Morgunblaðið - 02.02.1958, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 02.02.1958, Qupperneq 2
2 — GervitungliB Frh. af bls. 1. 2800 km og minnsta fjarlægð er 320 kílómetrar. —- „Könnuður" sést með berum augum og hafa allmargir sjónarvottar þegar gef- ið sig fram. Þó segja rússneskir vísindamenn, að ekki komi til mála, að hann sjást. — Mikilvægar upplýsingar Mjög fjölbreytileg rann- sóknartæki eru í bandaríska gervitunglinu, auk tveggja raf hlaffna, sem eiga aff senda til jarffar niðurstöður rannsókn- anna. Er búizt viff, aff önnur rafhlaffan dugi í tvær vikur, en hia í tvo mánuffi. Mælitæk- in í tunglinu eiga t.d. aff sýna þéttleika lofts, mæia geim- geisla og hitastig og senda merki um loftsteina. Vísinda- menn í Kaliforníu skýrffu frá því í dag, aff nú þegar hefðu fengizt mjög mikilvægar upp- lýsingar um geimgeisla. 214—10 ár Eins og fyrr segir, fer „Könnuð ur“ ekki yfir Sovétríkin, enda er honum fyrst og fremst ætlað að starfa í þágu vísindanna og þótti því heppilegast, að leið hans lægi yfir miðbaug. Getur hann verið mjög lengi á braut sinni og gizk- aði bandarískur vísindamaður á það í dag, að hann mundi vera á lofti í 2%— 10 ár. — Hljóð- merki hafa heyrzt viðs vegar frá „Könnuði", en hinn fyrsti, sem heyrði í honum, var japanskur visindamaður. Hann heyrði hljóð- merkin kl. 9.21—9.28 í morgun. Síðan hafa hljóðmerkin heyrzt viðar, t.d. heyrðust þau í Singa- pore-kl. 12.35 í dag. ★ ★ Það er merkileg saga á bak við fyrsta bandaríska gervihnött- inn. Eiginlega getur maður álveg eins sagt, að hann sé þýzkrar ættar, þótt hann hafi verið fram- leiddur í Bandaríkjunum og fyr- ir bandarískt fé, því að flestir helztu vísindamennirnir eru af þýzkum uppruna. En hvað um það: þeir eru allir orðnir banda- rískir ríkisborgarar, og auk þess eiga margir bandarískir vísinda- menn hér einnig hlut að máli, svo og nýsjálenzki vísindamaðurinn dr. William H. Pickering, sem hefur verið hægri hönd Werners von Brauns, sem hefur lagt einna mest af mörkum í gervihnatta- og flugskeytavísindum Banda- ríkjamanna. — f>að munaði litlu, að illa færi fyrir þeim 130 þýzku vísindamönnum, sem undanfarin ár hafa unnið með Braun. Þeir störfuðu allir í flugskeytamiðstöð Þjóðverja í síðasta stríði. Hun var í bænum Peenemunde við Eystrasalt.' Þar unnu fjölmargir þýzkir vísindamenn að því að framleiða ný V-skeyti og endur- nýja þau, sem til voru. Þegar hermenn Sovétríkjanna og Vest- urveldanna réðust inn í Þýzka- land, reyndi hvor aðili um sig að komast fyrst til Peenemunde. Rússar urðu á undan. Þegar sýnt var, að hverju stefndi, áttu vis- indamennirnir aðeins tvegg’a kosta völ: þeir gátu verið um kyrrt og látið Rússa taka sig höndum eða þá reynt að flýja til yfirráðasvæða Vesturveld- anna. Braun og félagar hans tóku síðari kostinn, en aðrir visinda- menn féllu í hendur Rússum og hafa stjórnað flugskeyta- og gervihnattarannsóknum þeirra æ síðan. Werner von Braut og félagar hans voru ráðnir til Bandaríkj- anna i eitt ár og settust að í aðalstöðvum Bandaríkjahers í Texas. Þar var þeim falið pað hlutverk að kenna vísindamöun- um í Bandaríkjunum á svonefnd V-2 skeyti. Aðbúnaður þeirra í Texas var ágætur, en þeir voru undir ströngu eftirliti, máttu t. d. ekki fara til næstu borgar nema einu sinni í viku og þá aðeins til að verzla og fara í kvik- myndahús. — Vísindamennirnir ílendust í Bandaríkjunum og þegar Bandaríkjaher ákvað 1949 að hefja