Morgunblaðið - 23.01.1958, Qupperneq 15
Fimmtudagur 23. jan. 1958
MORCUN BLAÐlh
15
/•
70 ára
Þorbjörg Eiríksdöttir
TÍMINN beljar áfram eins og
stórfljót í vorleysingum, og óðar
en varir er rösklega þriðjungur
aldar liðinn í haf tímans. Það er
snemma morguns miðvikudaginn
7. maí 1924. Úrsvalur kaldhrani
lemur vanga tveggja ferðamanna
sem verið hafa á ferð vestan yfir
Hellisheiði nóttina sem leið.
Fyrri hlutar nætur hafði verið
úrhells rigning en stytt upp með
morgninum og gekk nú á íkasts
hryðjum þegar fram á daginnleið
En stríði ferðalangaHna tveggja
er nú brátt lokið því í þessum
svifum þokast lest þeirra síðasta
spölinn heim traðirnar að lág-
reystu koti austur í Flóa, hreysi
sem þrátt fyrir lága grjótveggi og
flöt torfþök gefa þó kærkomið
fyrirheit um hvíld og nauðþurft-
ir munns og maga.
í bæjardyrunum tóku á móti
okkur tvær konur og nokkur
börn ung. Sú kvennanna er hér
á bænum skipar húsfreyju sess
fagnar þar bónda sínum en það
kemur íhlut vinnustúlkunnar að
taka á móti sveinstaulanum komn
um hátt á fimmtánda ár og sam-
ferða hafði orðið húsbóndanum
þessa löngu leið í sína fyrstu vist.
Hlýhugur og virðulegt fas vinnu-
stúlkunnar höfðu þau áhrif á
mig umkomulausan drenginn að
ég fann þar vin við fyrstu
kynni sem ég frá þeim degi hefi
mátt treysta skilyrðislaust. Enda
tókst strax með okkur, hin mesta
vinátta, sem síðan hefur þrátt
fyrir langar fjarvistir staðið
óhögguð til þessa dags.
Ég dvaldi að vísu ekki lengi á
þessu góða heimili en ég minnist
ávallt dvalar minnar þar sem
minnar beztu, og átti vinkona
mín sem að framan getur þar
góðan þátt í að svo varð. Kona
þessi er Þorbjörg Eiríksdóttir til
heimilis að Básenda 3 hér í bæ,
og í dag er hún sjötíu ára gömul.
Hún er fædd að Útverkum á
Skeiðum í Árnessýslu 23. janúar
1888. Foreldrar hennar voru Ei-
ríkur Vigfússon bóndi að Út-
verkum og kona hans Þuríður
Halldórsdóttir. Ég þykist vita að
stappi nærri óþökk vinkonu
minnar að ég geri þetta afmæli
hennar að blaðamat. En ég tek
þá raun á breitt bak mitt með
léttu sinni, þar sem mér þykir
í mesta máta ómaklegt að minn-
ast ekki þessarar ástsælu konu
með fáum orðum á þessum merku
tímamótum. Það hafa því miður
orðið sköp Þorbjargar að búa við
stopula heilsu mestan hluta ævi
sinnar en þrátt fyrir það þá hef-
ur hún unnið öll sín störf með
eljusemi og frábærri skyldu-
rækni og hollustu við yfirboðara
sína. Þorbjörg hefur ekki gert
víðreist um vistarfar um dagana
vistirnar hafa ekki orðið nema
tvær til þessa. Og ef allt fer að
vonum hennar gerir hún ekki
ráð fyrir öðru en að hin síðari
verði hin síðasta. Ung að árum
er hún fyrst hleypti heimdrag-
anum fluttist hún vistferlum til
Halldórs Gíslasonar bónda að
Haugaholti í Flóa og konu hans
Valgerðar Jónsdóttur. En síðasta
aldarfjórðung hefir hún dvalið
hjá Guðmundi Júlíussyni járn-
smiði og konu hans Jarþrúði
Vernharðsdóttur nú búsettum að
Básenda 3 í Reykjavík. Ung að
aldri var Þorbjörg heitþundin
ungum efnismanni en missti hann
eftir stuttar samvistir. Hún er,
því ógift og barnslaus. En hún
hefur gengið börnum húsbænda
sinna í móðurstað. Og víst er um
það að þau af börnunum er ég
hefi hitt að máli segjast ekki
bera minni ást til hennar en til
mæðra sinna. Sjálfur hefi ég not-
ið í ríkum mæli aðhlynnin^ar
hennar og hjálpsemi svo ég má
gjörla vita að ummæli barnanna
geti verið sprottin af sannri ást
og virðingu á konunni. Því er
það bæn mín til máttarvaldanna
að Þorbjörg megi það sem hún
á eftir ólifað búa við hamingju
og eftirlæti, og að heilsa hennar
verði eigi erfiðari henni í fram-
tíðinni en hún hefir verið hin
síðari ár. Að lokum vil ég yotta
þessari góðu konu virðingu mína
með alúðar þökk. Og það munu
vissulega allir aðrir gera sem átt
hafa því láni að fagna að eignast
vináttu hennar. Og þess vil ég
minnast í dag að það hefur drjúg-
um aukið hamingju mína að
mega telja mig í hópi vina henn-
ar, og því bið ég guð að blessa
hana.
