Morgunblaðið - 08.01.1958, Page 20

Morgunblaðið - 08.01.1958, Page 20
VEÐRIÐ Sunnan og suðvestan gola. Lítils háttar snjó- eða slydduél. Hvernig byggingarlóð verður til. — Sjá bls. 8. Listi andsfæðinga kommúnista í Dagsbrún SS&Í*?: Ágúst Guðjónsson, Kristínus F. Arndal, ritarl. Magnús Hákonarson, gjaldkeri. Gunnar Sigurðsson, varaformaður. Baldvin Baldvinsson, formaður. fjármálaritari. Daníel Daníelsson, meðstjórnandi. Guðmundur Jónsson, meðstjórnandi. ANDSTÆÐINGAR kommúnista í Dagsbrún hafa komið sér sam- an um einn og sama framboðs- við þær kosningar, sem standa fyrir dyrum í félaginu. Framboðið er á eftirfarandi Aðalstjórn: Formaður: Baldvin Baldvinsson, Kleppsveg 38. Varaformaður: Gunnar Sigurðs- son, Bústaðaveg 105. Ritari: Kristínus Arndal, Norð- urstíg 3. Gjaldkeri: Magnús Hákonarson, Garðsenda 12 Fjármálaritari: Ágúst Guðjóns- son, Hólmgarði 13. Meðstjórnendur: Daníel Daníels- son, Þinghólsbraut 31 og Guð- mundur Jónsson, Bræðraborg- arstíg 22. Bæjar- og sveitarstjómarkosningar í 14 kaupstöðinn og 30 kauptúnum í DAG eru aðeins 18 dagar til bæjar- og sveitarstjórnarkosning- rnna. — Kosningarnar eiga að fara fram síðasta sunnudag þessa mán- aðar, 26. janúar, og framboðsfrestur til þeirra var útrunninn sl. sunnudag. Kosið verður í 14 kaupstöðum og 30 kauptúnunum. — Sjálf- stæðisflokkurinn býður fram í öllum kaupstöðunum og í flestum kauptúnunum. Framsóknarflokkurinn býður fram í 10 kaupstöð- um, Alþýðuflokkurinn í 9 kaupstöðum, kommúnistar í 8 kaup- stöðum og Þjóðvarnarflokkurinn í einum. Á tveimur stöðum á landinu verða fimm framboðslistar, þ. e. i Reykjavík og á Eskifirði. í þremur kaupstöðum hafa Framsókn, kratar og kommúnistar kosningabandalag gegn Sjálfstæðisflokknum. Er það á Akranesi, Isafirði og Ólafsfiröi. Kaupstaðirnir Kaupstaðirnir að Reykjavík meðtalinni, eru 14 talsins. í Reykjavík á að kjósa 15 fulltrúa. Á Ákureyri á að kjósa 11 fulltrúa. Á Akranesi, Hafnarfirði, Vest- mannaeyjum, ísafirði, Siglufirði, Neskaupstað og Seyðisfirði á að kjósa 9 bæjarfulltrúa. f Kópa- vogi, Keflavík, Húsavík, Sauðár- króki og Ólafsfirði á að kjósa 7 bæjarfulltrúa. Samkvæmt þessu á að kjósa í kaupstöðunum 124 aðalbæjarfull- trúa. En í framboði um þessi sæti eru 886 manns. Kauptúnin Samkv. kosningalögum eiga sveitarstjórnarkosningar að fara fram í janúar-mánuði í þeim kauptúnahreppum, þar sem % í- búanna búa í kauptúnunum sjálf um. Samkvæmt því var talið í vetur að kosmngar ættu að fara fram í 35 kauputúnum. Það hefur nú komið í ljós, að í tveimur sveitarfélögum, Hnífsdal og Súða vík, náði íbúahlutfall kauptún- anna ekki tilskildum % hlutum hreppsbúa. Á þremur stöðum verða hrepps nefndir sjálfkjörnar, þar sem að- eins einn listi kom fram. Það er á Seltjarnarnesi, Suðureyri og á Dalvík. Samkvæmt þessu verður kosið í 30 kauptúnum. Kosn ingaskr if sf ofa SjáifstæSisflokksins í Hafnarfirði SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN hefir opnað kosningaskrifstofu í Sjálfstæðishúsinu, Strandgötu 29. Er hún opin dag hvern frá kl. 10 árd. til 10 síðd. Er allt Sjálf- stæðisfólk og aðrir, sem vinna vilja fyrir Sjálfstæðisflokkinn í bæjarstjórnarkosningunum, beð- ið að hafa samband við skrif - stofuna. Sími hennar er 50228. í öllum kauptúnunum á að kjósa fimm manna hreppsnefndir eða þá samtals 150 aðalfulltrúa. í langflestum þeirra hafa Sjálf- stæðismenn lista í framboði og er hann að jafnaði merktur listabók- staf Sjálfstæðismanna, D. Þó verða menn að gæta þess að á nokkrum stöðum hafa Sjálfstæð- ismenn annan listabókstaf, svo sem á Blönduósi, þar sem þeir hafa A-lista. f flestum kauptúnunum eru 3 listar í kjöri, það er listi Sjálf- stæðismanna, Hræðslubandalags ins og kommúnista. Launþegafundur um bæjarmál Rvíkur WÁLFUNDAFÉLAGIÐ Óð- inn efnir til almenns verka- lýðs- og