Morgunblaðið - 25.01.1958, Blaðsíða 18
18
M O R G U N B L A ÐIÐ
Laugardagur 25. Januar 1958
Beiziun orKunnar í ivrysuviK munai opna nyja moguieiKa.
— Hitaveitan
ifrh. aí bis. 11
sameiginlega fyrir Hafnarfjörð
og Reykjavík.
Tilboð bárust um stórvirkan
bor víða að. Kom til greina að
kaupa bor frá Bandarikjunumeða
Þýzkalandi. Eitt þýzka tilboðið
var að því leyti mjög aðgengi-
legt að borinn var boðinn til
leigu með kauprétti að vissum
tíma loknum á hagstæðum kjör-
um. Um það leyti er ganga átti
frá samningum um hinn þýzka
bor, var lagt fram fjárlagafrum-
varp fyrir árið 1956. Var þar gert
ráð fyrir fjárveitingu til hlið-
stæðra borkaupa. Enda þótt
bæjarráðið hefði veitt heimild til
samningaumleitana um borinn,
þótti rétt að hafa sam-
ráð við forráðamenn viðkomandi
ríkisstofnunar um fyrirhuguð bor
kaup ríkisins, þar eð eigi kom til
greina að tvö svo stórvirk tæki
yrðu fengin til landsins svo til
samtimis. Þær viðræður leiddu
til þess að stofnað var til sam-
eignar rikisins og RReykjavíkur-
bæjar á bor þeim er til landsins
kom nú á liðnu hausti
Bor þessi er keyptur fyrst og
fremst til borunar á gufuhvera-
svæðum landsins og að því er
aðild Reykjavíkurbæjar snertir
til borunar á gufuhverasvæði í
námunda við Reykjavík með stór
fellda stækkun Hitaveitunnar
fyrir augum, enda á Reykjavíkur
bær ráðstöfunarrétt á bornum
fyrsta starfsárið, samkvæmt sam
eignarsamningnum.
Því miður hafa eigi fram til
þessa náðst samningar við Hafn-
arfjarðarkaupstað um sameigin-
lega virkjun í Krýsuvík, þrátt
fyrir matgítrekaðar viðræður og
tilraunir borgarstjóra og annarra
fylltrúa Reykjavíkurbæjar síð-
astliðin tvö ár.
Möguleikarnir í Krýsuvík'
í Krýsuvík og nágrenni hennar
er eitt stærsta hitasvæði lands-
ins og telja sérfróðir menn að
þar séu líkindi til að unnt sé að
fá með bornum nægilegt gufu-
magn til upphitunar Hafnarfjarð-
ar, Kópavogs og Reykjavíkur, að
því leyti er á vantar nú, auk
orku til iðnaðar og jafnvel til
framleiðslu raforku.
Vonandi takast samningar við
Hafnarfjörð svo unnt verði nú
þegar að hefja undirbúning að
stórfelldri virkjun orkunnar í
Krýsuvík til hagsbóta fyrr alla,
sem þar eiga Hlut að máli.
«■
Fjarhitunin
Hitaveitunefnd hefur látið
gjöra yfirlit um fjarhitun allra
húsa í Reykjavík. Þær athuganir,
sem gerðar voru í þessu sam-
bandi leiddu í ljós, að ekki muni
vera hagkvæmt að leggja slíkt
fjarhitakerfi um alla borgina,
nema að tryggt væri að jarðhiti
gæti að verulegu leyti verið þar
orkugjafi. Þó mun vera hægt að
auka notagildi hitaveitunnar með
nokkrum kyndistöðvum.
í framhaldi þeirrar niðurstöðu
Hitaveitunefndar að jarðhitinn
yrði að vera sá grundvöllur, sem
byggt væri á í þessu sambandi
var lagt allt kapp á, eins og áður
hefur verið skýrt frá, að hefja
vísindalega leit að vatni í bæjar-
landinu sjálfu oe ennfremur í
fmmhaldi af því þær ráðagerðir
sem uppi hafa verið um beizlun
orkunnar í Krýsuvík.
Verkefnin undanfarið
Nú hefur verið drepið á sumt
af því helzta, sem gerzt hefur í
málefnum Hitaveitunnar allra
seinustu árin, en rétt er til glöggv
unar að draga þetta saman i
heildarniðurstöður og sést þá
glögglega að hverju hefur verið
unnið. Verkefnin hafa verið eít-
irfarandi:
1. Gjörðar hafa verið vísinda-
legar rannsóknir á bæjarlandinu
með leit að heitu vatni fyrir aug
um.
2. Boraðar hafa verið rann-
sóknarholur víða um bæjarlandið
í sama tilgangi.
3. Hafin var borun eftir heitu
vatni samkvæmt þessum rann-
sóknum og hefir árangur þeirra
orðið viðbót, er nemur um 25
1/sek af mjög heitu vatni.
