Morgunblaðið - 02.03.1958, Qupperneq 20
Fólk í fréttum
Sjá bls. 8
52. tbl. — Sunnudagur 2. marz 1958.
Reykjavíkurbréf
er á bls. 11.
Iðjufélagar, kosningu lýkur í kvöld
í KVÖLD lýkur stjórnarkjöri í
Iðju, félagi verksmiðjufólks í
Reykjavik. Kosið er um 2 lista,
B-listann, lista lýðræðissinna,
þar sem Guðjón Sv. Sigurðsson,
formaður Iðju er i efsta sæti. og
A-listann, sem ekki fannst betri
maður til að skipa efsta sætið á
en Björn Bjarnason, Moskvu
kommúnisti.
Kosið er að Þórsgötu 1 frá kl.
10 f.h. til kl. 11 e.h. Iðnverkafólk.
Munið þessi atriði, sem birt voru
í Iðjublaðinu í fyrradag:
x B
Stjórn Björns Bjarnasonar lánaði sjálfri sér
stórfé úr sjóðum Iðju og hefur orðið uppvis að
margs konar misferli með fé félagsins.
Sama stjórn torveldaði á margvíslegan hátt
starfandi iðnverkafólk að afla sér fullra félags-
réttinda í Iðju.
Sama stjórn hélt ekki uppi neins konar fræðslu
eða skemmtistarfsemi innan félagsins.
Sama stjórn var ausveipt handbendi kommún
istaflokksins, en sofandi í hagsmunamálum iðn
verkafólks.
S.
Björn Bjarnason
launþega sl. vor.
var andvígur kjarabótum
Núverandi stjórn Iðju náði mikilvægum kjara-
bótum sl. vor án verkfalls og án samnmgs-
uppsagnar.
Núverandi stjórn Iðju hefur hrint af stað iif-
eyrissjóðsmáli iðnverkafólks og vinnur nú að
því af kappi.
Núverandi stjórn Iðju hefur lagt grundvöll að
byggingarfélagi iðnverkafólks og þegar fengið
lóðir fyrir 30 íbúðir.
Núverandi stjórn Iðju hefur haldið uppi fjöl-
breyttu fræðslu- og skemmtistarfscmi innan
félagsins.
Núverandi stjórn Iðju hefur tryggt nær öllu
starfandi iðnverkafólki full félagsréttindi í
Iðju.
Nefnd frá OECC kemur
hingaS til lands
Kynnir sér m.a. íslenzkt atvinnulif
og efnahagsmál
A ÞRIÐJUDAGINN 4. marz er
væntanleg til Reykjavíkur nefnd
á vegum efnahagssamvinnustofn
unar Evrópu (OEEC) í París
undir forystu René Sergent, for-
stjóra stofnunarinnar. I fylgd
með forstjóranum verða John G.
McCarthy, fulltrúi Bandaríkj-
anna hjá stofnuninni, og John
Fay, yfirmaður hagfræðideildar
stofnunarinnar.
Aðal verkefni nefndarinnar er
að athuga möguleika á að auka
freðfiskútflutninginn frá íslandi,
t. d. með bættu dreifingarkerfi
og aukinni sölustarfsemi í aðild-
arríkjum stofnunarinnar. Jafn-
framt mun nefndin kynna sér
íslenzkt atvinnulíf og efnahags-
mál.
Þetta verður í fyrsta sinn, sem
forstjóri efnahagssamvinnustofn-
unarinnar heimsækir ísland. Er
ákveðið, að hann haldi fyrirlest-
ur í Háskóla íslands um fríverzl-
unarmálið miovikudaginn 5. marz
Bílar tefjast
LÍTILSHÁTTAR snjór var á
jörðu hér - Reykjavík í gærmorg
un. Fyrir þá, sem gangandi voru,
olli þetta ekki töfum. Aftur á móti
attu bílar viða í erfiðleikum, því
flughálka var á götum. Var með
öllu ófært um sumar götur, sem
liggja upp brekkur, og hallinn
þurfti ekki mikill að vera, því á
Hringbrautinni á móts við Kenn-
araskólann, þar sem lítilsháttar
halli er, stóðu 17—20 bílar spól-
andi. Strætisvagnarnir töfðust
nokkuð og urðu á eftir áætlun. —
Lögreglunni var kunnugt um fá-
eina bílaárekstra árdegis í gær.
Vatnamælingar
ÞRÍR MENN eru nú staddir uppi
í óbyggðum við athuganir, þeir
Sigurjón Rist vatnamælingamað-
ur, aðstoðarmaður hans og Guð-
mundur Jónasson. Fóru þeir yfir
10 dögum héðan úr bænum og var
förinni heitið upp að Köldukvísl
og Þórisvatni, sem er annað
stærsta stöðuvatn landsins.
Sigurjón Rist mun ætla að koma
fyrir í vatninu sjálfritandi vatns
mæli og gera þar ýmsar athug-
anir. Einnig mun hann mæla
rennslið í Köldukvísl og gera þar
aðrar athuganir. Þessi leiðangur
er farinn á vegum raforkumála-
stjórnarinnar og er Iiður í rann-
sókn og mælingum í sambandi við
virkjunaráætlanir.
