Morgunblaðið - 23.01.1958, Side 18
18
MORCVTSBLADIÐ
Fimmtudagur 23. jan. 1958
Þungavinnuvélar
Sími 34-3-33
RAGNAR JÓNSSON
liæsturéttarlógmaður.
Laugaveg. 8. — Sími IV752.
Lögfræðistörf. — Eignaumsýsla.
Samkomur
K. F. U. K. — Ud.
Fundur í kvöld kl. 8,30. — Ný
framhaldssaga. Þorvaldur Búason
talar. Allar ungar stúlkur vel-
komnar. Gítaræfing kl. 7,30.
K. F. U. M. — Ad.
Fundur í kvöld kl. 8,30. Bene-
dikt Arnkelsson talar. Allir karl-
menn velkomnir.
HjálpræSisherinn
í kvöld kl. 20,30: Almenn sam-
koma. — Verið velkomin.
Keykjavíkurdeild A. A.
Samkoman er í kvöid kl. 8,30 í
Mjóstræti 3. — Stefán Runólfsson,
Litla-Holti.
Félagslíf
Knattspyrnufélagið Fram
Fjöltefli fyrir 3., 4. og 5. flokk
verður i félagsheimilinu, fimmtu-
dag kl. 8. Mætið stundvíslega og
hafið með ykkur töfl. — Stjó nin.
í})róllafélng kvenna
Ný fimleikanámskeið eru að
byrja hjá félaginu. Æfing í kvöld
kl. 8 í Miðbæjarskólanum. Innrit-
un á staðnum.
Skemmlun haldin í K.K.-húslnu
næstkomandi laugardag 25. janú
ar. — Skemmtiatriði. — Dans.
Körfuknattleiksdeild K.K.
Knallspj’rnufélagið Þróttur
Handknattleiksæfing hjá meist-
ara-, 1. og 2. fl. karla, í kvöld kl.
8,30. Síðasta æfing fyrir mót. —
Mætum allir. — Stjórnin.
Þjóðdansafélag Reykjavíkur
Engar æfingar sunnudag 26.
jan., vegna kosninganna í kvöld,
fimmtudag, í Skátaheimilinu kl. 8
gömlu dansarnir, kl. 9 íslenzkir
danzar og kl. 10 erlendir þjóð-
danzar. —
Frú Ghristine Tolt
Minning
Ármann — Handknattleiksdeild:
Á æfingunum í kvöld verða
leiknir þessir æfingaleikir: 1. 2. fl.
kvenna B gegn 3. flokki C kl. 6.
2. — 2. flokkur kvenna A gegn
3. flokki B kl. 6,30. — 3. Meistara
flokkur kvenna gegn 3. flokki A
kl. 7,00. — Mætið öll, og hafið
stundvísina með! — Þjálfarinn.
MIG setti hljóða er tengdadóttir
mín hringdi til mín síðla dags
16. þ. m. og mælti þessi orð:
„Mamma mín er dáin“.
Ég átti bágt með að trúa því,
að Christine Toft væri svo
skyndilega horfin sjónum okkar
fáum klukkustundum eftir að ég
hafði hlustað á hljómþýða rödd
hennar i sima. Er ég innti hana
frétta af líðan hennar og fjöl-
skyldunnar var svarið: „Allt gott
að frétta“. En skömmu síðar kom
kallið sem enginn fær umflúið.
Og það minnir mann stöðugt á þá
óumflýjanlegu staðreynd, að
skammt er milli lífs og dauða.
Frú Christine Toft var fædd 3.
desember 1903 í Liibeck í Þýzka-
landi. Ólst hún þar upp með for-
eldrum sínum, en fliuttist til ís-
lands árið 1923 og giftst þá eftir
lifandi manni sínum, Hartvig
Toft kaupmanni. Giftu þau sig á
ísafirði, en þar starfaði Hartvig
Toft við Braunsverzlun. Fljótlega
fluttu þau til Reykjavíkur, og
hafa átt þar heimili síðan.
Frú Christine og Hartvig Toft
eignuðust fjórar dætur, Sigríði,
gift Einari Þorsteinssyni trésmið
í Keflavík, Irmy, gift Lofti Jó-
hannessyni flugstjóra, búsett í
Lundúnum, Margréti og Önnu,
báðar á æskuskeiði í föðurhúsum.
Christine Toft var frábær móð-
ir og húsmóðir. Heimilið var
hennar ástfólgni reitur. Því fórn-
aði hún öllu sínu kærleiksþeli og
umönnun, og manni sínum og
dætrum var hún allt í öllu. Það
var öllum kunnugt, sem fjöl-
skylduna þekkja, að samlíf henn-
ar var til fyrirmyndar. Þar ríkti
andi góðvildar, prúðmennskú og
reglusemi. Frú Christine var
þeim kostum prýdd, sem mestir
eru og beztir í fari húsmóður, til
þess að skapa hina sönnu heimilis
hamingju. Utan heimilis var hún
hlédræg kona og barst lítt á. En
glöð var hún í góðum gestahóp
á heimili sínu og meðal vina
sinna einnig utan þess. Hún var
sannur vinur vina sinna og tók
ríkan þátt í sorgum þeirra og
gleði, og var ætíð reiðubúin til
liðsinnis þeim.