Lifðu heil Þorbjörg mín, þess
biður vinur þinn.
Kristján Þórsteinsson.
Hurðarnafnspjöld
Bréfalokur
Skiltiigerðin, Skólavörðustíg 8.
Kristján Cuðlaugssor
hæsti-réUarlögmaður.
Skrifstofutími kl. 10—12 og 1—5.
Austurstræti 1. — Sími 13400.
Gís/f Einarsson
liéraðsdómslögmaður.
Málfjutningsskrifstofa.
Laugavegi 20B. — Sími 19631.
Eyfirðingafélagið
Þorrablót félagsins
verður haldið laugardaginn 1. febrúar 1958 í Sjálf-
stæðishúsinu. Húsið opnað kl. 6,30 e. h. Borðhald
hefst kl. 7,30. Aðgöngumiðar seldir í Hafliðabúð
Njálsgötu 1, dagana 29., 30. og 31. jan.
Verð að'göngumiða kr. 140.00.
Sýnið félagsskírteini og greiðið árstillag kr. 30.00.
Vegna mikillar eftirspurnar eru félagsmenn vinsam-
lega áminntir um að tryggja sér miða tímanlega.
Stjórnin.
Breiðfirðingafélagið
Hefur spilakvöld, fimmtudaginn 23. janúar
í Búðinni klukkan 8,30.
í kvöld hefst fyrsta 3ja-kvölda-spilakeppnin.
Góð verðlaun.
Stjórnin.
INGÓLFSCAFÉ INGÓLFSCAFÉ
Gomlu og nýju dansarnir
í Ingólfscafé í kvöld kl. 9.
Söngvarar Didda Jóns og Haukur Mortliens
Aðgöngumiðar seldir frá kl. 8. — Sími 12826
VEIKABGA K Ð U KIN N
DANSLEIKUR
í Vetrargarðinum í kvöld kl. 9.
Hljómsveit Vetrargarðsins leikur.
Miðapantanir i sima 16710, eflir kl. 8.
FIMMTUDAGUR
Gömlu dnnsurnir
AÐ ÞÓRSCAFÉ I KVÖLD KL. 9.
J. H. kvintettinn leikur.
Dansstjóri: Baldur Gunnarsson.
Aðgöngumiðasala frá kl. 5, simi 2-33-33
Silfurtunglið
Félagsvist í kvöld klukkan 8,30 i,
DANSAÐ Á EFTIR «
Dansstjóri: Helgi Eysteinsson.
— Ókeypis aðgangur —
Silfurtunglið.
Silfurtunglið
Félög, starfsmannahópar, skipshafnir, fyrirtæki og ein-
staklingar, við lánum út sal, sem tekur 150 manns í sæti,
til eftirfarandi afnota:
dansleikja, árshátíða, fundahalda, veizlna
og margt fleira.
Uppl. í símum 19611, 19965, 11378.
SILFURTU N G LIÐ,
Snorrabraut 37 (Austurbæjarbíó)
VÖRÐIJR - HVOT - HEIMDALLiiR - ÓÐIMN
Almennur kjósendafundur
Sjálfsiæðisfélögin í Reykjavík efna til almenns kjósendafundar í Sjálfstæðishús-
inu í kvöid kl. 8,30 e. h.
Ávórp flytja:
ólafur Thors, form. Sjálfstæðisflokksins
Auður Auðuns, forseti bæjarstjórnar
Úlfar Þórðarson, læknir
Birgir Kjaran, hagfræðingur
Sigurður Sigurðsson, yfirlæknir
Gísli Halldórsson, arkitekt
BjcVgvin Fredrikssen, verksmiðjustj.
Guðjón Sigurðsson, iðnverkamaður
Þorv. Garðar Kristjánsson, lögfræðingur
Gunnar Thoroddsen, borgarstjóri
AIH sfuðningsfólk lista Sjálfsfæðisflokksins velkomið á fundinn meðan húsrúm leyfir.
Sjálfsfæðisfélögin í Reykjavík.