Morgunblaðið - 08.12.1957, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 08.12.1957, Blaðsíða 24
'k 'k 'k 'k J ^ 'k 'k DAGAR TIL JÓLA J^fpSttfrlftfrÍfe 280. tbl. — Sunnudagur 8. desember 1957. i? & J DAGAR TIL JÓLA Ljósmyndari Mbl. tók þessa mynd í gær af fulltrúum á Fiski- þingi. Efst eru (talið frá vinstri): Arngrímur Fr. Bjarnason, Ólafur B. Björnsson og Davíð Ólafsson. — Önnur röð: Helgi Benónýsson, Magnús Gamalíelsson og Hólmsteinn Helgason. — Þriðja röð: Jón G. Benediktsson, Einar Guðfinnsson, Sturla Jónsson, Óskar Kristjánsson og Ágúst Pálsson. — Fjórða röð: Margeir Jónsson, Baldur Guðmundsson, Helgi Pálsson, Svein- björn Einarsson og Þorvarður Björnsson. — Fimmta röð: Ingvar Vilhjálmsson, Árni Stefánsson, Friðgeir Þorsteinsson, Níels Ingvarsson, Árni Vilhjálmsson og Jón Guðmundsson. Báðir belgisku skipstjórarnir játuðu brot sitt í sakadómi KLUKKAN 9 í gærmorgun hófust réttarhöld í máli skipstjóranna á belgisku cogurunum, sem flugbáturinn Rán stóð að veiðum í landhelgi á fimmtudagskvöldið. Þór kom með skipin hingað tii Reykjavíkur og var mál skipstjóranna tekið fyrir í sakadómi Reykjavíkur kl. 9 í gærmorgun. Dómur mun væntanlegur í mál- inu í dag. Játuðu báðir Réttarhöldin voru nær einstæð, því að skipstjórarnir játuðu án allra málaienginga að hafa ver- ið að veiðum innan „línunnar". Skipstjórinn á „Belgian Skipper" hafði ekkert við staðsetningu á skipi hans að athuga, en Guðm. Kærnested skipstjóri og aðstoð- armenn hans á flugbátnum, sögðu togarana hafa verið 1,8 sjóm. innan við „línu“, og var mjög skammt á milli skipanna. Skipstjórinn á hinum togaranum kvað radartækið hafa verið bil- að og hefði hann fylgt hinum togaranum að ve'ðum. Skipstjór- inn á fyrrnefnda togaranum sagði í réttinum, að hann teldi sig hafa verið 2 sjóm. innan „línu“. Þá skýiði hann frá því, að hann hefði aður verið tekinn 'fyrir veiðar innan fiskveiðitakmark- anarma, og hafði það gerzt fyrir rúmum tveimur árum við Vest- mannaeyjar, svo að í þetta skipti er um ítrekað brot hans að ræða. Hörður Þórhallsson var túlkur togaraskipstjóranna í réttinum. Sýndi mikla hæfni í starfi. í leiðangri þeim, sem Rán var í þegar hún tók togarana, sýndi flugmaðurinn, Aðalbjörn Krist- bjarnarson, mjög mikla flug- mannshæfileika, er taka skyldi númerin af togurunum. Stakk hann sér niður að togurunum á hinum stóra flugbáti og mun hafa verið í aðeins 50 feta hæð ofan við sjávarflötinn til hliðar við togarana, er hann renndi að þeim, og tókst þá að sjá númer þeirra beggja með ljóskastara flugbátsins. En það var að sjálf- sögðu aðalatriðið að vita nákvæm deili á landhelgisbrjótunum. Sem fyrr segir, lauk yfirheyrslum og rannsókn málsins í gærkvöldi, og var talið í gærkvöldi að dómar myndu ganga fyrri hluta dags í dag. ÓLAFSVÍK, 7. des.: — Inflúens- an hefur verið að stínga sér hér niður um mánaðartíma. Hefur hún lagzt fremur þungt á eldra fólk. Veikin er nú í rénum. Enginn hef ur látizt úr inflúensunni. — Bj. Mikhim hafnarframkvœmdum að l/úka á Akranesi Þýzku verkfræðingarnir á förum héban FÉLAGIÐ Habag í Diisseldorf er nú að Ijúka við hafnarfram- kvæmdir þær á Akranesi, sem það tók að sér með samningum, sem