Morgunblaðið - 15.01.1958, Side 6

Morgunblaðið - 15.01.1958, Side 6
6 MORGUNBLAÐ1B Miðvikudagur 15. jan. 1958. Hvernig væri að líta sér nær um siðabæturnar ? Skyggnzt um í ráðuneyti Eysteins Jónssonar FRAMSÓKNARFLÖKKURINN Ján A. Gissurarson, skólastjóri • Skóiamál Reykjavíkur hefur löngum þótzt vera vin- veittur Reykvíkingum. Ofan á fyrri velgerninga bætist nú sá að gefa Reykvíkingum kost á að kjósa sérstakan trúnaðarmann Eysteins Jónssonar til bæjarfuli- trúa. Það er Kristján Thorlacius. deildarstjóri í fjármálaráðuneyt- inu. Það er af, sem áður var, þegar framsóknarmenn voru kallaðir óvinir Reykjavíkur! Að vísu dettur engum í hug, að maðurinn nái kosningu. Hins veg ar er rétt að hafa í huga, að Þórður Björnsson þarf oft á áii að ræða við opinberar stofnanir erlendis, enda í flugráði. Af því má telja sennilegt, að varamaðu- hans geti slæðzt öðru hverju á bæjarstjórnarfundi. Það er þó bundið því, að Reykvíkingar telji yfirleitt ástæðu til að hafa nokkurn framsóknarmann í bæj- arstjórninni. Reynslan hefur sannað, að furðuauðvelt er að komast af án slíks. Eitt kvöldið í fyrri viku héldu framsóknarfélögin fund i einu danshúsi hér í bænum. Þar munu 6 efstu menn framsóknarlistans hafá, flutt ræður. Eina ræðuna flutti trúnaðar- maður Eysteins, sem áður er nefndur. Útdráttur sá úr ræð- unni, er Tíminn birtir, er næsta ófullkominn, en gefur þó tilefni til ýmissa athugasemda. Að svo stöddu verður aðeins minnzt á tvennt. Deildarstjóri fjármála- ráðuneytisins fann meirihluta bæjarstjórnar mjög til foráttu hve mikill og vaxandi væri kosti aður við stjórn Reykjavíkur og beitt væri pólitískri hlutdrægni Þar sem Kristján Thorlacius mun i bókstaflegum skilningi at- inn upp í fjármálaráðuneytinu og af Eysteini Jónssyni, virðist eðli- legt, að hann telji fjármálaráðu- neytið þá fyrirmyndarstofnun, er miða beri við, a. m. k. þá deild er hann veitir forstöðu. Hér gefst því ærið tilefni til að athuga þá stofnun lítið eitt og kanna, hvernig ráðdeildin og ó- hlutdrægnin er þar og hvernjg framsóknarmenn telji sanna fyr- irmyndarstofnun vera. Eysteinn Jónsson hefur verið f jármálaráðlierra og þar með hús bóndi frambjóðandans óslitið síð- an 1950. Á þeim tíma hefur launakostnaður við fjármálaráðu neytið, skv. fjárlögum fyrir 1950 og 1958, hækkað úr 628 þús. kr. í rúmar 2 miiljónir króna. Af einhverjum ástæðum eru laun fjármálaráðherrans sjálfs eigi tal in þarna með. Launakostnaður- inn við borgarstjóraskrifstofuna er gegnir margfallt víðtækari verkefnum eins og allir vita, hef- ur hækkað úr 1.250 þús. kr., skv. fjárhagsáætlun fyrir 1950, i 3.200 þús., skv. frumvarpi að fjárhagsáætlun fyrir 1958. Hækk unin hjá borgarstjóraskrifstof- stofunni er 156%, og þykir sjálf- sagt ærin, enda stundum á hana minnzt í Tímanum. En hvað gerist í þeirri stofnun, þar sem fjármálasnilld Eysteins Jónsson- ar og hans trúa þjóns, Kristjáns Thorlacius nýtur sín til fulls? Hækkunin hjá f jármálaráðu- neytinu samkvæmt framansögðu nemur hvorki meira né minna en 220%. Þá var Kristján eitthvað að tala um hlutdrægni í ræðunni sinni. Það er rétt að skyggnast um í fjármálaráðuneytinu og at- huga hvernig er ástatt þar í þessu sambandi. Stöðuveitingar virðast einna áþreifanlegasti mælikvarði, sen- hægt er að miða við. Blaðið hef- ur ekki aðgang að núgildandi starfsmannatali ráðuneytisins. í símaskránni 1957 eru taldir þá- verandi starfsmenn, en vitað er að einhverjar breytingar hafa orðið síðan. Þær breytingar skipta þó ekki máli í þessu sam- bandi. Það verður varla reiknað með