Morgunblaðið - 08.01.1958, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 08.01.1958, Blaðsíða 2
2 MORGVWELAÐ ÍÐ Miðvilcudagur 8. jan. 1958 H rossaútskipun bönnuð í Reykjavík Alþjóðaskákmóti unglinga er um það bil að ljúka í Oslo. Meðal þátttakenda á mótinu er einn fs- Iendingur, Ingimar Jónsson frá Akureyri. Hefur hann staðið sig vel og var um sl. helgi í 2.—I. sæti Forystuna hafði þá Daninn Svend Haman með 6M> vinning, en Ingimar og Norðmennirnir Sven Johannessen og Ragnar Hoen höfðu 514 vinning. Ingimar var valinn af Skáksambandinu til þessa móts, en hann hefur m. a. orðið Skákmeistari Norðurlands (í hitteðfyrra) Á myndinni sést efst t. v. Kai Nilsen, Noregi tefla gegn Per Stavnum, Noregi. Til hægri að ofan sést Hans Ove Halen, Svíþjóð tefla við Mákiláinen, Finnlandi. Að neðan sést Ingimar (t. v.) tefla við Biebinger V.-Þýzkalandi en þá skák vann Ingimar. Mikið vebarríki og eriiðar sam- göngur í Suður-Þingeyjarsýslu ÁRNESI, S-Þing, 2. jan. — Veðr- átta hefur verið hér umhleypinga söm um hátíðirnar. Á jólanótt- ina gerði t. d. afspyrnu suðvest- an veður með skafrenningi. Verulegt tjón varð þó ekki í þessu veðri hér svo vitað sé. Milli jóla og nýjárs var kalsaveð- ur með nokkurri snjókomu flesta dagana og síðustu þrjá dagana hefur kyngt niður miklum snjó. í dag er hörkufrost, 16—20 gráð- ur. Erfiðar samgöngur Samgöngur eru nú orðnar erfið ar um héraðið. Mjólkurflutning- ar hafa þó gengið sæmilega fram að þessu á stórum og sterkum bílum, að mestu hjálparlaust. Þjóðvegurinn frá’ Húsavík fram að flugvellinum í Aðaldal var ruddur í gær, svo og sjálfur flug- völlurinn en á hann hafði sett allmikinn snjó. Kom í góðar þarfir Kom nú hinn nýi flugvöllur í góðar þarfir fyrir námsfólk og vermenn sem um þessar mund- ir eru á leið til Suðurlands. Höfðu þrjár farþegaflugvélar lent á vellinum í dag og fóru fullhlaðnar farþegum héðan. Fólksekla Fólksleysi sverfur nú að bænd- um hér, meira en nokkru sinni fyrr. Er nú liðinn sá tími, er veturinn var eins konar hvíld- artími þeirra. Fé fóðurfrekt Sauðfé hefur verið fremur fóð- urfrekt í vetur, einkum vegna þess hve snemma það kom á hús í haust. Þó hefur verið snjó- létt lengst af í vetur, eða fram undir jól. —Fréttaritari. Stjórnarkjör í Sjó- mannaíél. Hafnar- fjarðar HAFNARFIRÐI — Enn stendur yfir stjórnarkjör í Sjómanna- félagi Hafnarfjarðar, en því fer nú senn að ljúka. í kjöri eru tveir listar: B-listi, sem skipað- ur er lýðræðissinnum og studd- ur af andstæðingum kommún- ista, og A-listi, sem er listi kommúnista. Kosning fer fram í skrif- stofu félagsins að Vesturgötu 10, og er hægt að kjósa kl. 5—6 síðd. dag hvern. Listi lýðræðissinna, B-listinn, er skipaður eftirtöldum mönn- um: Einar Jónsson form., Krist- ján Kristjánsson varaform., Hall- dór Hallgrímsson ritari, Guðjón Frímannsson gjaldkeri, Kristján Sigurðsson varagjaldk. Vara- menn: Hannes Guðmundsson, Sigurður Pétursson. —■ Trúnað- armannaráð: Þorvaldur Ás- mundsson, Þórir Sigurjónsson, Ágúst O. Jónsson, Sófus Hálf- dánarson, Ingvar Bjarnason og Baldur Eðvaldsson. —G. E. Kosningaskrifstofa Sjálfstæðisflokksins KOSNINGASKRIFSTOFA Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík er í Vonarstræti 4, V.R. Skrifstofan er opin frá kl. 10—10 daglega. Símar skrifstofunnar eru 1 71 00 og 2 47 53. Upp- lýsingar um kjörskrá eru veittar í síma 1 22 48. Stuðningsmenn Sjálfstæðisflokksins eru beðnir að hafa samband við skrifstofuna og