Morgunblaðið - 01.03.1958, Side 14

Morgunblaðið - 01.03.1958, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ Laugardagur 1. marz 1958 Presthjónin í Mountain í N-Dakota, frú Ebba Sigurðardóttir og séra Ólaíur Skúlason og dóttir þeirra Guðrún Ebba. Cörrslu islendingarnir í Mountain báðu að heilsa SÉRA ÓLAFUR SKÚLASON frá Keflavík, sem er prestur í bæn um Mountain í N.-Dakota, er staddur hér á lanai um þessar mundir ásamt konu sinni og dótt- ur. Fékk hann nokkurra mán. or- Jof frá prestsstörfum sínum. — Vestur í N.-Dakota er séra Ólaf- ur þjónandi prestur við sjö kirkj ur og að auki prestur elliheimilis- ins í Mountain. Þegar ég hafð. lokið messu þar fyrir um 2 vikum, og hinir gömlu lslendingar sem þar dvelja vissu að ég ætlaði að skreppa heim, báðu þeir mig fyrir góðar kveðjur hing að, sagði séra Ólafur. Að óreyndu getur enginn trúað því hve þessir gömlu Vestur-íslendingar eru í rauninni mikiir íslendingar, þó ör iögin hafi orðið á þann veg að þeir hafa gert Ameríku að sínu öðru föðurlandi. í elliheimiiinu í Mountain hittir maður vistfólk, sem ekki hefur enn þann dag í dag lært að tala ensku. Um helm ingur vistfóiksins er Islendingar, eða rúmlega 20 manns. Fyrir svo sem tveim árum voru þar næstum eingöngu . Vestur-lslendingar, en rr.ðir gömlu iunflytjendanna eru nú teknar að þynnast mjög. Islenzkum guðsþjónustum í kirkjum fækkar stöðugt, og má heita að ég messi ekki á íslenzku í neinni hinna sjó kir'kna sem ég þjóna, nema þá að eitthvert sér- stakt tilefni sé og á stórhátíðum. Safnaðarstjórnir kirknanna eru heldur ekki eingöngu skipaðir Vestur-lslendingum eða afkom- endum þeirra, því þar eiga -æti Norðmenn og Frakkar, svo ég nefni dæmi, sagði séra Ólafur. Séra Ólafur Skúiason sagði að kirkjusókn væri góð hjá sér. Dað er raunar svo um gjörv"ll Bai.da- ríkin að kirkjusókn fer þar vax- gndi svo og áhugi fóiks á þeim margháttuðu störfum, san kirkj- an vinnur fyrir eldri sem yngri. Skipulag kii'kjustarfs ? er líka mjög til fyrirmyndar au mínum dómi. Yfirstjórn kirkjunnar, und ir forsæti Fry forseta aiheims.am taka lútersku kirkjunnar, hefir stöðugt samb. \ið prestana með bréfaskriftum, til þess að auð- velda þeim starfið og aðstoða þá á alian nátt við almennt safnaðar starf, sem er mjög mikið. Starf kirkjunnar fyrir æskuna er um- fangsmikið, og hjá mér sjálfum verð é'g bráðlega að skipta ungl- ingaflokkunum niður í þrjár deild ir, til þess að kon.ast yfir að ræk a það starf að nokkru gagni. En þrátt fyrir svo mikinn og almennan áhuga á kirkju og kistni vestur í Bandaríkjunum, er þar mikill skortur á prestum. Þar er meðaltími presta hjá söfn- uðui.. fimm ár. Þar er langseta presta í sama brauði talin óæski- leg. Þá skýrði séra Ólafur frá því að nokkru áður en hann hélt af stað hingað heim, hafi hann hitt Harald Bessason prófessor við ís- lenzka kennarastólinn í Mani- toba. Haraldur ei mjög gegn mað ui í þessu starfi, sagði Ólafur. Haraldur kvað nú eitthvað um 18 stúdenta leggja stund á íslenzku. Það þótti mér há taia neme..da þegar þess er gætt hve stutt er síðan kennarastóllinn tók til starfa, sagði séra Ólafur. Séra Ólafur kvaðst einnig hafa hitt prófessor Richard Beck, er bað hann fyrir hinar beztu kveðj ur til íslendinga, sömuleiðis Valdi mar Björnsson, fjármálaráðherra