Morgunblaðið - 24.12.1957, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 24.12.1957, Blaðsíða 2
46 MORGVNRT.AÐ1Ð Þriðjudagur 24. des. 1957 — Samtal við Sigurð Nordal Framhald af bls. 45. fann síðar, þegar ég kom í ha skólann, hvað við vorum miklu betur undir háskólakennslu búmr en danskir stúdentar. Það gilti einu fyrir okkur, hvort við lærð- um í skóla eða utan. Við höfð- um lært að treysta á sjálfa okk- ur og það kom sér vel. Danskur kunningi minn kvartaði undan því við mig, ekki alls fyrir löngu, að menntun stúdentanna versnaði með hverju ári. Ég sagði að þaV væri vegna þess að skólarnir færu síbatnandi. Held það sé dá- lítið sannleikskorn í þvi. Þó má kannski segja, heldur Nordal á- fram, að skipti kennara og nem- enda hafi ekki verið eins og skyldi á mínum skólaárum. Bil- ið var of breitt. Bjarni frá Vogi var sá af kennurunum, sem hafði j einna helzt lag á að skrafa við pilta og vekja þá til að hugsa. Hann kenndi okkur þýzku og latínu. Latínutímarnir fóru oft í skemmtilegt rabb um hitt og þetta, en síðustu tíu mínúturnar lét Bjarni tafsa, sem kallað var, — þ. e. a. s. hann lét einhvern piltanna þýða það, sem okkur hafði verið sett fyrir. Þar með var það mál afgreitt! Og þegar Bjarni lét okkur íesa Faust í 4. bekk, komust allir í hátíðaskap. Annars fannst mér, að félags- skapurinn hafi verið meira virði en allt annað í skólanum. Það var mikið lesið, skeggrætt og orkt. Aðalskólaskáldin voru Lárus Sigurjónsson og Jóhann Gunnar og síðar kom Jónas Guð- laugsson til sögunnar. Þeir orktu margt vel, einkum fór mikið orð af Jóhanni sem skáldi, enda orkti hann flest kvæði sín í skóla, og er það út af fyrir sig allmerki- legt. — En hvað um þín ritstörf á þessum árum? — Þau voru mjög lítil, réttara sagt engin. Það var helzt, að við Jón Kaldi, sem var bekkjar- bróðir minn og vinur, skiptumst á kvæðum í gamni og alvöru, án þess þó að taka þann skáldskap of hátíðlega. — Þér hefur þá ekki dottið i hug á þessum árum að leggja fyrir þig skáldskap? — Nei, aldrei. Mér hefur aldrei dottið í hug annað en yrkja eitt og eitt kvæði, eins og allir fs- lendingar gera og hafa gert. Og án allra skáldskaparhugleiðinga fór ég úr skóla og hélt til Hafnar III Takmarkið — að kvnnast lífinu — Takmark? Þegar við höld- um út í lífið, hljótum við að hafa eitthvert takmark. Allir menn eiga sér einhverjar innstu og hugfólgnustu óskir, hvort sem þeir gera sér það sjálfir Ijóst eða ekki og hversu mikið af því. sem örlögin leyfa þeim að fá upp • fyllt. En vitanlega breytast þær eftir aldri og aðstæðum. Ég orð- aði mitt takmark, eitthvað á þessa leið, þegar ég var rúmlega tvítugur og nýkominn í Hafnar- háskóla: Að kynnast lífinu í öll- um þess myndum. Þetta var hung ur og þorsti að þekkja, reyna, vita, skilja. Ég þekkti þá ekki það, sem Óscar Wilde sagði á sama reki, að hann ætlaði sér að eta af öllum trjám í aldin- garði lífsins. En ég átti við eitt- hvað líkt. — Ef til vill hugsa ali ir unglingar svipað þessu. Ég veit. það ekki, en ég var undir þetta búinn af uppeldi og umhverfi, sem smávíkkaði, Vatnsdalurinn, Reykjavík, Höfn. Þá var, eins og ég minntist á áðan, miklu meira fyrir ungan stúdent að koma til Hafnar en nú. Við vorum ekki búnir að taka eins mikið í for- skot. Að koma á listasöfn, í leik- hús, heyra hljómleika, óperur, sjá stórhýsi, skóga, vita um ótæm- andi bókasöfn o. s. frv. Engin furða, að maður yrði drukkinn. — Auðvitað vissi ég ekki, hvers ég var að óska mér, um hvað að biðja, hvers virði það var, en eitt er víst: Eg hef a. m. k fengið