Morgunblaðið - 25.01.1958, Blaðsíða 10
10
MORCVNBLAÐIÐ
L'augardagur 25. fanúar 1958
Utg.: H.f. Arvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Aðairitstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.)
Bjarni Benediktsson.
Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Einar Asmundsson.
Lesbók: Arni Öla, sími 33045
Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn: Aðaistræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Askriftarg.ialri kr. 30.00 á mánuði innaniands.
í lausasölu kr. 1.50 emtakið.
NU ER ÞAÐ KJOSENDANNA
AÐ SEGJA TIL
IITAN IIR HEIMI
jr-
Ur ýmsum áttum
ANDSTÆÐINGAR Sjálf-
stæðismanna hófu ráða-
gerðir sínar um sóknina
gegn Reykjavík tímanlega að
þessu sinni og þóttust semja þær
af mikilli undirhyggju.
Þó nokkuð á annað ár er t. d.
liðið síðan umleitanir um sam-
eiginlegt framboð þeirra alira
byrjuðu. Stóðu þær síðan allt
þangað til viku áður en fram-
boðsfrestur rann út, en eitthvað
af þátttakendunum heltist að
vísu úr lestinni á miðri leið.
1 beinu framhaldi þessara um-
leitana var löggjöfin um kosn-
ingahömlurnar sett nú rétt fyrir
jólin. Sú lagasmíð er að vísu
ekki nema svipur hjá sjón miðað
við það, sem í fyrstu var ætlað
Enn er það samt glöggt hvað
þeir vilja. Tilgangurinn er sá,
að gera rétt Reykvíkinga í fram-
kvæmd minni en annarra lands-
manna og torvelda kjörsókn eftir
föngum.
★
Slettirekuskapur Hannibals
Valdimarssonar um máiefni
bæjarfélagsins á sl. sumri er
mönnum enn í fersku minni. Á
þann veg átti að gera fjárstjórn
bæjarins tortryggilega og reyna
að seinka eðlilegum fram-
kvæmdum sem verða borgurun-
um til nytja.
Þær tiltektir voru sama
eðlis og þegar Framsóknarmenn
ásaka bæjarstjórn nú um, að hér
skorti enn skóla fyrir æskulýð-
inn. Framsóknarmenn hafa ein-
mitt sjálfir undir forystu Ey-
steins Jónssonar beitt sér fyrir
synjun Alþingis á lögboðnum
framlögum til skólabygginga í
Reykjavík. Eysteinn sakaði full-
trúa Sjálfstæðismanna í ríkis-
stjórn á sínum tíma m. a. s. í út-
varpi í alþjóðar áheyrn um ó-
hæfilega frekju af því, að þeir
höfðu sótt fast eftir jafnrétti
Reykjavík til handa í þessum
efnum.
Núverandi samstarfsmenn sína
þarf Eysteinn ekki að ásaka af
þessum sökum, því að við af-
greiðslu fjárlaga á þessu þingi
sameinuðust þeir allir um að
skerða hlut Reykjavíkur. A-
níðslan í fjárveitingum er þeim
þó ekki næg, því að til viðbótar
hafa stjórnarliðar ætíð vil.iað
hafa Reykjavík afskipta um fjár-
íestingarleyfi til nauðsynlegra
framkvæmda, þar á meðal skóla-
bygginga.
★
Hneykslunin yfir því, að bær-
inn skuli hafa komið sér upp
ágætri skrifstofubyggingu, hljóm
ar og undarlega í eyrum, ekki
sízt vegna þess að þar hafa hæst
mennirnir, sem hafa reist hallir
yfir verzlunarrekstur sinn í flest-
um kauptúnum landsins, stórum
og smáum, og þykir Sambands-
húsið hér í Reykjavík aldrei
vera orðið nógu sfórt.
Út yfir tekur þó, þegar býsnazt
er yfir því, að bæjarfélagið skuli
ekki láta sjóði sína standa inni
í bönkum með lágum vöxtum og
taka í staðinn lán með miklu
hærri vöxtum. Ekki mundi slík
ráðsmennska horfa til þess að
lækka útsvörin. En hún myndi
gera bæjarfélagið háðari lána-
stofnunum. Eftir að stjórnar-
flokkarnir hafa hrifsað til sín
völdin í bönkunum, er það þeim
harmsefni, að geta ekki aukið
yfirráð sin yfir málefnum Reyk-
víkinga að þeirri leið. Úr því að
þeir komast ekki inn um for-
dyrnar, þ. e. fyrir atkvæði kjós-
endanna, ætla þeir að laumast
inn um bakdyrnar og þvinga
fram yfirráð sín með ólýðræðis-
legum hætti.
