Morgunblaðið - 08.01.1958, Qupperneq 4
4
MORGVN BLAÐIÐ
Miðvik'udagur 8. jan. 1958
í dag et* 8. dagur ársins.
Miðvikudugur 8. janúar.
ÁrdegisflæSi kl. 6,55.
Síðdegisflæði kl. 19,22.
Slysavarðstofa Keykjavíkur í
Heilsuverndarstöðinni er opin all-
an sólarhringinn. Læknavörður L
K (fyrir vitjaniri er á sama stað,
frí kl. 18—8. Sími 15030.
Næturvörður er í Ingólfs-apó-
teki, sími 11330. — Lyfjabúðin
Iðunn, Laugavegs-apótek og Rvík-
ur-apótek eru opin til kl. 6. dag-
lega. — Apótek Austurbæjar, —
Gt rðs-apótek, Holts-apótek og
Vesturbæjar-apótek eru öll opin
til kl. 8 daglega. Einnig eru þau
opin á sunnudögum milli kl. 1 og 4
Kópavogs-apótek, Álfhólsvegi 9
er opið daglega kl. 9—20, nema
laugardaga kl. 9—16 og helgidaga
kl. 13—16. Sími 23100.
Hafnarfjarðar-apótek er opið
alla virka daga kk 9 -21. Laugar
daga kl. 9—16 og 19—21. Helgi-
daga kl. 13—16 og 19—21.
Næturlæknir er Ólafur Einars-
son, sími 50275.
Kcflavíkur-apótek er opið alla
virka daga kl. 9—19, laugardaga
frá kl. 9—16 og helga daga frá
kl. 13—16. Næturlæknir er Björn
Sigurðsson.
I.O.O.F. 7 = 139188% ==
□ GIMLI 5958197 — 1. Atk. Fls.
* AFMÆLI *
75 ára er í dag frú Jódís Árna-
dóttir, Þverholti 18. Hún dvelst í
dag á heimili sonar síns Árna Vil-
berg, Rauðalæk 32.
IJ^jBrúðkaup
Á jóladag voru gefin saman í
Landakirkju í Vestmannaeyjum,
af séra Halldóri Kolbeins, ungfrú
Kristín Sigurðardóttir og Runólf-
ur Runólfsson, bakari. — Heimili
þeirra verður að Brekastíg 9,
Vestmannaeyjum.
Á gamlársdag voru gefin sam-
an í hjónaband af séra Jóni Á.
Árnasyni í Grindavík, Fjóla Eiðs-
dóttir og Ingi Ármann Árnason.
Heimili þeirra verður fyrst um
sinn að Sætúni í Grindavík.
Hjönaefni
Nýlega opinberuðu trúlofun
sína ungfrú Monika Magnúsdótt-
ir (Guðbjörnssonar skrifstofu-
manns), Hagamel, 18 og
Peter Dietrich, vélsmiður (frá
Hamborg), Eiríksgötu 2.
Á nýjársdag opinberuðu trúlof-
un sína Kolbrún Lilý Hálfdánar-
dóttir, Hlíðarvangi við Sogaveg
og Óskar Hansen, Eiríksgötu 17.
Nýiega hafa opinberað trúlof-
SFERDIMAND
un sína ungfrú Sigrún Óskarsdótt
ir, Hörpugötu 8 og Sigurður Al-
bert Jónsson, Barónsstíg 55.
Skipin
Eimskipafélag íslands h. f.: —
Dettifoss fór frá Ólafsfirði í gær-
morgun 7. þ.m. til Siglufjarðar,
Hríseyjar, Dalvíkur, Akureyrar,
Húsavíkur og Austf jarðahafna
og þaðan til Hamborgar, Rostock
og Gdynia. Fjallfoss fór frá Ant-
werpen 7. þ.m. til Hull ->.g Rvíkur.
Goðafoss fór frá New York 2. þ.
m. til Reykjavíkur. Gullfoss fór
frá Kaupmannahöfn 7. þ.m. til
Leith, Thorshavn í Færeyjum og
Reykjavíkur. Lagarfoss er í Rvík
Reykjafoss fer væntanlega frá
Hamborg 8. þ.m. til Reykjavíkur.
Tröllafoss fer frá Reykjavik ann-
að kvöld 8. þ. m. til New York.
Tungufoss fer væntanlega frá
Hamborg 8. þ.m. til Reykjavikur.
D"angajökull og Vatnajökull eru
£ Reykjavík.
Skipaútgerð rikisins: — Hekla
er í Reykjavík. Esja er á Aust-
fjörðum á suðurleið. Herðubreið
er á Austfjörðum á suðurleið. —
Herðubreið er á Austfjörðum. —
Skjaldbreið er á Eyjafjarðarhöfn
til Akureyrar. Skaftfellingur fór
frá Reykjavík í gærkveldi til Vest
mannaeyja. —
Skipadeild S.Í.S.: — Hvassafell
fór frá Kiel í gær til Riga. Arnar
fell er væntanlegt í dag til Abo.
