Morgunblaðið - 23.01.1958, Page 20
18. tbl. — Fimmtudagur 23. janáar 1958.
Takmark vinstri gtundroðans:
Kommúnistar forystuflokkur í vinstri
stjórn í Reykjavík
Yfirlýsing fulltrúa Ey-
sfeins í útvarpinu
Alh lýðræðissinnað og frjálslynt fólk
verður að sameinast um D-listann
1 ÚTVARPSUMRÆÐUNUIVt um bæjarmál Reykjavíkur í fyrra-
kvöld gerðist það m. a. að sérlegur fulltrúi Eysteins Jónssonar
á lista Framsóknarmanna lýsti því yfir, að takmarkið væri nú að
mynda vinstri stjórn um framkvæmd bæjarmála Reykjavíkur.
Ef glundroðaliðið næði þessu takmarki sínu þýddi það, að
kommúnistaflokkurinn væri orðinn forystuflokkur í bæjarstjórn
Reykjavíkur, þar sem þeir eru langsamlega stærsti andstöðuflokkur
Sjálfstæðismanna.
Einstætt ábyrgðarleysi
Tímamanna
Þessi yfirlýsing Tímamannsins
í útvarpsumræðunum er í fullu
samræmi við það ábyrgðarleysi
og hatursáróður, sem einkennt
hefur alla baráttu Framsóknar-
flokksins undanfarið. Fyrst leið-
ir Hermann Jónasson kommún-
ista til sætis í ríkisstjórn. Síðan
gerir hann bandalag við þá í
verkalýðsfélögunum, nú síðast i
Dagsbrún, til þess að bjarga
skinni þeirra þar, og loks lætur
Eysteinn Jónsson fulltrúa sinn
lýsa því yfir, að takmarkið sé að
gera kommúnista að forystu-
flokki í bæjarstjórn höfuðborgar-
innar, ef glundroðaliðið fái meiri
hluta!
Allir lýðræðissinnar
verða að snúa bökum
saman
Gegn þessu svívirðilega og
þjóðhættulega ráðabruggi
Tímamanna og kommúnista
verða allir heiðarlegir og
ábyrgir lýðræðissinnar í
Reykjavík að snúast. Frjáls-
Sæmilegur afli í des.
BOLUNGARVÍK, 22. jan. —
Sæmilegar gæftir voru hér í
desember, en harðsótt var. Var
afli bátanna sem hér segir: Hug-
rún með 81 tonn í 19 róðrum,
Einar Hálfdáns 86 tonn í 18 róðr-
um og Þorlákur með 89 tonn í
18 róðrum. Minni bátar voru með
10—12 tonn í álíka mörgum róðr-
um í desember-mánuði.
lynt og lýðræðissinnað fólk,
hvar í flokki, sem það stendur,
verður að sameinast í barátt-
unni gegn þeirri hættu, sem
bænum er búin af samsæri
kommúnista og Tímamanna.
Takmarkanir þær á kosninga-
réttinum, sem vinstri stjórnin
samþykkti á Alþingi fyrir jól-
in voru aðeins einn liður í
moldvörpustarfinu gegn hags-
munum Reykvíkinga. Komm-
únistar hafa alls staðar byrj-
að valdaferil sinn á því að
skerða rétt fólksins til þess að
Styrkjum
flokks-
s/óðinn
FJÁRÖFLUNARNEFND
Sjálfstæðisfélaganna í Reykja
vík gengst nú fyrir almennri
fjársöfnun í kosningasjóð. —
Menn eru vinsamlega beðnir
að koma framlögum sínum í
skrifstofuna í Sjálfstæðishús-
inu við Austurvöll eða
hringja í síma 17100. Verða
framlögin þá sótt.
Reykvíkingar! Lokasóknin
er hafin. Styrkið kosninga-
sjóðinn.
Telpan sleit sig lausa og
hljóp fyrir strœtisvagn
KLUKKAN tæplega hálf átta í
gærkvöldi varð slys á Miklubraut
inni neðanverðri. Fimm ára telpa
Sylvía Hrönn Kristjánsdóttir,
Lambhól á Seltjarnarnesi, sem
var þar á ferð með eldri systur
sinni, sleit sig af henni, stökk út
á akbrautina og varð þá fyrir
strætisvagni. Var hún flutt í
slysavarðstofuna. Seint í gærkv.
höfðu meiðsli litlu telpunnar ekki
verið könnuð til hlýtar.
Systurnar voru staddar á spild
unni milli akbrauta Miklubrautar.
Strætisvagninn var á leið inn í
bæinn, fullur af farþegum. Vagn-
stjórinn telur sig hafa séð telpuna
koma hlaupandi í veg fyrir vagn-
inn. Kveðst hann þá hafa hemlað,
en vagninn rann áfram því ísing
er á götunni. Var bíllinn nær
stöðvaður, er framstuðari hans
rakst á telpuna, var á hlaup-
um, en hún kastaðist við það L'á
honum. Vagnstjórinn snaraði sér
þegar út, og lá þá telpan rétt við
kjósa. Síðar hafa þeir svo af-
numið hann með öllu þegar
þeim hafði tekizt að hreiðra
nægilega vel um sig.
í „höfuðstöð“
samvinnustefnunnar
Samvinna Framsóknar við
kommúnista í verkalýðsfélögun-
um og sú ákvörðun þeirra að
berjast fyrir því að gera komm-
únista að forystuflokki í bæjar-
stjórn Reykjavíkur, er greinileg-
ur vottur þess að Framsóknar-
flokkurinn er fullur örvæntingar
og uggs um afleiðingar ábyrgðar-
leysis síns. Hann veit að hundruð
lýðræðissinnaðra manna, sem áð-
ur hafa fylgt honum, snúa nú við
honum bakinu. Jafnvel á Akur-
eyri, sem Tímamenn hafa kallað
„höfuðstöð samvinnustefnunnar",
hafa Framsóknarmenn nú lýst
yfir stuðningi og samvinnu við
kommúnista.