neinni stefnubreytingu. Ráðuneytisstjórinn, Sigtryggur Klemenzson, er yfirlýstur fram- sóknarmaður, í fulltrúaráði og hefur gegnt fjölda trúnaðarstarfa fyrir flokkinn. Þá kemur deildarstjórinn sjálf- ur. Fulltrúar í deild hans eru þess ir, skv. áðurgreindri heimild: Einar Ágústsson, formaður Framsóknarfélags Reykjavíkur, og frambjóðandi á lista flokks- ins til bæjarstjórnarkosninganna Hannes Pálsson frá Undirfelli sem ekki þarf að kynna frekar Ingvar Gíslaspn, sem verið hef- ur erindreki flokksins á Akur- eyri. Jón Skaftason, sem er efsti maður á lista flokksins við bæj arstjórnarkosningarnar í Kópa- vogi. Sigurður Ólason, sem að vísu gegnir ekki svo vitað sé veruleg- um trúnaðarstöðum í flokknum eh er þó ákveðinn flokksmaður. Þarna eru taldir fulltrúarnir í deild Kristjáns Thorlacius, en auk þeirra má nefna einn starfs- mann undir fulltrúastandi. Hann GAMANSAMUR náungi úr stétt kaupsýslumanna vék sér að Velvakanda á götu í fyrra- dag, rétti honum bréfsnepil og hvarf fyrir horn. Á miðanum stóð þetta: Reikjavik 13. janúar 1958 Kjæri Velvagandi. Mér hevur oft lángað til að senda þér brév út af því kvað það er ervitt að krægja í skriv- stovustúlkur sem kunna að stava orð og sedja upp brév. Það er öngvu lígara en allar úngar stúlk ur siggli straks til rívíerustrand- ar, þegar þær eru búnar að læra. Kvernig er hægt að redda þessu? Bless Velvakandi hélt fyrst, að hann hefði fengið bréfið sem einhvers konar sönnunargagn fyrir því, að kaupsýslumaðurinn kynni fær- eysku. Við nánari eftirgrennslan hefur hann þó komizt að raun um, að hann kann ekkert í fær- eysku, en bréfið átti að vera sýnis horn af því, hvernig farið hefði, ef 1) viðkomandi maður hefði ákveðið að skrifa Velvakanda umkvörtunarbréf varðandi rétt- hefur það sér til ágætis umfram aðra að vera tengdasonur Ey- steins Jónssonar. Af þessari upptalningu úr síma skrá 1957 verður ljóst, hvernig óhlutdrægni er gætt, þar sem Eysteinn Jónsson og Kristján Thorlacius ráða ríkjum! Ef athugaðir eru framboffslist- ar, sem fram hafa komiff við bæjarstjórnarkosningarnar, sést, aff á öllum listum andstæðinga Sjálfstæffismanna er aff finna nöfn manna, er gegna effa hafa gegnt störfum hjá Reykjavíkur- bæ. Sumir sitja meira aff segja í æffstu stöffum. Þaff er von, aff Kristján Thorlacius tali um hlut- drægni! Vitur maður sagði einu sinni, að sá, sem ætlaði sér að bæta heiminn, ætti að byrja á sjálfum sér. Trúnaðarmaður Eysteins Jónssonar ætti að byrja á að bæta sína eigin stofnun og reyna jafnvel við Eystein sjálfan. — Slíkt hlýtur að vera ærið starf Þegar því er lokið — en fyrr ekki — er mál að hefja siðabót hjá öðrum. Y Sjálf- stæðisfólk SJÁLFSTÆÐISFÓLK er vildi aðstoffa viff skriftir er vinsam- lega beffið að hafa samband við skrifstofuna í Sjálfstæffishúsinu. ritunarkunnáttu skrifstofustúlk- unnar hans 2) hann hefði tekið upp segul- bandið sitt góða og lesið bréfið inn á það 3) stúlkutetrið hefði eytt ein- um morgni í að skrifa eftir band- inu. Að því er Velvakanda skilst er mergurinn málsins þessi: Það er orðið miklum erfiðleikum bundið að fá skrifstofustúlkur, sem kunna vel til verka. Þetta er auð- vitað ekkert gamanmál, því að bréf, skýrslur og hvers konar skriftir fyigja nú öllu, sem gert er, gera á eða gera mætti og kosta mikla peninga. Það skiptir því miklu máli, að þessi störf sem önnur séu vel og greiðlega unnin. Ef það er rétt, að erfitt sé að fá góðar stúlkur í skrif- stofur ættu fleiri ungar hæfileika konur — og af þeim er auðvitað nóg — að læra á ritvél og bæta svolitlu