í dag er Christine Toft til mold-
ar borin. Hennar mun sárt sakn-
I. O. G. T.
St. Andvari nr. 265
Fundur í kvöld kl. 8,30. Inn-
taka. Hagnefnd annazt skemmti-
atriði. Fjölsækið. — Æ.t.
Stúkan Frón nr. 227
Fundur í kvöld kl. 8,30, á Frí-
kirkjuvegi 11. Vígsla nýliða. —
Kaffi og spilakvöld. — Æ.t.
að af ástvinum og öðrum sem
hana þekktu. En þakka ber þær
stundir, er hún var meðal okkar.
Ástvinamissir verður hlutskipti
flestra, sem til aldurs komast.
Það lífsins lögmál verður ekki
umflúið. „Ég í dag, þú á morgun",
má oftast segja að eigi þar við.
Þessi góða kona varð mér kær-
ari því nánar sem ég kynntist
henni.
Blessuð sé minning hennar.
Bjarnveig Bjarnadóttir.
Níu kosningaskrifsfofur
Sjálfstœðismanna
víðs vegar um bœinn
Nes- og Melahverfi
I KR-húsinu (inngangur frá Granaskjóli). Sími 1-30 97. —
Opin kl. 5—10 e. h.
Miðbærinn (frá Óffinsgötu aff Affalstræti).
Að Skólavörðustíg 17. Sími 2-44-59. Opin kl. 2—6 og 8—10 e. h.
Vesturbær
Að Ægisgötu 10. Sími 1-12-88. Opin kl. 2-
-6 og 8—10 e. h.
Austurbær
Að Hverfisg. 42 (2. hæð). Sími 1-47-22. Opin kl. 2—10 e. h.
Hlíffa- og Holtahverfi
Að Miklubraut 50. Sími 1-17-79. Opin kl. 2-
-6 og 8—10 e. h.
Að Miklubraut
kl 5—10 e. h. —
15
Norffurmýri.
(Rauöarárstígsmegin).
Sími 1-48-69. Opin
Langholts- og Vogahverfi
Að Sigluvogi 15. Sími 3-31-59. Opin kl. 10—12 f. h. og kl. 2—ð
og 8—10 e. h. —
Laugarneshverfi
Að Sigtúni 23. Sími 3-41-81. Opin kl. 2—6 og 8—10 e. h.
Smáíbúffa-, Bústaffa- og Blesugrófahverfi
Að Sogavegi 94. Sími 1-86-47. Opin kl. 2—6 og 8—10 e. h.
O—ooáoo—O
í skrifstofunum liggja frammi kjörskrár, og eru þar gefnar allar
upplýsingar, er kosningarnar varða. Sjálfstæðismenn eru hvattir
til að hafa samband við skrifstofurnar í hverfum sínum hið fyrsta.
Höfnuborgin og
:ooin
AF hálfu Framsóknarflokksins . Jafnvel fjöllin í kringum
hafa Reykvíkingar búið við stanz Reykjavik hafa orðið að gjalda
Sími Splfstæðisilokksins
í Njorðvíkarhieppi er 210
laust níð í meir en 40 ár, eða frá
því dagblað flokksins var stofn-
að. Nýyrði hafa verið mynduð
til þessarar iðju, því jafnvel ís-
lenzk tunga dugði ekki til, svo
mögnuð var óvildin til Reykja-
víkur. Það hugarfar, sem hér um
ræðir, er hið mesta ómenningar-
tákn og óþekkt fyrirbrigði meðal
menningarþjóða. Allir menn í
brezka heimsveldinu, til dæmis
að taka, hugsa hlýtt til hinnar
gömlu Lundúnaborgar, og hvar
á byggðu bóli fyrirfinnst sá
fransmaður, að hann ekki bók-
staflega elski París og sé stoltur
af höfuðborg föðurlandsins?
Hvaða ítali rægir Rómaborg?
Hvenær hýrnar ekki yfir svip
hins færeyska fiskimanns, þeg-
ar minnzt er á Þórshöfn, þetta
svipfagra þorp með glæsilegu út-
sýni og undarlega miklum og
fögrum trjágróðri.