Um fyrri helgi hafði verið 25
stiga frost þar sem þeir félagar
liggja við í snjóbíl Guðmundar. 1
fyrradag var gott veður og frost
ið aðeins um 5 stig.
Þeir munu alls verða um tvær
vikur í för þessari.
Gisli Magnússon
Orðsending til
meðlima fnlltrúa-
ráðs Sjálfstæðis-
félaganna
MJÖG áríðandi er að með-
limir fulltrúaráðs Sjálfstæðis-
félaganna hafi samband við
skrifstofu fulltrúaráðsins í
Valhöll eftir kl. 10 f. h. Símar
17100 og 18192.
Gísli Magnússon, píanóleiknri
heldur tónleika n.k. miðvikndag
GISLI MAGNUSSON, pianó-
leikari, heldur tónleika n. k.
miðvikudag í Þjóðleikhúsinu. Á
efnisskránni verða Konsert í
ítölskum stíl eftir Bach, Tilbrigði
og fúga um stef eftir Hándel
eftir Brahms, Allegro barbaro og
Sonatina eftir Bartók, Ballade,
Nocturne og Mazurka eftir Chop-
in og Polonaise eftir Liszt.
Stamdaði nám við tónlistar-
háskólann í Ziirich
Þessi ungi píanóleikari er ís-
lenzkum tónlistarunnendum þeg-
ar að góðu kunnur. Hann hélt
sína fyrstu opinberu tónleika á
vegum Tónlistarfélagsins 1951,
þá aðeins 22 ára að aldri. Hann
var þá nýkominn heim frá Sviss,
þar sem hann hafði stundað nám
í hálft annað ár við tónlistar-
háskólann í Zúrich, og var Walter
Frey kennari hans. Hélt hann
síðan áfram námi í tvö ár hjá
Walter Frey og lauk burtfarar-
prófi með mjög lofsamlegum
vitnisburði.
Að loknu námi hélt hann tón-
„Björn i Iðju" felur niðr-
andi ummœli um að hann
hafi reynt að verja sig !
En ekki meiðandi, þegar sagt er að
hann hafi gefizt upp!
Undarleg málssókn
gegn Mbl.
BJÖRN „lðju-maður“ hefur nú,
þegar Iðjukosningarnar eru að
hefjast, mannað sig upp í að
senda Mbl. sáttakæru í meiðyrða-
máli út af greinum um mcðfcrð
kommúnista í Iðju, en greinarn-
ar birtust fyrir meira en mánuði
síðan eða 17.—18. jan. s. 1.
Er engu líkara en að Björn
hafi vaknað við, þegar hann sá
fréttirnar um meiðyrðastefnur
Erlends Sambandsforstjóra og
Regins-manna út af Keflavíkur-
braskinu mikla, og væri synd að
segja annað en að Björn velji
sér fagrar fyrirmyndir. Sátta-
kæran er á margan hátt kátlegt
plagg. M. a. telur Björn eftir-
farandi ummæli úr Mbl. niðr-
andi: „í fyrstu reyndi Björn
Bjarnason fyrrverandi formað-
ur að halda uppi vörn fyrir at-
hæfi sitt og stjórnarinnar-----“.
Hins vegar er EKKI stefnt
vegna orðanna í lok þessarar
sömy setningar, sem hljóða svo:
„— en gafst fljótlega upp“!I
Eftir þessu telur Björn það
rangt og meiðandi fyrir sig að
hann hafi haldið uppi vörnum
en hinsvegar finnst honum ekki
rangt og meiðandi, þegar sagt er
að hann hafi gefizt fljótlega upp!
Þessi sáttakæra er um margt
annað eitt mesta endemis-plagg.
Það er meira að segja tæpt, að
slíkt geti enzt Birni til að fá
„plástur", eins og Sambandsfor-
stjórinn og Regins-menn eru að
leita eftir en vafalaust er hugsun-
in sú að „slá þvi upp“ gagnvart
Iðjufélögum að Björn sé „hvergi
hræddur hjörs í þrá“ og hafi
stefnt Morgunblaðinu!
Enn einn skripaleikurinn og
kemur hann félögum Iðju, sem
Björn þekkja, vafalaust ekki á
óvart.
Algjör samstaða lýðrœBis
flokkana á Siglufirði
SIGLUFIRÐI, 1. mars. — Und-
anfarið hafa staðið yfir samn-
ingaviðræður .nilli lýðræðisflokk-
anna um oæjarstjórnarsamstarf
oc meirihlutamyndun innan bæj-
arstjórnarinnar. Eru þessar
samningaviðræður í framhaldi af
samstöðu lýðræðisflokkanna í
bæjarstjórn Siglufjarðar um
kosningu bæjarstjóra og forseta
bæjarstjórnar.