við tungumálakunnátt- una. Útsölur TÓRIR auglýsingamiðar í öll- um regnbogans litum prýða nú fjölmargar verzlunarglugga: Útsala Stórkostleg verfflækkun — Hálf- virffi. Margir sjá í þessum verziunar- FYRIR heimsstyrjöldina síðari voru Reykvíkingar fátækir og nægjusamir. Þeir bjuggu við þröngan húsakost. Milli 1930 og 1940 þótti þriggja herbergja í- búð, þetta 80—90 fermetrar, kappnóg meðalfjölskyldu. Orlítill hluti unglinga hafði ráð á ann- arri skólagöngu en skyldunámi. Menntaskólinn var lengi vel eini almenni framhaldsskólinn í Reykjavík. Þegar um tók að þrengjast, reyndi ríkið að hemja aðsókn að Menntaskólanum með því að leggja skólagjöld á nem- endur úr Reykjavík. Þegar það ekki nægði, þá var ákveðið, að aðeins 25 nýir nemendur á ári fengju inngöngu í skólann. Menntaskólinn var þó ekki fyrir Reykvíkinga eina, heldur fyrir nemendur hvaðanæva að af land- inu. Þá voru stofnaðir tveir gagn fræðaskólar í Reykjavík. Svona stóðu málin í stríðs- byrjun, en þá varð á öllu gagn- bylting. Fólki fjölgaði skyndi- lega í Reykjavík. Efnahagur fólks rýmkaðist til muna. Byggja þurfti yfir fólkið í skyndi, og það krafðist meira húsrýmis en fyrir stríð, svo að nú þykja þriðjungi stærri íbúðir engin ofrausn. Þörf nýrra skóla óx gífurlega. Liggja til þess augljósar ástæður. Fjölg- un unglinga á skólaaldri var hlut fallslega miklu meiri en heildar- fólksfjölgunin í Reykjavík. Skóla skyldan var lengd um eitt ár. Miklu fleiri höfðu nú ráð á að senda börn sín í skóla að skóla- skyldu lokinni. Hvernig hefði nú mátt mæta þessiím vanda? Tvennt hefði ver ið til. Annars vegar aðeins að ráða bót á brýnustu þörfinni og byggja bráðabirgðahús, eða reisa framtíðarskóla. Síðari kosturinn var tekinn. Gagnfræðaskóli Aust urbæjar, Melaskólinn og Iðnskól- inn eru frá þessum tíma. Þeir eru stórhýsi, sem langan tíma tók að reisa. En alltaf þrengdi að, svo að tví- og þrísetja varð í kennslu- stofur. Engum hefur þó þurft að úthýsa, þótt nemendum hafi fjölgað upp í 600 á ári. Lokið hefur nú verið skipulagn ingu skólahverfa í Reykjavík og skólum ætlaður staður í þeim. Er þegar hafin bygging skóla sam- kvæmt þewari áætlun. Ég hefi alltaf haldið því fram, gluggum svarið við því, hvernig húshaldspeningarnir eiga að end- ast og máske gott betur. Með fullri gát er vissulega unnt að hafa mikið gagn af útsölum. Þar er margs konar varningur seldur fyrir lágt verð, og það er alger misskilningur, — að allt útsólu- góss sé ruslvarningur. Útsölur eru haldnar til að losa um rekstr arféð og fá nýjan svip á varnings hillurnar. Þar gera margir kjara- kaup, og óhætt er að hvetja fólk til að fara á stúfana fyrr en seinna og líta í útsöluglugga. En svo er hin hliðin á málinu. Hér sem oftar verður að fara með gát, og margir hefðu gott af að reyna að nota ímyndunaraflið og setja sér fyrir hugarsjónir, að við hliðina á auglýsingamiðun- um um kostkjörin séu aðrar aug- lýsingar: Gjöriff svo vel aff athuga, hvort þér hafiff nokkra þörf fyrir þaff, sem þér eruff aff hugsa um aff kaupa hér á útsölunni. Þess gætir sem sé nokkuð, já — meira að segja allmikið, að menn kaupi fleira en þörf er á, bara af því að það er svo ódýrt. Þetta vitum við öll fullvel, en gleym- um því oft, og þess vegna sakar ekki að minna á það nú í upphafi fyrra útsöiutímabils ársins. að lítill skóli væri, að öðru jöfnu, betri en stór skóli. En sá böggull fylgir skammrifi, að litlu skólarn ir eru óneitanlega dýrari en þeir stóru, því að margt nýtist betur, ef byggt er fyrir marga nemend- ur. Á þessu ára á að byrja á nýj- um