Morgunblaðið - 24.12.1957, Page 15

Morgunblaðið - 24.12.1957, Page 15
Þriðjudagur 24. des. 1957 MORCUN BLAÐIÐ 59 Verðlaunakr&ssgáta M orgunblaðsins VÍORGUNBLAÐIÐ hefir ekki áður birt krossgátu með sama sniði og nú. Ef til vill virðist hún við fyrstu sýn erfið viðureignar, en svo er þó ekki. I stað þess að láta skýringar fylgja með sérstaklega, eru þær skrifaðar í krossgátuna sjálfa. Þar sem tvær skýringar eru í sama reitnum á sú efri við lárétta orðið, en sú neðri við það lóð- rétta. (Sé aðeins ein skýring sést greinilega við hvaða orð hún á). Þá eru teikningar notaðar við skýringar og sýna örvar frá þeim hvar orðin eiga að koma. Ur siimuni þeirra á að finna heilar setningar, og afmarkast hvert orð af ör, sem segir til um, hvar næsta orð kemur. Við gætuin til dæmis hugsað okkur að myndin af jólasveininum efst í vinstra horninu táknaði: Síðskeggur — þrammar — með — poka — á— baki (en auðvitað er það ekki rétta lausn- in, því það kemur eliki heim við stafalengd livers orðs). Tvær skýringar felast í sqmum myndunum eins og örv- irnar gefa til Iiynna. I nokkrum Iitlu reitanna eru smá- myndir og koma þær í stað orða. Myndir af fólki tákna manna- eða kvennanöfn. — Rétt er að geta þess, að ekki er gerður greinarmunur á i og í, u og ú, a og á, y og i, e og é, eins og venja er í krossgátum. I»á skal það sagt að á einum stað er dönskusletta (sem tíð er í kross- gátum) og ein skýringin er ekki allskostar rétt. I gátunni stendur RISA-HELLI, en á að vera RISA-BÚI. (Fornt) aftan við skýringarorð táknar aðeins fornan rithátt. (Sjá bls. 68). — Kvennaslba Framhald af bls. 48. með þeim. Barngóður maður, það má nú segja. — Hvað finnst þér nú eigin- lega um þessa spurningu: „Hvers vegna konum finnst gaman að vera konur?“, spurði ég háalvar- leg. — Ja, sagði smiðurinn og velti vöngum. Það eru eflaust margar og mismunandi ástæður fyrir því að ykkur finnst skemmtilegt. — Geturðu þá nefnt mér ein- hverja? Hvað heldurðu t. d. um konuna þína? Smiðurinn brosir og hætti að vinna sem snöggvast. — Þeirra veikleiki er þeirra styrkleiki! — Einmitt já, og hvað meinar þú eiginlega með því? — Jú, sérðu til, þær „spila út“ sínum veikleika og þar með ráða þær í raun og veru yfir karl- manninum. Það held ég að sé ein aðalástæðan fyrir því að konum þyki gaman að vera konur! — Þú ert sem sé ekki í neinum vafa um að þeim þyki það gam- an? — Nei, þ. e. a. s. ef þær geta ráðið í einu og öllu. Annars held ég að þær langi miklu meir til þess að vera í sporum karl- mannsins. — Langar þig til þess að vera kona? — Nei, alls ekki. (Nú hló hann hátt!). — Líklega vegna þess að ég veit ekki hvernig það er að vera kona og þar af leiðandi langar mig ekkert til þess. Smiðurinn er manna rökvísast- ur, eins og karlmenn eru líka yfirleitt. Á meðan ég var að skrifa þetta niður var hann sífellt að hnusa og lét sem honum lík- aði alls ekki að ég væri að skrifa niður lífsspeki hans. Og við skulum vona að þótt kvenfólk í hans augum sé aldrei ánægt nema það ráði yfir hinu „sterkara“ kyni, þá muni kona smiðsins ekki gera alveg út af við hann í ráðríki eða annað það kvenfólk sem hann á eftir að umgangast í framtíðinni. — En fyndist þér nú samt ekki hálf leiðinlegt ef ekkert kvenfólk væri til, spurði ég hann, er komið var undir kvöld og hann ætlaði að ieggja af stað heimleiðis. — Jú, ekki neita ég því, sagði hann og virtist fullkomlega ánægður með sjálfan sig og líf- ið, — eins og reyndar karlmenn eru oftast nær. A. Bj. — Saurhæjarkirkja Frh. af bls. 50 Minningardagur hennar er 22. nóvember og er henni þá sungin hljómlistarhátíð. Þannig er sagan um dýrling þann er Saurbæjarkirkja var helguð, dýrlingi hreinlifisins og hljómlistarinnar. Nú skoðum við muni þá er hin gegnkalda kirkja hans hefir að geyma á íslenzkum vetrardegi. í alt- arinu eru nokkrar gamlar öækur með gotnesku letri m.a fornfáleg biblía nokkuð far- in að láta á sjá. Þar eru einnig nokkur minningarspjöld, haglega teiknuð og skrautrituð með minn ingar ljóðum. Eru sum næsta gömul orðin og lítt læsileg. Eitt spjaldanna eru um Jónas Jónas- son