Jökulfell fór frá Gdynia 5. þ.m.
áleiðis til Reyðarf jarðar. Dísarfell
er í Gufunesi. Litlafell losar á
Austfjarðarhöfnum. Helgafell fór
5. þ.m. frá Keflavík áleiðis til
New York. Hamrafell fór frá Ba-
tumi 4. þ.m. áleiðis til Rvíkur.
Tmislegt
Sóknarprestar Reykjavíkurpróf-
astsdæmis boða til sín börn, sem
eiga að fermast á þessu ári. Rétt
til fermingar á árinu 1958 haust
eða vor eiga öll börn sem fædd
eru é árinu 1944 eða 1945.
Dómkirkjan: Fermingarbörn
séra Jóns Auðuns komi í Dóm-
kirkjuna fimmtudag 9. jan. kl. 6.
Fermingarbörn séra Óskars J.
Þorlákssonar komi í Dómkirkjuna
föstudag 10. janúar kl. 6.
Fermingarbörn í Bústaðapresta-
kalli (vor og haust). Fermingar-
börn í Bústaðasókn mæti til við-
tals í Háagerðisskóla á morgun,
fimmtudaginn 10. janúar kl. 8,30
e.m. Börn í Kópavogssókn mæti til
viðtals í Kópavogsskóla næstkom-
andi föstudag 11. janúar kl. 5 síð-
degis. — Sóknarpresturinn.
Fermingarbörn séra Sigurjóns
Þ. Árnasonar beðin að koma til
viðtals í Hallgrímskirkju n. k.
föstudag kl. 6,20 síðdegis.
Fermingarbörn séra Jakobs
Jónssonar, eru vinsamlega beðin
að koma til viðtals £ Hallgríms-
ki kju á morgun (fimmtudag) kl.
6,20 síðdegis.
Neskirkja. — Börn, sem eiga
að fermast á þessu ári komi til
viðtals £ Neskirkju 14. jan. kl. 5
síðdegis. — Sóknarprestur.
Háteigsprestakall. — Fermingar
börn í Háteigsprestakalli á þessu
ári (vor og naust), eru beðin að
koma til viðtals i Sjómannaskól-
Lausn jóla-krossgátunnar
MJÖG margar lausnir bárust a®—————————————
jólakrossgátu Morgunblaðsins, á við ungling um 17 ára. Hann
eða alls 566. Hefur þátttakan skrifar á ensku og sænsku.
aldrei verið jafnmikil, enda mun Miss Margaret Hattrick, 16,
krossgátan hafa átt almennum Craigton, Road, Milngavie, Dun
vinsældum að fagna. jBartonshire, Scotland, (skáti),
Dregið var um verðlaunin og vill skrifast á við pilt eða stúlku.
hlutu þau þessir:
1. verðlaun, kr. 300,00: Jón R.
Sigurjónsson, Rauðarárstíg 11,
Reykjavík.
2. verðlaun, kr. 200,00: Gunn-
ar M. Guðmundsson, Túngötu 32
Reykjavík.
3. verðlaun, kr. 100,00: Guð-
' mundur Gislason, Birkiteig 10,
Keflavík.
ann, föstudaginn 10. þ. m. kl. 6,30.
Séra Jón Þorvarðsson.
| Fermingarbörn Árel'usar Níels
’ sonar, fædd 1944 eru beðin að
ikoma til viðtals i Langholtsskðlan
1 um kl. 6 á morgun, fimmtudags-
j kvöld, 9. janúar.
Fermingarbörn í Langarnessókn
; sem fermast eiga í vor eða næsta
haust, eru beðin að koma til við-
tals í Laugarneskirkju (austur-
dyr), föstudaginn n.k. 10. þ.m. kl.
6 e.h. Séra Garðar Svavarsson.
K. F. U. K., Ámtmannsstíg 2B,
heldur jólafagnað fyrir norrænar
stúlkur fimmtudaginn 9. janúar,
kl. 8 síðdegis. Þeir, sem hafa nor-
rænar stúlkur í þjónustu sinni,
eru vinsamlega beðnir að láta þær
vita af þessu.
Taflfébig Reykjavíkur á æftng-
unni í kvöld kl. 8, í Þórskaffi, tefl
ir Guðmundur Pálmason fjöltefli
við allt að 35 félagsmenn.
Pennavinir. — Mr. Erna Che-
ung (16 ára) 36 Morrison Hill
Road, Ground floor, Hong kong,
vill skrifast á viC pilt eða stúlku.
Hún ritar á ensku.
