Morgunblaðið - 25.01.1958, Síða 20
Reykvíkingar velja sér
borgarstjóra á morgun
Gunnar Thoroddsen verður áfram borgarstjóri í Reykjavík á
næsta kjörtímabili, ef Sjálfstæðismenn halda meirihiuta sínum
í höfuðborginni í kosningunum á morgun. Hann liefur gegnt
þessu umfangsmikla og erfiða starfi sl. 11 ár við sívaxandi vin-
sældir og traust. Ná þær vinsældir langt út yfir raðir pólitískra
samherja hans. Fólk í öllum flokkum veit að Gunnar Thorodd-
sen er góðviljaður og drengilegur maður, sem vill allra vanda
leysa. — í kosningunum á morgun velja Reykvíkingar borgar-
stjórann. Meirihluti Sjálfstæðismanna, sigur D-listans, þýðir
áframhaldandi borgarstjórn Gunnars Thoroddsens. — Glund-
roðaliðið hefur ekkert borgarstjóraefni. Gnginn veit í dag hvern
það myndi velja til þess ábyrgðarmikla starfs, ef það ólán henti
Reykjavík, að kommúnistar yrðu forystuflokkur bæjarstjórnar-
innar. Allir frjálslyndir og lýðræðissinnaðir menn verða þess
vegna að sameinast um D-listann.
Sjálfstœðismenn Ijúka
kosningaundirbúningi
Sjálfstœðismenn !
Gerið skil i „25
króna veltunni"
Gerið skil fyrir
flokksmerkin
Bláa bókin
KOSNINGABÓK Sjálfstæðis-
manna, Bláa bókin svonefnda.
var borin í hús í bænum fyrri-
hluta vikunnar. Bókina má nú
fá á hverfaskrifstofum Sjálf-
stæðismanna og í flokksskrif-
stofunni í Sjálfstæðishúsinu.
ísalög tekin að
myndast liér
ÍSHRÖNGL er nú tekið p.ð mynd-
ast hér við Reykjavík, og Sundin
tekin að leggja. Fór dráttarbát-
ur hafnarinnar í gærmorgun í leið
a-gur inn í EUiðaárvog, til þess
að brjóta þar nokkuð þykkan ís.
Var Magni sendur því renna
þurfti í sjó fram bát á sleða í báta
smíðastöðinni þar.
Þá mun Magni árdegis í dag
fara inn á ísilagðan Skerjafjörð
innanverðan, til þess að aðstoða
olíuskipið Hamrafell, sem fer þá
áleiðis til Rússlands að ssekja
farm. Mun Magni brjóta leiðina
að baujum þeim sem skipið er
bundið við.
1 ReykjavíkuAöfn sjálfri er
lítils háttar íshröngl, en í Vestur-
höfninni þar sem mest kyrrð er,
leggur á hverri nóttu. Mypdu
ísalög vafalítið vera hér alimikii,
ef hinu harða frosti fylgdi ekki
stöðugur norðan strekkingur.
Kosningaskrif-
stofa D-listans
í Sandgerði
Kosningaskrifstofa Sjálfstæ'ðis-
félagsins í Sandgerði er að Tjarn
argötu 1, símar 5, 42 og 80.
Kjósendur Sjálfstæðisflokks
ins eru beðnir að láta skrifstof-
unni í té alla þá aðstoð, sem unnt
Varðarkaffið verður
ekki í dag
StÐASTI fundur fulltrúa- oj
trúnaðarmannaráðs Sjálfstæðis-
félaganna í Reykjavík fyrir bæj-
arstjórnarkosningarnar var hald-
inn í Sjálfstæðishúsinu í gær
kvöldi. Var fundurinn geysifjöl-
sóttur og kom þar fram öflugur
sóknarhugur og sigurvissa. Rætt
var um lokasóknina í kosninga-
undirbúningnum og um starfið
og skipulagið á kjördegi. Ginnig
fluttu þeir Birgir Kjaran, form.
ráðsins, Jóhann Hafstein, alþm.,
Gunnar Thoroddsen, borgarstjóri,
og Bjarni Benediktsson, ritstjóri,
ávörp. Ilvöttu þeir Sjálfstæðis-
menn til að leggja sig alla fram
og vinna ótrauðlega, bæði í dag
og á morgun, svo að sigurinn
verði sem mestur.