meira af þessum kynnum en mig óraði þá fyrir eða kunm að biðja um. — Að vissu leyti hef ég haldið í þessa hugsun, skal aðeins taka tvö dæmi. Heim- spekin, forspjallsvísindin, sálar fræðin opnaði mér fyrsta Hafnar- veturinn nýja útsýn. Það ætti að kenna þessi fræði í menntaskól- um, jafnvel barnaskólum. En þegar ég fór að lesa meira, til dæmis Sören Kierkegaárd fann ég, hversu skammt þetta náði, var mér torskilið, fannst eg standa utan garðs, óþolandi. En seinna fékk ég að stunda heim- speki nokkur ár og það var fró- un, þótt það næði ekki lengra. Og þegar ég fyrir 6 árum var beðinn um að verða sendiherra! Ég hugsaði: Ef til vill, iðrast ég eftir að segja já, en ég iðrast áreiðanlega, ef ég segi nei. Þetta var sem sé alveg ný reynsla Iðrast ég? Veit ekki ennþá. A eftir að meta reynslu þessara ára, en — þetta er eins og um ferða- lög: hvað sem ferðalaginu sjálfu líður, er a. m. k. alltaf gaman að koma aftur heim, ekki aðeins af því að komast í gamla farið heldur af því, að maður er að einhverju leyti sjálfur orðinn nýr. — Með svona takmarki í líf- inu væri vafalaust bezt að vera efnaður og þurfa ekki að hugsa um að vinna fyrir sér, og tak- marka sig, slá af, þrengjast, kúld ast. Og þó! Það er líka reynsla, ekki minni þótt dýrkeypt sé. Það eru til menn, sem eru svo var- kárir, að þeir Ijá lífsbaráttunni aldrei fangstað á sér, eins og laxar, sem alltaf éta af, en bíta aldrei á krókinn. En það er líka reynsla, sem fæst ekki öðru vísi, þótt oft sé — eða af því að það er — erfitt og andstætt. Og skyld um má taka á ýmsa lund. Það er hægt að vera sæmilegur þjóð- félagsborgari án þess að gera alls konar borgaralegan hégóma og hleypidóma að guðum sínum. Og hægt er að laga störf sín meira og minna í hendi sér, svo að þa'i gleypi ekki innstu óskir með húð og hári, að eiga sér eitthvert tak- mark þar fyrir utan og svo mik ið af húmor, að unnt sé að horfa á lífið eins og sjónleik og taka það ekki alltof dauðans hátíð- lega. Maður getur verið með- hjálpari án þess að bera alltaf kirkjulykilinn á maganum. IV Leiðinlevt nám — Eío’in vötiw — En Kaupmannahafnardvöl- in, hún vekui forvitni mína. — Já, einmitt. Þegar ég kom til Hafnar, hafði ég tekið þá á- kvörðun að leggja stund á íslenzk fræði, en vissi svo sem ekki að hverju ég gekk. Á árunum 1905 —1906 hófum við fjórir íslenzkir stúdentar nám í þessari grein, Andrés Björnsson, Guðjón Bald- vinsson, og við Jón Sigurðsson Þegar ég valdi mér þetta nám. hafði ég það m.a. í huga, að á þessu sviði væru íslendingar bornir til þess að vera í farar- broddi. Og ég skal ekki neita því, að ég hef sennilega einnig gerc ráð fyrir því, að þetta væri til- tölulega létt nám fyrir íslend- ing. Finnur Jónsson var aðal- kennari okkar. Hann var mér á- kaflega góður og mikill vinur til dauðadags, en kennsla hans var miðuð við danska stúdenta og heldur lítið á henni að græða fyrir okkur. — Þegar ég hafði verið í Höfn eitt ár, valdi ég mér Snorra að kjörsviði í þeirri trú, að allar undirbúningsrann- sóknir væru af hendi leystar, svo að hægt væri að snúa sér að hinu sem ég hafði mestan áhuga á og vissi, að hafði verið vanrækt, nefnilega bókmenntagildið. Að þessum tíma hafði bókmennta lega hliðin alltaf setið á hakan- um, þegar fræðimenn fjölluðu um fornrit okkar. En bjartsýni mín reyndist því miður á sand' byggð. Ég sat sjálfur fastur í frumrannsóknum, eins og dokt- orsritgerð mín um Ólafs sögu helga ber með sér. Sem dæmi um það, hverjum augum fræðimenn litu á Ólafs sögu, get ég sagt þét, að Finnur Jónsson benti mér á að