Morgunblaðið - 08.01.1958, Blaðsíða 11
Miðvik'udagur 8. Jan. 1958
MORGUNBLAÐIÐ
11
Bréf fra stúdent við Lomonossov-háskólann í Moskvu
Eignarréttur vinnandi stétta á fram-
leiðslutækjunum aðeins á pappírnum
Þetta var niburstaðan á umræðufundi stúdenta
og ungra rithöfunda i Moskvu, fyar sem ræddir
voru viðburðirnir i Ungverjalandi og ofskipu-
lagningin heima fyrir í Sovétrikjunum
Á TÍMUM czarsins voru það
rússneskir menntamenn, sem
áttu hvað mestan þátt í að gera
byltingaráformin. Margt bendir
til þess, að stúdentar við rúss-
neska háskóla séu enn á ný orðn-
ir stjórnarvöldunum óþægur
ljár í þúfu.
o—★—o
Hér á eftir fer bréf frá stúdent
við Lomonossov-háskólann í
Moskvu. Var það fyrst birt í
austurríska menningartímaritinu
Forum, síðan í Encounter, og
norska tímaritið Farmand birti
bréfið fyrir nokkru. Öll þessi
tímarit njóta mikils álits, og
telja ritstjórar þeirra heimildar-
gildi bréfsins óvefengjanlegt.
Bréfið er stytt í þýðingunni.
30. nóvember 1956 —
minnisstæður dagur
„30. nóv. 1956 var rússnesk-
um stúdentum minnisstæður dag-
ur — margir telja, að það hafi
verið sögulegur dagur.
Eftir að prófessor Syrojetsj
kovitsj hafði af mikilli skyldu-
rækni lesið útdrátt úr verkum
Marx og Lenins, hófust venju-
legar umræður. í umræðunum
lagði stúdent nokkur fram spurn-
ingu, sem getur orðið örlagarík
fyrir okkar marxiska skipulag,
Fyrst vitnaði hann í þá kenn-
ingu Lenins, að allsherjarverk-
fall sé vopn öreiganna og að
allsherjarverkfall geti við ákveðn
ar sögulegar aðstæður breytzt í
stjórnmálalegar aðgerðir og að
síðustu endað í stjórnmálalegri
uppreisn.
o—★—o
Er stúdentinn hafði vitnað
þessar kenningar Lenins og bætt
því við, að allsherjarverkfall
geti aldrei verið vopn í hönd-
um yfirstéttanna, spurði hann,
hvernig mögulegt væri, að alls-
herjarverkfall hefði verið gert í
landi, sem byggi við sósíaliskt
stjórnarfar — sem sé í Ungverja-
landi — þar sem vissulega væri
ekki hægt að gera allsherjar-
verkfall í landi, sem býr við
kommúniska stjórn verkamanna
og bænda.
Prófessorinn vitnaði aðeins
í dagblöðin
í svari sínu gat prófessorinn
aðeins vitnað í dagblöðin. Það
þótti samt ekki nægilegt í aka-
demiskum umræðum. Hann tók
að spjalla um þau hryðjuverk,
sem liðsforingjar Horthystjórn-
arinnar hefðu gert sig seka um,
og tilraunir Vesturlanda til að
stofna til óeirða, en orð hans
drukltnuðu í mótmælum frá
stúdentunum. Þeir jusu yfir
prófessorinn tilvitnunum úr
verkum Lenins, og sýndu hon-
um þannig fram á, að hann hefði
ekki svarað spurningunni, sem
þeir höfðu lagt fyrir hann. Að
lokum vitnuðu þeir í hina sí-
gildu skilgreiningu Lenins á
hlutverki þess flokks, sem ber
skylda til að fallast á kröfur
verkamanna í allsherjarverkfalli
og beina verkamönnum á hina
réttu leið. Þegar hér var komið
urðu umræðurnar svo róstusam-
ar, að prófessorinn kaus að draga
sig í hlé.
En fréttin barst þegar tíl
stúdentabústaðanna bak við há-
skólann, og umræðurnar héldu
áfram langt fram á nótt. Ung-
verskir stúdentar, sem voru í
heimsókn, voru vaktir upp, rekn-
ir fram úr rúmunum og spurðir
spjörunum úr um allar aðstæð-
ur í heimalandi þeirra. Ungverj-
arnir reyndu að komast hjá að
svara spurningum um viðkvæm
mál, en þær upplýsingar, sem
fengust, gáfu ágætt tilefni til
samanburðar við samsvarandi að-
stæður í Sovétríkjunum,
Embættismannalið flokksins —
sérhagsmunastétt
Brátt snerust umræðurnar um
það vandamál, sem hefur mesta
þýðingu í þjóðfélagi, þar sem
„sósíalisminn hefur verið gerður
að raunveruleika".