★
Allar þessar ráðagerðir hafa
farið út um þúfur. Sjálfstæðis-
menn hafa með rökum hrakið
hverja einustu ákæru, sem bor-
in hefur verið fram gegn þeim.
Þeir viðurkenndu auðvitað, að
ekki sé allt fullkomið í stjórn
Reykjavíkur fremur en í öðrum
mannlegum félagsskap. En borg-
arstjóri er að allra dómi óvenju-
legur hæfileikamaður, sem leyst
hefur starf sitt af hendi með
prýði. Meirihluti bæjarstjórnar
hefur og verið skipaður ágæturn
mönnum, enda hefur aldrei bet-
ur til tekizt unn stjórn bæjar-
mála en á síðasta kjörtímabili
Reykvíkingar skiija manna bezt,
að umbóta er sízt að vænta fra
þeim flokkum, sem eftir meira en
árssamninga um sameiginlegt
framboð, láta til sín heyra rifrild-
ið, sem hlustendur urðu áheyr-
endur að í útvarpsumræðunum á
dögunum Þaðan er áreiðanlega
ekki hjáiparinnar að vænta.
Þessir flokkar vilja að vísu
Sjálfstæðismönnum illa, en þó
vilja þeir hver öðrum enn ver
og verst mundi sundurlyndi
þeirra bitna á bæjarfélaginu, ef
þeir fengju yfirráðin.
Sókn glundroðaliðsins hefur
því nú þegar verið stöðvuð. —
Árásarliðið hefur nú meira en
nóg að gera við að verja sjálft
sig. Reykvíkingar vilja ekki láta
leiða aðra eins smán yfir bæjar-
félag sitt og V-stjórninni hef-
ur tekizt að leiða yfir Island á
þeim 18 mánuðum, sem hún hef-
ur ráðið ríkjum. Þar hefur flest
illa til tekizt, og er þó enn ekki
uppkomið nærri allt, sem í undir-
búningi hefur verið. „Gula bók-
in“ er aðeins eitt vitni þess, sem
fyrirhugað hefur verið. Ef
stjórnarflokkarnir vinna á eða
halda velli, taka þeir þau úrslit,
sem úrskurð kjósenda um, að
svo eigi fram að halda stefnunni,
sem upp hefur verið tekin. Þá
munu „gulu áformin" iögfest áð-
ur en varir.
Kjósendur hafa í hendi sér að
hindra þau ósköp. Enginn vafi
er á, að yfirgnæfandi meirihluti
þeirra vill, að það sé gert.
Enginn skyldi þó vera of sigur-
viss. Glundroðaöfiin lifa á sundr-
ungu og vélabrögðum. Einskis
verður látið ófreistað til að draga
úr kjörsókn og hindra að hinn
rétti vilji kjósendanna komi
fram.
Reykvíkingar munu þó ekki
láta þau áform ná fram að ganga
Menn vita, að með atkvæði sínu
á morgun vinna þeir tvennt í
senn:
Kjósa góða bæjarstjórn og
veita slæmri ríkisstjórn van-
traust.
Látum þann verðuga dóm vera
svo ótriræðan, að enginn fái mis-
skilið, að Reykvíkingar vilja
jafnt velfarnað bæjarins og sóma
íslands.
PÓSTMÁLARÁÐHERRA Banda-
ríkjanna á lítinn skrýtinn hund.
Segja má, að sá litli sé heiðurs-
meðlimur ráðherrafjölskyldunn-
ar, öllum þykir væit um hann
og hugsað er um hann eins og
„litla barnið á heimilinu“. Þess
\ vegna er hann bara kallaður Bo-
Bo, enda þótt hann heiti fullu
nafni Beau Brummel.
Hundum geðjast ekki að póst-
þjónunt — og póstþjói:un, ekki
að liunduni.
