Morgunblaðið - 01.03.1958, Qupperneq 6
6
MORCVNBLAÐIÐ
Laugardagur 1. marz 1958
Iðnlánasjóður verði sfórefldur
Hlutverk hans verbi oð veita stofnlán
TVEIR þingmenn úr Sjálfstaeðisfloklcnum, Magnús Jónsson og Jó-
hann Hafstein, hafa lagt fram tvö lagafrumvörp varðandi iðnlána-
sjóð. Annað fjallar um endurskoðun á lögunum um sjóðinn, en þau
ertc frá 1946. Er lagt til, að starfsemi hans verði hér eftir bundin
við að veita stofnlán til iðju og iðnaðar. í hinu frumvarpinu er lagt
til, að lögunum um gjald af innlendum tollvörutegundum verði
breytt og það látið renna að hálfu í iðnlánasjóð.
Þeir Magnús og Jóhann leggja
til, að 1. gr. laganna um iðnlána-
sjóð verði orðuð þannig:
„Hlutverk iðnlánasjóðs er að
styðja iðju og iðnað í landinu
með hagkvæmum stofnlánum.
Heliningur gjalds af innlendum
tollvörutegundum, sem á er lagt
með sérstökum lögum, rennur til
sjóðsins".
4. gr. laganna orðist þannig:
„Eán veitast iðnrekendum og
iðjurekendum, sem erfitt eiga
um Iántöku á annan hátt, tíl
kaupa á vélum og stærri áhöld-
um (ekki handverkfærum) og til
að koma upp nauðsynlegum hús
um fyrir rekstur sinn“.
Ýmis önnur ákvæði eru i frum-
vörpunum. — í greinargerðunum
segir, að Sjálfstæðismenn hafi
áður lagt til, að lögunum um iðn-
lánasjóð verði breytt. Þá eru rök-
in fyrir máli þessu rakin og m. a
sagt:
Sjóðurinn of lítill
Frá því að iðnlánasjóður tók
fyrst til starfa, skv. lögum frá
1935, hefur hann verið svo til
eina lánsstofnun í landinu, sem
veitt hefur iðju og iðnaði samn-
ingsbundin lán til langs tíma með
hagstæðum vaxtakjörum. Hefur
starfsemi sjóðsins því komið að
góðum notum, svo langt sem húr
hefur náð. Frá byrjun hefur
starfsfé sjóðsins verið allt of lít-
ið, enda þarfir iðnaðarins fyrir
aukið lánsfé vaxið með ári
hverju.
Nauðsyn stofnlánasjóðs
Það er að vonum mikið áhuga-
mál iðnrekenda og iðnaðar-
manna, að iðja og iðnaður eignist
sérstakan byggingarlánasjóð, hhð
stæðan stofnlánasjóðum landbún-
aðar og sjávarútvegs. Er hér auð-
vitað um fullkomið sanngirnis-
mál að ræða vegna hins mikla
þjóðhagslega gildis þessa atvinnu
vegar. íslenzkum iðnaði hefur
fleygt fram á undanförnum ár-
um og íslenzkar iðnaðarvörur í
mörgum greinum fullkomlega
sambærilegar við erlenda iðn-
framleiðslu. Þótt einstakar grein-
ar iðnaðarins kunni að eiga vafa
saman rétt á sér, þá er það hin
mesta þjóðarnauðsyn að efla sem
mest heilbrigðan iðnað í landinu
og tryggja íslenzkum iðnaðar-
mönnum viðunandi aðstöðu til
þess að inna af hendi sem flesta
þá þjónustu, sem ella yrði að
kaupa erlendis frá.
Iffnlánasjóður er þess nú alls
ómegnugur aff veita nokkur telj-
andi lán til stofnframkvæmda í
iffnaffinum, og eins og nú standa
sakir, er það nær eingöngu fisk-
iðja, sem á kost á stofnlánum, ef
undan eru skilin einstaka stór-
. fyrirtæki, svo sem áburðarverk-
smiðja og sementsverksmiðja.
