Morgunblaðið - 01.03.1958, Page 2
2
MORCT’v**' 4 fílb
Laugardagur 1. marz 1958
Lagafrumvarp frd SjdlfstæðismÖnnum:
Zslendingar láti smíða
tveggfa þilfara togara
I GÆR var lagt fyrir Alþingi frumvarp til laga frá fjóruin Sjálf-
stæð'ismönnum, um að tvö af fyrstu fjórum skipunum, sem samið
verður um skv. lögum um togarakaup frá því á sl. vetri, verði
tveggja þilfaia af þeirri gerð, sem tekur vörpuna inn um skutinn.
Flutningsmennirnir eru Kjartan J. Jóhannsson, Jóhann Hafstein,
Sigurður Ágústsson og Magnús Jónsson.
Greinargerð flutningsmanna er
á þessa leið:
Gerð togara hefur tiltölulega
lítið breytzt, frá þvi að togveiðar
hófust hér við land, að öðru leyti
Einar Ól. Sveins-
son í fyrirlestra-
för til Banda-
ríkjanna
EINN af prófessorum norrænu
deildar Háskóla Islands, Einar
Öl. Sveinson, er farinn vestur til
Bandaríkjanna í boði Bandaríkja
stjórnar. Mun próf. Einar Ólaf-
ur ferðast víða um Bandaríkin,
en ýmsir háskólar þar hafa beð-
ið hann að flytja fyrirlestra. —
Hyggst hann fara allt vestur til
Kyrrahafsstrandar. — Einari
ólafi leikur einnig hugur á að
heimsækja íslendingabyggðir í
Vesturheimi: N-Dakota og Mani-
toba.
1 viðtali við Mbl. sagði próf.
Einar Ólafur Sveinsson að sér
þætti Iíklegt að hann fengi tæki
færi til að kynnast Vestur-ls-
lendingum og halda fyrirlestra á
þeirra slóðum.
Próf. Einar Ólafur verður fulla
tvo mánuði í förinni. Háskólar
þeir, sem hann heimsælcir og flyt-
ur fyrirlestra við, eru m.a. Berk-
eleyháskóli í Kaliforníu, Madison
háskóli í Wi.-cor.sin í Baltimore,
Cornellháskóli í fþöku og að öll-
um líkindum mun prófessorinn
einnig flytja fyrirlestur við Har-
vardháskóla. Munu fyrirlestrarn
ir fjalla um klassiskar íslenzkar
bókmenntir.
en því, að skipin hafa stækk-
að og vélaafl aukizt. Nokkur ár
eru þó frá því að hugmyndir
komu fram um tveggja þilfara
togara, bæði hér á landi og í
Englandi. Englendingar breyttu
tundurspilli í togara eftir síðari
heimsstyrjöldina og hafa síðan
byggt fleiri skip af svipaðri gerð.
Þá hafa Rússar látið byggja nokk
ur skip með líku lagi, og nú ný-
verið hafa Þjóðverjar látiö
byggja þrjú skip með þessu lagi.
Ýmsir byrjunarörðugleikar voru
í fyrstu við þessa aðferð tog-
veiða, en svo er að sjá sem bæði
Þjóðverjum og Englendingum
hafi nú tekizt að sigrast á þeim.
Þessi nýju skip hafa svo
znarga kosti fram yfir eldri
gerð togara, að sjálfsagt er
fyrir okkur að fá eins fljótt
og unnt er a. m. k. tvö skip
af þessari gerð til þess að fa
samanburð á útgerð þeirra og
nýrra skipa af eldri gerð. Með-
al kostanna má telja, að svo
virðist sem slysahætta ætti að
vera mun minni á þessum skip
um en eldri gerð togara og
vinnuskilyrði öll ólíkt betri.
Þess má geta að Morgunblaðið
hefur að undanförnu sagt nokk-
uð frá togurum af þessari nýju
gerð. Hinn 2., 18. og 19. febrúar
var t. d. sagt frá þýzka togaran-
um Sagitta hér í blaðinu, en
hann er með þessu lagi.