„Hefur ekki embættismanna-
lið flokksins — þó að það hafi
ekki formlega eignarrétt á fram-
leiðslutækjum þjóðfélagsins —
orðið að sérhagsmunaflokki —
í þeirri merkingu, sem Marx
upphaflega notaði það orð —
þar sem það stjórnar beinlínis
framleiðslunni með því að
ákveða, hvernig nota á fram-
leiðslutækin, og hefur yfirum-
sjón með vinnukrafti og laun-
vandamálið í ljósi kenninga
Marx og Lenins“ væri eina mál-
ið á dagskrá. Var því ekki hægt
að takmarka málfrelsi þátttak-
enda.
o—★—o
Fyrsti ræðumaðurinn sneri sér
þó strax að höfuðvandamálinu,
sem krefðist úrlausnar
Sovétríkjunum sjálfum, „skrif-
stofubákninu" og ofskipu
lagningu stjórnarinnar", sem
hefði breikkað svo bilið milli
þjóðarinnar og yfirvaldanna, að
foringjarnir yrðu nú að beita
sömu aðferðum og Bería til að
halda völdum.
Hann skírskotaði til Ungverja-
lands, en samlíkingin við Sovét-
ríkin var svo náin, að ræðumað-
ur komst ekki hjá að minnast á
20. flokksþingið og „hvort vorir
verkamenn munu ekki einnig á
um á flokkinn og reyndi að taka
orðið af ræðumanni, en fundar-
menn gerðu þá hark og háreysti.
Linkov varð að yfirgefa salinn
með fylgifiskum sínum, og um-
ræðunum var haldið áfram. Hóp-
ur stúdenta og ungir rithöfund-
ar tóku upp þráðinn að nýju um
kvöldið í svokölluðu „Bókmennta
húsi“. Viðburðirnir í Ungverja
landi voru á dagskrá, en um-
ræðurnar beindust eins og áður
að vandamálum innan Sovét
ríkjanna, einkum stéttaskipting-
unni. Og niðurstaðan varð sú, að
eignarréttur vinnandi stétta
framleiðslutækjunum væri að-
eins til á pappírnum. Flokks-
stjórnin hefði tekið þungaiðnað-
inn fram yfir allt annað, og hefði
það orðið til þess að stuðla að
því að lögfesta stéttaskiptinguna.
Sovézkar bókmenntir — fram-
leiddar í áróðursvél
Óhjákvæmilega tóku ungir rit-
höfundar að ræða um frelsi á
sviði bókmennta og lista. For-
dæmdu þeir sovézkar bókmennt-
ir undanfarinna áratuga, og
kváðu þær vera framleiddar
áróðursvél, sem stjórnað hefði
verið af þeim, sem aðhylltust
persónudýrkun.
o—★—o
Næsta dag var boðað til fund
ar af bæjarráði Komsomol
Moskvu til að ræða atburðina
við Lomonossovháskólann. Var
þar samþykkt að skora á rektor
Krúsjeff flytur þriggja klukkustunda ræðu um afbrot Stalins á 20. flokksþinginu um miðjan
febrúar 195G. Á fundi stúdentanna minntist einn ræðumanna á 20. flokksþingið og varpaði fram
1 eirri spurning'u, „hvort vorir verkamenn munu ekki einnig á sínum tíma gera uppreisn undir
merki Lenins gegn skriffinnunum, sem arðræna þá“.
um? Og er því ekki leyfilegt eða
allt að því nauðsynlegt að grípa
til gömlu klassísku stéttarbar-
áttuvopnanna — t. d. allsherj-
arverkfalls — einnig gegn em-
bættismannaliðinu? “
Þegar hér var komið, lauk
umræðunum án þess að menn
yrðu sammála um svarið.