Minnesota-ríkis. Séra Ólafur kvaðst mundu hverfa aftur vestur til Bandaríkj- anna í maímánuði. Hann er nú eini Islendingurinn sem stund- ar prestskap í byggðum Islend- inga í Bandaríkjunum. Kveðst hann una hag sínum vel vestra og vera ráðinn í því hvenær hann myndi leggja til orrustu við prest kosningar hér á landi. McFerrin óperusöngvari Metropolitan- söngvari í Reykiavík ÓPERUSÖNGVARINN McFerrin söng í gærkvöldi fyrir styrktar- félaga Tónlistarfélagsins í Aust- urbæjarbíói, verk eftir Handel, Purchell, Verdi, Schubert, Schu- mann auk allmargra negrasöng- vara, en söngvarinn er sjálfur blökkumaður. Um þessa tónleika er hægt að vera fáorður, þ-ví söngvarinn er slíkur snillingur, listamaður af hjarta og sál, en aðeins er hægt að lýsa söng hans með nokkrum stórum upphrópunarorðum.Breið og hrífandi rödd, kunnáttan með afbrigðum og söngurinn fágaður og tilfinningaríkur. McFerrin, sem er aðeins 34 ára gamall, hef- ur þegar hlotið mikla frægð fyr- ir túlkun sína á Rigoletto, og hann er nú á leið til Finnlands til þess að koma fram í þessu uppáhaldshlutverki sínu. Á tón- leikum í dag kl. 3 í Austurbæj- arbíói, þar sem öllum er gefinn kostur á að fá aðgöngumiða, mun hann meðal annars syngja úr Rigoletto. Ætti enginn, sem yndi hefur af listasöng að láta það tækifæri ganga sér úr greipum. Vikar. Fúatrygging fiskiskipa RÍKISSTJÓRNIN hefur Iagt fyr- ir Alþingi frumvarp um vátrygg- ingu fiskiskipa gegn skemmdum af bráðafúa (þurrafúa). Allir eigendur tréskipa, sem fiska við ísland og hafa þilfar, eru skyldaðir til að tryggja þau í þessu skyni hjá Samábyrgöinni. Ráðherra skal ákveða iðgjöld og tjón bætast eftir mati, jafnótt og viðgerð fer fram. Skipaskoðun ríkisins skal ár- Iega rannsaka livert skip til að leita að fúa og tilkynna Sam- ábyrgðinni, ef hans verður vart. Í greinargerð frumvarpsins seg ir, að eftir heimsstyrjöldina síð- ari hafi skyndilega tekið að gæta hér bráðafúa í fiskiskipum. Mikl- ar skemmdir háfa orðið af þess- um sökum, og ekki hefur annað þótt fært en að ríkissjóður veitti I ábyrgð á lánum, sem tekin hafa I verið til að borga viðgerðir. Sam- tals hefur rlkissjóður veitt ábyrgð ir að f járhæð kr. 9.498.928,03. Auk þess liggja fyrir fyrirheit og beiðnir un ábyrgðir, er nema ca. 4,8 millj. kr. Fúinn hagar sér þannig, að jafnvel þótt engin missmíði sjá- ist á skipinu, geta innviðir þess og byrðingur verið svo étnir, að við liggi að skipið hrynji saman. Bráðafúinn stafar af lífverum í í jurtaríkinu, og er ekki fullsann- að, hvernig stóð á því, að hans tók skyndilega að gæta hér á landi. Sterkar líkur eru til, að höfuðástæðurnar séu þessar: 1) Skipaviður hefur ekki fengið hæfilegan geymslutíma og meðferð. 2) Ófullnægjandi loftstreymi. 3) Hrái farmsins, sem stendur í sambandi við notkun salts er svo til horfinn. ★ - Frumvarp þetta kom til 1. umr. á fundi í neðri deild í gær. — Hannibal Valdimarsson fylgdi því úr hlaði, en síðan tók Kjart- Á FIMMTUDAGSKVÖLDIÐ var fréttamönnum boðið að sjá nýja kvikmynd sem Ósvald ’ Knudsen hefur tekið og nefnist „Reykja- vík fyrr og nú“. Mynd þessi verð ur sýnd á kvöldvöku Ferðafé- lags íslands annað kvöld. Kvikmynd þessi er bráð- skemmtileg og vel tekin og hin fróðlegasta í alla staði. Hún hefst 1776 og nær allt fram til síð- ustu