Morgunblaðið - 15.01.1958, Síða 3
MiSvikudagur 15. jan. 1958.
MOR'CVNBl 4Ð1Ð
3
Þaö, sem barizt var
fyrir í gær, er
ómögulegt í dag!
Vibbrögð glundroðaflokkanna út af
Skúlatúni 2
Á UNDANFÖRNUM árum hefur
það verið eitt helztar áróðurs-
efnið gegn Sjáifstæðismönnum
að þeir byggi ekki nóg af skrif-
stofubyggingum fyrir bæinn,
heldur leigi þeir húsnæði undir
ýmsa starfsemi bæjarins og
stofnana hans. Þá hefur einnig
verið gert mikið gys af því, að
bæjarstjórn skuli halda fundi
sína í kaupþingssalnum í Eim-
skipafélagshúsinu en ekki í öðr-
um veglegri húsakynnum. Um
þetta hefur verið sungið frá ári til
árs og margt þungt orð fallið í
garð Sjálfstæðismanna fyrir að
hefja ekki stórfelldar byggingar
á skrifstofuhúsnæði handa bæn-
um.
En nú þegar bærinn hefur
komið sér upp ágætu húsnæði
fyrir skrifstofur og ennfrem-
ur er verið að útbúa ný húsa-
kynni fyrir bæjarstjórnina
sjálfa, þá rjúka þessir sömu
menn upp, sem áður liafa mest
ávítað meirihluta bæjarstjórn
arinnar fyrir að byggja ekki,
og telja nú alveg ófært að ráð-
ast í slíka byggingu.
Fyrir örfáum árum töldu þess-
ir menn sjálfsagt að byggja hús
eins og Skúlatún 2, en nú eiga
þeir engin orð til að lýsa því
hve slíkt sé mikil fjarstæða. I
þessu sambandi er einkum tal-
að um það, að hluta af tekju-
afgangi Hitaveitunnar hafi verið
varið til byggingar þessa húss,
en Hitaveita Reykjavíkur er
eigandi þess, hefur þar sjálf
bækistöð sína og leigutekjur af
húsinu, sem áætlað er að nema
muni um hálfri milljón á ári,
þegar það er fullbyggt. Hér er
því að öllu leyti um mjög hag-
stæða ráðstöfun fyrir Hitaveit-
una að ræða.
í þessu sambandi má líka geta
þess, að á undanförnum árum
hafa minnihlutaflokkarnir í bæj-
arstjórninni, sem nú láta hæst í
blöðum sínum og á fundum, ekki
gert nokkra athugasemd við
byggingu Skúlatúns 2, né heldur
framlög Hitaveitunnar í því sam-
bandi. Hafa þeir árlega haft
þetta mál til meðferðar og sam-
þykkt það á bæjarstjórnarfund-
um um leið og gengið var frá
reikningi Hitaveitu Reykjavik
ur. Þannig hefur þetta gengið
frá ári til árs og stoðar nú ekk-
ert fyrir þessa menn að berja sér
á brjóst og þykjast ekkert vita.
Allt þetta er skráð skýrum stöf-
um í gerðarbókum bæjarstjórn-
ar Reykjavíkur.
Þessi hringsnúningur í sam-
bandi við Skúlagötu 2 sýnir eina
hliðina á glundroðanum hjá
minnihlutaflokkunum. Þar er
ekki eingöngu glundrooi hvað
varðar menn, þar sem flokkar
klofna í smámola, lieldur er þar
einnig glmndroði með málefnin,
þannig að því máli, sem barizt
var FYRIR í gær er barizt Á
MÓTI á morgun. Reykvíkingar
hafa ekkert að gera með slíka
menn í stjórn bæjarmálanna.
Menntaskólanemendur hafa nú sýnt gamanleikinn „Væng-
stýfðir englar" fjórum sinnum. Sýningarnar hafa ævinlega
farið fram fyrir fullu húsi og leiknum hefur verið mjög vel
tckið, enda er þetta bráðsnjallt gamanleikrit. Sýningar munu
nú falla niður að einhverju leyti vegna húsnæðisskorts en
fyrirhugað er að hafa nokkrar sýningar ennþá. Myndin hér
að ofan er úr atriði í Ieiknum t)g sýnir þá Ólaf Mixa, Þorstein
Gunnarsson og Ómar Ragnarsson, en þeir leika aðallilutverkin,
englana þrjá.
Lóra ÁgústsÆóttir s/nir miðilshæfileika ó
fnndi í
SÍÐASTLIÐIÐ sumar fór Lára
Ágústsdóttir, sem landsmönn-
um er alkunn fyrir miðils-
hæfileika sína, í stutta ferð til
Lundúna. Stjórnaði lvún þar
miðilsfundi nokkurra áhuga-
manna um sálarrannsóknir og
vöktu hæfileikar hennar all-
mikla athygli. Er sagt frá
komu Láru til Lundúna i sál-
arrannsóknarblaðinu Psychic
News og látin í ljós hrifning
yfir því, hvernig Láru tókst
að gcra sig skiljanlega, þótt
hún kunni lítið í ensku.