Síðasta sýning er í kvöld á gamanleiknum Romanoff og
eftir Peter Ustanov. Hér sjást sovézku sendiherrahjónin
sendiherrann að láta á höfuð konu sinnar hattinn, sem
hefir dreymt um daga og nætur. (Inga Þórðardóttir og
Gislason).
Stossen gerir hreint
fyrir ssnum dlyrum
WASHINGTON 28. febrúar. —
Fyrrverandi sérlegur ráðunautur
Eisenhowers í afvopnunarmálum
H. Stassen, lagði í dag fram til-
lögu í fjórum liðum um samn-
ing Bandaríkjanna og Rússa um
afvopnun. Gerir Stassen á þann
hátt grein fyrir afstöðu sinni til
Frá Búnaðarþingi:
Miklar umræður um frumvorp
til girðingar- og jarðhitaiaga
TVÖ MÁL voru mjög til umræðu
á Búnaðarþingi í gær. Bæði mál-
in voru send frá Alþingi til um-
sagnar Búnaðarþings. Voru það
frumvörp til laga um jarðhita
og frumvarp til breytinga á gird-
ingarlögunum.
Um frumvarp til laga um jarð-
hita komu fram þær skoðanir að
í jafnstóru máli og þar væri
á ferðinni mætti ekki hrapa að
neinu og kom m. a. fram tillaga
um það að setja milliþinganefnd
í málið og rannsaka það mjög I
gaumgæfilega. Komu fram marg- I
ar athugasemdir við frumvarpið,
en því var vísað til annarrar um-
ræðu og nánari athugunar nefnd-
ar.
Þá var og mikið rætt um girð
ingarlögin og sýndist þar sitt
hverjum. Kom fram tillaga
Fjórir Fulbright-ferðaslyrkir á þessu ári.
3 sveitir keppa um
meistaratitiliim
FYRIR nokkru lauk meistara-
flokkskeppni Bridgefél. Reykja-
víkur. Tólf sveitir tóku þátt í
keppninni og er keppninni lauk,
voru þrjár sveitir jafnar: Sveit
Harðar Þórðarsonar, sveit Ólafs
Þorsteinssonar og sveit Stefáns
Guðjohnsen.
Þessar sveitir eiga að keppa
innbyrðis um meistara-
titilinn. Verður spilaður einn
leikur, 40 spil. Á sunnudaginn
var spiluðu sveitir Ólafs og
Stefáns og skildu þær jafnar.
Á morgun, sunnudag, klukkan
1,30, mætast sveitir Harðar og
Ólafs. Spilað er í Skátaheim-
ilinu.
FULBRIGHT stofmmin á fs-
landi hefur tilkynnt að hún
ætli að veita fjórum íslenzk-
um kennurum styrk til sex
mánaða náms og kynnisdvalar
í Bandaríkjunum á þessu ári.
Eru það jafnmargir styrkir
þessarar tegundar og veittir
voru sl. ár.
Styrkir þessir eru fólgnir í
ókeypis ferð fram og aftur og
dagpeningum, sem eiga að
nægja til greiðslu dvalarkostn
aðar í Bandaríkjunum í sex
mánuði. Einnig verður veittur
nokkur styrkur til að ferðast
innan Bandaríkjanna. Þeir
sem styrk hljóta þurfa að
skuldbinda sig til að dveljast
vestanhafs I. sept 1958 til 28.
febrúar 1959. Umsóknir um
styrkina þurfa að hafa borizt
stofnuninni í pósthólf 1059,
fyrir 22. marz nk.
um að skipa milliþinganefnd
x málið til heildarendur-
skoðunar girðingarlaganna. Málið
fór til annarrar umræðu með til-
mælum um að nefnd sú er um
málið fjallaði tæki það til nánan
yfirvegunar.
Ólafur Sigurðsson á Hellulandi
flutti erindi um æðarvörpin fyr:’
og nú og mun það birtast hér
síðar í blaðinu.