tíma. Er' þar hægt að fylgj- ast með þróun og vexti bæjarins, frá því hér bjuggu um 1000 íbúar og þar til nú. Kristján Eldjárn hefur samið texta með mvndinni og talar inn á hana. Mynd þessi an J. Jóhannsson til máls. Taldi hann frumvarpið vera til mikilla bóta. Hinsvegar kvaðst hann vilja benda á, að í Danmörku væru bátar nú ekki teknir í trygg ingu gegn bráðafúa nema þeir væru varðir með sérstöku efni, sem farið er nota gegn fúasvepp unum. Sagði Kjartan, að mikil nauðsyn væri á, að tekið væri til athugunar, hvers árangurs mætti vænta af notkun efnis þessa. Frv. var vísað til 2. umr. og sj á varútvegsnefndar. er eins og aðrar myndir Knud- sens, unnin af hinni mestu vand- virkni. Þetta er 10. kvikmyndaþáttur- inn sem Ósvald Knudsen hefur gert. Undanfarið hefur Ferða- félagið sýnt margar myndir eftir Knudsen og allar mjög skemmti- legar og vel teknar. Annað kvöld heldur Ferða- félagið fjórðu kvöldvöku sína á þessum vetri. Auk kvik- myndarinnar „Reykjavík fyrr og nú“ verður myndagetráun og síðan dans. 'Samkoman fer fram í Sjálfstæðishúsinu, eins og venja er. * Kvikmyndin „Beykjnvík tyn og nú” eitii Ó. Knudsen sýnd ú kvöldvökn Ferðniéiogsins Bjarni Jónsson Cerði — Minning F. 20. 9. 1874. — D. 20. 2. 1958. 1 DAG er borinn til hinztu hvíld- ar í grafreit sóknarkirkju hans að Innrahólmi merkur sæmdar- maður og góður búhöldur, Bjarr.i Jónsson, bóndi í Gerði í Innri- Akraneshreppi. Bjarni varð maður háaldraður. kominn nokkuð á fjórða ár hins níunda tugar, er hann lézt. Var hann þá elztur maður í byggðai- lagi sínu. Hafði Bjarni búið í Gerði tveim árum betur en hália öld. Tvö síðustu árin dvaldi hann þar hjá dóttur sinni og tengda- syni. Bjarni var fæddur í Stórabotni í Botnsdal. Foreldrar hans, Jón Jónsson og Guðríður Jóns- dóttir voru þar þá í hús- mennsku. Þau fluttust nokkru siö ar búferlum að Stórubýlu í Innri- Akraneshr., og ólst Bjarni þarupp hjá þeim. Ungur fór hann að heiman í vinnumennsku. Varð það á þeim árum lengstum hlut- skipti hans að stunda jöfnum höndum sjómennsku og landbún- aðarstörf. Á æskuárum Bjarna var blómatími skútuútgerðarinn- ar hér á landi. Innan við tvítugs- aldur fór Bjarni til fiskveiða á skútum, einkum á vetrar- og vor- vertíðum. A öðrum tíma árs vann hann gjarnan við sveita- störf. Bjarni var snemma röskur maður og áhugasamur, að hverju sem hann gekk. Gætti þeirra eig- inleika hans, og karlmennsku í hverri raun, eigi siður í sjó- mennskunni en öðrum störfum. Bjarna farnaðist vel skútuveran, því auk dugnaðar hans við sig:- ingastörfin var hann vel fiskinn. góður fiskdráttarmaður, eins og það var kallað við handfæraveið- arnar á skútunum á þeirri tíð. Var þetta höfuðkostur hverjum skútumanni, þvi þeir, sem íiskn- astir voru, gengu frá borði með bezta „hýru“. Var það sjómönn- um og öðrum jafnan mikil ráð- gáta, hvernig á því gæti staðið, hve miklu munaði á fiskni manna, þótt þeir stæðu hver við annars hlið og eigi væri á því sýnilegur munur, hvernig þeir bæru sig að við fiskdráttinn. Á skútunum hélzt lengi það aflaskiptafyrirkomulag, að menn voru ráðnir upp á hálfdrætti, þ. e. að hásetar áttu sjálfir helming alls bolfisks, er þeir drógu, auk trosfisks. Var fiskurinn svo markaður á sporði eða uggum. áður en hann fór í saltið, og hafði hver maður sitt