Morgunblaðið - 08.01.1958, Blaðsíða 6
6
MORCVNfíLAÐIÐ
Miðvik'udagur 8. jan. 1958
HIN SUNDRAOA
EVRÓPA
Mælikvarði '1'195S
£YRf*A
Gerbylting í landafræðí Evrópu
UM áramótin kom fjöldi hinna
frægustu landfræðinga saman til
fundar á skarfaklettinum Rockall
í miðju Atlantshafi. Voru þetta
fádæma miklir spekingar, með
gleraugu og menntaskalla.
Það vakti eftirtekt á ráðstefnu
xþessari, að nýjar landmælingar
í Evrópu þóttu sanna, að álfa
þessi hefur verið teiknuð furðu
rangt á landabréf fram til þessa.
Nýjustu rannsóknir leiða í Ijós,
að landaskipun er allt önnur, en
menn héldu. Var samþykkt á
Roskall ráðstefnunni að leiðrétta
hið bráðasta hinar röngu hug-
myndir manna um landaskipun
Evrópu.
Samkvæmt kenningum nútíma
landfræðinga fæst t.d. mjög at-
hyglisverð skýring á því, hvers
vegna svo illa gengur að sam-
eina Evrópu í ein bandaríki. Það
stafar af því að menn hafa haft
þær röngu hugmyndir af vitlaus
um landabréfum yfir álfuna, að
Evrópa sé að mestu eitt samfellt
meginland. En nú er það komið
í ljós að svo er ekki. Nýjustu
rannsóknir sýna, að Norðurálfa
er öll sundurskipt af höfum og
sundum, sem gera samgöngur
örðugar.
Við skulum nú líta á hinn nýja
samþykkta uppdrátt af Evropu,
sem birtist hér fyrir ofan, og
gera okkur grein fyrir nauðsyn-
legustu leiðréttingum landabréfs
ins.
Austur-Evrópa
f gamlá daga gengu menn með
þá grillu, að Pólland væri næsti
nágranni Rússlands. Nú þekkja
menn þá staðreynd að þar er
sund á milli, hið svonefnda Tító-
isma-sund.
Næsta nágrannaiand Rúss-
lands og óaðskiljanlegt eins og
allir vita er Austur Þýzkaland, en
þar hafa Rússar hálfa milljón
hermanna og 5000 skriðdreka til
að vernda 17 milljónir íbúa. Al-
banía er tengd Rússlandi álíka
vinsamlegum böndum. Áður var
Albanía mjög einangruð, en nú
• þykir vissara að staðsetja hana,
þar sem Tito nær ekki í hana.
Þá er það einnig heppilegt, hve
Rúmenía er nálægt hinu rúss-
neska móðurríki. Sú uppgötvun
nútíma landfræðinga sparaði
Rússum mikið af olíuleiðslum. en
sem kunnugt er fer öll rúmenska
olían til Rússlands. Hefur þessi
uppgötvun hraðað frarpkvæmd
fimm ára áætlunarinnar rúss-
nesku.
Ungverjaland ætti að staðsetj-
ast austur í Úral-fjöllum vegna
hinnar frábæru fangabúðastefnu
Kadars. En með því að ungverska
þjóðin er haldin hættulegri far-
sótt svonefndri „frelsisveiki“
sem kynni að breiðast út um
Rússland hafa valdhafarnir kosið
að staðsetja þetta vandræðaland
sem fjærst hjarta Rússlands. Er
það notað sem eins konar brim-
brjótur.
