Morgunblaðið - 24.12.1957, Side 1

Morgunblaðið - 24.12.1957, Side 1
III Þribjud. 24. des. 1957 Af öllum syndum er sú verst að hugsa ömerkilega ,Mér hefir aldrei dottið onnað / hug en yrkja eitt og eitt kvæði eins og íslendingar gera og hafa gert" Sigurður Nordal prófessor I Er ekki lífið að bvría? — Ég nenni illa að rifja upp æviatriði, sagði Sigurður Nordai. prófessor, þegar ég hitti hann að máli fyrir skömmu. Hvernig fór ekki fyrir konu Lots? Ef ég færi að segja þér ævisögu mína, fynd- ist mér eins og ég væri að skrifa mín eigin eftirmæli, og ég hef litla tilhneigingu til þess. — Ég hef 'einhversstaðar lesið þessar línur, sem ég held, að séu eftir 'Verner von Heidénstam: Hvar kvall jag jordar mitt gamla jag och vaknar upp med ett annat.. Ég veit vel, að ég er að verða gamall og er reíðubúinn að lúta í lægra haldi fyrir því, sem eng- inn má við, én „nógur er tím- inn, karlinn kvað, að komast í himnaríki“. Mér þykir vænt um að fá að hverfa aftur til minnar gömlu stöðu án aldurstakmarks og þurfa ekki að heita „fyrrver- andi“. Og er ekki lífið á ýms- an hátt að byrja: Ég er að koma heim, eins og ég væri nýbakaður kandidat, koma í nýjan bæ, því svo finnst mér Reykjavík hafa vaxið og breytzt á síðustu sex árum, sem ég hef verið fjarver- andi, i nýuppskinnað og hálfgert hús, verð að átta mig á alls konar nýjum hlutum eftir útivistina. Ætti ekki lífið að verða þeim mun dýrmætara, sem það styttist meir, síðustu forvöð að lifa og reyna ýmislegt sem enn er ólifað, og er þá ekki nær að horfa fram en aftur? Eins og af þessu má sjá, var Nordal tregur að ræða um ævi sína, a. m. k. fyrst í stað, og var þá ekki um annað að gera en halda áfram, þar sem frá var horfið og tala dálítið meira um Reykjavík. Það mundi að minnsta kosti ekki minna eins óþyrmi- lega á saltstólpann hennar frú Lot. —. Reykjavík hafði um 6000 íbúa um aldamót og var ákaflega notalegur bær, en hún var ekki upp á marga fiska í menningar- legum efnum. Þá var hér engin myndlist, ekkert músiklíf. Það ætti að gefa nokkra hugmynd um breytingarnar. Það hefur margt gerzt á þessum árum, ekki aðeins á ytra borðinu. Þegar ég lagði upp suður til að ganga i skóla, hafði ég aðeins séð eitt einasta timburhús. Það var á Kornsá i Vatnsdal. Þegar ég kom suður í Borgarfjörð, undraðist ég hvað langt Borgfirðingar voru komnir í byggingarlist. Þar í hér- aði voru möfg timburhús, og má af því sjá, að framkvæmda- hugurinn var meiri, þegar nær dró Reykjavík. En til marks um framfarir þar síðan, má geta þess, að ég býst við að öll timburhús- in, sem ég sá í Borgarfirði, séu nú horfin. Á þessum árum þótti það allmikið ævintýri að koma til Reykjavíkur, hvað þá til út- landa. Það var annað en nú. Menn eru hættir að undrast og hrifningin yfir óvæntum hlutum er ekki lengur eins og hún var Þá var ekkert útvarp, enginn sími, gngar kvikmyndir. Allt var nýtt fyrir okkur og hið smæsta gat komið á óvart. Gömul kunn- ingjakona mín fór fyrir fjörutíu árum með unga dóttur sína til Englands og Danmerltur. En húit varð ósköp óhamingjusöm yfir þessu ferðalagi, því að unga dótt- irin undraðist ekkert og varð ekki hugfangin af neinu. Ég hef séð þetta allt á bíó, sagði hún — og lét sér fátt um finnast. — Munurinn á Reykjavík og Kaup- mannahöfn er nú miklu minni en áður. Reykjavík slagar nú upp í það, sem Höfn var á dögum Árna Magnússonar. Það var að vísu miklu fjölmennari þjóð á bak við hana, en höfuðstaður verður að hafa einhverja minnstu stærð. Reykjavík er eins konar menn- ingarlíffæri, sem þjóðin finnur ó- sjálfrátt, að hún verður að þroska, og ég held það sé ekki hægt að koma í veg fyrir, að það verði gert. Hvað ber Reykjavík uppi af menningu og listum hér á landi? Hefurðu hugleitt það? Áður en við höldum lengra vii ég þó taka fram, að þessi aðdáun mín á Reykjavík breytir ekki á. nokkurn hátt minni gömlu skoð un á sveitamenningu okkar, með- an hún fékk að njóta sín. En höf- uðstaðarmenningin er að