Morgunblaðið - 23.01.1958, Síða 11
Fimmtudagur 23 ian. 1958
MOHC.llTS BLAÐIÐ
11
Hvers vegna kýs ég Sjálfstæðisflokkinn ?
MORGUNBLAÐIÐ hefur snúið sér til nokkurra Reyk-
víkinga í tilefni af bæjarstjórnarkosningunum nk.
sunnudag og beðið þá að sltýra lesendum frá því,
hvers vegna þeir kjósi Sjálfstæðisflokkinn. Nokkur
svörin fara hér á eftir:
V/ð getum ver/ð
hreykin af
Reykjavik
INGIBJÖRG Þorbergs söngkenn-
ari svarar:
„Ég tel það ekkert leyndarmál,
hvaða flokk ég kýs og nvers
vegna ég kýs hann. Vil ég því í
stuttu máli, fúslega segja hvers
vegna ég hefi ávallt vaiið Sjálí-
stæðisflokkinn:
Ég kýs hann vegna þess, að'
ég elska ísland og alla íslendinga.
Finnst mér Sjálfstæðisflokkurinn
bezt hafa sýnt og sannað, að hann
stuðlar að velferð og öryggi lands
og þjóðar. Það er margt, sem við
getum þakkað, og þá ekki sízt
Sjálfstæðisflokknum, en því mið
ur vill það þó oft gleymast, a.m.k.
hjá sumum, því að eitthvað mun
vera satt í mólshættinum „mikið
vill meira“.
En ef við nú rifjum upp fyrir
okkur, hvað þakkarvert er, sjá-
um við, að það er æði margt.
Höfuðborgin okkar, Reykjavík, er
fögur borg, sem við getum verið
hreykin af. Hún ber blæ fram-
kvæmda og menningar. hvar sem
á er litið. T.d má nefna, að marg-
ar íbúðir almennings eru til fyrir
myndar. Okkar glæsilegu skólar
og aðrar menningarstofnanir
eru okkur til mikils sóma. Og
ekki megum við gleyma hve nuk
il rækt hefur hér verið lögð v :ð
heilbrigðismáln.
En þó að við séum svo heppin,
að geta bent á þessar glæsi-
legu staðreyndir, er þó margt
ógert og margar þrautir óleystar.
Og til þess að ráða fram úr öllum
þeim vandamálum treysti ég bezt
þeim flokki, sem reynsluna hef-
ur öðlazt — því að reynslan er
gimsteinn, sem ekki máist.
Það er trú mín, að allir
sannir íslendingar óski sér sjálf-
stæðis, óski sér að byggja land,
þar sem einstaklingurinn er sjálf
ráður gerða sinna. — Því að hvers
virði er lífið án frelsis?
Læt ég svo þetta nægja, og
sendi mínar beztu kveðjur til
allra íslendinga, með von um,
að þeir standi ætíð saman, sem
éinn maður í því að vinna að
bættum hag þjóðar sinnar og varð
veita sjálfstæði lands síns.
Ég vona, að Reykvíkingar
standi saman á sunnudaginn og
greiði D-listanum atkvæði.
Ingibjörg Þorbergs.“
Vií ekki sovjet-
skipulag
MAGNÚS Valdimarsson iðn-
rekandi Öldugötu 50, segir:
„Valið ætti að vera auðvelt
fyrir Reykvíkinga.
Við sem erum fædd og uppalin
í Reykjavík og höfum fylgzt með
hinni glæsilegu framþróun og
uppbyggingu borgarinnar síðustu
tuttugu árin, stöndum vissulega
í þakklætisskuld við Sjálfstæðis-
flokkinn. Eingöngu vegna sam-
hents meirihlúta Sjálfstæðis-
manna í bæjarstjórn og stórhuga
og dugmikilla forystumanna
þeirra í bæjarrKálum er Reykja-
vik orðin það, sem hún er. Við
getum þvi öll verið hreykin af
borg okkar.
Undirstaðan fyrir velgengni
Reykjavíkur er fyrst og fremst
að þakka hinni frjálslyndu og
framsýnu stefnu flokksins í at-
vinnu- og bæjarmálum og stuðn-
ingur flokksins við einstaklings-
framtakið. Traustur og öruggur
fjárhagur hefur ávallt ein-
kennt stjórn Reykjavíkur, sem
þó hefur ráðizt í hvert stórátakið
á fætur öðru eins og hin fjöl-
mörgu dæmi sýna og sanna.
Heilsuverndarstöðin og hinn
glæsilegi íþróttaleikvagur í Laug a.ugum
ardalnum eru nærtækustu dæm-
in.
Oft hefur áróður glundroðaliðs
ins verið aumur, en aldrei eins
aumur og núna. Sparðatíningur
Tímans og Þjóðviljans um skrif-
stofubyggingu Hitaveitunnar,
malbikun Miklubrautarinnar og
núna seinast störf Loftvarnanefnd
ar sýnir aðeins, hve málefnasnauð
og ‘máttvana andstaðan er.