4. Hafizt hefur verið handa um
nýtingu þessa heita vatns jafn-
óðum og það hefir fengizt fyrst
með bráðabirgðalagningu - við
gamla hitaveitukerfið og síðan
með lagningu hitaveitu um Höfða
hverfið.
5. Lagning hitaveitu með tvö-
földu pípukerfi um Hlíðarnar og
Varastöðin við Elliðaár fullnýtt.
6. Gerðar athuganir á stórvirkj
un fyrir Hitaveitu Reykjavíkur,
og stofnað sameignafélagið :
„Gufuboranir ríkisins og Reykja-
vikurbæjar" um kaup á stórvirk-
um gufubor frá Ameríku.
Takmarkið hiff sama og áffur
Eins og áður er það takmarkið
og það sem Hitaveitunefnd og
þeir aðrir, sem að hitaveitumál-
um starfa, beina orku sinni að,
að hitaveitan nái til allra húsa í
Reykjavík. Þar fara saman hags-
munir almennings í höfuðstaðn-
’um og hagsmunir alþjóðar,
því hér er um stórkostlegan gjald
eyrissparnað að ræða, eins og al-
kunnugt er. Ef það tækist að
beizla stórfellda orku, eins og þá,
sem talið er að sé fyrir hendi
í Krýsuvík, mundi það einhig
opna möguleika til að íá nýja
orku handa iðnaðinum, auk
hinna ómetanlegu þæginda, sem
fullkomin hitaveita er fyrir hvert
heimili.
Slík hitaveita þarf að komast.
upp, enda er nú markvisst stefnt
að því.
HÖFN í HORNAFIRÐI, 22. jan.
— Nú er snjólétt í héraðinu, en
ísalög mikil, einkanlega í vestari
hluta þess. Akfært er um allt
héraðið, allt út í Öræfi. Jökulsá
á Breiðamerkursandi rennur nú
ekki í sjó fram og er bílum ekið
eftir fjörunni. Annars munu hin
miklu jökullón, sem að henni
liggja munu vera á haldi, sem
og öll vötn.
í s. 1. viku reru Hornafjarðar-
bátar aðeins 2 daga, hrepptu ill-
viðri og urðu fyrir nokkru línu-
tapi. —Gunnar
—Gylfi kemur heim
Frh. af bls. 1.
Almenningur vildi reyna að
trúa því eftir yfirlýsingar A1 -
þýðublaðsins og ræður Alþýðu-
flokksmanna í útvarpsumræðun-
um, að flokkurinn væri andvígur
„gula hneykslinu",. en ráðherra
flokksins hefur nú gert þær von-
ir að engu, er hann sverst í fóst-
bræðralag við Framsókn og
kommúnista.
Enn ungversk affferff
Athyglisvert er, að leiðin til að
neyða Gylfa Þ. Gíslason til að
taka afstöðu með kommúnistum
í þessu örlagaríka máli er ung-
versk að uppruna eins og yfir-
leitt öll „taktik“ kommúnista hér
á landi um þessar mundir. En
það er ekki að sama skapi undar-
legt, því að stjórnmálaástandið
hér á landi er nákvæm eftirlík-
ing ástandsins í Ungverjalandi
1946.
Þar var þá mynduð „vinstri
stjórn" Þjóðlega bændaflokksins
og Alþýðuflokksins, sem voru
litlir borgaraflokkar og svo Al-
þýðubandalagsins, sem hafði 17%
atkvæða.
Þessi stjórn var opinberlega
mynduð til að eyðileggja Smá-
bændaflokkinn, sem hafði mein-
hluta kjósenda, en var í Okinrti-
hluta á þingi vegna kosninga-
svika. Hinn eiginlegi tilgangur
kommúnista var auðvitað að
nota sakleysingjana og hinar
„gulu deildir" samstarfsflokk-
anna til áð undirbúa valdaránið,
einkum með því að svipta menn
fjárhagslegu sjálfstæði, eins og
hér er stefnt að með „gulu“ fyrir-
ætlununum.
Rakosi er. lærifafflrinn
Rakosi, foringi ungversku
kommúnistanna, setti þá fram
kenningu, sem hann nefndi „zig-
zag“-kenninguna og var m. a.
fólgin í því, að svívirða hina nyt-
sömu sakleysingja annan daginn
og bera þeim á brýn allar vamm-
ir og skammir, en kjassa þá hinn
daginn — einkum bak við tjöldin.
Við íslendingar köllum þetta „að
berja mann til ásta“.
Það er þessi aðferð, sem notuð
er við hina „gulu deild“ Alþýðu-
flokksins.