launþegafundar um bæjarmál Reykjavíkur nk. sunnudag. Á fundinum flytja fulltrúar margra launastétta stuttar ræður og ávörp. Koma þarna fram menn úr mörgum starfshópum og gefst þar gott tækifæri til að kynn- ast viðhorfi þeirra til hæjar- málanna og bæjarstjórnar- kosninganna, sem nú fara í hönd. Ekki er að efa að launþeg- ar og aðrir fjölmenni á fund þennan. Varastjórn: Tryggvi Gunnlaugsson, Hverfis- götu 87. Gunnar Erlendsson, Lokastíg 20. Skúli Benediktsson, Ránar- götu 6. Stjórn vinnudeilusjóðs: Formaður: Sigurður Guðmunds- son, Freyjugötu 10A. Meðstjórnendur: Guðmundur Nikulásson, Háaleitisveg 26 og Sigurður Sæmundsson, Laug- arnescamp 30. Varastjórn: Þórður Gíslason, Meðalholti 10. Hreiðar Guðlaugsson, Ægis- síðu 107. Endur skoðendur: Guðmundur Kristinsson, Sörla- skjóli 17. Sigurður Ólafsson, Hólmgarði 18. Til vara: Jón Sigurðsson, Kársnesbraut 13. Allir þessir menn eru mjög vel þekktir meðal verkamanna og hafa margir þeirra látið mál- efni Dagsbrúnar til sín taka á liðnum árum. Væri málefnum félagsins vel borgið í höndum þessara manna, enda verður sú skoðun sífellt útbreiddari meðal Dagsbrúnarmanna að á því sé hin mesta nauðsyn að nýir menn taki við stjórn félagsins. Kommúnist- ar hafa ráðið öllu í Dagsbrún í mörg undanfarin ár og hefur félagið orðið einn liður í flokks- kerfi kommúnista en um hag samtakanna og verkamanna hafa þeir verið tómlátir. Hagsmurur kommúnistaflokksins hafa þar algerlega setið í fyrirrúmi og er mögnuð óánægja meðal fjölda verkamanna, út af þeirri mis- notkun á félaginu. Þeir, sem að listanum standa hafa þegar hafið útgáfu sérstaks málgagns en skrifstofa listans er í Ingólfsstræti 1, sími 23527. Þeir, sem vilja vinna að sigri listans ættu sem fyrst að gefa sig fram við skrifstofuna. Dagsbrúnarfunduir í kvöld Stjórn félagsins hefur boð- að til almenns fundar í Dags- brún í kvöld í Skátaheimil- inu við Snorrabraut og hefst hann kl. 8. Er hér um áróðurs- fund af hálfu kommúnista að ræða fyrir kosningarnar. Andstæðingar kommúnista munu fjölmenna á þennan fund til að láta í ljós óánægju sína og krefja kommúnista reikningsskapar fyrir með- ferð þeirra á Dagsbrún. „Slipparnir^ opna í dag — „vopnahlé^ samið SLIPPAR og dráttarbrautir í verstöðvum um land allt hafa verið lokaðar um nokkurt skeið. Ástæðan er djúpstæður ágrein- ingur milli verðlagsyfirvaldanna og félags eigenda slippa og drátt- arbrauta. Hafði verðlagsstjóri sett alla þjónustu þessara aðila undir verðlagsákvæði í byrjun desember. Þeim ákvæðum kváð- ust slippeigendur ekki geta unað og væri ekki annað fyrirsjáan- legt en stöðvun vofði yfir. Kváð- ust þeir mundu loka slippum sín- um og dráttarbrautum, unz ein- hver leiðrétting fengist. í dag munu slipparnir og drátt- arbrautirnar aftur verða opnað- ar. Samið hefur verið „vopna- hlé“, á þeim grundvelli, að skipa- skoðunarstjóri ríkisins, skal kynna sér réttmæti krafna slipp- eigenda. MeSan sú athugun fer fram mun verðlagsákvæðum frá 7. des. slegið á frest. Eitt af höfuðsjónarmiðum slipp- og dráttarbrautareigenda, skal skipa skoðunastjóri taka til sérstakrar meðferðar en það er að slipp- leiga og uppsátursgjald skuli standa undir nauðsynlegum við- halds- og endurnýjunarkostnaði við dráttarbrautirnar. í öllum slippum og dráttar- brautum bíða næg verkefni, svo sem vænta má í upphafi vertíð- ar og eftir þá stöðvun sem orðið hefir á þjónustu þessara aðila. „25 króna veltan“ SKRIFSTOFAN í Sjálfstæðis húsinu er opm hvern virkan dag kl. 9—7. Símar 16845 og 17104. Menn eru beðnir að fylgj- ast með því, hvort þeir, sem skorað hefur verið á, hafa greitt. Sjálfstæðismenn! — Takið þátt í veltunni með því að greiða 25 kr. og skorið á aðra að gera slíkt hið sama og styrkja með því kosningasjóð Sj álf stæðismanna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.