Lára fór utan s.l. sumar ásamt
manni sínum Steingvimi Sigur-
steinssyni og vinkonu þeirra
hjóna frú Gunnlaugu Thoraren-
sen. Dvöldust þau hálfan mán-
uð í Lundúnum en Lára fór
þangað sér til lækninga.
Vegna fyrri kynninga Láru af
Horace Leaf rithöfundi og sáiar-
rannsóknamanni hittu þau hjón
nokkra áhugamenn um sálar-
rannsóknir. Lýsti Lára ýmsum
fyrirbærum í samkvæmi, þar
sem saman voru komnir nokkr-
ir kunningjar. Var skýrt frá þeim
fundi í blaði sálarrannsókna-
manna Psychic News og þar einn
ig greint nokkuð frá miðilshæfi-
leikum hinnar íslenzu konu. Þar
segir m.a.:
— Þegar Lára var 6 ára var
hún á heimili afa síns og ömmu,
þar sem hún ólst upp. í sveitinni
fór hún yfir djúpt vatn og sá þá
líkamnaða hönd koma upp
vatninu og veifa til sín. Síðan
virtist höndin nálgast hana og
leggjast yfir augu hennar, svo að
hún sá ekkert. Upp frá þessu
hefur skyggni hennar verið
þannig, að þessi sama hönd opn-
ar og lokar fyrir hana á víxl,
eins og tjald sé dregið frá. Enn
í dag er frú Láru ekki Ijóst,
hverjum þessi hönd tilheyrir
þótt hún hafi séð og haft tal af
mörgum öndum.
í annarri grein í Psychic News
er greint frá miðilsfundi Láru,
er haldinn var á heimili Marga-
ret Wilson, 16 Davis Road í
Lundúnum. Þar lýsti Lára t.d.
föður, bróður og afa ungfrú Wil-
son og tókst með sínum fáu orð-
um og látbragði að lýsa þeim og
sýna, hvernig þeir hefðu dáið.
Þá er þar getið um enska konu
frú Violet Dear, sem fyrir nokkru
hafði flutt frá Vestur-Indíum og
sótt marga miðilsfundi til þess að
fá frétt af föður sínum en ár-
angurslaust til þessa. Lára birti
ul henni nákvæma lýsingu á honum,
vaxtarlagi, yfirskeggi o.fl. Hún
lýsti einnig bílslysinu, þar sem
eiginmaður frú Dear fórst og
hvenær það hafði skeð.
Af þessu og ýmsum fleiri frá-
sögum virðist sem Bretanum liafi
þótt allmikið koma til miðils-
hæfileika Láru.
Allmikil óánægja ríkir meðal
margra Framsóknarmanna í
Reykjavík með þá ráðabreytni
forystumanna flokksins, að setja
kommúnista og hálfkommúnista
í ýmis sæti á framboðslista
flokksins við bæjarstjórnarkosn-
ingar. Er almennt álitið, að þarna
hafi hönd Hermanns Jónassonar
verið að verki. Tilgangurinn með
þessu mun m.a. vera sá, að freista
þess að ná fylgi þeirra kommún-
ista, sem undanfarið hafa verið
að yfirgefa sósíalistaflokkinn.
Margt bendir þó til þess, að
Framsókn muni hafa meiri óhag
en gróða af kommúnistalit lista
síns. Þeir menn, sem yfirgefa
kommúnistaflokkinn kjósa nefni
lega ekki hálfkommúnistiskan
lista Framsóknarmanna. Þeir
kjósa þá menn, sem sýnt hafa
fullan skilning á hinni komm-
únisku ofbeldis- og einræðis-
stefnu og hafa barizt einarðlega
gcgn lienni.
Þetta gerðist t.d. í Iðju-kosn-
ingunum í fyrravetur. Þá hríð-
töpuðu kommúnistar fylgi verk-
smiðjufólks í Reykjavík. Verk-
smiðjufólkið hlýddi þá eklti boð-
um Hermanns Jónassonar, sem
skoraði á það að fylkja sér nm
kommúnistana áfram. Það kaus
Guðjón Sigurðsson og samstarfs-
menn hans, meðal annars vegna
þess að þeir voru einlægir and-
stæðingar kommúnismans. Fólk-
ið treysti þeim, en fyrirleit komm
únistadekur Hermanns.