Iffnaffurinn sjálfur njóti tolla
af iffnaffarvörum
Flutningsmenn þessa frum-
varps telja sjálfsagt, að Alþingi
mæti sanngjörnum óskum sam-
taka iðnrekenda og iðnaðai-
manna um stofnlánasjóð, er veict
geti lán til nauðsynlegra bygg-
inga og vélakaupa til eflingar
iðju og iðnaði í landinu. Nú er
lagt hátt tollgjald á ýmsar inn-
Iendar iffnaffarvörur. Fiskveiffa-
sjóður er fyrst og fremst byggff-
ur upp af sjávarútveginum sjálf-
um meff útflutningsgjaldi af sjáv-
arafurffum. Á sama liátt sýnist
efflilegt og sanngjarnt, aff iffnað-
urinn njóti sjálfur aff verulegu
Ieyti þess gjalds, sem honum er
gert aff greiffa af framleiffslu
sinni. Þar sem gjald af innlend-
um tollvörum er allstór tekju-
stofn fyrir ríkissjóð, þykir flutn-
ingsmönnum ekki fært að svipta
ríkissjóð þessum telcjum að öllu
leyti, en leggja til, að gjaldið
skiptist að hálfu milli ríkissjóðs
og iðnlánasjóðs.
Hér myndi verða um mikla efl-
ingu iðnlánasjóðs að ræða og má
ætla, að tekjur hans verði 5—6
millj. kr. á ári, ef frumvörp þess'
ná fram að ganga.
Sjálfvirkar símstöðvar
í Eyjsasn og við Djúp
Á FUNDI sam. Alþ. á miffviku
dag var rætt um 2 þingsályktun-
artillögur um sjálfvirkar sím-
stöffvar.
Karl Guffjónsson mælti fyrir
tillögu um að slíkri stöð skyldi
komið upp í Vestmannaeyjum,
en hann flytur tillöguna með Jó-
hanni Þ. Jósefssyni. Taldi ræðu-
maður, að verr hefði verið búið
að Vestmannaeyingum á þessu
sviði en íbúum ýmissa smærri
kaupstaða, og gat þess, að hús
næði væri fyrir hendi í Eyjum
fyrir sjálvirka stóð.
Kartan J. Jóhannssonn flutti
framsöguræðu um tillögu, sem
hann flytur með Sigurffi Bjarna-
syni, um sjálfvirka símstöð fyrir
ísafjörð, Hnífsdal, Bolungavík og
Súðavík. í tillögunni er einnig
ákvæði um að hraða íramkvæmd
um til að bæta símasamband Vest
fjarða við aðra landshluta. Kjart-
an benti á þá örðugleika, sem af
einangrun Vestfjarða stafa, og
taidi, að umbætur í símamálum
myndu auka öryggi og greiða
fyrir atvinnulífinu í þessum
landshluta.
Báðum þessum tillögum var
vísað til 2. umr. og fjárveitinga-
nefndar.
sterifap úi* i
daglega lífinu
Lyftur
FÓLKSLYFTUR í húsum eru
afar gagnleg tæki. þær spara
mönnum spor og eru ekki aðeins
til þæginda heldur og beinlinis
til heilsuverndar. Mig minnir, að
einhverjir vitrir og góðgjarnir
menn hafi sagt i vetur, að ekki
ætti að leyfa að byggja íbúðar-
hús, sem eru meira en 3 hæðir
áu þess að hafa í þeim lyftu.
Fjögurra hæða íbúðarhús eiu al-
geng hér í borginni, og mun það
heyra til undantekninga, ef I
þeim eru lyftur. Sums staðar
mun rishæð húaa einnig vera not
uð til íbúðar, og hlýtur ferða-
lagið upp alla stigana að vera
hin mesta þrekraun.
Þær fólkslyftur, sem til eru í
Reykjavík, eru flestar í skrif-
stofuhúsum. Að þeim er auðvitað
mikil bót, en ósköp eru þær sum-
ar orðnar gamlar og leiðinlegar.