Reykjavík er að vísu heldur
ekki stór, en hún er samt höf-
uðborg, ekki aðeins fyrir Reyk-
vikinga eina, heldur fyrir alla
landsmenn. En níðið hefir dunið
á henni og íbúum hennar. Hve
nær sem vanmetakindur utan af
landsbyggðinni hafa komið til
Reykjavíkur til þess að fremja
óhæfuverk og auðgunarbrot,
sem jafnan er hægra um vik að
koma fram í fjölmenni, heldur
en fámenni, og þegar þeir hinir
sömu hafa verið gripnir og dregn
ir fyrir lög og dóm, þá hefir að
minnsta kosti undirtónninn jafn-
an verið hinn sami í blaðakosti
Framsóknarflokksins: Þarna er
Reykvíkingum rétt lýst.
óvildarinnar. Esju, er Einar Bene
diktsson kvað um eitt sitt bezta
kvæði, var nýlega líkt við illa
gerðan fjóshug, sem væri að síga
út á allar hliðar. Þau orð voru rit
uð í Tímann af einum uppvax-
andi ælingja Framsóknarflokks-
ins.
Þess skal þó minnzt, bænda-
stéttinni til verðugs lofs, hve lítt
hún hefir látið þessa sálsýki á
sig fá. Gestrisnin forna verður
t. d. aldrei af henni nídd. Þeir
eru heldur ekki fáir þeir Reyk-
víkingar, sem eiga sína beztu
kunningja og vini meðal bænda
og sveitamanna, og þegar þeir
eru sóttir heim í sveitir lands-
ins, verður þess sjaldnast vart
að þeir telji sig neinn sérstakan
kynflokk, eða neina sérstaka yfir
þjóð í landinu. Það er stjórn
Framsóknar og blaðakostur henn
ar, sem staðið hefir fyrir þessari
iðju. Hún hefir m. a. átt að þjóna
því formáli, að hræða fólkið frá
því að flytjast til Reykjavíkur,
og halda því í hinu svonefnda
dreifbýli, en það er mál út af
fyrir sig. En svo hláleg hefir
raunin á orðið, að einmitt þeir
framámenn flokksins, sem hæzt
hafa hrópað um jafnvægi í byggð
landsins, hafa sjálfir, að miklum
meirihluta, hreiðrað um sig hér
Tilkynning
írá Vinnuveitendasambandi Islands
Að gefnu tilefni viljum vér minna vinnuveitendur á
að samkvæmt lögum og reglugerð útgefinni af félags-
málaráðuneytinu um skyldusparnað, ber vinnuveitendum
að greiða 6% af kaupi starfsfólks síns á aldrinum 16—25
ára, með sparimerkjum, að viðlögðum sektum.
Vinnuveitendur gæti þess við launagreiðslur á föstu-
daginn.
Vinnuveitendasamband íslands.
.s. Turagufoss
Fer frá Reykjavík fimmtudag-
inn 23. þ.m. til Vestur- og Norður
lands. — Viðkoinuslaðir:
Flateyri,
ísafjörður,
Siglufjörður,
Akureyri,
Húsavík.
H.f. Einiskipafélag íslands.
kringum ríkisjötuna, í ljósinu fr&
Soginu og ylnum af hitaveitunni,
já, flutt sig frá höfuðbólum úr
framsóknarkjördæmum og beint
undir stjórn þess illa „íhatds" í
Reykjavík. Þeir hafa búið um sig
í auðmannahúsum með koparþök
um og öllum íburði, langtum dýr
ari húsum en þeim, sem Fram-
sóknarmenn skömmuðust mest
yfir á sínum tíma að reist hefðu
verið í Reykjavík, Hinir, þeir ó.
breyttu liðsmenn, áttu aftur á
móti að viðhalda hinu óspillta
sveitamannablóði og vera auk
þess til taks, auðsveipnir og þæg-
ir, þegar á þeim þurfti að halda,
svona fjórða hvert ár.
Utan um starfsemi Sambands-
ins og útgreinar þess hefir flokk-
urinn eignast hreint málalið hér
í borg. Þetta málalið býst nú til
bardaga til þess að vinna Reykja-
vík með álíka ósamstæðum flokk
um og þeim, sem standa að nú-
verandi ríkisstjórn.
Illyrði Tímans út í Reykvík-
inga hafa hjaðnað í þessum mán-
uði, orð eins og Grímsbæjarlýður
heyrist þar ekki nefnt á nafn, en
hætt er við að Framsóknarmenn
fái málið aftur eftir kosningar.
Reykvíkingar, látið ekki stund
arfagurgala þessara manna á ykk
ur fá. Lofið þessum flokki að sitja
að atkvæðum sinnar eigin
fimmtu herdeildar. Hvert at-
kvæði sem flokkurinn fær þar
fram yfir má teljast skömm höf-
uðborgarinnar.
— K.H.F.
i kvöld verffur næstsíffasta sýning á leikriti Carlz Zuc*vi.,„j
„Ulla Windblad“. Hér á myndinni sjást Ulla (Herdís Þorvalás-
dóttir), KarJotta von Scliröderheim (Guffbjörg Þorbjarnar-
dóttir) og Gústaf konungur III. (Haraldur Björnsson).