undirritaðir voru snemma á árinu 1956. I apríl það ár hófst verkið, og við það hafa síðan unnið að jafnaði 50—60 heima- menn og 20 Þjóðverjar, en flest- ir Þjóðverjanna eru nú á förum utan. í tilefni þessa bauð bæjar- stjórn Akraness blaðamönnum til Akraness í gær og voru þeim sýnd mannvirki þessi, en þá fór fram vígsla þeirra að þýzkum sið. Það er firmað Hochtief, sem séo hefur um framkvæmdirnar, en yfirverkfræðingur er Werner Volland frá Essen. Verkið skipt- ist raunverulega í þrennt, leng- ingu hafnargarðsins, bátabryggju og bryggju fyrir Sementsverk- smiðjuna. Hafnargarðurinn Hafnargarðurinn hefur verið lengdur með einu keri um 62 m og er þá orðinn 377 metrar að lengd. Ker þetta var keypt 1946 og þurfti að gera töluvert við það. Kerið hvílir á þriggja metra malaruppfyllingu, sem er varin að utan með stórgrýti. Mölin var flutt með ferju úr Hvalfirði. — Ferja sú var einnig keypt 1946. Bátabryggjan Bátabryggjan var lengd um fjögur ker, sem alls eru 60 m að lengd. Við enda hennar hefur svo verið komið stóru keri, sem not- að er til skjóls fyrir bátaflotann. Ker þetta, sem keypt vár 1946, þurfti að endurbæta, en síðar á ' að flytja það við endann á hafn- argarðinum. Jafnframt því er ætlunin að lengja bátabryggj- una. Bryggja sementsverksmiðjunnar Sementsverksmiðjubryggjan er 220 metra löng, en þar af er grjótgarður 80 metrar. Járnþil hefir verið sett við bryggjuend- ann til styrktar. Á bryggjunni hafa verið byggðar undirstöður fyrir færibönd og ýmsar leiðslur. Auk þess, sem bryggjan er ætl- uð sementsverksmiðjunni verður hún notuð fyrir bátaflotann og aðra afgreiðslu í höfninni. Áður en Þjóðverjarnir tóku verkið aS sér hafði grjótgarður verið hlað- inn, endakerinu komið fyrir og einnig nokkrum kerum öðrum. Iterin steypt. í sambandi við hafnargerð þessa hefir verið reistur kera- slippur. í honum hafa verið steypt ellefu ker, þau stærstu 18x12,5 m að grunnfleti og 4,5 m á hæð. 20 milljónir kr. Við þessar endurbætur hefir viðlegurúm fyrir skip í höfninni aukizt mikið. Heildarkostnaður við framkvæmdirnar er rúmlega 20 millj. kr. Mestur hluti þess fjár er fenginn frá Habag-félag- inu, en einnig hefir Akranesbær og ríkissjóður lagt fram nokkuð fjármagn. Eftir að gestir höfðu skoðað mannvirki þessi bauð Daníel Ágústínusson, bæjarstjóri, þeim til kaffidrykkju, en að því loknu var sementsverksmiðjan skoðuð undir leiðsögn Jóns Vestdals, for- stjóra hennar. Var kvöldverður snæddur þar. Aðalfundur Heimis í Keflavík NÆSTKOMANDI þriðjudags- kvöld kl. 8,30 verður haldinn aðalfundur Heimis, félags ungra Sjálfstæðismanna í Keflavík. — Fundurinn verður í Sjálfstæðis- húsinu. Félagar eru vinsamlegast beðnir að mæta stundvíslega. — Venjuleg aðalfundarstörf fara fram á fundinum. Sfeingrimur Her mannsson ÞEGAR sagt var hér í blaðinu í gær frá skipun Steingríms Her- mannssonar í stöðu framkvæmda stjóra Rannsóknarráðs ríkisins, láðist að geta þess meðal verð- leika hans, að hann er sonur Her- manns Jónassonar, forsætisráð- herra, og er, að sögn Tímans, einn í hópi „ungra íslenzkra vis- indamanna". Af vísindastörfum Steingríms mun rannsókn hans á tilveru Sameinuðu þjóðanna vera kunnust. — Menntamálaráðherra hefur bersýnilega metið það af- rek verkfræðingsins ineira en vís indalegt nám hinna umsækjend- anna. Friðrik var í 4-5 sæti er síðasta umferð liófst FYRRI umferð skákmótsins í Dallas í Texas átti að ljúka í gærkveldi, en þá var 7. umferð tefld. Samkv. skeyti, er USIS barst í gær hafði Friðrik Ólafs- son hlotið 3 vinninga að 6. um- ferð lokinni — og var hann þá í 4.