Morgunblaðið - 08.12.1957, Page 21

Morgunblaðið - 08.12.1957, Page 21
Sunnudagur 8. des. 1957 MOKCVTSBL AÐIÐ 21 Mikil að'sókn hefir verið að málverkasýningu Guðmundar Einarssonar frá Miðdal og hefir hann ákveðið að hafa sýn- inguna enn um þessa helgi. Nær helmingur myndanna hefir þcgar seizt. Hefir Guðmundur nú skipt um allmargar myndir á sýningunni. Vænleiki dilka meiri en nokkru sinni fyrr Skriðuklaustri 2. desember: — HÉR er nú blíðuveður og jörð alauð til efstu heiðabrúna. T. d. sjást aðeins örsmáir snjódílar á Múlakollinum. Sauðfé hefur því ekki verið tekið á hús ennþá, nema lömb, sem sumir hafa tekið til hýsingar fyrir nokkru. Tíðar- farið hefir verið afbragðsgott frá því um 10. nóvember. Frost er þó ennþá víðast í jörð. Nokkuð hefir rignt öðru hverju síðasta hálfa mánuðinn og mun nú hafa rætzt úr neyzluvatnsskortinum hjá flestum eða öllum heimilum í dalnum. Tafir i jarðvinnslu Hér var fyrirhuguð mikil jarð- vinnsla á sl. sumri á mörgum býl um í hreppnum með jarðvinnslu- tækjum Ræktunarsambandsins. En jarðýta sú er hér var við vinnu bilaði síðarihluta sumars, og varahlutir fengust ekki. Er því allmiklu ólokið af því verkefni, gem henni var fyrirhugað og er elíkt mjög bagalegt. Er þó von til að unnt verði að halda þeim fram kvæmdum áfram með fullum kr afti næsta vor. Byffgdngar Unnið hefir verið við félags- heimilið hér í haust og er nú verið að koma fyrir hitalögn og lýs- ingu. Kirkjubygging á Valþjófs- stað hefir og verið undirbúin, en staðið hefir til í nokkur ár að byggja nýja kirkju í stað þeirrar gömlu, sem orðin er mjög hrör- leg. Merkjasöludagur björgunarsveifar 1 33AG er merkjasöludagur Flug- björgunarsveitarinnar. Ágóð'inn, sem inn kemur fer til þess að búa sveitina betur að hverskonar tækjum þannig, að hún geti betur leyst af höndum björgun- arstörf, ef kallið kemur. Þó flugslys séu blessunarlega fátið hér á landi, er Flugbjörgunar- sveifin stöðugt í góðri þjálfun, og hún skipulögð til samræmis aðgerða í lofti og á landi. Frá því var sagt um daginn hér í blaðinu, er sagt var frá starfi Flugbjörgunarsveitarinnar í út- varpsþætti, að það hefði verið fróðlegt að kynnast þessum þætti björgunarmálanna og hvernig sveitin starfar þegar slys ber að höndum. Flugbjörgunarsveitin hefir frá öndverðu notið velvilja bæjarbúa þegar hún hefur efnt til mei'kja- sölu og SYO fnun enn verða í dag.. Inflúenza gerir lítið vart við sig og álíta ýmsir að hún hafi verið hér á sveimi um langt skeið. f síðasta fréttabréfi gat ég um að vænleiki sauðfjár hefði verið með mesta móti í haust og eink- um dilka. Meðalþungi hjá Kaup- félagi Héraðsbúa var 15,3 kg og er það nær heilu kg meira en haustið 1956 og meira en nokkru sinni hefir verið áður. Hefir þó aldrei verið slátrað svo mörgum dilkum áður. Er þessi siaðreynd holl hugleiðing þeim, sem þjást af sífelldum landþrengslaótta. Héðan frá Skriðuklaustri var slátrað sl. haust 606 dilkum. Með- alþungi þeirra var 16,13 kg. Af þessum 606 lömbum voru 205 ein- lembingar, en 401 tvílembingur og einvetlulömb. Einvetlulömbin, isem voru 75 höfðu meðalfall 14,41 kg. Þessi meðalþungi slátur lambanna er um 1,5 kg meiri en verið hefir áður. Ég vildi einkum telja þrjár ástæður, sem valda þessu: Batnandi fóðr- un, batnandi sauðfjárstofn og grösuga og vel gróna sumarhaga. Tíðárfarið myndi ég hins vegar ekki telja á nokkurn hátt hag- stæðara sl. sumar, en t. d. næstu 2 sumur þar á undan. Sl. haust voru rösklega 400 ær reknar héðan frá Skriðu- klaustri vestur í Rana strax að afloknum fyrstu göngum og gengu þær þar um 8 vikna skeið. Tíðarfarið á Jökuldal var frem- ur stirt í vetrarbyrjun og kom þar talsverður snjór og var noltk ur storka um skeið. Nú er þessi snjór þar mikið til horfinn, nema skaflar í giljum og dældum. Mjög vönduð slcrifborð með bókahillum Húsgagnaverzlun Kaj Pind Grettisgötu 46 Erlend hlöð og bœkur Útvegum erlend blöð, tímarit og bækur. Blöð og tíma- rit send beint frá útgefendum til kaupenda. Skrifið á pöntunarseðilinn þau blöð, tímarit (eða bækur), sem þér óskið að fá, og sendið okkur hann. Tilgreinið einnig nafn útgefenda og land. PÖNTUNARSEÐILL Undirritaður óskar að (kaupa) gerast áskrifandi að: Dags............... Nafn: ... ............................ Heimili: . ........................... Póststöð: ........................... Til BÖKA- OG BLAÐASALAN, Importers & Exporters of Booka & Subscription AgeuU Box 202, Akureyri. SÉma- og stofuborðin eru komin aftur Auglýsing um mænuveikisbólusetningu í barnaskólanum í Hafnarfirði, þriðja umferð. Mánudagtnn 9. desember kl. 16.30—18. börn fædd árið 1951. Sama dag 18.—19. börn fædd árið 1952. Þriðjudaginn 10. des. kl. 16.30—18, börn fædd árið 1953. Sama' dag kl. 18.—19. börn fædd 1954. Miðvikudaginn 11. des. kl. 16.30—18, börn fædd árið 1955. Sama dag kl. 18—19 börn fædd árið 1956. Fimmtudaginn 12. des. kl. 16.30—19 börn, sem ekki hafa áður mætt til bólusetningar. GEYMIÐ AUGLÝSINGUNA HéraSslæknirinn. á jálahorðiö

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.