Fyrir seinustu kosningar voru
Sjálfstæðismenn skammaðir fyr-
ir að byggja ekki yfir skrif-
stofur sínar. Núna fyrir þessar
kosningar eru þeir aftur á móti
skammaðir fyrir að hafa byggt
þessar skrifstofur.
Kjósendur verða að gera sér
lj óst, að nýtilkomin breyting á
kosningalöggjöfinni og væntan-
leg framkvæmd „Gulu bókarinn-
ar“, þ.e.a.s. afnám eignarréttarins
á húsnæði og stofnun leiguliða-
stofnunar, er fyrsta skrefið í
sovjet-skipulagið. Það er sama,
hvað þeir heita þessir Sovjet-vin
I ir, hvort það er Alþýðubandalag-
| ið eða Framsóknarflokkur hvort
i það er Hannes fró Undirfelli eða
Brynjólfur Bjarnason, úlfurinn
J leynist updir sauðagærunni.
i Kosningarnar á sunnudag eru
því örlagaríkar. Það er kosið um,
t hvort á að beizla Reykvíkinga í
j Sovjet-skipulag undir samvirka
stjórn kommúnista og Framsókn
ar eða hvort hin frjálslynda
og stórhuga stjórn Sjálfstæðis-
manna á að vera áfram. Valið
ætti því að vera auðvelt.
Magnús Valdimarsson".
Mér hefur libið vel
j f Reykjavik
1 LISTAMAÐURINN Guðmundur
Einarsson frá Miðdal, segir:
„Þegar kjósa skal bæjarstjórn,
þá er það í mínum augum ekki
eingöngu stjórnmálalegs eðlis,
heldur mat á aðstæðum. Þetta
mat byggi ég ó viðkynningu
fjörutíu ára, og þeirri staðreynd,
að ég hefi kosið að búa í þessum
bæ og hvergi annars staðar. Að
mér og mínum hefir liðið vel hér
á SkólaVörðuhæðinni, þótt stund-
um hafi vantað vatn og ýmsu
sé áfátt um gatnagerð o. fl.
Á þeim áratugum, sem ég hefi
haft hér búsetu, hafa orðið mikl-
ar breytingar, og flestar til betri
vegar, og eru umskiptin ævin-
týraleg.
Miklar eru framfarirnar siðan
ég flutti mjólk á reiðingshestum
ofan úr Mosfellssveit til Jóns á
horninu (Jóns Þórðarsonar) eða
þegar ég reri með Ágústi í Lág-
holti móðurbróður mínum og
seldi fisk á götunum úr hjól-
börum.
Ég hefi fylgzt með þróuninni,
og tekið þátt í henni af litlum
mætti. Málefni Reykjavíkur hafa
verið mín málefni, þennan manns
aldur. Ég hefi átt mjög auðvelt
með að ákveða, hverjum ég hefi
gefið atkvæði mitt. Hefur þar
minna ráðið stjórnmálaskoðanir,
heldur hitt að bæjarmálum væri
stjórnað af hæfum og þjóðlegum
mönnum.
Nú, sem jafnan áður, er valið
milli hinna ráðandi manna og
ósamstæðra flokka. Annars veg-
ar einhuga flokkur með glögga
stefnuskrá byggða á mikilli
reynslu Hins vegar aðiljar, sem
fátt eiga sameiginlegt nema óska
drauma um völd. Má það ljóst
vera að slík samsteypa er ekki
líkleg til mikilla átaka.
Með heill Reykjavíkur fyrir
'5 rð v'’’ -firlögðu ráði,
flokkurinn hefúr haft stjórnar-
forystu hafa orðið stórstigari og
meiri framfarir til sjávar- og
sveita en nokkurn tíma áður hafa
þekkzt í þessu landi. Kjör fólks-
ins hafa verið bætt og jöfnuð,
og nú vex upp í landinu hraustari
og glæsilegri æska en nokkru
sinni fyrr.
Fólkinu er þetta ljóst, og fylkir
sér þess vegna undir merki SjáJf-
stæðisflokksins — undir merki
lýðræðisins til gróandi þjóðlífs,
þar sem ekki fær þrifizt illgresi
kúgunar og einræði.
Kristján Sveinsson".
Forysta i
byggingarmálum
GARÐAR PÁLSSON 1. stýrimað-
ur á Þór, Fornhaga 15, segir:
kýs eg t-vi D-listann, fullviss
þess að hann verði heilladrjúg-
ur. Hann ráði bæjarmálum, á
meðan heldur sem horfir.
Guðmundur Einarsson,
frá Miðdal“.