3. sinfónía Beet-
hovens flutt
á morgun
NÆSTA tónlistarkynning háskól-
ans verður í hátíðarsalnum á
morgun, sunnudaginn 2. marz og
hefst kl. 5 stundvíslega. Verður
þá haldið áfram kynningum þeim
á sinfóníum Beethovens, er hóf-
ust þar fyrir hálfum mánuði, og
nú flutt af hljómplötutækjum
skólans þriðja sinfónía tónskálds-
ins, í Es-dúr, op. 55, „Eroica“ eða
hetjuhljómkviðan.
Með henni kemur Beethoven
fyrst fram í fullu veldi sínu sem
sinfóníutónskáld, og ber hún svo
mjög af fyrstu sinfóníunum
tveimur að mikilfengleik og
dýpt, að jafnskyndileg þroska-
aukning er talin með fádæmum
í allri listasögu. Sinfóníuna flyt-
ur hér hljómsveitin Filharmonia
undir stjórn Ottós Klemperers.
Þessi hljómplata er nýtega konx-
in á markað, og eru þar bæði
flutningur og hljóðritun með á*
gætum, svo að sinfónian nýtur sín
einkar vel af hljómplötutækjum
háskólans.
Dr. Páll Ósólfsson mun skýra
verkið og leika helztu stefin á
flygil.
öllum er heimiil ókeypis að
gangur.
þessara mála, en sem kunnugt
er, hefir verið deilt hart á hann
að undanförnu. Meðal þess, sem
í tillögunni felst, er stöðvun til-
rauna með með kjarnorkuvopn í
ákveðinn tíma t. d. tvö ár, og
stofnun nefndar S. Þ., sem eftir-
lit skal hafa með öllum afvopn-
unarsáttmálum. Þá er og gert
ráð fyrir að reistar verði 12 eft-
irlitsstöðvar í þessu skyni.
Þá segir í fréttum, að Nato-
ríkin hafi orðið sammála um það
að fara þess á leit við S. Þ. að
afvopnunarnefndin komi saman á
næstunni. 1 haust var fulltrúum
í henni fjölgað upp í 25. Ef Rúss-
ar vilja enn ekki taka þátt í
störfum nefndarinnar munu Vest
urveldin leita ásjár öryggisráðs-
ins.
Viðskiptasamn-
ingur við Finna
framlengdur
VIÐSKIPTASAMNINGUR ís-
lands og Finnlands frá 12. janúar
1958, hefir verið framlengdur
óbreyttur til 31. janúar 1959.
Framlengingin fór fram í
Stokkhólmi hinn 20. febrúar sl.
með erindaskiptum milli Magn-
úsar V. Magnússonar ambassa-
dors og P. K. Tarjanne ambassa-
dors Finnlands í Stokkhólmi.
(Frá utanríkisráðuneytinu).
Skákþing Akraness
AKRANESI, 27. febr. — Skák-
þingi Akraness er nýlokið og
voru þátttakendur 19, þar af 10
í 1. flokki en 9 i II. flokki. Skák-
meistari Akraness varð Hjálmar
Þorsteinsson með 6V2 vinning.
Annar varð Guðni Þórðarson með
6 vinninga, þá Þórður Egilsson
5% v., Stefán Teitsson 5 v., Víg-
lundur Elísson 4'/2 v., Jón Z.
Sigríksson 4 vinninga og Guð-
mundur Torfason 4 v. Ingimund-
ur Leifsson IV2 v. og Jóhannes
Finnson með Vz vinning. Þessir
urðu efstir í II flokki: Helgi
Sigurðsson með 8 vinninga og
flyzt hann upp í 1. flokk. Þor-
valdur Loftsson með 6 vinninga
og 3—4 Gylfi Þórðarson (12 ára)
og Magnús Finnbogason með 4
vinninga.
Hjálmar Thedórsson tók þátt í
móti þessu sem gestur og hlaut
IV2 v„ en hann er hraðskák-
! meistari Norðurlands.
ViSurlöp; við van-
rækslu á spari-
merkjakaupum
RÍKISSTJÓRNIN hefur lagt
fyrir Alþingi lagafrumvarp um
breytingar á húsnæðismálalög-
gjöfinni. Miðar frumvarpið að
því að bæta úr ýmsum missmíð-
um, sem taldar eru hafa komið
fram á löggjöf þessari, en hún
var sett fyrir tæpu ári sem kunn
ugt er.