sækja sig. Nú er til dæmis orðið allt annað að ala hér upp börn en áður var. Á meðan Reykjavík var eins og um aldamótin, voru bæjarbörnin miklu óþroskaðri en sveitabörnin. Möguleikarnir eru ekki sambærilegir við það, sem áður var, en þá má auðvitað bæði nota til góðs og ills. Framtíð höfuðstaðarins, já framtíð þjóð- arinnar, er mikið undir því kom- in, hvernig hin unga borgar- menning reynist. Hvort ég trúi á hana? Ég hef enga ástæðu til annars, að minnsta kosti ekki enn sem komið er. Gamli Reykja- víkurstofninn er ákaflega traust- ur, en hann er ennþá aðeins tiltölulega lítill hluti af heildinm. En hann vex með hverju ári Reykvíkingunum fjölgar, og ég held þeir hafi oft betri skil- yrði til að bjóða hættunum byrg- inn en þeir, sem aðfluttir eru. Málið? Jú, það er orðið fátækara en var, en það er kannski milli- bilsástand. Það á vafalaust eftir að verða fjölbreyttara. Ritmálið er auðugt, og það getur aftur hresst upp á talmálið. Eg man t.d. eftir því, að menn töluðu alltaf um Hellirár, þegar ég kom fyrst til Reykjavíkur. Mér er nær að halda að þú rekist á Hellisár, ef þú leitar vel í Pilti og stúlku. Maffhías Johann- essen rceðir við Sigurð Nordal, prófessor Elliðaár voru fallnar i gleymsku, en nú talar enginn um annað, og það, sem er nýyrði í dag, getur verið orðið svo daglegt mál á morgun, að enginn kunni erlenda orðið. — Færeyska skáldið. Jörg- en Frantz Jacobsen, sagði mér frá því, er hann kom hingað, að hann hefði beðið leigubílstjóra að aka sér á „telegrafstation". Bílstjór- inn skildi ekki, hvað hann átti við, en loksins þegar hann hafði komið honum í skilning um það leit bílstjórinn á skáldið með- aumkvunaraugum og sagði: A, símstöð! Jú, Reykjavík áttar sig, það er áreiðanlegt. Það var nú kominn tími til að láta hugann hverfa um stund upp í íslenzka sveit og þegar Nor- dal sýndi mér málverk eftir Magnús Jónsson prófessor, fra æskustöðvunum í Vatnsdal, gekk ég á lagið og spurði um gamla daga: — Jú, ég man fyrst eftir mér, þegar ég var hálfs þriðja árs, ef þú hefur áhuga á því. Það var á Eyjóifsstöðum, þar . sem ég ólst upp hjá föðurbróður mín- um, Jónasi Guðmundssyni. Þetta atvik «r ekki merkilegt í sjáífu sér, en svo skemmtilega vill til, að ég get tímasett það nókvæm- lega, því að fóstri minn hélt dag- bók um það helzta, sem bar við á heimilinu. Þetta var á dánar- degi Júlíusar Cæsars, 15. marz 1889: Fóstra fóstru minnar var kistulögð þennan dag. Ég stóð í stofunni og horfði á, þegár skrúf- urnar v*ru festar í kistuna, braut heilann um, hvað yrði um þær og þóttist þess fullviss, að þær yrðu settar niður í skúffu. Þar ætlaði ég að ná í þær, þegar færi gæfist, þvi að mér fannst þær ákaflega skrautlegar. Og þó að ég hefði einhverja hugmynd um, að leiðir gömlu konunnar lægju niður í jörðina, datt mér ekki í hug annað en skrúfurn ar yrðu teknar af og settar í skúffuna. — Annars er lítið um æskuárin að segja. Þetta var á- kaflega rólegt og fastmótað líf, mikið lesið eg á því byrjuðum við snemma. Jú, ég las mikið í æsku og fyrsta skemmtibók mín var Snorra-Edda. Fóstri minn hafði keypt hana fyrir lamb, þeg- ar hann var ungur maður. Ég heillaðist af ævintýrunum í Eddu, ekki af neinum lærdómi 1 mínu ungdæmi lásum við fyrst og fremst íslenzkar bókmenntir og ég held, að ég hafi lesið flest, sem máli skiptir fyrir tólf ára aldur, nema Sturlungu. Ég gat hvergi fengið hana lánaða, en sennilega kynni ég hana betur, ef ég hefði haft hana undir hönd- um í æsku. Fornaldarsögurnar voru mikið uppáhald mitt. Þær eru ágætar fyrir börn. Þetta er einfaldur og skemmtilegur skáld- skapur, reyfarakenndur og fullur af bardögum og ævintýrum. Þess- ar sögur eru skrifaðar fyrir al- þýðu manna. Það er einkennandi fyrir okkar gömlu bókmenntir að eftir því sem lesendurnir verða fleiri og misjafnari, lúta höfund- arnir meir í lægra haldi fyrir kröfum frumstæðari smekks. . . Það bezta í okkar gömlu bók- menntum er aftur á móti svo gott, að