—5. sæti. Úrslit 5. umferðar urðu þessi: Najdorf — Gligoric Vz:V2 Larsen — Friðrik 0:1 Reshevsky — Yanofskí Vz: Vz Szabo — Evans 1:0 Úrslit 6. umferðar urðu: Friðrik — Gligoric Vz: Vi Yanofskí — Najdorf Vi:Vz Szabo — Larsen V2: Vz Reshevsky — Evans 1:0 Fundur Áfengisvarn- arnefndar í Gúlló ídag HAFNARFIRÐI: ■— Það er í dag kl. 4, sem fundur Áfengisvarnar- nefndar Hafnarf jarðar er, í Góð- templarahúsinu. Frummælendur ve.rða þeir Níels Dungal próf'essor, sem ræðir um tóbaksmál, og Esra Pétursson læknir, er talar um á- fengið og skaðsemi þess. Að er- indunum loknum verða frjálsar umræður og geta þeir, sem vilja, ■komið með fyrirspurnir til frum- mælenda. 1 fundarlok verður svo sýnd kvikmynd. Eru allir velkomnir á fundinn meðan húsrúm leyfir. Tilgangur Áfengisvarnarnefndar með fundi þessum, er að veita almenningi fræðslu um skaðsemi tóbaks og á- fengis, í von um að það mætti verða til leiðbeiningar í þessum alvarlegu málum. — G. E. “ í 7. umferð hafði Friðrik svart á móti Szabo, Reshevsky mætti Larsen, Najdorf mætti Evans og Gligoric mætti Yanofskí. Eftir 6. umferð var staðan þannig: Szabo og Larsen 4 v. Reshevsky 3 Vi v. Friðrik og Yanofsky 3 v. Cligoric 2% v. Evans og Najdorf 2 v. Týndi plastplötu MAÐUR kom að máli við blaðið í gær og bað um aðstoð þess. — Hafði hann ekið með plastplötu á bíl frá Skipasundi niður í Lækj argötu. Á leiðinni hefur platan fallið af bílnum og maðurinn biður finnanda að hringja í síma 33796. Tregur afll í Ólafsvík ÓLAFSVlK, 7. des. Frá Ólakfsvík eru gerðir út 5 bátar. Stunda þeir aðallega línuveiðar. Tveir bátar eru einnig gerðir út á reknetum á Suðurnesjum héðan og leggja upp afla í Keflavík. Heimabátun- um hefur gengið fremur stirt, en nú fyrir tveim dögum fékk einn þeirra, Jökull, T lestir í róðri og er það bezti róður vertíðarinnar. Var báturinn að veiðum út af Jökultungu. Gæftir hafa verið góðar og gef ið á sjó all flesta daga. Afli hef- ur verið sáratregur á heimamið- um eða um þrjár lestir í róðri og einstaka sinnum komizt upp í fjórar lestir. Bátarnir reru allir í dag út í Jökuldjúp og eru ó- komnir að landi. — Bjarni. Jólafundur Hvatar á mánudagskvoldið Sjálfstæðiskvennjifélagið Hvöt heldur jólafund sinn ann- að kvöld, mánudagskvöld. Hefst liann kl. 8,30 í Sjálfstæðishús- inu. —■ I>ar flytur frú Ragnhildur Helgadóttir alþingismaður, á- varp og séra Þorsteinn Jóliann esson fyrrverandi prófastur tal ar uin jólin fyrr og síðar. Síðan verður kaffidrykkja og dans. Félagskonum er heimilit að bjóða mönnum sínum og öðr- um gestum með á fundinn. - Ennfremur eru allar Sjálfstæð- iskonur velkomnar, enda þótt þær séu ekki félagsbundnar. Jólafundir Hvatar liaia jafn- an verið fjölsóttir og njóta mik illa vinsælda.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.