Frjálslyndur
umbótaflokkur
KRI’S'UrnN augnlækn
ir segir:
„Ég fylgi Sjálfstæðisflokknum
vegna þess að hann er frjáis-
lyndur umbótaflokkur, sem stuðl
ar að því, að lofa hæfileikum
einstaklinganna að koma fram,
og þroskast þjóðfélaginu til
gagns. Þau árin, sem Sjálfstæðis-
„Eg kýs Sjálfstæðisflokkinn í
fyrsta lagi vegna þess, að hann
er eini flokkurinn, sem berst fyr-
ir algjörlega frjálsu framtaki á
öllum sviðum þjóðlífsins. Það
hefur sýnt sig betur en bjart
sýnustu menn þorðu nokkurn
tíma að vona, hvers einstakling-
urinn er megnugur, ef honum er
aðeins búið frjálsræði í orði og
á borði.
I hinni hröðu uppbyggingu er
það ekki hvað sízt hin frjálsa og
óþvingaða stefna Sjálfstæðis-
manna í byggingarmálum, svo og
barátta flokksins fyrir skattfrelsi
af eigin vinnu við íbúðarbygg
ingar, sem markað hafa tímabó
í byggingarsögu borgarinnar.
Það er þessi stefna, sem fram-
kallað hefur það bezta, sem tú
er í mannfólkinu og gefið fólki
af öllum stéttum tækifæri til að
sýna, hvað inni fyrir býr.
Án þessarar stefnu hefði ekki
verið hægt að auka ár frá ári
uppbyggingu íbúðarhúsnæðis og
án hennar hefði fjöldinn allur af
fólki ekki haft tækifæri til að
eignast þak yfir höfuðið.
Það hefur oft verið deilt á
Sjálfstæðisflokkinn út af bygg-
ingarmálum af furðulítilli sann-
girni, en því er til að svara, að
sjón er sögu ríkari.
í öðru lagi er Sjálfstæðisflokk-
urinn eini flokkurinn, sem gerir
meira en að lofa framkvæmdum,
hann lætur framkvæma hlutina,
en ekki er hægt að segja
það sama um.hina flokkana.
Garffar Pálsson".
Engan glundroða
i stjórn borgarinnai
GUNNAR Steinþórsson, sjó-
maður, hefur að undanförnu unn_
ið í landi hjá Eimskip. Hann
segir:
„Sjálfstæðisfloltkurinn hefur
með forystu sinni í bæjarmálum
sýnt, að hann hefur verið verður
þess trausts, sem honum hefur
verið sýnt. Á skömmum tíma
hefur bærinn vaxið og dafnað ört,
og forystumenn bæjarfélagsins
hafa með dugnaði og elju veitt
Reykjavík þá umsjá, sem hún
hefur þarfnazt. Forystumenn
hinna flokkanna hafa engan þátt
átt í því mikla starfi, er hér hefur
verið unnið — og mælir þvi eng-
inn í mót, að Reykjavík er í dag
fyrirmyndarbær. Einmitt þess
vegna mun ég styðja Sjálfstæðis-
flokkinn, vegna þess að ég tel að
málefnum bæjarfélagsins sé bezt
borgið í höndum Sjálfstæðis-
manna. Glundroðastjórn „vmstri
flokkanna" dæmir sig sjálf, hún
hefur setið nógu lengi í stjórnar-
ráðinu til þess að sýna þjóðinr.i
hvað hún getur, hvað hún gerir
— og hvað hún mun gera Fg
skýs D-listann til að foiða
Reykjavík frá slíkri stjórn.
Gunnar Steinþórsson“.
Vel búið að
iðnaðinum
GUÐMUNDUR Guðmundsson
forstjóri trésmiðjunnar Víðis
segir:
„Ég fylgi Sjálfstæðisflokknum,
því að það er bezt fyrir þjóðar-
heildina, jafnt atvinnureltendur
sem launþega, að framtak og
frelsi einsiaklinganna fái að
njóta sín.
Því að höft og hömlur þess
opinbera leiða til erfiðleika og
vandræða fyrir atvinnuveginaþvi
að skattar og afskipti þess opin-
bera og hið fyrirferðarmikla
stjórnarbákn í fámennu landi
dregur úr afkomumöguleikum
almennings.
Því að bæjarstjórn Reykja-
víkur hefur jafnan reynt
að greiða fyrir atvinnuvegimum
og vegna þess ábuga, sem ég hef
á málefnum iðnaðarins hlýtur
það að gleðja mið sérstakiega, að
svo vel hefur verið að honum
búið í Reykjavík að um 40% bæj
arbúa lifa af iðnaði og að hann
er orðinn aðalatvinnuvegur
þeirra.
Guðmundur Guðmundsson".
Kópa-
vogur
KOSNINGASKRIFSTOFA Sjálf-
stæðisflokksins í Kópavogi er ða
Melgerði I. Opin frá kl. 10 til 10
daglega. Shnar: 19708 og 10248.
Stuðningsmenn D-listans i
Kópavogi. Ilafið samband við
skrifstofuna.