Morgunblaðið - 25.01.1958, Blaðsíða 3
Lflt$gardagur 25. janúar 1958
MORGUN BLAÐIÐ
3
*, \ „■ -
ÞESSI mynd er tekin við hin
miklu hátíðahöld kommúnista i
Moskvu í tileíni 40 ára hylting-
arafmælisins á sl. hausti. En til
þeirra voru boðnir formenn
kommúnistaflokka víðsvegar frá
úr heiminum, m.a. Jieir Einar Ol-
geirsson, formaður „Sameining-
arflokks alþýðu — sósialista-
flokksins“ og Hannibal Valdi-
marsson, formaður „Alþýðu-
bandalags" íslenzkra kommún-
ista.
Á þessari mynd sjást nokkrir
kommúnistaleiðtoganna undir
risa brjóstmynd af Lenin, m.a.
Einar Olgeirsson forseti Neðri
deildar Alþingis. Er hann annar
maður frá hægri í fimmtu röð,
rétt fyrir aftan sjálfan Nikita
Krusjeff, sem situr í annarri röð,
þriðji frá hægri. í sömu röð, hins
vegar við blómapallinn situr Go-
mulka frá Póllandi. í öftustu röð
til vinstri situr Gromyko utan-
ríkisráðherra Rússa, beint fyrir
aftan Gomulka.
t ræðustólnum stendur Mao
Tse-tung og segir hinum hátt-
settu „féiögum“ að það sé „helg
skylda þeirra“ að halda sem bezt
saman. í þessum hóp eru saman
komnir hinir kommúnísku böðl-
ar þeirra þjóða, sem Rússar hafa
undirokoð í Evrópu. Einari OI-
geirssyni, formanni íslenzka
kommúnistaflokksins er skipað
til hins mesta virðingarsætis með
al þeirra, rétt hjá sjálfum
Krusjeff, enda er hann forseti
Neðri deildar hinnar íslenzku
löggjafarsamkomu, kosinn af Al-
þýðuflokksmönnum og Fram-
sóknarmönnum. f þessum hópi
hinna blóðugu kúgara Austur-
Evrópu virðist fara vel um for-
mann íslenzka kommúnistaflokks
ins. Hann er þarna með sínum
réttu sálufélögum. En hér heima
reynir hann að breiða yfir nafn
og númer óg lætur pólitíska vind
hana eins og Hannibal og Alfreð,
stofna „Alþýðubandalag" til
þess að dylja hin kommúnísku
úlfshár. En þessi mynd tekur af
allan vafa um það í augum ís-
lenzks fólks, hverskonar flokk-
ur það er, sem Einar Olgeirsson
er formaður í: Það er harðsoðinn
kommúnistaflokkur, sem lýtur
boði og banni hinnar blóðugu
ógnarstjórnar í Moskvu.
Enginn Reykvíkingur getur
óskað þess að slíkur flokkur verði
forystuflokkur bæjarstjórnar höf
uðborgarinnar. Enginn Reykvík-
ingur vill að sálufélagar Kadar-
stjórnarinnar og mannanna i
Kreml taki við stjórn Reykja-
víkur. Þess vegna hljóta allir
lýðræðissinnar að sameinast um
D-LISTANN á morgun.
(Hvíta örin bendir á Einar OI-
geirsson).