Eyjar Mið-Evrópu
Þá kemur næst að lýsa Titó-
isma-sundinu. Jarðfræðilega er
þetta heljarmikil jarðsprunga,
sem tók að myndast við land-
skjálfta á Balkanskaga sumarið
1947. En 10 árum seinna urðu enn
skæðari landskjálftakippir norð-
ar í álfunni og greindist Pól-
land þá frá Sovétríkjunum. er
sprungan brast norður eftir. Tító
isma-sundið er hyldjúpt, en ekki
breiðara en svo, að við og við
hafa veikar timburbrýr verið
byggðar yfir það. Hluti af þessu
eyríki eru hið hlutlausa Austur-
ríki. Var það heppilegt til þess að
ungversku flóttamennirmr sem
áður höfðu flúið til Júgóslavíu
gætu flúið til Austurríkis. Einnig
er gott samband milli Júgóslavíu
og Grikklands.
í 'Suðurhafi eru ýmsar eyjar
svo sem San Marino, er hefur
slitið öllu stjórnmálasambandi
við Ítalíu og Suður-Tyrol, sem
áður var þrætuepli milli Ítalíu
og Austurríkis en hefur nú öð-
lazt frið úti á hafi.
Milli Póllands og hinnar gömiu
Mið-Evrópu er nú hið illviðra-
sama Rauðahaf. í því miðju ligg-
ur lítil eyja, er nefnist Vestur
Berlín. Vegna boðafalla hafsins
er eina trygga samgönguleiðin
til hennar eftir svonefndri Boft-
brú.
Ferðamenn ráða
Vegna sívaxandi straums
þýzkra ferðamanna til Ítalíu hef-
ur þótt hentugt að tengja þessi
lönd betur saman í anda hins
forna þýzk-rómverska keisararík
is. Danmörk hefur einnig beygt
sig fyrir vilja ferðamannanna og
skýrt höfuðborg sína Tivoli.
Svissland er hins vegar á öðru
„plani“ en öll nágrannaríkin.
Gömlu Benelux-ríkin hafa sam
einazt Þýzkalandi, en viðhalda
þó sterkum þjóðlegum einkenn-
um. í staðinn fyrir að höfuð-
borgirnar voru áður þrjár Bruss
el, Haag og Luxemburg hefur nú
verið stofnuð sameiginleg höfuð-
borg þeirra er nefnist Bruha-
burg.
Nýlenda Alsír
í Frakklandi liggur borgin
Fontainbleau. Þar eru bækistöðv
ar NATO. Að öðru leyti hefur
Frakkland lítið samband við
Evrópuríkin. Fyrir sunnan Frakk
land liggur hið glóandi heita
Alsír-land, en Frakkland er ný-
lenda Alsír. Síðustu ár hafa
Frakkar gert ítrekaðar tilraunir
til að losna undan áhrifum Alsír,
en þetta suðræna ríki hefir merg
sogið efnahagslíf þessarar norð-
lægu nýlendu sinnar.
Skammt fyrir vestan Alsír er
Marokko, sem heimtar að fá yfir-
ráð yfir spönsku borginni Ifni. En
stjórn Francos svarar því til, að
Ifni sé spanskt land og sýnir
landabréfið það, Franco krefst
þess hins vegar að fá brezka svæð
ið Gibraltar, en Bretar svara því
að Gibraltar sé brezkt land og
sýnir landabréfið það einnig eftir
að fræðimönnum varð það ljós-t,
að Spánn .hafði snúizt við. Það
var mjög heppilegt, að Gibraltar
reyndist svo nálægt Bretlandi,
vegna þess að í sparnaðartilgangi
eru Bretar að leggja niður ailar
herbækistöðvar sínar sem þeir
ekki geta eygt með kíki af Ermar
sundsströnd.
Eyjar Vestur-Evrópu
Vatikanið er eins og menn sjá
á miðjum Spáni, enda styðst
Franco við vald kaþólsku
kirkjunnar. Portugal myndar
bandarískan brúarsporð til Spán
ar, en Andorra hefur lýst sig óháð
Spáni og Frakklandi.
Svo komum við aftur norður á
bóginn. Norður-frland er að sjálf
sögðu tengt fast við Bretland en
þar sem írska lýðveldið heldur
fast við að það tilheyri líka ír-
landi hefur það orðið úr að höfuð
borg írlands er skírð nafni höfuð
borgar Norður-írlands. Það var
eina lausnin á deilunni.
