Morgunblaðið - 20.03.1958, Blaðsíða 15
MORCVNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 20. marz 1958
Vegabælur ó Suðurhólendinu
15
Söngleikir og
þjóðleikhússljóri
1 viðtali við blaðamenn í gær
gat form. Fél. ísl. einsöngvara
þess að Þjóðleikhússtjóri hefði
verið andvígur þingsályktunartil
lögu um fasta óperu við leikhús
ið. En í frásögn Morgunblaðsins
komu þau ummæli hans ekki
fram að Þjóðleikhússtjóri hefði
verið það vegna þess að hann
taldi rekstur fastrar óperu fjár-
hag þess um megn auk þess sem
það myndi trufla aðra starfsemi
þess og vegna þrengsla og ót'uh
nægjandi húsnæðis.
Hins vegar lítur Fél. ísl. ein-
söngvara svo á og hefur stutt
það með ýmsum rökum að vel
mætti ráða nokkra söngvara að
Þjóðleikhúsinu og auka óperu-
og óperettuflutning að miklum
mun án þess að það þyrfti að of-
bjóða fjárhag þess.
Félag ísl. einsöngvara kann
vel að meta hið mikla átak sem
þjóðleikhússtjóri hefur gert á
undanförnum árum með flutn-
ingi söngleika og þakka'r honum
þau tækifæri sem hann þannig
hefur veitt ísl. söngvurum. En
félagið óskar þess að söngvararn
ir fái framvegis miklu fleiri og
meiri tækifæri til starfs innan
leikhússins en hingað til hefur
þótt fært að veita þeim og telur
það áríðandi fyrir framtíð ís-
lenzkra söngvara að svo verði.
Bjarni Bjarnason.
— Olíuver&ib
Framh. af bls. 3
um eru reglurnar nú mun hag-
stæðari fyrir olíufélögin en var,
áður en hann lcom í ríkisstjórn,
og talaði hann þó mikið þá um
okurgróða á olíusölu.
Ég vil enn sp-yrja: Hvers vegna
hefur olíu og benzinverðið ekki
verið lækkað eins og ómótmælt
er, að það hefði átt að gera skv.
þeim reglum, sem um verðlagn-
inguna hafa gilt?
Hannibal Valdimarsson: Ég vil
enn segja, að Hamrafellsfarmur-
inn, sem kom 27. febrúar, kemur
ekki til sölu fyrr en í apríl.
Hins vegar lækkaði núverandi
stjórn hagnað olíufélaganna veru
legar þegar ákvæðin voru sett í
febrúar 1957, og það hafa þau enn
ekki fengið bætt.
★
Rétt er að vekja athygli á þvi,
að ráðherrann gaf enga full-
nægjandi skýringu á þvi,
hvers vegna ekki hefur komið til
lækkunar á benzíni. Eins og áður
hefur verið sagt frá í blaðinu,
óskuðu olíufélögin eftir því, að
benzínverðið væri lækkað bæði
fyrst í desember og fyrst í marz.
Telja má að lækkunin hefði átt
að nema um 17 aurum eftir venju
legum reglum, svo að útsöluverð-
ið yrði 2,10 kr.
Er því fullyrðing Hannibals
Valdimarssonar um, að full lækk
un sé bundin við Hamrafells-
farminn frá 27. febr. úr lausu
lofti gripin. Enn er því óupplýst,
hvers vegna ríkisstjórnin hefur
ekki lækkað verðlag þessarar
mikilvægu vörutegundar til hags
bóta fyrir almenning 1 landinu.
LONDON, 19. marz — í'dag kom
farþegaflugvél til Singapore frá
borginni Aledan á Súmötru —
og sögðu farþegar svo frá, að
stjórnarherinn hefði borgina á
sínu valdi. Ástandið er þó mjög
ótryggt í borginni — 0g hefur
Indónesíustjórn boðist til þess að
fiytja erlenda borgara á brott frá
ÞINGSÁL.YKTUNARTILLAGA
Ingólfs Jónssonar og þriggja ann-
arra Alþingismanna um kostnað-
aráætlun um sumarveg um
Sprengisand hefur að undan-
förnu verið til athugunar hjá alls
herjarnefnd cameinaðs Alþingis.