gefa upplýsingar um þa, sem verða fjarverandi á kjördegi. Gúmmíbjörgunarbáfar AKRANESI, 6. jan. — Á Alþingi 1957 var lögskipað að hver ein- asti íslenzkur bátur, 5 tonn og stærri, sem hefur haffærniskír- teini, skyldi ávallt hafa um borð gúmmíbát eða báta, sem tækju alla skipshöfnina. Ég er nú stadd ur hjá Inga Guðmonssyni skipa- smið, sem athugar til hlítar í umboði skipaskoðunar ríkisins gúmmíbáta fiskiskipaflotans á Akranesi. Höfum við hér fyrir framan okkur, einn 10 manna gúmmíbát, 2 m. í þvermál. Bát- urinn er kringlóttur, tvöfaldur í botninn og hliðar hans tveir gúmmíhringir, hver upp af öðr- um, auðvitað loftfylltir. Upp af hliðunum eru 4 bogar loftfyllt- ir, sem bera uppi hringlaga vatnsgeymi á þaki. Báturinn er lokaður með nælontaldi sem hvílir á bogunum. Bátnum fylg- ir gasflaska. Með henni má með einu handtaki dæla bátinn upp á nokkrum sekúndum. Ingi skipasmiður telur að slíkur bát- ur sé öruggt björgunartæki í sjávarháska. —Oddur. LÖGREGLAN stöðvaði um há- degisbilið í gær útskipun á fol- öldum um borð í þýzkt flutninga- skip, sem flytja á um 100 folöld og fullorðna hesta til Hamborg- ar. Síðdegis í gær, er stjórnarráð- ið og yfirdýralæknir höfðu geng- ið í málið, var banninu aflétt. — Aftur á móti hefur Dýraverndun- arfélagíð kært þetta til sakadóm- ara, þar eð í lögum stendur, að flutningur á hestum milli landa yfir vetrarmánuðina sé óheimill. Undanfarið hefur folöldum þessum verið smalað saman suð- ur í Fífuhvammi, og er einn helzti maðurinn í „fyrirtæki" þessu hrossabóndinn Stefán Jóns- son á Kirkjubæ. 35—40 folöld komin í lestina Þegar lögreglan bannaði útskip un folaldanna í gærmorgun, voru þar komin í lestina milli 35 og 40. Voru kunnáttumenn brátt kvaddir á vettvang. Höfuð sjón- armiðin voru þau, að undanþága hafði verið veitt fyrir þessum flutningum með Reykjafossi eða álíka stóru skipi. Hið þýzka skip, sem heitir Forma Rass, er aftur á móti miklum mun minna. Loks var aðbúnaðurinn í lestinni ekki talinn nógu góður og traustur. Bent var og á, að skipið væri létt mjög, því að ekki ætti að taka hér aðra hleðslu. Því var þá svarað á þá leið, að botngeymar skips- ins myndu verða fylltir, en þeir taka um 300 tonn. Skipið er 999 tonn. Yfirdýralæknir kvaddur á vettvang Yfirdýralæknir var kvaddur á vettvang og fleiri menn, og voru m. a. gerðar kröfur til þess, að betur yrði búið um hestana í lest skipsins. Þá var einnig ákveð Gamalmennaskemmfun á Akranesi AKRANESI, 6. jan. — S. 1. sunnudag gekkst kvenfélagið fyr- ir gamalmennaskemmtun á Hótel Akranesi. Séra Jón M. Guðjónsson og Þórunn Bjarna- dóttir lásu upp, sýndar voru lit- myndir, börn sýndu listdans undir stjórn Soffíu Stefánsdótt- ur, karlakórinn Svanir söng og fjöldasöngur var undir stjórn Sigríðar Sigurðardóttur. Veiting- ar voru fram bornar og loks léku Eðvarð Friðjónsson og Ásmund- ur Guðmundsson fyrir dansi. Skemmtunin tókst mjög vel. —Oddur. Álfadans í Þorfinnshólum AKRANESI, 7. jan. — Álfadans og brenna var haldin á þrettánda kvöld við félagsheimilið í Þor- finnshólum í Innri-Akranes- hreppi. Fjöldi fólks streymdi að til þess að njóta þessarar þjóð- legu skemmtunar. Á annað hundrað bílar voru komnir á stað inn og sumir stórir. Seinustu 40 bílarnir af Akranesi mjökuðust hægt síðasta áfangann og mynd- uðu tindrandi ljósrók úti á veg- inum. Á eftir bilaþvögunni komu ung hjón ríðandi á hvítum hest- um, en Ijósaskraut í Þorfinns- hólum heilsaði gestum. Kl. 9,40 