Morgunblaðið - 25.01.1958, Qupperneq 12
\2
MORCHiy HL AÐIÐ
Laugardagur 25. íanuar 1958
Hvers vegna kýs ég 8jálfstæðisflokkinn ?
Viö kjósum frelsi
og öryggi
FRÚ SIGRÍÐUR ÓLAFSDÓTTIR
er ein af þeim húsmæðrum i
Reykjavík, sem vinna á skrifstofu
með heimilisstörfunum. — Hún
segir:
„Ég kýs Sjálfstæðisflokkinn
vegna þess, að honum einum er
treystandi fyrir bænum okkar.
Víðsýni og traust forysta Sjálf-
stæðismanna í bæjarstjórn
Reykjavikur hafa skapað okkur,
æsku þessa bæjar, hin beztu skil-
yrði. Reykjavík er bæði fögur og
góð borg og framkvæmdir mikl-
ar. Byggð eru hundruð íbúða
árlega, bæði til útrýmingar
heilsuspillandi húsnæði - og til
afnota fyrir ungt fólk, sem er að
stofna sín eigin heimili. Skólar
eru byggðir mjög ört, og þar er
séð fyrir fullkominni heilsu-
gæzlu barnanna. Unnið er að
fegrun bæjarins, svo að víðs
vegar eru komnir fagrir skemmti
garðar, þar sem áður voru gróð-
urlaus moldarflög. Forystumenn
bæjarins hafa borið gæfu til að
trúa einstaklingunum að mestu
ieyti fyrir atvinnurekstrinum og
láta bæjarbúa njóta góðs af fram-
taki þeirra og dugnaði. Er því
næg atvinna handa öllum í bæn-
um. Hinar margvíslegustu fram-
kvæmdir mætti nefna, sem varða
æskuna sérstaklega, og verða þar
fyrst fyrir hin stórglæsilegu
íþróttamannvirki í Laugardaln-
um, sem skapa æ-..u bæjarins hín
fullkomnustu skilyrði til hvers
konar íþróttaiðkana. Allt þetta
og miklu meira, sjáum við fyrir
okkur daglega, þrátt fyrir allar
blekkingar og skröksögur vinstri
flokkanna. Hér í höfuðborginni
sjáum við kjörorð Sjálfstæðis-
flokksins rætast í sinni fegurstu
mynd. Öryggi, frelsi, framfarir.
Ég veit því, að æska Reykja-
víkur og Reykvíkingar allir
munu sýna þessari forystu verð-
ugt traust á sunnudaginn kemur
og þakka það, sem fyrir okkur
hefur verið gert, um leið og við
tryggjum sömu farsælu foryst-
una í bænum okkar áfram.
Við kjósum fyrir nútíð og
framtíð. — x-D.
Sigríður Ólafsdóttir".
Býr / haginn fyrir
menntun og
menningu
BJÖRN ÓLAFSSON konsert-
meistari segir:
„Ég kýs Sjálfstæðisflokkinn,
vegna þess að ég trúi honum
bezt til að fara með mál lands-
manna allra. Ég treysti þeim
fiokki bezt, sem berst fyrir ein-
staklingsframtaki og persónu-
frelsi. Undir slíkum stjórnar-
háttum einum verða framfarir og
þróun og blómgun í menntun og
menningu. Saga Reykjavíkur er
nægileg sönnun þess. Undir vel-
viljaðri og víðsýnni stjórn Sjálí-
stæðisflokksins hefur Reykjavík
breytzt úr bæ í borg, sem íslend-
ingar geta verið hreyknir af sem
höfuðstað lýðveldis sins. Og það
er sannfæring mín, að borgin sé
bezt komin í höndum lýðræðis-
sinnaðra og hæfra stjórnenda hér
eftir sem hingað til. Því kýs ég
Sjálfstæðisflokkinn.
Björn ÓIafsson.“
Vil ekki glundroða
BIRGIR THORODDSEN stýri-
maður á Guilfossi segir:
„Ég hef fylgt Sjálfstæðis-
flokknum að máium áður. í æsku
hafði ég mikla trú á Aiþýðu-
| flokknum, sem er eins og kunn-
' ugt er ráðandi flokkur í nágranna
löndum okkar. En ég tel hyggileg
ast að fylgja Sjálfstæðisflokknum
a. m. k. við þessar bæjarstjórn-
arkosningar, er ég sé það öng-
þveiti, sem ríkir í röðum minni-
hlutaflokkanna.
Ég er einnig ánægður með þau
verk, sem Sjálfstæðisflokkurinn
hefur gert á síðustu árum. Ég
verð að álíta að þar standi hug-
kvæmni á bak við, og má í því
sambandi benda á það, sem gert
; hefur verið til að fegra borgina,
en einnig dugnaður, sbr. mark-
vísar framkvæmdir á mörgum
sviðum. Það má alltaf segja, að
þær ættu að ganga hraðar, en
öllu er þokað til góðs.