Krafizt sannra frásagna um
atburðina í Ungverjalandi
Daginn eftir var handskrifuð
tilkynning fest á auglýsingatöfl-
una í Lomonossov-háskólanum,
og þar var þeim tilmælum beint
til Komsomol, að sönn frásögn
um atburðina í Ungverjalandi
yrði birt og opinberar umræður
hal,dnar um málið. Tilkynningin
hafði verið tekin niður, þegar
fyrirlestrar hófust, en fregnin
barst frá manni til manns.
Um hádegisverðarleytið hafði
Komsomol-nefndin sett upp nýja
tilkynningu, þar sem boðað vár
til fundar til að ræða það
„skammarlega atvik“, sem hafði
átt sér stað daginn áður. Strikað
var yfir orðið „skammarlegur",
en auglýsingin hékk óhreyfð
töflunni.
Akademisk „frávik“
Linkov, ritari Komsomol,
stýrði fundinum og hóf mál sitt
með athugasemd, sem hlaut að
æsa áheyrendur gegn honum.
Lýsti hann yfir því, að það væri
skylda Komsomol að koma í veg
fyrir, að sams konar akademisk
„frávik" ættu sér stað aftur.
Menn brugðu skjótt við og gerðu
samþykkt um, að „ungverska
sínum tíma gera uppreisn undir
merki Lenins gegn skriffinnun-
um, sem arðræna þá“.
Eignarréttur vinnandi stétta
aðeins til á pappírnum
Linkov mótmælti þessum árás-
skólans að" vísa vissum fjölda
stúdenta úr skóla, og ritarar
Komsomol við háskólann fengu
alvarlega áminningu fyrir „van-
rækslu í því að halda uppi
traustu sambandi við stúdentana
og í hugsjónalegri uppfræðslu".
140 stúdentum vísað úr skóla
Þann 3. des. vísaði rektor alls
140 stúdentum úr skóla fyrir
óspektir og tilkynnti jafnframt,
að fyrirlestrar í marxisma og
leninisma féllu niður þar til eft-
ir nýjár. Þetta var í fyrsta sinni,
sem rektor háskólans í Moskvu
neyddist til að stöðva fyrirlestra-
hald, af því að kennararnir gátu
ekki haft stjórn á umræðunum,
sem spunnust af fyrirlestrunum.
Stjórn Komsomols taldi, að nú
myndi storminn lægja, en stúd-
entar töldu sig hafa borið nokk-
urn sigur úr býtum, og umræð-
um var haldið áfram í klúbbum
og stúdentabústöðum.
o—★—o
Og stúdentar annars staðar
tóku að stofna til sams konar
umræðufunda. Um miðjan des.
var viðurkennt, að áþekkir at-
burðir höfðu átt sér stað við
Leningrad-háskólann. í sam-
ræmi við gamlar uppreisnarerfð-
ir í Leningrad, gengu stúdent-
arnir þar rmklu lengra en við
höfðum gert. Þeir gáfu út tima-
rit, sem hvorki var undir stjórn
rektors né Komsomol. Útgefend-
urnir voru látnir óáreittir, þó að
Komsomol réðist að vísu gegn
þeim. Tímaritið vakti mikla at-
hygli í Moskvu.
Stúdentum frá Eystrasaltslönd-
unum bannað nám við
Lomonossov
M. a. gripu yfirvöldin til þeirr-
ar varúðarráðstöfunar að banna
stúdentum frá Eystrasaltslönd-
unum að halda áfram námi við
Lomonossov-háskólann í Moskvu,
þar sem umræðubylgjan meðal
stúdentanna hefði nú borizt til
Eystrasaltslandanna, og umræð-
urnar snerust nær eingöngu „um
ýmsar leiðir til sósíalisma", og
því leiddu þær til þjóðernislegra,
andrússneskra og borgaralegra
hugmynda“.
Við vitum, að í Kiev, Kharkov,
Novosibrisk og jafnvel í Mið-
Asíu fóru fram fjörugar umræð-
ur við ýmsa háskóla um sama
efni.
Stúdentarnir stóðu ekki einir
Sú afstaða, sem Komsomol tók
til þessara atburða, og þær var-
úðarráðstafanir, sem gerðar voru
með skjótum hætti, veittu
stúdentunum þá öryggistilfinn-
ingu, að þeir stæðu ekki einir
heldur hefði öll rússnesk æska
hrifizt með umræðubylgjunni.
o—★—o
Þetta er vafalaust einhver at-
hyglisverðasta pólitíska hreyfing
in, sem látið hefur á sér bæra
eftir dauða Stalins“.
(Undirskrift bréfritarans
er sleppt).
