Morgunblaðið - 25.01.1958, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 25.01.1958, Blaðsíða 11
Laugardagur 25. janúar 1958 MORGVNBLAÐIÐ 11 Horít um oxL Gufustrókarnir á Reykjium stíga til himins óbeizlaðir. — Nú streymir heita vatniS til Reykjavíkur og hitar upp þúsundir heimila í baen- um. Á næsta ári verða 5.600 íbúar Hlíðahverfisins aðnjótandi hitaveitunnar. Með orku frá Krýsuvík væri hægt að hita öll hús í Reykja- vík, Hafnarfirði og Kópavogi Annáll Hitaveitunnar /arð- Visindaleg leit og rannsókn hitans í bæjarlandinu Rætt við formann Hifaveitunefndar HITAVEITAN er nú, eins og á undangengnum tíma, eitt mesta áhuga- mál bæjarbúa. Hitaveitan barf að ná til alls bæjarins og er stefnt að því, eins og áð- ur, af ráðamönnum Reykj avíkurbæ j ar. Vísindaleg leit að heitu vatni fer fram í bæjar- landinu og Reykj avíkur- bær hefur hafið samn- ingaumleitanir við Hafn- arfjörð um beizlun ork- unnar í Rrýsuvík. Minnihlutaflokkarnir 1 bæjarstjórn hafa í blöð- um og á mannafundum þyrlað upp miklu rvki um Hitaveituna, en bað verður ekki tekið til með ferðar hér, enda hefur það sem máli skintir af þeim áróðri, verið hrak- ið áður hér í blaðinu. Morgunblaðið hefur snúið sér til Árna Snæv- arrs, verkfræðings, sem er formaður Hitaveitu- nefndar Reykjavíkur og beðið hann um upnlýsing ar um bað. hvað áunnizt nafi í málefnum Hitaveit unnar á síðustu árum og hver séu helztu framtíð- arverkefnin. • © Eins og kunnugt er, var lagn- ingu hitaveitunnar lokið árið 1944 Nokkru síðar voru keypt hita- réttindi í Mosfellsdal og borun hafin þar. Eftir að borað hafði verið til þrautar í Reykjasvæðinu, var horfið að því að byi'ja mjög víð- tæka vatnsleit á bæjarlandinu sjálfu. Var þar um að ræða vís- indalega leit, sem stjórnað var af sérfræðingum og hafa verið gerðar fjölda margar rannsóknar boranir í því sambandi. Við þessa leit hefur fundizt nýtt vatn, svo sem við Höfða, Fúlutjörn og Sundlaugarnar og nemur það vatnsmagn, sem þar hefur feng- izt alls um 25 sek. 1. Á undanförnum árum hefur þessari vatnsleit stöðugt verið haldið áfram og rannsóknarbor- anir gerðar á svæðinu frá Laug- ardal og suður í Fossvog og frá Breiðholti og allt út í Örfiris- 1928 1930 1933 1935 1937 1939 1943 1945 1946 1947 1948 1949 1951 1952 1953 1954 1955 1956 1957 Boranir hófust í Þvottalaugunum. Hitaveita frá Þvottalaugunum tekin í notkun. Samið um hitaréttindi á Reykjasvæðinu og boranir hafnar þar. Keypt hitaréttindi á Reykjasvæðinu. Lokið frumáætlun um hitaveitu frá Reykýum. Samið um byggingu Reykjaveitunnar og vinna hafin. Reykjaveitan tekin í notkun. Nýr hitaveitugeymir tekinn í notkun. Rauðarárveitan byggð og tekin í notkun. Keypt hitaréttindi í Mosfellsdal. Tveir nýir hitaveitugeymar teknir í notkun. Boranir hófust í Mosfellsdal. Eimtúrbínustöð tekin í notkun. Súrefniseyðingarstöð tekin í notkun. Þrýstiloftskerfi byggt að Reykjum. Reykjahlíðarveita tekin í notkun. 1050 hestafla Dieselrafstöð tekin í notkun að Reykjum. Fjarstýritæki fyrir Reykjahlíðarstöð tekin í notkun. Nýr hitaveitugeymir byggður. Keypt hitaréttindi í Helgafellslandi. Hitaveita lögð í Háskólahverfi, Hagamel og Melhaga. Hafin vísindaleg rannsókn í bæjarlandinu til að finna heitt vatn. Nefnd sérfræðinga til að gera tillögur um málefni Hitaveitunnar stofnuð. í henni eiga sæti Árni Snævarr, verkfr., formaður, Gunnar Böðvarsson, verkfr., Val- geir Björnsson, hafnarstjóri, Sig. Thoroddsen, verkfr., Ólafur Pálsson, verkfr., Helgi Sigurðsson, hitaveitu- stjóri. og Steingrímur Jónsson, rafmagnsstjóri. Jarðboranir við Höfða og Sundlaugar. Rannsóknar- boranir gerðar víða i bæjarlandinu. Með bomnum fást um 10 sek. 1. af heitu vatni við Höfða og tengt Hitaveitunni. Framkvæmdir liafnar við Hlíðaveituna. Stofnað sameignarfélag bæjar og ríkis um kaup á stórvirkum gufubor. Leitað samkomulags við Hafnarfjörð um sameiginlega virkjun orkunnar í Krýsuvík. Jarðboranir við Fúlutjörn, þar sem upp komu um IX sekl. af heitu vatni. Hafin lagning hitaveitu í Höfðaliverfi. GufUborinn kemur til landsins. Haldið áfram samkomulagsumleitunum við Hafnfirð- inga út af Krýsuvík. Öll árin síðan 1954 hefur verið haldið áfram vísinda- legum rannsóknum á jarðhita í bæjarlandinu og ná- grenni þess. eftir að fá að kaupa nýjan bor til að geta leitað dýpra, en leyfi til að flytja inn slíkan bor nefur ekki fengizt. Til grundvallar allri þessari víðtæku leit og rannsóknum í bæjarlandinu liggur sú nauðsyn að ganga til fullnustu úr skúgga um þá möguleika sem kunni að vera til að fá aukið heitt vatn í bæjarlandinu sjálfu, jafnframt því sem rætt er um beizlun jarð- hitaorku utan við bæjarlandið. eins og síðar verður komið að. Nýja hitalindin hjá Fúlutjörn í ReyKjuv.. ey. Þessar rannsóknir hafa þeir haft með höndum Gunnar Böð- varsson, verkfræðingur, og próf- essor Trausti Einarsson. Eins og pú stendur er borað á Höfðasvæðinu, við Steintún og við Sigtún. Ennfremur er veriC að bora nýja holu nálægt Nóa- túni, og á að dýpka þá holu þegar nýi gufuborinn verður tekinn 1 notkun, Allar þessar boranir í bæjarlandinu hafa verið fram- kvæmdar með hinum gömlu bor um Hitaveitunnar, sem ná t; k- markaðri dýpt. en æskilegt er að hafa tæki til að bora enn dýpra, þar sem margt bendir til að auk- inn hiti gæti þá fengizt. í því sambandi má benda á, að borhola við Sundlaugaveg, sem varð um 690 metra djúp, var 124 gráða heit í botni og gefur það nokkra bendingu í þessa átt. . Með þetta fyrir augum hefur IHitaveitan mjög eindregið óskað Nýi gufuborinn Sumarið 1955 lagði Hita- veitunefnd til við bæjarráð, að fenginn yrði til landsins stór- virkur bor til gufuborunar og síð ar sama ár jafnframt að leitað yrði samninga við Hafnarfjarðar- kaupstað um virkjun í Krýsuvík, Framhald á bls. 18.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.