Þó að Velvakandi sé orðinn stirð
ur og feitur, tekur það því varla
fyrir hann að nota lyfturnar í
Landsímahúsinu og Reylcjavíkur
apóteki, svo að tekin séu dæmi
úr flokki hæggengustu lyftna. Þó
að maður klífi stigana ósköp ró-
við lyftunum. í nokkrum nýleg-
um byggingum eru hins vegar
hraðgengar lyftur, sem þar að
auki þarf ekki sérstakan mann
til að stjórna eins og gömlu lyft-
unum. Maður þarf ekki einu sinni
að hafa fyrir því að opna hurðir
í sumum þeirra. Viija nú ekki
eigendur húsa með þessum lyftu-
skömmum, sem ekki gera meira
gagn en bíll í jólaös í miðbænum,
athuga, hvort ekki væru einhver
tök á að fá fullkomnari tæki til
að flytja fólk milli hæða?
Ýtt við
reikningshausum
EG held, að það sé nú orðinn
næstum því mánuður síðan
ég lagði þessa þraut fyrir reikn-
ingsglögga lesendur:
Hvernig er hægt að rita heilar
tölur milli 1 og 100 með tölustafn
um 4 einum saman?
Það er heldur létt verk að finna
út, að 4/4 = 1, hvaðratrótin
af 4 = 2 og 4 + 4/4 = 3. En
enginn hefur enn sem komið er
getað fundið út, hvernig rita
má tölurnar 73 og 89 með þessum
hætti? Vill ekki einhver reyna
betur?
Miðarnir kosta
15 og 30 kr.
ÞAÐ var misslcilningur, sem
sagt var hér í dálkunum í
gær, að barnamiðar að Fríðu og
dýrinu í Þjóðleikhúsinu kostuðu
20 og 30 kr. Þeir kosta 15 og 30
kr., eftir því, hvar sætið er.
Um forarslettur
NÚ í blotanum er ástæða til að
minna bifreiðarstjóra á, að
það er bannað að aka með sliku
offorsi um bæinn, að pollar á
götunum þorni upp vegna skvettu
gangs — og hafni á fötum fót-
gangandi manna. í lögreglusam-
þykkt Reykjavikur, 46. gr. undir
lokin, stendur ,,Sé for eða bleyta
á götu, skal aka svo, að ekki
slettist á aðra vegfarendur, gang
stéttir né byggingar." Velvakandi
talar af reynslu, er hann segir,
að ákvæði sé ekki hlýtt sem
skyidi þessa dagana. Og hér með
tilkynnist bifreiðastjórum í höf-
uðstaðnum, að hann mun ekki
hika við að gera skaðabótakröfu
á hendur næsta manni, sem leyfir
sér að sletta á hann úr forarpolli!
lega liggur við, að maður haíi
Hljómsveit Vic Lewis á Reykjavíkurflugvelli. Því miffur
voru hljófffærin þeirra læst niffur í ferffatöskur. — Annars
hefffu þeir veriff til meff aff taka lagiff.
Vic Lewis viil gfarna
leika fyrir Beykvíkinga
EIN FRÆGASTA jazz-hljóm-
sveit Breta, hljómsveit Vic Lewis,
hafffi stutta viffdvöl hér í Reykja-
vík á miffvikudagskvöldiff, en
hún var þá leiff til Amcríku frá
Bretlandi meff einni af flugvél-
um Loftleiffa.
Þeir menn hér á landi, sem
hlusta á brezka útvarpið munu
kannast við hljóm'sveit Vic Lew-
is. Hún kemur einnig oft fram
í sjónvarpi þarlendis og hefur
leikið í flestum hinna frægustu
danshalla Bretlands.
Fyrir nokkrum árum fóru Bret-
ar og Bandaríkjamenn að skipt-
ast á danshljómsveitum og er
hljómsveitunum boðið af hinu
opinbera. Sl. ár fór hljómsveit
Vic Lewis í hljómleikaferð til
Bandaríkjanna í skiptum fyrir
hljómsveit Lionels Hamptons.
Fékk hún svo góðar undirtektir,
að nú var ákveðið að bjóða henni
til Bandaríkjanna í annað sinn
og nú í skiptum fyrir hljómsveit
Glen Millers.
Sextán manns eru í hljómsveit
Vic Lewis. Munu þeir félagar
dveljast um þriggja vikna tíma
í Bandaríkjunum. Þeir munu
spila á kunnum dansstöðum, fyr-
ir útvarps- og sjónvarpsstöðvar
og einnig fyrir nokkra háskóla.