Samningaumleitunum er nú
lokið með algjörri samstöou lýð-
ræðisflokkanna, sem gengu sam-
einaðir til nefndakosninga á
fundi bæjarstjórnar í gær. 1 bæj-
arráð voru kjörnir þeir Öfeigur
Eiríksson, Ragnar Jóhannesson
og Þóroddur Guðmundsson.
Framkoma kommúnista, sem ein
angrazt hafa í bæjarmálum Siglu
fjarðar, hefur verið með fádæm-
um undanfarið. Þeir neituðu að
mæta í hófi, er fráfarandi bæjar-
stjóri Jón Kjartansson var kvadd
u af bæjarstjól'n við brottför
sína úr bænum. í gær fluttu þeir
tillögu um að fella niður nefnd-
arlaun. En síðar á sama fundi
flutti bæjarfulltrúi þeirra, Ár-
mann Jakobsson, viðbótartillögu
þess efnis, að tilteknum bæjarfull
t?'úa Alþýðuflokksins skuli þó
greitt fyrir nefndarstörf. En sá
bæjarfulltrúi, sem er verkamaður
hér í bæ, hafði upplýst, að sam-
þykkt tillögu kommúnista hefði
í för meé sér fjárhagslegt tjón
fyrir verkamenn, sem sleppa
þyrftu vinnu og launum til að
sinna borga'ralegum skyldustörf-
um í nefndum og bæjarstjórn.
Var þessari ósmekklegu viðbót-
rrtillögu Ármarins vísað frá sem
ósæmandi og móðgandi. Aðaltil-
lögunni var vísað til umsagnar
bæjarráðs. — Stefán.
leika á vegum Tónlistarfélagsins
í annað sinn í marz 1954 og fékk
góða dóma. Örstuttu siðar lék
hann með Sinfóníuhljómsveitinni
undir stjórn Olavs Kiellands.
Lék hann þá Pianókonsert eftir
Liszt. Síðar lék hann með Sin-
fóníuhljómsveitinni undir stjórn
Róberts A. Ottóssonar, og var
viðfangsefnið í það sinn Píanó-
konsert eftir Mozart.
Nam hjá Carlo Zecchi
Árið 1954 fór Gísli í hljóm-
leikaför til Norðurlanda með
Samkór Reykjavíkur. Þetta sama
ár fékk hann styrk frá ítalska
ríkinu og fór til framhaldsnáms
við Santa Cæcilia tónlistarhá-
skólann í Rómaborg. Nam hann
þar í 8 mánuði hjá Carlo Zecchi,
hinum fræga píanóleikara og
hljómsveitarstjóra.
Fyrsta hæggenga hljómplatan
fyrir íslenzkan markað
Meðan Gísli dvaldist á Ítalíu,
lék hann inn á hljómplötu, og
er það fyrsta hæggenga platan,
sem gefin er út sérstaklega fyrir
íslenzkan markað. Á plötunni
eru Glettur, þl'jú píanólög eftir
dr. Pál ísólfsson, Vikivaki eftir
Sveinbjörn Sveinbjörnsson og
Ensk svíta i d-moll eftir Bach.
Nýlega fékk Gísli tilboð um
að leika fyrir norska útvarpið
og fer hann sennilega til Noregs
í maí n. k.
Tónleikar Gísla á miðvikudag-
inn hefjast kl. 8,30 og verða að-
göngumiðar seldir í Þjóðleik-
húsinu.
TrésmiBir, hrindiB
áhlaupi kommúnista
STJÓRNARKJÖRI í Trésmiðafélaginu lýkur í dag. B-list-
inn, listi lýðræðissinna, er skipaður núverandi stjórn félags-
ins, sem kosin var í fyrra, er trésmiðir voru orðnir lang-
þreyttir á óstjórn kommúnista í félagi þeirra.
Það hefur vakið mikla athygli undanfarna daga, að nú
er upplýst orðið, að kommúnistar lánuðu sér og gæðingum
sínum stórfé úr sjóðum t'élagsins, meðan þeir höfðu aðstöðu
til. Skriffinnar Þjóðviljans hafa varið miklu rúmi til að
freista þess að verja þetta einstæða hneyksli. í gær birta
þeir tölur og segja að lánin hafi ekki verið kr. 199.500 eins og
stjórn félagsins hafi talið heldur kr. 200.500 — eða 1000 kr.
hærri! Jafnframt fara þeir rangt með, til hvaða aðila lánin
voru veitt. Þessi mál hafa nú verið falin löggiltum endur
skoðanda til rannsóknar, og má eins gera ráð fyrir, að upp-
hæð lánanna muni enn hæklta, er hanri hefur yfirfarið bæk-
ur félagsins.
Trésmiðir! Koiriið í veg fyrir, að kommúnistar taki upp
sína fyrri iðju í félaginu. Kjósið B-listann.
Muriið, að kosningu lýltur kl. 10 í kvöld. Kosið er í skrif-
stofunni að Laufásvegi 8. Kosningaskrifstofa B-listans er að
Bergstaðastræti 61, símar: 22616, 19113 og 23885.