Verkamönnnm sýnt ofbeldi í skrifstofu
ÞEIR stórfurðulegu atburðir
hafa gerzt að starfsmenn
kommúnista í Dagsbrún hafa
neitað fjölda verkamanna um
félagsréttindi í Dagsbrún
þrátt fyrir skýlausan rétt þess
ara manna til fullra félags-
réttinda. Hafa kommúnista
dindlarnir gengið svo langt
undir forustu Guðmundar
FjÖlmennur Hvatar - fundur
Mynd þessi er frá hinni fjölmennu og ánægjulcgu kvöldskemmtun Hvatar í Sjálfstæðishúsinu í
fyrrakvöld. María Maack, formaður félagsins, setti samkomuna, en síðan stjórnaði Gróa Péturs-
dóttir spilakcppni. Að lokum flutti svo frú Aiuður Auðuns snjallt ávarp, þar sem hún livatti kon-
ur til þess að gera skyldu sína við bæjarfélagið á kjördegi — 26. janúar næstkomandi.
jaka, að þeir hafa hótað verka
mönnum að beita þá ofbeldi
og að hann mundi lienda þeim
út af skrifstofu félagsins, ef
þeir leyfðu sér að leita réttar
síns.
Er þessi framkoma algert
einsdæmi í sögu verkalýðs-
hreyfingarinnar og algert brct
bæði á lögum Dagsbrúnar og
vinnulöggjöfinni og sýnir tak-
markalausan yfirgang og fyr-
irlitningu á Dagsbrúnarfélög-
um.
Þessi valdníðsla kommún-
ista er með öllu óþolandi og
verður að mæta þessum að-
gerðum á viðeigandi hátt. —
Þess vegna er skorað á alla
þá Dagsbrúnarfélaga, sem
verða fyrir slíkum árásum
Dagsbrúnarútkastarans að
gefa sig þegar í stað fram við
skrifstofu lýðræðissinna í
Þingholtsstræti 1 og mun hun
leita réttar félaganna sam
kvæmt lögum.
Kópa-
vogur
KOSNINGASKRIFSTOFA Sjálí
stæðisflokksins í Kópavogi er að
Melgerði 1. Opin frá kl. 10 til 10
daglega. Simar: 19708 og 10248.
Stuðningsmenn D-listans í
Kópavogi. Hafið' samband við
skrifstofuna.
Stjórnarstefnan og bæj-
airst j órnarkosningarnar
Stjórnarblöðin eru í gær ösku-
reið við Bjarna Benediktsson
vegna þess að hann dró upp
glögga mynd af áhrifum vinstrl
stjórnar stefnunnar á íslenzkt
efnahagslíf, og sýndi fram á úr-
ræðaleysi hennar og uppgjöf.
Vinstri flokkunum er meinilla
við, að „afrek“ þeirra síðan
vinstri stjórnin var mynduð,
skuli gerð að umtalsefni í sam-
bandi við bæjarstjórnarkosning-
arnar. Þeir leggja á það megin-
áherzlu að ekki megi „blanda
landsmálum í bæjarmálaumræð-
ur“!
Myndu stjórnarflokkarnir
halda þessu fram, ef þeir teldu
sjálfir að þeir hefðu staðið sig
vel og ríkisstjórn þeirra hefði
efnt þau loforð, sem hún gaf al-
menningi? Áreiðanlega ekki.
Stjórnarflokkarnir vita upp á sig
skömmina. Þess vegna vilja þeir
ómögulega að kjósendur kaup-
staða og kauptúna hafi hliðsjón
af stjórnarstefnunni, þegar þeir
ganga til bæjar- og sveitastjórn-
arkosninga þann 26. janúar n.k.
Fólkið má þá ekki muna eftir
svikum kommúnista, Framsókn-
ar og krata í utanríkis- og örygg-
ismálunum. Það má heldur ekki
muna eftir hinni algjöru uppgjöf
við að finna „nýjar Ieiðir“ til
lausnar efnahagsvandamálunum.
Svar fólksins
En fólkið man þetta allt saman
engu að síður, og ber saman lof-
orð og efndir vinstri stjórnar-
flokkanna. Það mun svara vinstri
stjórninni við bæjar- og sveitar-
stjórnarkosningar. Hinir miklu
loforðariddarar vinstri stjórnar-
innar munu finna, hvernig al-
menningur við sjávarsíðuna lít-
ur á svik þeirra og yfirborðs-
hátt. Engin ríkisstjórn hefiur á
jafnskömmum tíma og vinstri
stjórnin opnað augu almennings
á íslandi fyrir fánýti stefnu sinn-
ar og Ioforða. Að þessu leyti, og
þessu leyti einu hefur vinstri
stjórnin verið gagnleg. Nú veit
fólkið, hvað „vinstri“ stefnan er,
hvað hún þýðir-
STAKSTEIMAK
Kommúnistar ' Fram-
sóknarlista