Enginn getur verið óánægður
með álögurnar í bænum, þegar
þær eru bornar saman við það,
sem er í öðrum kaupstöðum. Og
sízt- ættu þær að vekja óánægju,
þegar minnzt er þeirra skatta,
sem ríkisstjórnin leggur á. Greiða
þarf bæði hina beinu ríkisskatta,
og einnig hina óbeinu skatta af
hverjum eldspýtnastokk, sem
maður tekur upp úr vasanum
eða hverjum blýanti, sem skrifað
er með.
Af þessu ástæðum mun ég
fylgja Sjálfstæðisflo'kknum til
kosninga að þessu sinni og vona,
að hann bregðist ekki trausti
mínu.
Birgir Thoroddsen."
Flokkur unga
fólksins
ÞÓRÐUR KRISTJÁNSSON bif-
reiðastjóri, Suðurlandsbraut 91,
segir:
,,Ég kýs Sjálfstæðisflokkinn
vegna þess, að með hverju árinu,
sem líður, sér maður betur og
betur, hve örar framfarir eru í
bænum okkar undir stjórn Sjálf-
stæðismanna.
Við unga fólkið getum verið
stolt af því að mega nú leggja
lóð okkar á metaskálarnar og
greiða Sjálfstæðisflokknum at-
kvæði. Ef við hugsum til rikis-
stjórnarinnar sjáum við, hvernig
umhorfs yrði, ef við yrðum svo
ógæfusöm, að hinir rauðgulu
flokkar færu með stjórn í bænum
okkar. Flokkarnir, sem allt ætla
að gera. Endirinn verður þó alltaf
hinn sami: svik, upplausn, póli-
tískar hefndir, atvinnuleysi, kúg-
un og kreppa.
Ég vil beina orðum mínum sér-
staklega til unga fólksins, sem nú
gengur að kjörborðinu í fyrsta
sinn. — Framtíð þess, frelsi og
hamingja verður bezt tryggð með
því að fela Sjálfstæðisflokknum
forystu í bænum okkar.
Við skulum þakka eldra fólk-
inu fyrir það, hve vel það hefur
gætt þess, að Sjálfstæðisflokkur-
inn hefði hreinan meirihluta í
bæjarstjórn. Það skulum við
launa með því að gera sigurmn
á sunnudaginn meiri en nokkru
sinni fyrr.
Unga fólk. Fram til sigurs á
sunnudaginn!
Sigur Sjálfstæðisflokksins er
okkar sigur. Sigur Sjálfstæðis-
flokksins er sigur þjóðarinnar.
Reykvikingar. Hrindið árás
vinstri flokkanna með samstilltu
átaki. Hyllum um leið bæjar-
stjórn Reykjavíkur undir forystu
hins ötula borgarstjóra, Gunnars
Thoroddsen.
x D
Þóröur Kristjánsson.“
Frjálslyndur um-
bótaflokkur
FRÚ SIGURLAUG Guðjónsdótt-
ir, Laufásvegi 8, segir:
„Ég hef aldrei verið ákveðn-
ari en nú að kjósa Sjálfstæðis-
flokkinn. Hann er hinn eini
frjálslyndi umbótaflokkur, flokk-
ur freisis og framfara og hins
frjálsa einkaframtaks. Undir for-
ystu hans hefur bærinn okkar
vaxið jafnt og þétt með ævin-
týralegum hraða úr bæ í borg.
Hvert sem litið er hér í Reykja
vík, blasa við nýjar og glæsileg-
ar byggingar, heil bæjarhverfi
hafa risið upp á skömmum tíma.
Hvergi á öllu landinu hefur fólk-
ið það betra, hvergi er þjónusta
bæjaryfirvalda hér á landi betri
við fólkið en í Reykjavik.
Og hvernig færi, ef glundroða-
liðið i ríkisstjórninni fengi völd-
in í Reykjavík? Þessir flokkar,
sem svo blygðunarlaust hafa
borið fyrir okkur Reykvíkinga,.
sem aðra landsmenn, blekkingar
og loforð, sem öll hafa svo verið
svikin. Hjá þeim er hver höndin
upp á móti annarri og þeir kepp-
ast um að varpa ailri ábyrgð
hver á annan. Ég spyr því:
Hvernig færi ef pólitískir ævin-
týramenn hinna flokkanna kæm-
ust til valda innan bæjarfélags-
ms okkar?
Sjálfstæðisfiokkurinn er eini
fiokkurinn, sem getur og vill
tryggja okkur hið sanna lýðræði,
eini flokkurinn, sem ekki er
reiðubúinn til þess að selja
sannfæringu sína, hvenær sem er
sér til stundarhagnaðar. Undir
merki hans fylkja sér allir lýð-
ræðissinnaðir íslendingar.