framleiðslu á flugskeyt- MORCUNBT/AÐIÐ Sunmidagur 2. febrúar 1958 um, fengu þeir bandarískan ríkis- borgararétt og hafa dvalizt í land inu æ síðan og lagt stund á geim- vísinda. Undanfarin tvö ár hafa þeir búið í Alabama og einbeitt sér að Júpíterskeytinu, undan- farnir mánuðir hafa t. d. aðal- lega farið í að sanna, að unnt sé að senda gervitungl upp í há- loftin með slíku skeyti. Landhei- inn hefur þó ekki fengið leyfi til að gera þessa tilraun fyrr en nú eftir að Vanguardskeyti flotans hafa reynzt meingölluð. Ei..s og menn muna sprakk Vanguard- skeyti með bandarískum gervi- mána í loft upp hinn 6. des. si. — Sennilegt má telja, að Banda- ríkjamenn hefðu getað sent „Könnuð" út í geiminn fyrir alllöngu, ef Braun og félagar hans hefðu fyrr fengið tækifæri til að gera tilraunir sínar með Júpíter. Að minnsta kosti sagði hann hinn 6. júní sl. í blaðavið- tali eitthvað á þessa leið: „Þaff er leiðinlegt fyrir hóp vísinda- manna aff verpa fleiri stáleggj- um en nokkrir affrir og fá ekki tækifæri til aff unga þeim út“. — í morgun sögðu New York-blöð- in, að Braun og félagar hai.s hefðu fengið tækifæri til að , unga eggjum sínum út“ — og hefðu þeir geft það með miklum sóma. Þá veltu New York-blöðin einnig fyrir sér nafninu á „Könn- uði“ og vildu sum láta hann heita Júnó, eftir konu Júpiters, sem var æðstur guða í rómverskri goðafræði. Sú tillaga festi þó ekki rætur, en þó segja blöðin, að „Könnuður" verði sennilega upp- nefndur „Júnó“. Annar gervihnöttur Loks má geta þess, að Werner von Braun skýrði frá því í dag, að Bandaríkjamenn mundu skjóta út öðrum gervi- hnetti síðast í marz. Fréttinni vel tekið Fréttinni um bandaríska gervi- tunglið var víðast hvar ágætlega tekið. Vestur-Þjóðverjar hafa sent Bandaríkjastjórn heilla- skeyti, blöð og almenningur í Bretlandi og Frakklandi fagna fréttinni og í morgun gáfu þrjú stærstu blöð Ítalíu út aukablöð til að geta skýrt lesendum sinum frá hinni miklu frétt. Finnsk blöð segja, að bandariska gervi- tunglið muni styrkja pólitíska trú manna á Vesturveldin og stefnu þeirra. Þetta sé mikill sigur fyrir bandarísk vísindi. í Lundúnum segja stjórnmálamenn, að „Könn uður“ muni hafa áhrif á afvopn- unarmálin, enda hafi hann komið á meira jafnvægi í alþjóðamálum en verið hafi. 6 línur hjá Tass — Rússneskir vísindamenn ánægffir Frá Moskvu er símað, að í morgun hafi útvarpið þar ekki sagt frá fréttinni á rúss- nesku, en aðeins í fréttasend- ingum til útlanda. Þegar á dag- inn leið síaðist fréttin út til al- mennings í Moskvu, en hann virtist ekki hafa ýkjamikinn áhuga á henni. Þó ræddu menn um „bandaríska Sputnik“ á göt- um úti. Þótti Rússum þetta held ur góð fregn og sögðu: „Khorosho" — ágætt! Og maður nokkur vatt sér að vestrænum fréttamanni og spurði: „Hvenær ætla Bretar að skjóta upp sínum Sputnik?" — Rússneskir vísinda- menn sýndu málinu meiri áhuga en almenningur. Forseti rúss- nesku vísindaakademíunnar, A. N. Nesmyanov, sagði, að rúss- neskir vísindamenn væru „vissu- lega mjög glaðir yfir því að heyra um hina ágætu frammi- stöðu bandarískra starfsfélaga sinna". Talsmaður rússneskra visindamanna, sem þátt taka í Alþjóða eðlisfræðiárinu. sagði: „Þetta eru góðar fréttir. Ég sendi bandarískum vísindamönn- um heillaóskir vegna þessa vís- indaafreks þeirra". — Rússneskir stjórnmálamenn hafa ekkert sagt um „Könnuð“, en þess má geta, að Tassfréttastofan skýrði frá honum í morgun — í sex