Morgunblaðið - 15.12.1957, Page 16

Morgunblaðið - 15.12.1957, Page 16
íe. ugnGVNBi^Ðw /•:’ 7a i\ /«v. Sunnudagur 15. des. 1957 ••-•-• • 'Trrr^j.. Það er alls ekki eins auðvelt og jnargir halda, að skrifa bækur fyrir börn, og því síður að semja ævin- týri við barna hæfi. Norska skáld- konan Synnöve G. Dahl kann þessa list, það sannar þessi litla bók. Forráðamönnum Bókaforlags Odds Björnssonar er það sönn ánægja að fá tækifæri til að kynna íslenzkum foreldrum og börnum þeirra verk þessarar ágætu, norsku skáldkonu. Þeir foreldrar, sem ekki hafa jafn mikla ánægju af að lesa þessi fallegu ævintýri fyrir börn sín, eins og börn- in munu hafa gaman af að hlusta á . þau aftur og aftur, geta skilað bók- inni aftur óskemmdri til forlagsins fyrir næstu áramót, og munum við þá endurgreiða kaupverðið! Bókaforlag Odds Björnssonar Nýjar IMORÐRA BÆKUR Einar E. Sæmundsen: Saga um hest og eigendur hans væri réttnefni á þessari bók. Hestar eiga sinn lífsferil og sín örlög engu síður en menn. Einar E. Sæmundsen var rnikill hestamaður, mannþekkjari og skáld. Þess vegna hef- ur honum tekizt að rita þessa áhrifamiklu og sannfróðu skáldsögu um sambúð íslendinga við þarfasta þjón sinn í margar aldir, — hestinn. Sleipnir er sérstætt verk og fagurt í íslenzkum bókmenntum. Guðmundur Gíslason Hagalín: í KILI SSCAL KMRVmm Minningar M. E. Jessens, fyrrverandi vélskólastióra. Allir þeir, sem komið hafa nálægt vélum, skipum og viðgerðum að ótöldum nemendum vél- og stýrimannaskól- ans, þekkja náið M. E. Jessen. Ákafamanninn, sem fluttist hingað ungur að árum til þess að kenna íslendingum með- ferð véla. Jessen man tímana tvenna frá því að menn og skepnur fældust, er þeir heyrðu mótorhljóð, þar til að nú, er vélar hafa tekið við vmnu hestsins, að mestu og mað- urinn stjórnar, léttri hendi afkastamiklum vélum. Nemendur sögðu að Jessen þyrfti ekki á vélum að halda við kennsluna, hann léki þetta allt fyrir þá. Hann var kenn- arinn — bilaða vélin, bullan eða strokkurinn og viðgerða- maðurinn — og viðgerða vélin, sem gekk mjúkt og létt, taktíöstum slögum. Guðmundur Gíslason Hagalín, er viðurkenndasti ævi- sagnaritari landsms og það hefur ekki brugðizt, að minn- ingar þær, er hann hefur fært í letur eftir frásögn annarra hafa borið af. Hann hefur lag á því að láta sagnamann- inn vera á sviðinu og segja frá, en búningur, hfandi og list- ræn meðíerð efnisins, er Hagalíns. IMORÐRI Jólapottar Hjálp- ræðishersins HJÁLPRÆÐISHERINN er nú þessa dagana að setja út jóla- potta sína. Þeir eru orðnir kunn- ir Reykvíkingum og það að góðu einu. Þeir eru tæki til þess að gefa mönnum tækifæri til þess að gleðja þá um jólin, sem eiga við vanheilsu og fátækt að stríða. Mörg eru þau gamalmenni, fátæk heimili og sjúklingar, sem Hjálpræðisherinn hefir rétt hjálp arhönd með aðstoð hinna örlátu Reykvíkinga, síðan hann hóf starfsemi sína hér á landi fyrir rúmum sextíu árum. Þótt ástandið sé betra hér í bæ, en árið 1895, þá eiga ennþá mörg heimili og einstaklingar við bág kjör að búa. Minnizt þess að Kristur sagði: Það sem þér gjörið einum af mínum minnstu bræðrum, það gjörið þér mér. Stuðlið að því að gleðja hina fátæku, sjúku og hrumu, núna um þessi jól, og Guð mun ekki láta yður fara varhluta af laun- unum. Munið eftir jólapottunum þeg- ar þér eigið leið um miðbæinn. r Islenzk koiia vekiír atliygli BINNA MANN, sem er íslenzk kona, gift Bandaríkjamanni, hef- ur vakið á sér mikla athygli fyrir margvíslegar blómaskreytingar, sem hún hefur gert. Hefur frúin tekið þátt í morgum blómasýning- um og jafnan fengið hina beztu dóma fyrir hugmynd ^ríkar og fagrar skreytingar. Fyrir skömmu var slcrautmun- um, sem hun hefur gert, sjónvarp að um öll Bandaríkin og hefur henni með því hlonazt hin mesta viðurkenning. Binna er dóttir Hendrik Bernd- sen, kaupmanns í Blóm & Ávextir, 25. NÓVEMBER var til moldar borinn frá Fossvogi Pétur Jóns- son frá Tungu, eins og hann var kallaður hin síðari ár. Pétur var Skagfirðingur aS ætt, fæddur að Hamri í Stíflu 16. ágúst 1877. Ungur fór hann frá foreldrum sínum að Svaðastöð- um í Skagafirði, og var alinn upp hjá Jóni bónda þar til fullorðins- ára. Þá kvæntist hann Sæunni Björnsdóttir, og bjuggu þau mestan sinn búskap að Lamba- nes-Reykjum í Fljótum. Þau eign uðust 8 börn, en aðeins 3 þeirra eru á lífi. Jón búsettur í Borgar- nesi, Jóhanna búsett í Reykjavík og Axel búsettur í Ólafsfirði. Sæunni missti Pétur 1917. Hann kvæntist aftur árið 1919 Einar- sínu Jónasdóttir. Þau eignuðust tvo drengi, og er annar þeirra á lífi, Bjarni, búsettur í Reykja- vík. Margt hefur á daga Péturs drif ið og mætti skrifa um það heila bók. En Pétur, kæri gamli vinur! Þetta á ekki að vera nein meiri háttar minningargrein, heldur að eins vildi ég þakka þér fyrir allt liðið. Ég het ekki gieymt því, þegar ég, sem óþroskaður og óharðn- aður unglingur, kom sem háseti á hákarlaskip, þar, sem þú varst í skiprúmi og hve mjög þú hjáip- aðir mér. Oft og mörgum sinnum vannst þú mín verk i hvíldartíma þínum. Taldir í mig kjark í vond- um veðrum, því aldrei hræddist þú neitt. Fyrir þetta vil ég þakka þér, og svo margt fleira. Einnig vil ég þakka börnum þínum, Jóhönnu, Jóni og Bjarna, Kristínu tengdadóttur þinni og barnabörnum, fyrir alla þá ástúð og umhyggju sem pau sýndu þér í veikindum þínum allt fram á síðustu stund. Guð blessi þau öll. Gatnall vinur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.