Borgin okkar ber stjórnendum
sínum bezt vitni sjálf. Við dá-
umst að Reykjavík undir stjórn
Sjálfstæðisflokksins og okkur
þykir vænt um hana vegna þess,
að hún er okkur góð og það er
hugsað vel um okkur hér.
Vegna þessa kýs ég D-listann.
Sigurlaug Guðjónsdóttir“.
Hefur veitt sjávar-
útveginum góða
aðstöðu
ANDRÉS PÉTUR'SSON útgerðar
maður segir:
„Ástæðurnar fyrir því, að ág
styð Sjálfstæðisflokkinn og greiði
honum atkvæði í bæjarstjórnar-
kosningunum á sunnudaginn, eru
margþættar.
Ég er í fyrsta lagi sammála
þeirri grundvallarstefnu flokks-
ins að vernda einstaklingsfreisið.
Ég tel, að með því móti sé bezt
tryggð lífshaminja hvers og eins
og velgengni þjóðarheildarinnar.
Stjórn Sjálfstæðismanna á
Reykjavík hefur mótazt af
ábyrgðartilfinningu og gætni í
rekstri bæjarins. Þess er einnig
að minnast, að sá atvinnuvegur
sem skapar meginhlutann af
gjaldeyristekjum þjóðarinnar,
sjávarútvegurinn, hefur jafnan
haft góða aðstöðu í Reykjavík,
og þola aðrir staðir á landinu
þar engan samjöfnuð. Þetta sýnir
að Sjálfstæðismenn hafa öðrum
gleggri skilning á nauðsyn þess
að búa vel að atvinnuvegunum
og eiga því traust skilið.
Ef andstæðingar Sjálfstæðis-
manna næðu völdum i höfuð-
borginni, er vafalaust. að þeir
myndu gera margvíslegar ráð-
stafanir til að koma í framkvæmd
þeim stefnumálum sínum, er
miða að því að lama einstaklings
framtakið. og þar með skera á
lífæðar framfarana.
Til að forða því og til að
tryggja hagsæld í Reykjavík
mun ég kjósa D-lislann á sunnu-
daginn kemur.
Andrés Pétursson.“
Vertu sjálfum jbér
trúr
GUÐJÓN MÝRDAL hárskeri seg-
ir:
„Á sunnudaginn á að skera úr
því, hver á að stjórna þessari
fögru borg. Við skulum halda
fast við það, sem gott er, vera
trú þeirri stefnu, sem við teljum
vera rétta.
Framsóknarflokkurinn hefur
verið með mikinn áróður gegn
Reykjavík nú sem ávallt. Jafnvel
Esjan í allri sinni dýrð fær ekki
lengur að vera í friði. Það sann-
ast hér, að maðurinn er það sem
hann hugsar. Framsóknaxflokkur
inn hefur ekki lengur getað dulið
sínar hugsanir. Ég er stoltur yfir
því að mega kallast uppeldis-
barn Reykjavíur, og ég á enga
ósk betri Reykjavík til handa, en
að henni megi auðnast að vaxa
og blómgast undir forustu þeirra
ágætismanna, sem hafa sýnt það
í starfinu og umgengni við aðra,
að þeir eru menn.
Stöndum einhuga vörð um borg
ina okkar á sunnudaginn. — x D.
Guðjón Mýrdal."
Reykjavik griða-
staöur frjá'íshuga
fólki
GUBLAUGUR EINAR'SSON hér-
aðsdómslögmaður segir:
„Ég er spurður að því, hvers
vegna ég kjósi Sjálfstæðisflokk-
inn? Þeirri spurningu er auðsvar
að. Ég er fæddur íslendingur og
ber í brjósti mér þrá eftir frelsi
og sjálfsforræði. Ég vil ekki vera
bundinn á klafa flokksþjónust-
unnar né láta aðra visa mér
veginn'. Ég vil sjáifur hafa valið
og taka afleiðingUm þeirrar gerð
ar. Skólaganga og umgengni við
aðra hefur ekki breytt lifsvið-
horfum mínum og yfirtölur
vandlætarans í líki kommúnist-
ans hafa einungis hert mig til
andstöðu við böðul frelsisins. Ég
tel mig alinn upp í góðum anda
göfugra hugsjóna, og þá arfleifð
hefi ég geymt hjá mér en ekki
grafið í fjöldagröf spillingar
og staðfestuleysis. Ég verð aldrei
svo gamall, að ég minnist ekki
góðrar handleiðslu foreldra
minna á viðsjárverðum brautum
lífsins, og ég þakka þeim fyrst
og fremst fyrir að hafa frá upp-
hafi ieitt mig í ailan sannleika
um hvað gera skyldi í framtíð-
inni. Sumir sem ekki hafa fengið
lélegra veganesti en ég, rölta nú
um eyðimörk „barnslegra hug-
sjóna“ í leit að sjálfum sér og
finna svo bara Stalín sálugal