Tíu ára afmœli ísraels
A ÞESSU ári minnast ísraels-
menn 10 ára afmælis hins end-
urreista ríkis ísraels. Hátíðahöld
af þessu tilefni munu ekki verða
bundin við neinn sérstakan dag
ársins, heldur verður allt árið
1958 helgað þessum viðburði.
Búizt er við því, að um 100 þús-
und manns hvaðanæva úr heim-
inum muni ferðast til ísraels af
þessu tilefni. Verða hátíðahöld
þessí undirbúin af allri þjóðinni.
hverju þorpi, hverri borg og
hverjum einstökum íbúa ísraels-
ríkis.
í sambandi við hátíðahöld
þessi munu margir af frægustu
listamönnum heimsins koma
fram á hljómleikum, er haldnir
verða í hinni nýju hljómleika-
höll í Tel-Aviv, er talin er eitt
af fegurstu og fullkomnustu
hljómleikahúsum veraldarinnar
og rúmar 2,700 manns í sæti.
Ennfremur rerða haldnar sýn-
ingar frægra ballett-flokka og
annarra listamanna. Þá hefur
verið ákveðið, að minnzt verði
heimsóknar hvers einstaklings,
er til ísraels kemur í tilefni
þessa viðburðar, með bví að
leggja stein í „mosaik“-gólf á
Herzl-fjallinu fyrir hvern ferða-
mann, er til ísraels kemur.
Segja má, að ekki sé ríkt til-
efni til þess að gera mikið úr 10
ára fullveldisafmæli einnar þjóð-
ar. í sambandi við þessi hátíða-
höld má þó benda á, að hér er
í raun réttri ekki aðeins haldið
upp á 10 ára fullveldis-afmæli
Ísraelsríkis, heldur er og jafn-
framt minnzt endurreisnar þjóð-
ríkis, sem ýmist má telja 3000
ára, ef miðað er við Davíð kon-
ung, eða 4000 ára, ef miðað er
við daga Abrahams. í öðru lagi
hafa svo stórstígar framfarir átt
sér stað í ísraei á þessum 10 ár-
um, að erfitt mun að finna nokk-
urn samjöfnuð meðal annarra
þjóða. Má t. d. geta þess að á
þessum 10 árum hefur íbúafjö’di
landsins þrefaldazt á sama tima,
sem þjóðin hefur náð ótrúlegum
árangri á sviði vísinda, iðnaðar,
siglinga, landbúnaðar og lista.
Þá má og geta þess, að á þessu
tímabili hafa verið gróðursettar
35 milljónir trjáplantna til þess
að klæða landið nytjaskógi. Alls
þess árangurs, er náðst hefur á
þessum sviðum mun m. a. verða
minnzt með mikilli sýningu, er
haldin verður í Jerúsalem í júni-
mánuði 1958.
Það, sem er eftirtektarvert við
þessa sýningu, sem sýna á sögu
ísraels frá upphafi, ræktun
Negev-eyðimerkurinnar, fram-
kvæmdir og framfarir á vísinda-
sviðinu, svo og heimkomu þeirra
Gyðinga, er í útlegð hafa verið
í gegnum aldirnar — er einkum
það, að sýning þessi er, ef svc
má segja — lifandi sýning, er
sýnir vísindamenn að störfura
við ákveðin verkefni í rannsókn-
arstofum, er sérstaklega hafa vei
ið byggðar af þessu tilefni.
Á ýmsum öðrum stöðum í lanc
ínu hafa og verið undirbúir
margs konar hátíðahöld og sýn-
ingar af ýmsu tagi, svo sem
stærstu borg landsins, Tel-Avi\
og í Haifa, en þar verður mikil
blómasýning í sambandi við upp
skeruhátíð ávaxtaræktunarinnar
Þá verður seint á árinu haldii
mikil hljómlistarhátíð í hinn
fornu rómversku borg, Tiberiai
við Galíleuvatnið.
Vegna þess mikla fjölda ferða
manna, er ferðast mun ti
landsins helga á þessu ári hafi
verið byggð mörg ný gistihús oj
gestaheimili af ýmsu tagi ekk
einungis í öllum helztu borgun
landsins, heldur og úti um lands
byggðina, en þó einkum á þein
stöðum, þar sem helztu hátíða
höldin fara fram.
(Frá ræðismannsskrifstofu
ísraels í Reykjavík).