Þessum nýju viðhorfum
hljóta allir heiðarlegir lýð-
ræðissinnar að mæta með því
að fylkja sér um Sjálfstæðis
flokkinn og D-listann.
Kosninga-
bókin afhent á
hverfisskrif-
stofunum
KOSNINGABÓK Sjálfstæðismanna
„Reykjavík 1958“ hefur verið bor
in til Reykjavíkinga undanfarna
daga. í bókinni er í máli og mynd
um fjallað um störf og stefnu
Sjálfstæðismanna í bæjarmálum
höfuðstaðarins. Þeir, sem enn hafa
ekki fcngið „Bláu bókina“, geta
vitjað hennar í hverfaskrifstofur
Sjálfstæðismanna í borginni, mcð-
an upplagið endizt.
bílinn, grátandi og blæddi úr
nefi hennar og munni. Vav henni
hagrætt á slysstaðnum og síðan
beðið unz sjúkraliðið kom á vett-
vang og flutti hana í slysavarð-
stofuna sem fyrr greinir. Var
telpan enn til rannsóknar seint í
gær&völdi.
Rannsóknarlögi-eglan vill biðja
•þá er kynnu að hafa verið á göt-
unni og sáu er slysið varð, að gefa
■sig fram.
Bæjarmál
Hafnarfjarðar
HAFNARFIRÐI — I kvöld
verða útvarpsumræður um
bæjarmálin og hef jast þær kl.
8. Verður útvarpað á 210 metr
um. Flokkarnir munu tala i
þessari röð: Alþýðubandalag,
Framsóknarflokkur, Alþýðu
flokkur, Sjálfstæðisflokkur.
Björgvin
Guðjón
Þorv. G.
Gunnar
Reykvikingar !
Fram fil
sigurs
Síðasti kjósendafundur Sjálf-
stæðisfélaganna í
Reykjavík er í kvöld
„25 króna
velton“
ÞEIR, sem hafa fengið áskorun
um að taka þátt í 25 króna velt-
unni eru vinsamlega beðnir að
gera skil þegar í stað. Nú er svo
skammt til kosninga, að of seint
er orðið að skora á aðra, en fram
lögunum er veitt viðtaka í Sjálf-
stæðishúsinu við Austurvöll kl.
9—7 (símar 17104 og 16845).
Fereldroniir
bendi börnnnnni
á bættuna
SÚ deild rannsóknarlögregl-
unnar, sem fjallar um slys á
götum bæjarins og bíla-
árekstra, hefur beðið Mbl. að
beina orðum sínum til foreldra
og aðstandenda barna og
unglinga hér í bænum, út af
þeim hættulega leik að láta
bíla draga sig eftir svelluðum
og snæviþöktum götunum.
Svo mikil brögð eru að þessu
nú að líkast er sem faraldur
væri. Er um að ræða börn á
öllum aldri, allt frá 6—7 ára
snáðum, sem reyna að vera
„kaldir“. Hefur það ekki að
sjá, haft mikil áhrif þó fregn-
ir hafi nú borizt um mann-
tjón af völdum þessa. Er nauð-
synlegt, sagði rannsóknarlög-
reglan, að foreldrar tali um
fyrir börnum síivum og geri
þeim grein fyrir hættunni,
sem af þessu stafar.
ÖLL HIN FJÖGUR félög Sjálfstæðisfólks í Reykjavík efna
til almenns kjósendafundar í Sjálfstæðishúsinu i kvöld kl.
8,30. Er það síðasti almenni fundurinn sem Sjálfstæðismenn
i borginni halda fyrir bæjarstjórnarkosningarnar. —- Flutt
verða 10 stutt ávörp. Til máls taka:
Ólafur Thors, formaður Sjálfstæðisflokksins,
Auður Auðuns, forseti bæjarstjórnar,
Úlfar Þórðarson, læknir,
Birgir Kjaran, hagfræðingur,
Sigurður Sigurðsson, yfirlæknir,
Gísli Halldórsson, arkitekt,
Björgvin Frederiksen, verksmiðjustjóri,
Guðjón Sigurðsson, iðnverkamaður,
Þorvaldur Garðar Kristjánsson, lögfræðingur,
Gunnar Thoroddsen, borgarstjóri.
Stuðningsmenn D-listans, fjölmennið á fundinn. — Hevðið
lokasóknina.
SIGUR D-LISTANS ER SIGUR REYKJAVÍKUR.
Eldur í íbúðar-
húsi í Gufunesi
ITM KLUKKAN 2 í gær var
slökkviliðið kallað upp í Gufunes.
Rétt fyrir utan girðinguna kring-
um Áburðarverksmiðjuna, standa
lítil einlyft íbúðarhús nokkurra
starfsmanna verksmiðjunnar og
var eldur í einu þeirra. Var eldur-
inn uppi í risi hússins. Varð að
rjúfa gat á þakið til að slökkva
hann. Þarna býr Einar Þ. Jóns-
son. Urðu skemmdir nokkrar á
húsinu, af eldi reyk og vatni.
□-
-□
Sjálf-
boðaliöar
SKRÁSETNING á sjálfboðalið-
um, seiu vinna vilja fyrir D-
listann á kjördagi fer daglega
frani í skrifstofu Sjálfstœðis-
flokksins í Sjálfstæðisliúsinu.
—— Stuðningsmenn D-listans,
fjölmennið til starfa — og
hrindið með því árásinni, sem
nú er gerð á borg ykkar.
D---------------------------D