Viðstaða þeirra jazz-leilcaranna
var mjög stutt hér. Hljómsveitar-
stjórinn Vic Lewis, sagði að þeir
félagar hefðu leikið víða um
heim, en aldrei í Reykjavík.
Kvaðst hann vona að þeim gæfist
seinna tækifæri til þess.
Sög&ifélaglð leitar eftir
nýfissn félagsmönnum
SÖGUFÉLAGIÐ hefur nú starfaff
um rösklega hálfrar aldar skeiff
og á aff baki sér mörg góff verk.
Má þar nefna síðari útgáíuna á
Þjóffsögum Jóns Árnasonar. út-
gáíuna á Biskupasögum séra Jóns
i Hítardal, ævisögu Gisla Kon-
ráffssonar, ævisögu Jóns Stein-
grímssonar og „Blöndu“, sem
miklum vinsældum hefur náð
auk fjölda margs annars scm
félagiff hefur gefiff út á liffnum
tíma.
Nú ætlar félagið að gefa út
nýtt verk — sýslulýsingarn-
ar, sem samdar voru að tilhlutun
landsstjórnarinnar á árunum
1742—1749, en það verður mjög
fróðlegt verk. í ár gefur félagið
auk þess út hefti af tímaritinu
Saga, og eitt hefti af Alþingis-
bókunum.
Félagsstjórnin hefur hinn mesta
áhuga á að auka útgáfu fé-
lagsins að mun. Það er nú helzti
þrándur í þeirri götu, að félags-
menn eru ekki nógu margir. Um
sl. áramót voru þeir ekki nema
um 800 talsins og þyrfti að vera
hægt að auka félagatöluna um
helming.
Stjórnarformaffur Sögufélags-
ins, Þorkell Jóhannesson, háskóla
rektor segir í ávarpi, sem sent
hefur veriff út: „Verkefni hefur
félagiff mörg. En þaff vantar fé-
lagsmenn til þess aff geta einbeitt
sér meff krafti aff þessum verk-
efnum. Einkum vantar okkur
ungt fólk í félagið. Sögufélagiff er
eina útgáfufélagiff á íslandi, scm
vinnur aff útgáfu sagnrita og
sögulegra heimilda. Þetta verk er
harla þýffingarmiktff og má í
etigu falla niffur.“
Er síðan óskað eftir að félags
menn taki nú að minnsta kosti
einn nýjan íélagsmann með sér
í félagið og geri ísafoldarprent-
smiðju hf. aðvart, en hún annast
prentun bóka félagsins og útsend
ingu.
Það þarf ekki að efa, að undir
þetta verði vel tekið. Vafaiaust
munu einhverjir dugnaðarmenn
ganga hér fram fyrir skjöldu,
eins og svo oft er, og safna miklu
af félagsmönnum. Hver einstak-
ur, sem í félaginu hefur verið og
til þess þekkir mun líka reyna
að leggja fram sitt lið, enda mun
ar mikið um slíkt. Auk þess ætti
almenningur af sjálfsdáðum að
kynna sér starfsemi félagsins og
gerast síðan félagar.
Sögufélagiff á, eins og áður er
vikiff aff, aff baki sér mjög merlci-
lega starfsemi, sem sízt af öllu
má falla niffur. En þaff er á valdi
almennings, hvernig um þaff fer
og þegar félagiff leitar nú til þjóff
arinnar um aukna þátttöku, þá
á þaff sízt af öllu skilið aff slíkr!
beiðni sé mætt meff tómlæti.
Grotewohl
friðmælist
A-BERLÍN — Grotewohl hefur
ritað blaðagrein, þar sem hann
segir, að hann meti alltaf hags-
muni kommúnistaflokksins meira
en persónulegar deilur hans viff
flokksbræður. Á þann hátt vill
hann gefa til kynna, að hann sé
samþykkur hreinsununum i
a-þýzka kommúnistaflokknum á
dögunum — og að hann standi
einhuga með Ulbricht. Áður hafði
verið orðrómur á kreiki þess
efnis, að Grotewohl og Ulbricht
hefði sinnazt — og hinn fyrr-
nefndi væri að einhverju leyti
samsekur hinum brottreknu leið-
togum.