línum. Slæmar heimtur REYKJUM, Mosfellssveit, 1. febr. Ekki eru bændur hér í sveitinni og nærsveitum enn búnir að ná öllu sinu fé heim og eru meiri brögð að þessu nú en áður. Sumt af því fé, sem smalað var í fyrstu leit, hefir horfið og ekki fundizt aftur. Eru bændur yfirleitt þeirr- ar skoðunar, að þetta fé hafi fennt í snjóakaflanum, sem gerði undir lok októbermánaðar. Talið er að fé hafi drukknað í svo nefndu Borgarvatni, en um tölu þess er ekki vitað. Alger jarðbönn hafa verið hér í janúarmánuði fram undir mán- aðamótin, er brá til hláku. Bólgn uðu þá ár og lækir, svo þeir flæddu yfir bakka sína, og sums staðar flæddi vatn inn í gripahús og gróðurhús. —J. Þessa dagana stendur yfir í Sýningarsalnum viff Hverfisgötu leiktjaldasýning þeirra Sigfúsar Halldórssonar og Magnúsar Pálssonar. Sýna þeir þar myndir af leiktjöldum og búningum, svo og líkön af nokkrum leiksviffum. Loks sýnir Magnús tvo búninga úr leiknum „Ætlar konan aff deyja“, sem Þjóffleik- húsið sýndi á sínum tíma. Hér aff ofan sést Magnús klæffa myndarlega gínu í föt rómverska hermannsins, sem i leik- ritinu átti aff standa á verffi og gæta líka nokkurra hengdra manna. Sú varðstaffa stóff reyndar ekki lengi, því aff syrgjandi ekkja kom upp úr grafhvelfingu rétt hjá og glapti varffmann- inn — en af því er önnur saga. Sýning þeirra Sigfúsar og Magnúsar er opin kl. 10 f. h. — 10 e. h. alla daga, nema sunnudaga, frá kl. 2—10 e. h. — (Ljósm. Mbl. Ól. K. M.) Hörmulegt slys í Vestmunnaeyjum Bam, sem hvarf á föstudagskvöld, fannst drukknað í höfninni Þriðja slysið við Vesfmannaeyjahöfn VESTMANNAEYJUM 1. febr. — Um 400 Vestmannaeyingar tóku þátt í dauðaleit að þriggja ára stúlkubarni í gærkvöldi og fram á nótt. Var það dóttir danskra hjóna, sem nýflutt eru hingað, Anna Greta Klaris. —- Leit- inni var hætt um klukkan 2 að- faranótt laugardagsins, er lík barnsins fannst hér í höfninni. Þetta hörmuega slys, er þriðja sviplega slysið, sem orðið hefur hér við höfnina frá því um ára- mótin. Það var um kl. 9 á föstudags- kvöldið, sem lögreglan hér í Vest mannaeyjum fékk tilkynningu um hvarf. barnsins. Foreldrar litlu telpunnar höfðu þá leitað árangurslaust nokkurn tíma og munu fleiri hafa tekið þátt í þeirri leit. - Fregn þessi barst óðfluga um allan bæinn og lögreglan bað Vestmannaeyinga um að koma til hjálpar og taka þátt í dauða- leit að barninu. Á skömmum tíma höfðu um 400 bæjarbúar gefið sig íram og var leitin brátt hafin í bænum og fyrir utan hann. Það var leitað í sæmilegu veðri, stilltu, en gekk á með éljum, allt fram til kl. 2 um nóttina, en þá fannst lík telpunnar á floti í skipakvínni við Nausthamars- bryggju. Um aðdraganda þessa hörmu- lega slyss, er ekki vitað. Það er síðast vitað um ferðir Önnu Grétu, að hún var í hópi annarra barna á Bárugötunni, sem er skammt heiman frá henni, um kl. 6,30 um kvöldið, en af Báru- götunni er stutt niður að skipa- kvínni. Foreldrar telpunnar, Henry J. Klaris, og kona hans frú Roma, fluttust til Vestmannaeyja í sept- embermánuði sl. frá Danmörku og búa þau í Víðidal við Vest- mannabraut. Starfar Henry í kemiskri fatahreinsunarstofu hér. Telpan litla var einkabarn þeirra hjóna. —Bj. Guðm. Áfengi finnst í kálgörðum VESTMANNAEYJUM, 1. febrúar — I morgun fundust nokkrar áfengisbirgðir geymdar í tunnum í matjurtagörðum, sem hér eru fyrir vestan bæinn. Það kom brátt í ljós, er lög- reglan hafði fengið málið í sínar hendur, að