En póstmálaráðherrann veit, að
hundar eru verstu óvinir hinna
128.899 póstþjóna Bandaríkjanna,
því að 6.000 póstþjónar eru að
jafnaði bitnir af hundum á hverju
ári. Allt hefur verið reynt. Póst-
þjónar hafa verið látnir klæðast
buxum úr sterkara efni — og
þeir hafa fengið vatnsbyssur til
þess að verjast með. Allt hefur
samt komið fyrir ekki: Hundarn-
ir eru jafnágengir sem áður.
Annaðhvort — eða
Og að frumkvæði póstmálaráð-
herrans var gripið til gagngerra
ráðstafana á dögunum. Nú beindi
póstmálastjórnin orðum sínum
til hundaeigenda, en ekki hund-
anna sjálfra — aldrei þessu vant.
Hundaeigendum var sem sé gert
það Ijóst, að annaðhvort yrðu
þeir að sjá til þess að hundar
þeirra næðu ekki til buxnaskálma
og fótleggja póstþjóna, þegar
þjónarnir bæru póstinn til hunda
eigendanna — eða þá að útburði
póstsins til hundaeigenda yrði
hætt.
Póstþjónar ekkert
hundafóður
Samkvæmt þessum’nýju regl-
um mega hundar ekki gera póst-
þjónum hinar minnstu glennur.
Ekki þarf meira til en að hund-
ur gelti að póstþjóni (sem öllum
vakandi varðhundum er þó skylt
að gera). Hundeigandanum
berst næsta dag orðsending frá
viðkomandi póststöð, þar sem
hann er vinsamlega beðinn að
halda hundi sínum innan dyra á
meðan póstþjónninn fer fram
hjá. Ef þetta dugir ekki — og
póstþjónninn óttast hundinn enn,
berst hundeigandanum annað
bréf þar sem honum er kunngert,
að framvegis verði hann að sækja
póst sinn til póststöðvarinnar, ef
hann á annað borð vilji fá póst-
inn. Póstþjónar ríkisins séu ekk-
ert hundafóður.
í ljósi reynslunnar
Hvort sem þið trúið því eða
ekki — þá er það satt, að banda-
rískum stjórnarvöldum hafa þeg-
ar borizt allmargar umsóknir um
vegabréfsáritun til geimferða,
frá mönnum úr mörgum fylkjum
Bandaríkjanna. I því sambandi
má geta þess, að ekki er vitað
til að nein bandarísk tík hafi
sótt um svipaða vegabréfsáritun,
enda munu örlög rússnesku „geim
tíkarinnar“ ekki hafa vakið nein
ar gyllivonir í brjóstum banda-
rískra tíka um aukna lífsham-
ingju úti í geimnum.
Bulganin sem ferða-
langur
Fregnir frá Ítalíu herma, að
Bulganin sé væntanlegur til V-
Evrópu í sumar — og muni hann
ferðast sem venjulegur ferðamað-
ur. Segir í fréttinni, að hann muni
leggja leið sína til Brússell til
þess að sjá heimssýninguna, einn
ig muni hann fara um Ítalíu á-
samt öðrum V-Evrópulöndum.
Eisenhower dáðastur
Gallup-stofnunin bandaríska
kannaði um áramótin hvaða mað
ur það væri, er Bandaríkjamenn
hefðu dáð mest á árinu sem leið.
Eisenhower forseti hlaut vinn-
inginn í fimmta sinn í röð, en af
konum bar E. Roosevelt sigur úr
bítum. Meðal þeirra sem voru
ofarlega á blaði voru Truman,
fyrrum Bandaríkjaforseti, Wins-
ton Ghurchill og Elísabet Eng-
landsdrottning.
SAS fær samkeppni
SAS fær nú brátt harðan keppi
naut á flugleiðinni frá Evrópu
til Japan, yfir heimskautið. Það
er franska flugfélagið Air France,
sem hér um ræðir — og verður
það fyrsti keppinautur SAS á
þessari flugleið. Fyrsta flugferðin
verður farin eftir nokkra daga,
en reglubundnar ferðir hefjast
í apríl, mun fyrr en forstöðu-
menn SAS höfðu búizt við. Um
5.000 manns hafa flogið með SAS
yfir heimskautið — og þykir flug
leiðin hafa gefið góðan arð. Sem
kunnugt er varð SAS einnig fyrst
til þess að hefja flugferðir milli
N-Evrópu og vesturstrandar
Bandaríkjanna með því að fljúga
stytztu leið, yfir heimskautssvæð-
ið, en nú eru brezk, bandarisk
og kanadísk flugfélög einnig far-
in að fljúga sömu leið. Hollend-
ingar og Þjóðverjar bætast við á
næstunni.