afa Jónasar Haligrímssonar og annað um Ólöfu Thorlacius móður séra Einars Thorlacius er kirkjuna lét byggja. Þá eru þjón- ustubækur og vínkanna og tveir korporalsdúkar, en þá hafði prest urinn í lófa sér undir bauknum og könnunni er hann útdeildi sakramentinu. Þá er uppi á laus holti skírnarskál allforn úr mess ing. Þar með munu upp taldir munir þessarar kirkju, sem eitt sinn var vel efnum búin. Nú mundu eigur hennar sjálfsagt vart hrökkva fyrir hvítri máln- ingu á kirkjuhurðina. Um þesar mundir stendur Saur bæjarkirkja á timamótum. Hún er nær 100 ára gömul allt of lítil fyrir söfnuð sinn, sem mun hafa í hyggju að byggja nýja kirkju. Þá vaknar sú spurning hvort halda eigi við þessum fulltrúa gamla tímans. Slíkt myndi of- vaxið söfnuðinum, sem safna yrði miklu fé til nýrrar kirkju- byggingar. Þetta fornfálega guðs hús þarf gagngerðar endurbótar en verður vart notað t.il annars en sem minjagripur og væri því verksvið hins opinbera að sjá um að henni væri sómi sýndur. Hitt er hvorki til sóma né augnagam- ans að horfa á hana grotna niður eins og nú er. í dag verjum við stórfé til bygg ingar fagurra félagsheimi’a. Eru t.d. þrjú slík að rísa í Eyja- firðinum, eða þegar risin.Á milli þeirra er mun skemmra en kirkna þeirra er boðlegar geta talizt fólki. En þetta er víst tímanna tákn. Musteri andans eru látin mæta afgangi en hús gleði og líkamlegra lystisemda látin sitja í fyrirúmi. vig. - ÁriB 2057 Framhald af bls. 57. á varð mönnum ljóst, tyrir nokkr- um áratugum, að bifreiðarnar gerðu slíkar brautir ekki úreltar. Með henni héldum við skjótt suð- ur til Keflavíkurflugvallar, en þar er bækistöð fyrir millilanda- flug. Okkur er skýrt frá því, að frá Iteykjavík til Keflavíkurflugvall- ar liggi einnig ferföld bifreiða- hraðbraut. Hún er eins og nokkr- ar aðrar hraðbrautir búin raf- magnsstjórntækjum, er stýra hverri bifreið á sjálfvirkan hátt og stjórna jafnframt vél hennar, þannig að meðalhraði verður um 100 km. á klst. Árekstrar eru úti- lokaðir, einnig í þoku og hríð. Kafmagr.slestin nemur staðar eftir skannna stund, við Kefla- víkurflugvöll og við stígum út. — Hér gefur heldur en ekki á að líta. Röð af rennilegum eldflaugum stendur þar fyrir framan af- greiðsluhúsið og fólkið flykkist inn í þær. Við og við kveða við sprengidrunur og hvinur, þegar eldflaugarnar lyftast upp og hverfa upp í bláloftin. Við eldflaugarnar eru merki sem sýna farþegum hvert ferðinni er heitið. Þar stendur: Til Tokyo á 15 mínútum, til Rómaborgar á 5 mínútum. Til London é 2 mínút- um. Svo staðnæmumst við tvímenn ingarnir við stærstu eldflaug'ina. Skiltið við hana er ekki merkt neinum ákveonum stað, heldur stendur þar aðeins: — Til ársins 3057. — Hér geta menn keypt sér far 1000 ár fram í tímann. Þeir munu ferðast til fjarlægra stjarna og snúa aftur til jarðar ANNO 3057. Þó þúsund ár verði þá liðin á jörð inni muni farþegarnir, er þeir koma aftur, vera aðeim um tveim- ur mánuðum eldri en þegar þeir lögðu af stað. — Eigum við að leggja af stað í flugferð til ársins 3057. — Hvað segirðu um það, Gísli? — Já, hvers vegna ekki. Svo kaupum við okkur farmiða og ekki liður á löngu þar til við þjótum af stað. Hitt er svo önisur saga, hvernig fsland lítur út eftir þúsund ár. Ef við færum að lýsa því, þá er hætt við að lesandinn hætti að trúa ferðasögu okkar. I>. Tli. — Eigum við að slá í slag? Frh. af bls. 55 fyrst trompin af andstæðingunum og spila síðan langlitnum. V A ♦ * Að lokum má gefa ykkur góð ráð (ef til vill ekki óbrigðul samt) til að vihna í spilum, því að af nógu er að taka úr íslenzkri hjátrú: „Beri maður á sér, þá hann spil ar, hjarta lifur og tungu úr hrafni vel þurrkað í vindi, mun hann vinna“. „T-ak hálft hest-hjarta, þurrkað við sól, og rauðmagaskjöld þurr- an og ber á hálsi þér“. Þá var og Ijómandi gott að taka höfuðhár af svörtum ketti og “bera undir skyrtunni á úln- liðnum. I\iau5synlegar ílíkor Fallegar flíkur f -■•t, P > /ik því gæðin eru þau sömu og verðið hagkvæmt Estrelia og VÍR. framíeihsía

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.