kveikti brennustjórinn, Játmundur Árnason, í kestinum, sem stóð á miðri umgirtri grund. Fimm mínútum síðar þutu flug- eldar upp í loftið. Öllum varð litið til „hólanna“, sem opnuð- ust, og út gengu 40 prúðbúnir álfar. Stafalogn var á, svo að neistaflugið frá brennunni þyrl- aðist beint í loft upp. Tunglið sást á gægjum bak við skýja- þykknið og rofaði aðeins fyrir stöku stjörnu. Álfarnir gengu syngjandi í kringum bálið, með- ið að senda með skipinu ungan mann, sem er að nema dýralækn- ingar ytra. Sjónarmið Dýraverndunarfél. í máli þessu, er það kærði fyrir sakadómara, munu hafa verið all mörg, m. a. það að óhæfa sé að smala hrossum í stórum stíl um alllangan veg á þessum tíma árs. Sé þetta slæm meðferð og hafi jafnvel sumt af folöldunum í lest um skipsins borið þess merki, að þau væru langsoltin, enda hafi sum virzt kviðdregin. Á J dag mun verða haldið áfram að skipa hestunum um borð í þýzka skipið, sem láta mun úr höfn síðdegis, — ef ekki verða þá frekari tafir á. Jón J. Maron látinn BÍLDUDAL, 7. jan. — Þann 2. janúar lézt hér á 75. aldursári Jón J. Maron, mætur borgari Bíldudals, sem mikið hefur kom- ið við sögu staðarins. Lengi var hann verkstjóri hér. Hann starf- aði mikið að sveitarstjórnarmál- um og var mætur maður. —Fréttaritari. Tveir báiar róa frá Bíldudal BÍLDUDAL, 7. jan. — Tveir bát- ar munu stunda línuveiðar héð- an í vetur. Eru það mótorbátur- inn Sigurður Stefánsson en skip- stjóri á honum er Friðrik Ólafs- son og mótorbáturinn Geysir, en skipstjóri á honum er Ársæll Egilsson. Báðir eru um 40 rúm- lesta bátar. í dag eru þeir að koma úr fjórða róðrinum á þessu ári. Afli þeirra hefur verið frem- ur tregur, þetta 3—4 tonn á bát í róðri. Rækjuveiðina hafa tveir smá- bátar stundað í vetur. Hefur hún verið sæmileg og gefið konum og unglingum góða vinnu við að plokka skelina af rækjunni. Þriðji rækj ubáturinn hefur ný- lega bætzt í hópinn. Milli þess sem rækjan er soðin niður hef- ur verksmiðjan soðið niður græn ar baunir. —Fréttaritari. an logaði á blysum þeirra, en hurfu svo aftur inn í „hólana“. Lögreglan af Akranesi var hálfa aðra klukkustund að greiða úr bílaflækjunni og margir bíl- ar runnu út af veginum. Enginn valt þó um. Bændafélagið gekkst fyrir álfadansinum og á eftir var dansað í samkomuhúsinu. —Oddur. Söngskemmlun á Sauðárkróki SAUÐÁRKRÓKI, 7. jan. — Karla kórinn Heimir í Skagafirði hélt söngskemmtun ó Sauðárkróki á þrettándanum. Fjölmenni var og söng kórsins vel tekið. Á söngskrá voru lög eftir erlenda og innlenda höfunda, þar á meðal nokkur eftir söngstjórann Jón Björnsson, Hafsteinsstöðuni. _ Varð kórinn að endurtaka mörg lög og einnig syngja aukalög. Að söngskemmtuninni lokinni var dans stiginn fram eftir nóttu. —Jón. U tankjörstaðakosning ÞEIR, sem ekki verða heima á kjördegi geta kosið hjá sýslu- mönnum, bæjarfógetum og hreppstjórum og í Reykjavík hjá borgarfógeta. Erlendis er hægt að kjósa hjá íslenzkum sendiráðum og ræðismönnum, sem tala íslenzku. Kosningaskrifstofa borgarfógetans í Reykjavík er í póst- húsinu, gengið inn frá Austurstræti. Skrifstofan er opin írá kl. 10—12 f. h., 2—6 og 8—10 e. h. daglega. Kosningaskrifstofa Sjálfstæðisflokksins, Vonarstræti 4, veitir allar upplýsingar og aðstoð í sambandi við utankjör- fundaratkvæðagreiðslu. Skrifstofan er opin frá kl. 10—10 daglega. Símar: 1 71 00 og 2 47 53. Upplýsingar um kjörskra í síma 1 22 48.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.