flýti í önn dagsins og við lítið næði. Margt af því hefur hann sjálfur vafalaust aldrei ætlað til birtingar. Eiga að síður vona ég, að menn finni í þessum brotum leiftur skarpgáfaðs, en viðkvæms hugar og neista af innri glóð“. Bókin skiptist í fimm megin- kafla, Kvæði, Vökudraumar, Karl Finnbogason. Ræður og ritgerðir, Sendibréf og Sýniskaflar úr landafræði. Hún er yfir 150 bls. að stærð. Annar árgangur fjölbreytiur að efní ■virðulega lieiti Skálda. Ég vil 'þakka honum þá nafngift. Um Skáldu segir Halldói Kiljan Laxness í hinni frægu bók íslands klukkuni, að Skálda sé ágætust og dvrmætust bóka á norSurhveli, bók bóka og eSalsteinn eSalsteina. Borgarsljóri kvaSst vilja flytja Gils þakkir fyrir að líkja Bláu bók 'inni við slíkan gimstein. KEFLAVÍK, 7. desember, — Mik- il brögð eru að því hér í Keflavík, að menn taki kopar ófrjálsri hendi og hefur það endurtekið sig hvað eftir annað. Síðasti koparstuldur- inn gerðist í nótt. Var stolið frá ■Rafveitu Keflavikur einni rúllu af 16 kvaðrata koparvír, sem geymd var í húsasundi, sem Raf- vcitan hefur til geymsluafnota, við Hafnargötu. 4 þús. kr. verðmæti. Á rúllunni voru um það bil 100 kíló af koparvír, og er gizkað á, að verðmæti vírsins sé um 4 þús. kr. í heildsölu. Þessi vír er lítt fáan- legur, og er þetta því mikill skaði fyrir Rafveituna og raunar alla bæjarbúa, og ekki hvað sízt, þar sem hér er um að ræða heimtaug- i arvír. — ÁRSRIT SÖGUFÉLAGS ÍSFIRÐ INGA er nýlega komið út. — En þetta annar árgangur ritsins, sem er hið fjölbreyttasta að efni. Má m. a. nefna greinarnar „Úr minn- isblöðum Ólafs Ólafssonar", skóla stjóra á þingeyri, „Fyrsta ferð Óljós för. Áður hefur verið stolið frá Raf veitunni, koparvír, og var verð- mæti hans um 60 þús. kr. Talið ■er, að þjófnaður sá er framinn var í nótt, hafi farið fram á tíma bilinu frá 5—7 í morgun, en lög- regluþjónn fór af vakt kl. 5, en lögreglustöðin er þarna næsta hús. Athugaði hann nágrennið og sá, að ekkert hafði þá verið hreyft í ‘húsasundinu. Óljós för fundust, sem sýndu, að rúllunni hafði ver- ið velt út úr húsasundinu, en þau hurfu er á götuna kom, og er tal- ið sennilegt, að þar hafi hún vér- ið látin á bíl. Fólk, sem einhverjar upplýsing ar gæti gefið, er því vinsamlegast beðið að gefa sig fram við lögregl una í Keflavík. — Ingvar. mín með vélbáti", eftir Valdimar Þorvaldsson, „Byggðasafn Vest- fjarða“ eftir Jóhann Gunnar Ól- afsson bæjarfógeta, „Úr rímu af Sigurði þögla“ eftir Brynjólf Þor steinsson, „Aldarháttur í önundar firði" eftir Guðmund Eiríksson, „Síðasta vísa Jóns Hjaltasonar“, „Auðkúla í Arnarfirði eftir Jón Á. Jóhannsson, „Bæjarhús á Vest- urlandi á 19. öld“, „Sjóferð" eftir Gísla Maríasson, „Vestfirzkar veð uriarslýsingar", „Fimm gamlir legsteinar", „Þorvaldur Jónsson læknir“ eftir Krigtján Jónsson, „Frá búendum í Mjðafirði“ eftir Runólf Þórarinsson, „Úr bæjar- vísum yfir Vatnsfjarðarsveit" og I „Ævisaga Hallbjörns E. Oddsson- ar“ eftir sjálfan hann. Auk þess eru í ritinu lausa- vísur og stökur. Ritstjórar þess eru Björn H. Jónsson, Jóliann Gunnar Ólafsson og Kristján Jónsson frá Garðsstöð um. Vestfirðingar hér syðra ættu að gerast félagar í Sögufélagi Isfirð- inga. Fá þeir þá ársrit félagsins sent. Þeir Valdimar Björn Valdi- marsson, sími 1-06-47 og Gunnar Andrew, sími 1-06-47, veita mót- töku inntökubeiðnum í félagið. Samkvæmt félagsskrá, sem birt er í ritinu eru meðlimir Sögufó- lags Isfirðinga nú um 130. Koparvír stolið ffró Raff- veitu Keflavíkur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.