byrja á því að taka kaflana, sem eru sameiginlegir í Heimskringlu og Orkneyinga sögu, og bera þá saman. Mundi þá koma í ljós hvernig Snorri hefði unnið úr heimildum sínum. En þetta reynd ist öfugt, því að það er Orkney- inga saga, sem sækir til Heims- kringlu, en ekki Snorri, sem sknf aði orðrétt upp úr Orkneyinga sögu. — En þú hefur h>ft gaman af þessu námi, þrátt fyrir allt? — Nei, yfirleitt hundleiddist mér það. Á málfræðinni hafði ég litlar mætur, og svo varð að lesa allan þremilinn til prófs, sern maður flýtti sér að gleyma sem fyrst á eftir. Það var eiginlega mesta furða, að ég skyldi ílend- ast í þessu. Sennilega hefur það verið af einhvers konar skyldu- rækni. Hins vegar held ég það sé gott fyrir öll fræði, já allt mannlegt líf, að hafa óánægða menn innan um. E. t. v. er helzt von endurnýjunar frá þeim. — Mér fannst námið leiðinlegt og ákvað því að reyna að gera það skemmtlegra fyrir sjálfan mig. Ég varð að fara mínar eigin göt- ur. Og það skiptir miklu meira máli að Snorri er skáld og rit- snillingur en þótt hann sé sagn- fræðingur. Mér er nær að halda að konungasagnahöfundarnir hafi ekki fyrst og fremst varðveilt heldur gefið Norðmönnum sögu. Hvað hefði orðið um þessar sög- ur, ef þær hefðu verið skrifaðar í annálaformi. Þá mundi enginn þekkja þær né hirða um þær. — En þú vilt fá að vita meira um Hafnardvölina. Þetta var yndis- leg borg og minnistæður tími. Ég gerði það að gamni mínu, þegar íslenzka stúdentafélagið í Höfn átti sextíu ára afmæli, að fletta stúdentatali Bjarna frá Unnarholti og athuga afdnf þeirra íslendinga, sem stunduðu nám við Hafnarháskóla í minm tíð. Sá ég þá, að aðeins fjórðung ur þeirra hafði lokið prófi í Höfn Fannst það gefa dálitla hugmynd um andann sem ríkti meðal ís- lenzkra Hafnarstúdenta. Það var tvennt, sem gerði stúdentalífið skemmtilegt: Menn gáfu sér góð- an tíma frá námi, ef það var nokkurt á annað borð, og svo skiptust stúdentarnir nokkurn veginn jafnt á milli margra greina, svo að í hópnum voru menn með margvíslegar skoðanir og áhugamál. Nú eru flestir Hafn arstúdentar í verkfræði — og all- ir ljúka námi! — Á námsárum mínum voru líka nokkrir „eldri menn“, sem settu mikinn svip á stúdentalífið, Arni Pálsson, Jóhann Sigurjónsson og fleiri Síðar komu til skjalanna tals- vert yngri menn, sem ég hafði gaman af að kynnast, m.a. Tryggvi Sveinbjörnsson og Sveinn Jónsson, sem álitinn var mjög efnilegt skáld, en lagði skáldskapinn síðar á hilluna og gerðist kaupmaður í Höfn. Þess- ir menn heyrðu til nýju sénía- tímabili á íslandi, Sveinn og Tryggvi höfðu t.d. báðir búið í Unuhúsi og töldust til þess „is- lenzka aðals“, sem síðar þótti ekki ómerkilegt fyrirbæri í okk- ar þjóðfélagi. Eins og ég sagði þér, gerðist Sveinn kaupmaður í Höfn og átti ég því miður ali mikinn þátt í því stjörnuhrapi. Það er eina mannsmorð, sem mér finnst ég hafa á samvizkunni. Sveinn var ákaflega drykkfelld- ur og hafði litlum manni að má. Kvöld eitt kom hann til mín mjög drukkinn og ákvað ég þá að athuga hann, enda höfðu fé- lagar hans áður beðið mig um að tala um fyrir honum. Ég var þó ekki ginkeyptur fyrir því að skipta mér af drykkjuskap Sveins, en komst ekki undan því í þetta skipti. Um nóttina lét ég hann sofa úr sér á dívani mín- um, og fann, hve herfilega hor.