skóla við Hamrahlíð. Ég tel fyrirkomulag þessa skóla svo sérstætt, ekki aðeins hér á landi, heldur og þótt samanburðar yrði leitað út fyrir pollinn, að ég vil fara um hann fáum orðum. Þarna eiga barna- og gagnfræðaskóli að rísa í nábýli. Barnaskólinn verð- ur þrjár tveggja hæða álmur, samtengdar með göngum, annars sjálfstæð hús. Síðan kemur tveggja hæða hús, en í því verða kennarastofur, samkomusalur, söngsalur, heilsugæzla o. fl. Til hinnar handar við þetta hús er svo gagnfræðaskóli. Sérstök hús eru fyrir leikfimi og handavinnu, sameiginlega fyrir báða skólana. Öll eru húsin tengd með göngum, en auk þess hvert með sínum inngangi. Álmum barnaskólans verður skipt í miðju. Verða að- skilin yngri og eldri börn, hvor hópur með eigin leikvangi. Við hliðina á leikvelli gagnfræðaskól- ans verður leikvangur og sund- laug sundfélagsins Ægis. Hlýtur að takast samvinna milli skólans og félagsins um afnot þeirra. Ég fæ ekki betur séð, en hér sé á hagkvæmasta hátt sameinað ir kostir nábýlis, en sneitt hjá göllum sambýlis. Húsin verða byggð í áföngum. Má taka hvert hús til fullra af- nota, strax og byggingu þess er lokið. Á þessu ári verður ein álma barnaskólans byggð. Á næsta hausti ættu því að vera til- búnar átta stofur, því að ekki tók legri tíma að byggja jafnmarg- ar kennslustofur á Hagamel. Bygging þeirra hófst í júní 1957 og voru teknar til afnota nú að jólaleyfi loknu. Það er nú komið yfir erfiðasta hjallann í húsamálum skólanna í Reykjavík, þótt búa verði við þröngbýli um sinn. Það er mest um vert að markvisst er stefnt í rétta átt. Innan tíðar verður það ekki húsakostur, sem hnjá mun við- gangi skóla í Reykjavík, heldur kennaraekla. Lögum samkvæmt skulu Há- skóli íslands og Kennaraskóli ís- lands mennta kennara handa gagnfræðaskólum og barnaskól- um. Ekkert nothæft náttúrugripa safn er við Háskólann. Hefur því ekki verið hægt að kenna náttúru fræði þar. Það var löngu ákveð- ið, að næsta bygging Háskólans yrði náttúrugripasafn. Teikning- ar og fé var til staðar, en á síð- ustu stundu venti menntamálaráð herra sínu kvæði í kross og á- kveðið var að byggja skyldi kvik myndahús í stað náttúrugripa- sáfns. Fé safnsins hefur nú verið bundið að nokkru leyti í gömiu húsi. Eru því litlar líkur á, að kennsla í náttúrufræðum verði hafin í Háskólanum um langa framtíð. Kennaraskóli íslands er I mestu úlfakreppu vegna húsnæð- isleysis. Hvað tefur byggingu nýs skóla? Lóð er löngu fengin, og fé hefur verið lagt til hliðar á fjárlögum undanfarin ár. Það tjóar lítið að fá glæst skólahús, fáist ekki vel menntaðir kennar- ar. Þetta er ekkert sérhagsmuna- mál Reykvíkinga heldur mál allra fslendinga. Fjársöfnun Sjálfstæðisflokksins SJÁLFSTÆÐISMENN og konur! Söfnunin í kosningasjóff flokksins er hafin! Leiðin liggur í Sjálfstæffishúsið við Austurvöll, þar sem fram- lögum er veitt viðtaka. Sérhvert framlag — smátt og stórt — í kosningasjóffinn er vel þegiff. Skrifstofan er opin alla virka daga klukkan 9—7 og á sunnu dögum klukkan 2—6. Sími 17100. „25 króna veltan" SKRIFSTOFAN í Sjálfstæðishúsinu er opin hvern virkan dag kl. 9—7. Símar: 16845 og 17104. Hver einasti Sjálfstæffismaffur lætur þaff aff sjálfsögðu verffa sitt fyrsta verk aff taka áskorununni og styrkja meff því Sjálf- stæffisflokkinn. Þátttakan í veltunni er þegar orffin mikil. Ef allir þeir, sem skorað hefur veriff á, taka áskoruninni, verffur árangurinn stór- glæsilegur. Samtaka nú! shrif'ar úr dagiega lífínu Um skrifstofustúlkur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.