Þegar Gylfi kom heim, jós
Þjóðviljinn sér yfir hann. Sagði
hann hafa verið umboðslausan að
þvæla erlendis í erindum argasta
auðvalds Evrópu o. s. frv. Og við-
brögðin voru eins og til var ætl-
azt. í stað þess að svara svivirð-
ingunum og álygunum um það,
sem ráðherra vill gera gott fyrir
þjóð sína, þá lyppast hann niður
og lofar að bæta ráð sitt og
stöðva Alþýðublaðið í andstöð-
unni við „gulu bókina“.
Nákvæmlega þannig var farið
að í Ungverjalandi og mætti
Gylfi Þ. Gíslason kynna sér
reynslu flokksbróður síns, Sza-
kasits, áður en það er um seinan
Kommúnistar kampakátir
Kommúnistar eru auðvitað
kampakátir yfir „gulu“ áformun-
um, sem þeir telia nú örueet =>ð
nái fram að ganga, ef stjórnín
heldur velli eftir bæjarstjórnar-
kosningarnar. Þeir telja allar
fyrirætlanir sjálfsagðar og eðli-
legar, aðeins ganga of skammt
„inn á eignarréttinn". Félags-
málaráðherra segir í Þjóðviljan-
um svo sem enga ástæðu hafa
verið til að halda áformunum
leyndum fram yfir kosningar,
enda hafi hann m. a. sent dr. Jó-
hannesi Nordal tillögurnar, er
hann var formaður húsnæðis-
málastjórnar.
Yfirlýsing Jóhannesar Nordals
Dr. Jóhannes Nordal hefur
hins vegar upplýst Morgunblaðið
um, að honum hafi aðeins verið
sendur lítill hluti tillagnanna,
sem aðallega eru skýrslur um hús
byggingar o. s. frv., en alls ekk-
ert af því, sem máli skiptir. Er
það enn ein þekkt aðferð komm-
únista, að reyna að gera góða
menn sér samábyrga með því að
segja þeim frá þeim hluta fyrir-
ætlana sinna, sem engu máli
skipta og núa þeim svo um nasir,
að þeir hafi fyrirfram vitað um
málið og því sé bezt fyrir þá
sjálfa að láta það kyrrt liggja.
Hefur þetta því miður víða vel
gefizt, stundum líka hérlendis,
þó að í þetta sinn sé sannleikur-
inn upplýstur.
Þórunn Jóhannsd.
heiðruð lyrir
píanóieik
HINN kunni brezki píanóleikari,
Miss Harriet Cohen, tjáði sendi-
ráði Islands í London með bréfi
dags. 7. þ.m., að samkvæmt úr-
skurði alþjóðiegnar nefndar hefði
íslenzka píanóleikaranum Þórunni
Jóhannsdcttnr Tryggvason verið
veittur bronz-heiðurspeningui- fyr-
ir píanóleik. Verðlaun þessi bera
nafn Miss Cohen og eru veitt án
tiliits til þjóðerni.s. Eru silfur-
verðlaunin ætluð fullþroska píanó-
leikurum en bronz-verðlaunin ung
um listamönnum og nemendunv.
. Aðeins tvenn verðlaun eru veitt
í hvorum flokki.
Þá hefur Miss Cohen einnig tM-
| kynnt, að dr. Páll ísólfsson hafi
| verið kjörinn meðiimur hinnar
alþjóðlegu nefndar, sem verðlaun-
in veitir.
(Frá Utanríkisráðuneytinu).
Engir framboðs-
funcJir í Sandgerði
SANDGERÐI, 23. jan. — Enginn
aimennur framboðsfundur verður
hér í Sandgerði í sambandi við
hreppsnefndarkosningamai að
þessu sinni.
Það hefur orðið samkomulag
um þetta milili frambjóðenda. Á-
stæðan til þessa er sú, að sjó-
menn hér í þorpinu hafa ekki á-
•stæðu til þess vegna stawa sinna
að sækja slíkan fund, þar eð bát-
ar koma stundum ekki úr róðri
fyrr en miög seint á kvöldin.
.♦..♦.
T
f
f
T
f
t
T
t
T
T
T
T
T
t
t
T
T
T
T
T
♦»
LITLU HVlTU RÚMIN I
BARNASPÍTALA HRINGSINS
FORELDRAR:
Leyfið börnum yðar að hjálpa við að selja merki á morgun, sunnudag, sem
afgreidd verða frá kl. 1« f.h. á eftirtöldum stöðum: Garðastræti 8, Elliheim-
ilinu (vesturálmu), Tónlistaskólanum, Laufásveg 7, Barónsborg, Drafnarborg,
Lauganesskólanum (handavinnuhúsinu) og unginennaíéiagshúsinu við Holts-
apótek.
Góð sölulaun. — Með fyrirfram þakklæti.
Fiáröflunarnefndin
I
t
T
t
f