- um leið, en morguninn eftir fór ég með hann út í Assistents- kirkjugarð og sagði honum hrein- skilningslega að hann væri a góðri leið með að drepa sig! Hann kvaðst vita það, og var svo fastmælum bundið milli okk- ar, að ég léti Garðlækninn skoða hann. Síðan var hann sendur á hæli sumarlangt, en eftir þetta steinhætti hann að drekka — og yrkja. Ekki vissi ég til þess, að Sveinn erfði þetta við mig! En — hvort íslenzkar bókmenntir hafa þarna týnt góðu skáldi, það er annað mál, sem enginn veit. V Tvenns konar skáld — Þú spyrð um ritstörfin. Það er tilviljun, að ég hef lent í því að skrifa bækur, skylda, atvinna, ónumin svið, sem varð að ryðja einhverjar leiðir gegn- um. Ég hefði vel getað hugsað mér störf, til dæmis að vera taugalæknir, þar sem ég hefði ekki þurft að skrifa neitt nema fyrir sjálfan mig. Langmest af því hef ég ekki heldur birt, Hannesar Árnasonar fyrirlestra mína, Einlyndi og marglyndi, — fyrirlestra mína um íslenzka bók- menntasögu, — allar mínar meir og minna persónulegu hugleið- ingar, sem ég hef að mestu leyti kastað smám saman, — svo að ég nefni ekki fleira. Það eru til tvenns konar rithöfundar: Þeir, sem skrifa til þess að lifa, þ. e. gera sér eitthvað Ijósara, losna við það, geta tekið fyrir eitthvað nýtt eins og ormur, sem skiptir um ham eða hestur sem geng- ur úr hárum, — og þeir, sem lifa til að skrifa, þar sem verkið er takmarkið, eitthvað fullkomið, frægt, ódauðlegt eða ég veit ekki hvað. Tvenns konar viðhorf, — sem vitanlega sjaldan eru alveg sérhæfð eða óblönduð á annan hvorn bóginn. Matthías Jochums son er ágætt dæmi upp á fyrri tegundina. Aðalatriðið hjá hon- um var að yrkja kvæðið og síðan gat hann gleymt því. Alltaf þeg- ar Árni Pálsson á Hafnarárun- um talaði um Matthías Jochums- son fór hann með þessar ljóð- línur úr eftirmælum, sem hann kunni ekki meira af: Eins og mjöll og sjávarhrönn um haf hrundi blóminn kinnum þínum af. Viku af viku, nótt og dapran dag dauðans engill söng þitt vöggu- lag; söng og skenkti sárra kvala vín, söng og spann þitt hvíta dáins-lín Loks kom heilög hönd, sem um þig bjó, heilög rödd er sagði: það er nóg. Þegar Árni hitti síðan séra Matthías heima á fslandi spurði hann gamla manninn um hvern þetta kvæði væri. Matthías svar- aði: Elskan mín, það man ég ekki. Ætli ég hafi ekki orkt þetta eftir einhvern karlskratta í Hafn arfirði! Nú má ekki misskilja þetta, því að þetta voru ekki ljót orð í munni sér Matthíasar. Þeg- ar hann sagði til dæmis að ein- hver maður væri „bráðgáfaður skratti", var vart hægt að hugsa sér meira hól af hans vörum. — Skáldskap! Nú heldurðu að þú hafir gripið á kýlinu. Ég hef aldrei orkt nema þegar ég hef mátt til eða ekki verið til neins annars fær. Reynsla, sem ég vildi ekki án vera, eitt smásagnasafn, eitt leikrit, eitt Ijóðakver prent- að í 50 eintökum. Því miður eng- in stærri skáldsaga, þótt ég hafi haft þrjár í smíðum. Fornar ást- ir? Þó ég færi að skrifa Fornar ástir, var það síður en svo vegna þess, að ég ætlaði mér að vera skáld. Þetta er allt tækifæris- skáldskapur. Fyrstu söguna, „Síðasta fullið“, skrifaði ég 1909. Hún var eiginlega skrifuð upp úr ræðu, sem ég ætlaði að halda fyrir minni Bakkusar í íslend- ingafélaginu. Hafði krotað niður nokkra punkta á blað. Við Jón Kaldi fórum að skemmta okkur dálítið á skírdag. Vorum alla nótt ina eins og gengur, en þegar ég kom heim um morguninn svaf ég dálitla stund og um kvöldið skrifaði ég svo söguna upp úr fyrrnefndu uppkasti. í gamla daga fannst mér timburmenn ákaflega frjósamir fyrir ímynd- unaraflið. Mér finnst það ekki lengur. „Hel“ skrifaði ég á löng um tíma, lauk fyrst við hana í Oxford. Nú, og „Ferðin sem aldrei var farin“ ég hef aldrei litið á hana sem sögu. Hún er hluti af fyrirlestri — í hæsta lagi dæmisaga. Allur minn skáld skapur