mark út aí fyrir sig. Fiskurinn var síðan, er lokið var verkun hans í landi. dreginn í sundur eftir mörkurn og veginn. Sagði þá vigtin til um hve fisknir menn voru og það hve fast þeir höfðu sótt fisk- dráttinn, með því að standa frí- vaktir o. fl. Með fráfalli Bjarna, og annarra manna á hans aldursskeiði, deyja út endurminningarnar um þenn- an þátt útgerðarsögu þjóðar vorr- ar, líf manna og athafnir um borð i skútunum. Skráðar heim- ildir varna því þó væntanlega, að þessar minningar glatist oss með öllu. Bjarni var hagleiksmaður að eðlisfari og hneigður til smíða. Þegar þar kom, að hann fór að slá slöku við sjómennskuna, hvarf hann að smíðanámi um hríð. Stundaði hann smíðar tvö tíðustu árin áður en hann hóf búskap í Gerði á fyrsta áratug aldarinnar. Það var svo um Bjarna, sem og urn fjölda annarra ungra manna á þeim tíma, að þeir áttu þess fæstir kost að sinna frá upp- hafi þeim verkefnum, er hneigð þeirra og upplag stefndi að og þeim voru ríkust í huga. Þurfti löngum til þess alllangan að- draganda, að menn hefðu búið svo í haginn fyrir sig, að þeir gætu hafið sjálfstæðan atvinnu- rekstur. Var þessu eigi sízt svo varið um þá, er ráðið höfðu við sig að hefja búrekstur í sveit. En að því stefndi hugur Bjarna strax í æsku. Sýndi reynslan það Ijóslega á hinum langa búskapar- ferli hans, að þar hafði frá upp- hafi fylgt hugur máli. Bjarni bjó jafnan góðu búi á eignarjörð sinni og gerði þar miklar umbæt- ur. Hafði hann og jafnan þar nokkurt sjávargagn, eftir því sem við varð komið með heimanræði. Bjarni y«»r maður félagslyndur og var jafnan hvetjandi og reiðu- búinn tii þátttöku í félagssam- tökum, er tii framfara horfðu, og þá ekki sízt á sviði landbúnaðar, en áhugi hans og umhyggja fyrir eflingu og velfarnaði búnaðarins í hvívetna lá dýpst í eðli hans, þótt öðrum verkefnum ýmsuni hefði hann sinnt um ævina og þá jafnan af alúð og kostgæfni. — Bjarni starfaði lengi í hrepps- nefnd í sveit sinni og lagði þar margt gott til mála. Einnig var hann í sóknarnefnd. Sýndi hann sóknarkirkju sinni jafnan mikia ræktarsemi, sem meðal annars kom fram í því, að hann og kona hans, færðu kirkjunni myndar- lega gjöf á efri árum þeirra. Bjarni átti lipra og létta lund, var jafnan í daglegri umgengru heima og heiman glaður og ren'- ur. Hann var maður vinsæll, hug- þekkur og hjálpsamur, hvenær sem til hans var leitað. Bjarni var kvæntur veglyndri heiðurskonu, Sigríði Jónsdóttur. Hún lézt árið 1956, eftir fimmtíu og þriggja ára farsæla sambúð þeirra hjóna. Þeim hjónum varð þriggja barna auðið og eru þau öll á lífi: Böðvar trésmíðameistari í Reykjavík, kvæntur Ragnhildi Jónsdóttur. Eiga þau sex börn uppkomin. Sesselja Ásta, gift Ai- manni Guðmundssyni trésmíða- meistara í Reykjavík, og eiga þau fimm uppkomin börn. Eru þau hjónin systkinabörn. Guðrún Indí ana, gift Guðna Eggertssyni bónda í Gerði. Eiga þau tvö upp- komin börn. Við fráfall þessa aldna bónda er í valinn hniginn mikill dreng- skapar- og sómamaður, er skilur eftir góðar, hlýjar og hugstæðar endurminningar hjá öllum, er af honum höfðu kynni. Kveð ég, sem þessar línur rita, rninn góða tryggðavin með innilegu þakk- læti fyrir margra áratuga gott og ánægjulegt samstarf. Feiur Ottesen.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.