Helzta atriðið varðar skyldu-
sparnaðinn. Þegar hann var
álcveðinn í fyrra, láðist að setja
fyrirmæli um viðurlög við van-
rækslu á sparnaðarskyldunni. Er
nú lagt til, að menn verði skyldað
ir til að gera skattyfirvöldunum
grein fyrir sparimerkjakaupum
sínum „að viðlögðu 200 kr.
gjaldi“. Einnig skulu menn skv.
frumvarþ5nu greiða gjald, ef þeir
vanrækja að kaupa sparimerki.
Má það vera allt að þrefalt and
virði þeirra merkja, sem van-
rækt hefur verið að kaupa. Loks
er lagt til, að í lögin verði sett
ákvæði um, að brot gegn þeim
og reglugerðum, sem settar eru
skv. þeim, varði allt að 10.000
kr. sektum.
Nokkur fleiri ákvæði eru í
frumvarpi þessu.
★
Fyrsta umræða um málið fór
fram á Alþingi í gær. Iiannibal
Valdimarsson flutti framsögu-
ræðu og rakti efni frumvarps-
ins.
Síðan tók Magnús Jónsson til
máls. Ilann benti á, að húsnæðis-
málafrumvarpið, sem ríkisstjórn-
in lagði fram í fyrra var mjög illa
undirbúið og þingið gerði á því
mög miklar breytingar. Komið
hefur í ljós, að framkvæmd
skyldusparnaðarins er hið mesta
vandræðamál og hefur þurft að
gefa út 2 reglugerðir um það
atriSí. Skyldusparnaðinum fylgir
geysileg skriffinnska, sagði Magn
ús, og eru dæmi til þess, að íyrir-
tæki hafi þurft að fjölga starfs-
liði af þeim sökum.
Magnús minnti síðan á, að nú
ætti að innheimta skyldusparnað
arfé fyrir hálft árið 1957 með
sköttum til ríkisins. Taldi hann
að þetta myndi gera mörgu ungu
fólki erfitt fyrir og afleiðingin
myndi vexða sú, að andúð skap-
aðist á skyldusparnaðinum þegar
í upphafi. Þá benti hann á, að
þeir, sem undanþegnir eru skyldu
sparnaði skv. sérstökum ákvæð-
um, verða engu að siður að taka
við hluta af kaupi i sparimerkj-
um, sem þeir fá síðar endurgreidd
nokkrum sinnum á ári. Magnús
lagði áherzlu á, að þetta fyrir-
komulag skapaði fólki mikil
óþægindi. Hann taldi. að réttara
hefði verið að setja í fyrra
ákvæði um frjálsan sparnað, eins
og Sj álfstæðismenn lögðu til, og
ekki bætti það úr skák, að fram-
kvæmd laganna hefði farizt
Hannibal sérlega klaufalega úr
hendi.
Jón Sigurðsson á Reynistað
kvað það skoðun sína, að ungt
fólk í sveitum, sem tekur laun að
mestu eða öllu í fóðx’um og búfé,
ætti að vera undanþegið skyldu-
sparnaði, enda hygði það yfirleitt
á bústofnun og bæri að undirbúa
hana með þessum hætti.
Nokkur frekari orðaskipti urðu
um málið. Hannibal Valdimars-
son taldi sig ekki geta fallizt á
sjónarmið Jóns á Reynistað og
taldi yfirleitt, að húsnæðismála-
löggjöf sú, sem ríkisstjórnin setti
í fyrra, hefði verið ágætlega und
irbúin og „eitt af vinsælustu mál-
um, sem framkvæmd hafa verið
með löggjöf á síðustu árum“.
Engar viðræður
BONN, 28. febr. — V-þýzka
stjórnin hefur kunngert, að hún
muni ekki hefja beinar viðx-æður
við pólsku stjórnina vegna Rapa
cki-áætlunarinnar um myndun
beltis í Evxópu þar sem engin
kjarnorkuvopn yrðu geymd.