varð til sem breyskleika- synd, en ekki ásetningssynd, en þú hefur ekki lært Helgakver og veizt ekki, hver reginmunur er á þessu tvennu. Þegar ég gaf þetta út, vakti fyrst og fremst fyrir mér að losna við það. Ég hef aldrei borið við að skrifa sögu síðan. Annars get ég sagt þér, milli sviga, að ég hef eigin- lega aldrei haft algerðan áhuga á öðru en religión, eins og þú getur séð af því, að ég hef varla haft eins milda ánægju af nein- um ritstörfum og þegar ég skrif- aði um píslarsögu Jóns þuml- ungs. En þetta var útúrdúr. Við vorum víst að tala um skáld- skap. Það er mjög erfitt að hafa hann í hjáverkum frá öðrum rit- störfum. En hann hefur sem sagt verið mér reynsla og ekkert ann- að. Ég hef alltaf vitað, að ég gæti ekki skrifað neitt, sem full- nægði þeim ýtrustu kröfum, sem ég gerði til skáldskapar. Og hvers virði var mér það þá að leggja lífið í sölurnar fyrir það. Ég held, að allir eigi að yrkja eða skrifa einshvers konar skáld- skap, en guð forði veröldinni frá því, að það væri allt prentað! Til hvers lesa menn bækur? Mest af þeim aðeins til þess að drepa tímann, gleyma sjálfum sér, gleyma að lifa. Er ekki furðulegt að halda sem lengst í lífið og vera þó alltaf að reyna að losna við það, drepa tímann, stytta sér stundir, skemmta sér. Ég er sjálf- ur feginn að lesa Agötu Christie í flugvélum og járn- brautarlestum, en að lesa skáld- skap, sem bæði er vondur og leiðinlegur, það tekur út yfir allan þjófabálk. — En er þá ekki til góður skáldskapur? — Jú, auðvitað er til góður skáldskapur. Og úr því að hann heldur ekki aftur af fleirum að birta sinn vaðal, þá er það, svo ég tali ekki um verzlunarsjónar- miðin, annað hvort af því að þeir hafa aldrei komizt í kynni við þetta sem bezt er, eða af því að þeir hafa reynt eitthvað dásam- legt, meðan þeir voru að bisa við að yrkja, sem þeir kunnu ekki að láta í ljós — og eru síð- an blindir á árangurinn. — Og nú er ég aftur kominn að marg- lyndinu. Að kynnast. Að reyna að eta af öllum trjánum. Hvers virði er það, auk þess sem eng- inn kemst yfir það? — Þú lifir við og við stundir, fáein andar- tök, þegar þú sérð eins og í þoku- rofi veruleikann með alveg nýj- um hætti, þegar gleraugum hug- mynda, hugtaka, allra venju- bundinna skoðunarhátta, er svipt burt og þú skynjar hlutina sjálfa, eins og þú værir að lifa sköpun heimsins. Og öll fjöl- breytni verður einskis virði i samanburði við þessa undrun og opinberun. Listin getur hjálpað til þess að eignast slíkar stundir. Eitt lítið kvæði, höggmynd, mál verk og þó framar öllu bygging- arlist og tónlist. Og þá nær listin æðsta tilgangi sínum, að sýna þér í tvo heimannna, hið raun- verulega bak við blæju hvers- dagsleikans. En ennþá beinni leiðir eru til, samband við nátt- úruna, hugleiðingar, að komast að kjarna sjálfs þin, sem er hið eina, sem þú getur þekkt í raun og veru. — Að komast út úr myrkviði hversdagsleikans, að ströndum hins óendanlega. Það er takmark. Eitt slíkt andartak er meira virði en öll fjölbreytni samanlögð, jafnvel þótt þér síðar finnist þú alla ævi útlagi frá þvi, sem mestu skiftir í reynslu og lífi og þótt þú finnir, að þú getir aldrei fundið orð til þess að lýsa því. VI Hvað er að lifa? Þar sem Sigurður Nordal hafði sagt, að hann hefði mestan áhuga á trúarbrögðum, þótti okkur rétt að láta þetta samtal enda á hug- leiðingum hans um þau. Hann sagði: — Trúarbrögð? Ég get sagt, eins og þar stendur: Ég trúi, en hjálpa þú trúarleysi mínu. Ég skal játa það í dýpstu auð-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.