Björn Mekler, Marit Prástgárds
gatan 43 (tvá trappor), Stock-
holm, Södra, Sverige, vill skrifast
Mr. David Mc Dade (32ja ára)
Creca Camp, Block G 15, Shapel-
cross, Annan Dumfrieshire, Scot-
land, vill skrifast á við íslenzka
stúlku.
Miss Wendy Hennessy (19 ára
stúdent) Mayfield Hostel Ar-
broath Road Dundes Angus Scot-
land, vill skrifast á við íslenzkan
pilt eða stúlku. Hún hefur áhuga
á listum og Ijóðum.
| Félagsstörf
Bræðrafélag Laugarnessóknar
heldur fund í fundarsal kirkjunn
ar í kvöld kl. 8,30. Rædd verða
félagsmál. Kaffidrykkja, en síðan
skemmtiatriði.
JHAheit&samskot
Sóllieimadrengurinn, afh. Mbl.:
Þ. Þ. kr. 100,00, E S 25,00.
Áheit og gjafir til Skálholts. —
Áheit á Skálholtskirkju frá E Þ
ki. 200; áheit á Þorlák biskup frá
N N, afhent Biskupsskrifstofunni
kr. 50; gjöf frá Karli Svenson,
Patreksfirði, afh. af séra Tómasi
Guðmundssyni kr. 200; gjöf frá
Páli Christiansen, Patreksfirði,
afh. af sama 200; áheit á Þorlák
biskup frá ónefndri kr. 200; áheit
á Þorlák biskup frá G Þ K kr.
50; áheit á Skálholtskirkju frá
Karólínu kr. 150; safnað af Önnu
Vigfúsdóttur, Yzta-Skála, Eyja-
fjöllum: Jón Einarsson, Núpi kr.
200; Magnús Sigurjónsson, —
Hvammi kr. 100; Sigurþór Gísla-
son, Yzta-Skála kr. 10; Valgerð-
ur Einarsdóttir, Núpi kr. 10,00.
Móttaka viðurkennd með þökkum.
F.h. Skálholtsfélagsins. Reykjavík
4. janúar 1958, Sigurbj. Einarss.
Barnaspílali Hringsins: — Áh.
kr. 15,00. — Gjöf frá frændkonum
í Hafnarfii'ði til minningar um
ársafmæli Guðlaugar Þorvalds-
dóttur, þá sjúklings í barnadeild
Landspítalans, kr. 100,00. Héðinn
gaf til minningar um Magnús
Má, son sinn, andvirði jólagjafar
kr. 100,00. John Antonsson, Wake
field, Mass. USA kr. 1.000,00. _
Kvenfélagið Hringui'inn vottar
gefendunum innilegt þakklæti sitt.
Leiðinlegur maður spurði eitt
sinn Alexander Dumas að því, í
veizlu, hvort það væri satt, að
hann væri af svertingjakyni.
— Já, sagði Dumas, það er ég.
— Var faðir yðar Múlatti?
— Já, hann var Múlatti.
— Og langafi yðar?
— Hann var negri, svaraði
Dumas þurr á manninn, enda var
farið að síga alvarlega í hann.
En náunginn hélt ennþá áfram
að spyrja.
— Og með leyfi, má ég spyrja,
hvað var þá langa-Ianga-afi yð-
ar?
— Api, þrumaði Dumas, api var
hann. Ætt mín byrjaði á nákvsgm-
lega sama stigi og yðar er í dag.
★
— Eruð þér vissir um, sagði
verjandinn, að sá handtekni sé
maðurinn sem stal bílnum yðar?
„Já, svaraði ákærandinn, ég var
viss um það, þangað til þér fóruð
að spyrja mig í þaula. En eftir
það er ég ekki einu sinni viss um
að ég hafi nokkurn tíma át. bíl.
Kosturicin við dvergbíia
Maður nokkur kom inn í mat-
vöruverzlun og sagði:
— Ég vil kaupa öll fúleggin
sem til eru í verzluninni.
— Hvað ætlið þér að gera við
þ,.u? spurði afgreiðslumaðurinn
undrandi. Ætlið þér kannske að
fúygja þeim í nýja leikarann okk-
ar sem ætlar að koma fram á leik-
sviðinu £ kvöld?
— Uss, sagði maðurinn, og leit
í kringum sig. Ég er nýi leikar-
inn.
★
Tveir verkamenn gengu hver á
eftir öðrum með nokkru millibili
og kölluðust á.
— Hvað eruð þið að gera?
spurði verkstjórinn.
— Við erum að bera plankann
yfir brúna.
— Hvaða planka?
— Nei, heyrðu Jón, sagði ann-
ar verkamaðurinn. -— Við höfum
gleymt plankanum. Ég skildi held
ur ekkert í hvað hann var léttur.
~ffappc/rætfi
HASKÓLANS