Tekur þrjár vikur
að gera við Gerpi
SEYÐISFIRÐI, 24. jan. Þýzkum
vélaverkfræðingum, sem hingað
korau, hefur nú tekizt að komast
•ao því hvað olli biluninni í
„Gerpi". Þegar vél skipsins var
tekin upp í „klössuninni1 £ Þýzka
landi nú í vetur, hefur olíurör
Sjálfstæðismenn í Keflavík
KOSNINGASKRIFSTOFA Sjálfstæðisflokksins í Keflavík er í
Sjálfstæðishúsinu, opin frá kl. 10—10. Allt Sjálfstæðisfólk er livatt
til að taka virkan þátt í kosningabaráttunni með því að hafa sam-
band við skrifstofu flokksins og starfa á kjördegi. Skrásetning sjálf-
boðaliða fer fram í dag og hefst kl. 1 síðd. — Bifreiðaeigendur, sem
góðfúslega vilja lána bíla sína, eru beðnir að hafa samband viff
skrifstofuna í dag.
Símar á kjördegi verða: 21, 871 og 872.
að legu orðið fyrir hnjaski, svo
smurolíp rann ekki á leguna sem
skyldi. ,
Það tekur 3 vikur að lagfæra
þessa bilun, því rífa þarf aðalvél
skipsins að mjög mikiu leyti í
si ndur til að komast að legunni og
olíurörinu.
Vélfræðingar liinnar þýzku vóla
verksmiðju munu hafa viðurkennt
að ástæðan til þessa væri mistök
hjá verksmiðjustarfsmönnum.
Mikið tjón af eldi í bíla-
stöð Esso í gærkvöldi
Fjórir bilar eybilögbust og jjrir
stórir skálar
STÓRBRUNI varð hér í Reykjavík í gærkvöldi, er eldur kom upp
i bílaverkstæði Olíufélagsins á Reykjavíkurflugvelli. Hlauzt af
stórtjón. Slökkvistarf var erfiðleikum bundið, og börðust slökkvi-
liðsmenn við eldinn í nær þrjár klukkustundir í norðan strekkingi
og 8 stiga frosti.
Eldurinn kom upp um kl. 8. Á
svipstundu urðu alelda þrír all-
stórir braggar, sem í voru bíla-
smurstöð, bílamálningarverk-
stæði og bílaverkstæði. Þar inni
voru fjórir bílar, og varð engum
þeirra bjargað.
Verið var að dæla benzín inn
í stóran olíubíl, þegar eldur
kviknaði þar skyndiftga. Ekki
var þó fyllilega ljóst í gærkvöldi.
hvort kviknað hafi í benzíndæl-
unni sjálfri eða benzíni við bíl-
inn. En eldurinn læsti sig þegar
í benzíndæluna og lítinn af-
greiðsluskúr, sem þarna var og
þaðan inn í næsta bragga, þar
sem smurstöðin var. Innangengt
var á milli bragganna og lék eld-
ur um þá alla á örskotsstund. —
Þrír starfsmenn, sem voru þarn.i
við vinnu, fengu ekkert að gert
Eldurinn var mikill orðinn er
fyrsti bill frá slökkviliðinu á
Rvíkurflugvelli kom á vettvang.
Þá stóð olíubíllinn, sem verið var
að setja benzín á, í báli, og var
byrjað á því að slökkva í honum
Það kom brátt í ljós að bruna-
hani, sem er í stöðinni, var ó-
virkur, þar eð vatnið var frosið
í leiðslunni. Svo erfitt var að
komast að neðanjarðarvatns-
geymi, sem einnig var reynt,
að ekki var hægt að nota vatn
frá honum, fyrr en seinna um
kvöldið, er allt var meira og
minna brunnið og hrunið.