hér var um að ræða áfengi það, sem stolið var á dög- unum úr afgreiðslu Flugfélags íslands. Hér var um að ræða vín. sendingar til manna hér í bæn- um frá ÁVR, því áfengisútsala er hér engin. Þarna fannst því sem næst helmingur þess áfengismagns, sem stolið var, en það voru milli 40 og 50 flöskur. Málið hefir verið í rannsókn síðan þjófnaðurinn var framinn og hafa nokkrir menn verið kal! aðir fyrir rétt. Þessi áfengisfund- ur í kálgörðunum þykir benda til þess, að þjófarnir munu ekki hafa haft yfir að ráða húsnæði til geymslu á því. —Bj.Guðm. Skákþing SKÁKÞING Reykjavíkur 1958 hefst í dag kl. 2 í Þórskaffi. Tafl- félag Reykjavíkur sér um mótið. Keppendur verða milli 80 og 90. Teflt verður eftir Monrad-kerfi. Meistaraflokkur og 1. flokkur tefla í einni heild og einnig A flokkur teflir í einni heild. í unglingaflokki verður teflt í tveim riðlum. Meðal þátttak- enda í meistaraflokki verða Ingi R. Jóhannsson, Eggert Gilfer, Guðmundur Ágústsson, Benóný Benediktsson og Jón Þorsteins- son. Tefldar verða 11 umferðir og hverri skák' verður lokið á sama kvöldi. Gunnar R. Hansen er leikstjóri í leikdómi um hið nýja leikrit Leikfélags Reykjavíkur, „Gler- dýrin“, sem birtist í blaðinu í gær, urðu þau slæmu mistök að leikstjóri var ranglega tilnefnd- ur. Leikstjóri er Gunnar R. Han- sen, en ekki Jón Sigurbjörnsson, eins og stóð í fyrirsögn. Eru allir beðnir velvirðingar á þessum mis tökum . Dulles, utanríkisráhðerra Bandaríkjanna, skýrði frá því, að Bandaríkjastjórn hefði ákveðið að veita Múhameðstrúarlöndun- um í Bagdadbandalaginu 10 millj. dollara efnahagsaðstoð nú þegar. — Sömu ríki fengu 12 millj. dollara frá Bandaríkjun- um á síðasta ári. Fwðusögur um ómunnúðlegn meðierð hestu ú íslundi STJÓRN Dýraverndunarfélags tslands hafa borizt þær fréttir frá dýraverndunarfélögum í Sví- þjóð og Þýzkalandi, að í blöðum þessara landa hafi komið þær fréttir, að hér úti á íslandi líði hestar svo mjög fóðurskort, að þeim verði að slátra unnvörp- um. Ein fréttin telur sláturhross- in 50.000 <— hrossaeign lands- manna 1956, var rúm 31.000 hross). Lýsingar á hinu slæma ástandi hafa verið svo hrollvekjandi, að hin ágætu dýrverndarfélög þess- ara landa, hafa boðið hjálp sína, eða spurzt fyrir um það, hvort við héldum að þau gætu eitt- hvað hjálpað. í öðru lagi hafa borizt harðorðar orðsendingar t. d. frá Sviss, um þessar meintu ómannúðlegu mðeferð hrossa hér úti á íslandi. í sambandi við blaðaskrif í Þýzkalandi um innflutning ís- lenzkra hrossa þangað, hefur komið fram sú skoðun að útflutn ingur hrossanna frá íslandi væri dýraverndun, líklega vegna þess, hve hross ættu hér illa ævi og þeirra biði ekkert annað en að verka rekin til slátnmar. Einnig kemur það fram í auglýsingum um hina íslenzku hesta, að meðal annars sé ágæti þeirra fólgið í því, hversu þurftarlitlir þeir séu, því að þeir séu ekki góðu vanir og þurfi ekki einu sinni þak yfir þá, því að þeir séu vanir að ganga úti allt árið. Hvernig svo sem á þessum leiðu fréttum í blöðum megin- landsins stendur, þá eru þaer okkur fslendingum til vansa, og þá sérstaklega islenzkum bænd- um. Félagið hefir sagt þeim erlendu dýraverndunarfélögum, sem til þess hafa skrifað það, sem það veit sannast um þetta mál og eins mun verða skrifað til þeirra al- þjóða dýraverndunarsambanda, sem félagið er meðlimur í. (Frá Dýraverndunarfélagi íslands).

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.