Dean Acheson hand-
leggsbrotnaði
Dean Acheson, fyrrum utan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna,
varð fyrir því óhappi um daginn
að handleggsbrotna, er hann
hrasaði i hálku á götu í Washing-
ton — og féll endilangur á göt-
una. Fregnir herma, að brotið
hafi verið slæmt, en hann sé nú
heldur að ná sér.
Farþegaflug umhvetrfis
jörðu
Ástralska flugfélagið Quantas
hefur nú hafið flugferðir umhverf
is hnöttinn. Sex daga vikunnar
leggja tvær flugvélar upp frá
Sidney í Ástralíu. Önnur þeirra
heldur í austur, hin í vestur —
og tekur hnattferð hvorrar um
sig fimm til sex sólarhringa.
Þetta er fyrsta flugfélagið, sem
hefur flugferðir umhverfis jörðu.
Hins vegar hafa tvö bandarísk
flugfélög áður selt farmiða um
hverfis jörðu, en farþegar hafa
þá þurft að skipta oft um flug-
vél — og hefur ferðin þá jafn-
an tekið mun lengri tíma. Við-
komustaðir Quantas á nýju flug-
leiðinni eru: Hawaii, San Franc-
isco, New York, Róm, Istanbul,
Karachi, Calcutta, Bangkok,
Singapore, Jakarta og Darwin, en
endastöðin er Sidney í Ástralíu
sem fyrr segir.
Duttlungar
Það er víst ekki ofsögum sagt,
að óperusöngkonan heimsfræga,
Maria Meneghini Callas, er duttl-
ungafull fram úr hófi — og ekki
er hundurinn hennar betri. Sem
kunnugt er setti hún Ítalíu á ann-
an endann á dögunum, þegar hún
„missti röddina“ í miðri óperu-
sýningu í Róm með þeim afleið-
ingum, að sjálfur forseti Italíu
og margt annað stórmenni varð
að snúa við svo búið heim án
þess að fá endurgreidda aðgöngu-
miðana.
Sá litli fór að skjálfa
En það var annað, sem við
ætluðum að segja hér frá. Á leið-
inni vestur um haf til Bandaríkj-
anna hafði söngkonan viðkomu í
Paris. Meðal förunauta var litli
loðhundurinn hennar, sem hún
ber mikla umhyggju fyrir. Þegar
búið var að flytja farangur allra
farþeganna út í flugvélina á Orly
flugvellinum, en þar á meðal
voru 10 stórar töskur söngkon-
unnar, fór litli loðhundurinn að
skjálf-’ — og skýrði Maria
Mt § i Callas umboðsmanni
flugi__gsins þá svo frá, að hund-
inum mundi ekki koma dúr á
auga — og hann mundi senni-
lega kvefast á leiðinni, ef hann
fengi ekki svefnpokann, sem var
Maria Callas liafði 10 töskur
og einn hund.
í einni af hinum 10 stóru ferða-
töskum.
BrottfóV seinkaði
Farangrinum var því ekið aft-
ur úr flugvélinni — og söngkon-
an rótaði í töskunum, þar til litli
svefnpokinn kom í leitirnar. Hinir
farþegarnir stikuðu um flugaf-
greiðsluna óþolinmóðir mjög á
meðan á þessu stóð — og loð-
hundurinn skalf eins og hrísla í
vindi. Fyrir bragðið seinkaði
flugvélinni um þrjá stundarfjórð-
unga, en slíkt þykir óafsakanleg
óstundvísi í brottför. En það, sem
mest var um vert, sá litli
komst i pokann sinn — og heims
fræg söngkona steig ánægð upp
í flugvélina og var hvorttveggja
flugfélaginu til hins mesta sóma,
sem geta má nærri.
„25 krónu
veltnn“
ÞEIR, sem hafa fengið áskorun
um að taka þátt í 25 króna velt-
unni eru vinsamlega beðnir að
gera sk’il þegar í stað. Nú er svo
skammt til kosninga, að of seint
er orðið að skora á aðra, en fram
lögunum er veitt viðtaka í Sjálf-
stæðishúsinu við Austurvöll kL
9—7 (símar 17104 og 16845).