Finnland er brú til hinnar hlut
lausu Svíþjóðar, en Noreg að-
skilur frá Svíþjóð hinn langi og
djúpi Osló-fjörður.
Þá er eiginlega aðeins eftir að
athuga hnattstöðu íslands. Það
unir sér vel í hinum hlýja golt-
straumi frá Gettysburg og snýst
í hringiðu hans. 'Stundum snýst
það í hringiðunni nálægt NATO-
löndunum, en alveg eins getur
verið að það berist með kaldari
straumum austur fyrir Spitz-
bergen.
+ KVIKMYNDIR +
„Tarmhvöss
tengdamamma"
i T jarnarbiói
ÞAÐ er óþarft að kynna efni
þessarar ensku gamanmyndar,
því að leikritið „Tannhvöss
tengdamamrna", sem myndin er
gerð eftir hefur nú Verið sýnt í
Iðnó á vegum Leikfélags Reykja-
víkur, hvorki meira né minna en
88 sinnum og er ekki „útgengið“
enn ef dæma má eftir aðsókninni.
— Myndin þræðir leikritið mjög
nákvæmlega, en er fyllri og fjöl-
breyttari sem svarar því er kvik-
myndirnar gefa meira svigrúm
en hið takmarkaða leiksvið. —
Efast ég ekki um að margir muni
vilja sjá þessa mynd, sem er
bráðskemmtileg og ágætlega leik-
in, — en þau Peggi Mount og
Cyril Smith leika hjónin Emmu
og Henry Hornett af mikilli
snilld. — Er skemmtilegt og fróð-
legt að bera saman leikinn í
kvikmyndinni og á sviðinu í
Iðnó og niðurstaðan er tvímæla-
laust sú að okkar ágætu leikar-
ar standast vel þann samanburð,
einkum þó þau Hornett-hjónin
Emilia Jónasdóttir og Brynjólf-
ur Jóhannesson. Hið sama má og
segja um Nínu Sveinsdóttur í
hlutverki Edie Hornett og Þóra
Friðsiksdóttir er glæsilegri
Shirley en sú, sem fer með það
hlutverk í myndinni. Eitt veiga-
mikið atriði hefur myndin þó
vissulega fram yfir leiksýning-
una hér, en það er hið kostulega
og óvandaða enska mál, sem tal-
að er. í myndinni en af eðlileg-
um ástæðum er ekki hægt að ná
í þýðingu. Setur þetta málfar
sinn sérstæða og skemmtilega
svip á myndina.
Ego.
Minning
Guðjón Kristinn Jónsson
Fæddur 2. júní 1888,
Dáinn 26. des. 1957.
Ungur varstu, frár og fjarska
sterkur
flinkur þrátt í hverri
mannskapsraun.
Við reiðan sjóinn, eld og
eyðimerkur
áttir glímu og fékkst þín
hetjulaun.
Öruggur í elfu og sterkum
straumi
stóðstu oft og kátur fleygðir
ör.
Vissir þó að veraldar í flaumi
er vænzt að brúka gætni
í hverri för.
Þig kveðja vinir, óska að gæfa
og gengi
gleðji þig og fegri þína braut
Góðvild sanna margir muna
lengi,
mildur drengur eyddi sorg
og þraut.
Vinur.
Róðrar að hefjasi
HAFNARFIRÐI — Nú hafa tek-
izt samningar milli sjómanna og
útgerðarmanna um kaup og kjör
sjómanna á vertíðinni. Verða
gerðir út um 20 bátar hér í vet-
ur, og eru nokkrir þeirra byrj-
aðir á línu, en þeir verða með
færra móti, sem þá veiði
stunda. Nokkrir bátanna munu
núna næstu daga fara á veiðar
með ýsunet, og svo síðar með
þorskanet.