Slökkvilið Reykjavíkur kom
einnig á vettvang. Slökkvistarfið
byggðist á því að vatn var sótr
niður í bæ, allt niður á Baróns-
stíg, í geyma slökkviliðsbílanna.
unz hægt var að fá nóg vatn af
flugvallarsvæðinu fyrir dælubíla
slökkviliðsins.
Er eldurinn var sem mestur
varð sprenging í bragga þeim,
sem smurstöðin var í. Þar inni
stóð í björtu báli nýuppgerður
stóreflis olíuflutningabíll hálfur
af gasolíu. Við sprenginguna
rifnaði gat á þak skálans og eld-
og reyksúla þeyttist hátt í loft
upp. — Tvær smásprengingar
urðu skömmu síðar.
Vonlaust verk var að ætla sér
að kæfa eldinn í bröggunum.
Skammt frá voru aðrir braggar
í hættu, en slökkviliðinu tókst
að verja þá.
Um klukkan 9,30 í gærkvöldi
voru braggarnir þrír orðnir
brunarústir einar. Þá logaði enn
mjög mikið í stóra bilnum með
gasolíunni.
í næsta bragga við var annar
stór olíubíll, sem einnig brann.
í vestasta bragganum hafði ver-
ið þriðji olíuflutningabíllinn og
þar var einnig lítill einkabíll,
eign Hauks Hvannbergs fram-
kvæmdastjóra. Tveir hinna stóru
olíuflutningabíla voru sem ný-
ir. — Var í gær lokið við að
sprauta eirin þeirra eftir að bill-
inn hafði allur verið gerður upp.
Bíllinn í smurstöðinni var einnig
nýyfirfarinn og hafði verið s'ett-
ur inn til smurningar áður en
hann yrði tekinn í notkun, vænt-
anlega í dag. Hver þessara bíla
er að verðmæti talinn milli 250 og
300 þús. kr. Bill framkvæmda-
stjórans var mjög lítið notaður
Opel, tveggja dyra.
Bílar þeir, sem þarna eyðilögð-
ust eru því alls um 1 millj. kr.
virði.
Var talið að brunatjón þetta
myndi varlega áætlað um 2,5
milljónir króna. — Olíufélagið
hefur sínar eigin tryggingar hjá
tryggingafélagi SÍS.
Skepttur brenna
inn! í fjósi
BÆ, Höfðaströnd, 24. jan. — I
fyrrinótt brann fjós á Hofsósi
ásamt kú og fullorðnum hrúti.
Fjósið stóð rétt hjá húsinu Staðar
björgum á Hofsósi. Varð bílstjóri
var við eldinn af tilviljun og gerði
vart við. Tókst að bjarga öðrum
húsum, sem nálæg voru.
Fjósið og skepnurnar áttu Þór-
hallur Ástvaldsson og Friðbjörn
Þórhallsson. Fyrir tveimur eða
þrem dögum var verið með gas-
lampa þarna til að þíða rör. Er
hugsanlegt að neisti hafi þá kom-
izt í torfstólpa og eldurinn leynzt
á milli. Annars eru eldsupptök ó-
kunn. — B.
Tregur aíli
í Sandgerði
SANDGERÐI, 24. jan. — Afli
bátanna héðan hefur verið mjög
tregur undanfarið. Nú sækja bát-
arnir orðið mjög langt út og eru
alh upp í 4% klst. að sigla heim
af miðunum. T.d. var Guðbjörg
svo djúpt í gær, er hún kom með
10 tonna afla. Víðir II var þá með
rúm 5 tonn og aðrir bátar minna,
niður í 2,5 tonn. — Axel.
Kosningasjóðurinn
TEKIÐ er á móti framlögum
í Sjálfstæðishúsinu í dag. —
Einnig má hringja í síma
1 71 00 og verða framlögin þá
sótt. Sjálfstæðismenn! Kosn-
ingarnar eru á morgun. Styrk
ið kosningasjóðinn!
Þeir, sem skorað hefur ver-
ið á í „25 króna veltunni“ eru
vinsamlega beðnir að greiða
framlag sitt í dag. Þeir, sem
hafa merki flokksins til sölu.
þurfa einnig að gera skil í
dag.
Lísti Heykvíkiraga — D-listinn