það er ekki á allra færi að kunna að njóta þess við fyrstu sýn. — Sagnamenn? Jú, það komu bæði karlar og kerlingar á heimilið og sögðu sögur. -• Og svo átti heimilisfólkið ýni- islegt í fórum sínum líka. Menn fóru með gátur og kváðust á Margt var lesið á vökunni. Ein- staka sinnum kveðnar rímur, nógu oft til þess, að ég man eftir þeim. Passíusálmarnir voru allt- af sungnir, margir með gömlum Jögum. Sálmasöngurinn sýmr. hve heimilin voru stór á þessum tíma. Ég er ekki viss um, að hægt væri að halda uppi miklum söng í sveitunum, eins og fá- mennið er þar nú. Húslestrar voru alltaf lesnir, en því miður hafði fóstri minn svo nýtízku- legan smekk, að hann las aldrei úr Vídalínspostillu. Annars held ég að þessi áratugur 1890—1900 frá því ég fer að muna eftir mér og þangað til ég fór í skóla, sé eitt bezta tímabil í sögu íslenzkra sveita: Þá var góðæri, hægar framfarir, en allt það gamla var enn varðveitt. Þegar útgerðin jókst, tók sveitunum að hnigna, fólkið sótti að sjónum og kaupá- fólkið hætti að koma norður. —- Þú minntist á sönginn áðan. Vatnsdalur var þekktur fyrir góð.a söngmennt. — Já, í Vatnsdal var mikið sungið og þar var tvísöngurinn lengst í blóma. Það var áreið- anlega mikið happ fyrir Bjarria Þorsteinsson að komast1 í kyrini við Kornsárheimilið og söng- menninguná þar. Bezt ég segi þér dálitla sögu, sem lýsir því vel, hve viðkvæmt mál Vatnsdælum var sönglistin. Þegar Benedikt Blöndal í Hvammi var nýtekinn við búi, kom þangað Ólafur gamli á Gilstöðum, langafi minn. Hann var þá orðinn blindur eri fór samt ríðandi með fylgdarmanni og lét hann segja sér, hvar hann gæti hleypt á skeið. Að heimsókn lok- inni hefur gamli maðurinn sjálf- sagt verið orðinn talsvert hýr og Benedikt því dottið í hug að lála karlinn springa á háu tónunum. Þegar hann reið niður tröðina, söng Benedikt hann úr hlaði, eins og kallað var, kyrjaði Drott- ins hægri hönd. Guðrún, móðir hans, stóð þar hjá og þótti henni Benedikt byrja heldur hátt, hef- ur sennilega rennt grun í, hvað hann hugðist fyrir, en Ólafur tók undir og lék sér að því að fara upp. Þegar lagið var á enda og karlinn kominn úr hlaði, gekk Guðrún að Benedikt syni sínum og rak honum rokna löðrung. Benedikt hafði garnan af að segja frá því, að þetta hefði verið síð- asti löðrungurinn, sem móðir sin hefði gefið sér. Helztu söngmenr, í dalnum voru þeir bræður Bene- dikt og Lárus sýslumaður og Böðvar Þorláksson á Hofi. Mér er það einkar minnistætt, þegar þeir bræður komu að Eyjólfs- stöðum. Þá var alltaf það sama til mannfagnaðar: hvítasykur, brennivín og tvísöngur! II Skáldskawurinn ekki tekinn of hátíðleoa Séra Hjörleifur á Undirfelii, faðir Einars Kvarans, kenndi Sigurði Nordal undir skóla. Hann segir, að prestur hafi alltaf verið sér einstaklega góður — og ég er enn hreykinn af því að hafa haft-kennara, sem var lærisveinn Sveinbjarnar Egilssonar. Hann lagði alla áherzlu á latínu, tók gjarna sögubók Páls Melsteds og lét mig þýða. Hann leit svo á, að allt annað en latína væri hé gómi til undirbúnings undir skóla. — Við héldum áfram að rabba fram og aftur um nám Nordals og áður en langt um leið vorum við komnir að skólaárum hans hér í Reykjavík. Ég spurði Nordal meðal annars að þvi hvort ekki hefði verið mikill gleð skapur í hópi skólapilta. — Jú, eins og gengur, svaraði hann, en það var lítið vín haft um hönd, þótt menn fengju sér glas með félögum sínum. Þetta var fyrir bannið og lítið drukkið. íslend- ingar voru á góðri leið með að verða framúrskarandi hófsamir á vín, það var hægt að taka úr tappa án þess að tæma flöskuna, en það breyttist, þegar bannið kom. — Ég bragðaði til dæmis aldrei vín, meðan ég var í skóla, og var þó ekki í neinu bindind- isfélagi. En þú spurðir um skól ann. Ég hafði ekkert út á hann að setja, kennslan var mest í þvi fólgin áð láta nemendurna standa kennurunum reikningsskap. Ég Framhald á bls. 46.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.