Röðull er nú á leiðinni á er-
lendan markað með ísfisk, en
hinir togararnir eru á veiðum.
Júní hefir legið hérna nokkra
daga og ekki komizt á veiðar
sökum manneklu. —G. E.
OSLÓ, 6. jan. — f gær lézt
norskur hermaður í gæzluliði
S. Þ. i Gaza, er eldingu sló niður
í varðskýli hans. Annar Norð-
maður brenndist mikið. —Reuter
shrifar úr
daglega lífínu
Enn um dómkórinn
FYRIR jól urðu nokkur orða-
skipti í dálkum Velvakanda
um orðið dómkór og önnur orð,
þar sem forskeytið dóm- er not-
að í staðinn fyrir dómkirkju. —
Fleiri bréf hafa borizt um þetta
mál, en Velvakandi treystir sér
ekki til að birta þau og ætlar
því hér með að slíta umræðunum
um forskeyti þetta. Til þess liggja
tvær ástæður: Hann fær ekki séð,
að nein ný atriði, sem verulegu
máli skipta, hafi komið fram
til viðbótar því, sem áður hefur
verið sagt. Og svo eru bréfin,
sem borizt hafa, orðin svo per-
sónuleg, að þau eiga hér ekki
heima.
Beðið í kvikmynda-
húsum
MÆTUR borgari hér í bænum
ræddi við Velvakanda í fyrra
dag og sagði honum frá þremur
bíóferðum sínum milli jóla og
nýjárs. Hann sagðist hafa komið
í kvikmyndahúsin nokkrum mín-
útum fyrir kl. 9 og tekið sér sæti
eins og lög gera ráð fyrir. Menn
voru að tínast inn fram yfir kl.
9 eins og allt of oft vill verða, en
að þessu sinni varð það ekki til
að trufla stundvísari gesti eða
glepja þá við skoðun myndanna,
því að sýningarnar hófust ekki
fyrr en nokkru eftir hinn aug-
lýsta tíma. í tveimur kvikmynda
húsanna ekki fyrr en 15 mínútur
yfir 9. Þetta háttalag bíóstjóranna
eða sýningarmannanna finnst
borgaranum a'ð vonum hvimleitt.
Auðvitað eiga sýningar að hefj-
ast á hinum auglýsta tíma.
Kuldinn í Þjóð-
leikhúsinu
UM daginn var birt hér í dálk-
unum bréf, þar sem kvartað
var yfir kuldanum í Þjóðleik-
húsinu. Annar lesandi tekur und
ir þessa umkvörtun og segir m.a.:
„Ég hefi kvefazt þar og fengið
gigt í bak, en lítt þolandi gólf-
kuldi er oft í leikhúsinu .
Skautasvell
á Melavellinum
EINN af lesendum Morgun-
blaðsins hefur talað við Vel-
vakanda um nauðsyn þess að kom
ið sé upp skautasvelli á íþrótta-
vellinum á Melunum. Lesandinn
er margra barna faðir og vill, að
unga fólkið fái tækifæri til að
nota skautana, sem það fékk í
jólagjöf.
Velvakandi hringdi upp á
íþróttavöll og spurðist fyrir um
málið. Honum var sagt| að vegna
veðurfarsins að undanförnu, hefði
ekki verið unnt að fá svell á völl-
inn. í frostunum, sem gerði um
hátíðirnar, var byrjað að dæla
á hann vatni, en þá komu um-
hleypingarnir um síðustu helgi
og eyðilögðu það, sem gert hafði
verið. Þegar misviðri er og snjó-
koma, er erfitt að hafast nokkuð
að til að gera skautahlaupurum
auðveldara að renna sér um vöil-
inn, en hafizt verður handa,
strax og unnt er. Þangað til verða
menn að bregða sér á Skátasvell
ið við Snorrabraut.