Efni tillöeunnar var það, að at-
hugaður skyldi kostnaður við að
gera slíkan veg frá Gaitalæk um
Holtamannaafrétt og Sprengi-
sand að Mýri í Bárðardal svo og
kostnað við brúargerð á Tungnaá
hjá Búðarhálsi. Fram kom breyt-
ingartillaga frá Jóni Kjartans-
syni um, að einnig skyldi gerð
áætlun um kostnað við að gera
bilfæra Fjallabaksleið, frá Land-
mannahelli austur í Skaftártung-
ur.
Allsherjarnefnd sendi vega-
málastjóra upphaflegu tillöguna
til umsagnar. Hann bendir á, að
árið 1956 var samþykkt á Alþingi
tillaga um rannsókn á vegarstæði
milli landsfjórðunga. Síðan hafa
verið mæld þrjú brúarstæði á
Tungnaá og eitt á Köldukvisl.
Kostnaðaráætlun um 83 m hengi-
brú hjá Búðarhálsi liggur fyrir
(2,6 millj. kr.) Aætlar vegamála-
stjóri, að auk brúarinnar á
Tungnaá yrði að leggja 400 þús.
kr. í brú á Fjórðungskvísl og 600
þús. kr. til að gera ruðningsveg.
Vegamálastjóri ræðir síðan um
brúargerð nokkru austar, við
Þóristungur milli Tungnaár og
Köldukvíslar. Telur hann, að brú
þar myndi koma að meiri notum
vegna þess, að til greina kemur
að gera miklar virkjanir við Þór-
isvatn. Mælingar og rannsóknir
á vatnasvæði Þjórsár, Köldu-
kvíslar og .Tungnaár standa nú
yfir og munu halda áfram næsta
áratug a. m. k. Er um þær rætt
í bréfi raforkumálastjóra um
mál þetta. Brú við Þóristungur
myndi létta þessar rannsóknir og
opna leið að Þórisvatni, Veiði-
vötnum og sunnanverðum Vatna-
jökli. Engar kostnaðaráætlanir
liggja fyrir um brúargerð þarna
eða kostnað við vegagerð þaðan
á Sprengisandsleið um brú á
Köldukvísl.
Allsherjarnefnd hefur skilað
áliti, og skýrði Asgeir Sigurðs-
son það á þingfundi í gær. Niður-
staða nefndarinnar varð sú, að
hún féllst á sjónarmiðin í tillög-
unni, sem fyrir lá, og á breytinga
tillögu Jóns Kjartanssonar, en
lagði til, að málinu yrði vísað til
ríkisstjórnarinnar í trausti þess,
að gengið yrði endanlega frá at-
hugunum á málinu.
Ingólfur Jónsson kvaðst geta
fallizt á þessa afgreiðslu. Jón
Kjartansson sagðist einnig gera
það. Hann tók fram, að breytinga
tillaga sín væri ekki fram komin
Frumvarp lil fjár-
aukataga of lágt
FRUMVARP til fjáraukalaga
fyrir árið 1955 kom til 1. umr. í
sameinuðu Alþingi í gær. Jón
Pálmason kvaðst telja, að í frum
varpið vantaði liði, sem næmu
yfir 20 millj. kr. Þar af væru
rúml. 10 millj. kr. varðandi fram
kvæmdir Landssímans, sem færa
ætti á 3. gr. A. Einnig vantaði
11.727.000 kr. á 20 gr. og e.t.v.
einhverjar fjárhæðir víðar. Kvað
Jón fjárveitinganefnd þurfa að
víkja þessu í rétt horf.
Niðurstöðutala fjáraukalaganna
er nú 100.413.935.90.
borginni, ef þeir óska þess.
Uppreisnarmenn segja, að 7
þús. stjórnarhermenn á Norður-
Súmötru hafi gengið í lið með
uppreisnarmönnum — og sé í
undirbúningi að hertaka Medan
á ný.
Segir í tilkynningu frá stjórn-
arhernum að loftárásir hafi ver-
ið gerðar á lisafla uppreisnar-
manna í nánd við borgina og
margt hergagna skemmzt.
með það fyrir augum, að Fjalla-
baksleið yrði greiðfærari fyrir
skemmtiferðamenn, heldur til að
fá öryggisleið fyrir sveitirnar
vestan Mýrdalssands, sem grípa
mætti til, ef leiðin um sandinn
tepptist að sumarlagi vegna
Kötlugoss.
Tiliaga allsherjarnefndar var
samþykkt.
— Starfsfræðsla
Framh. af bls. 6
ára hljóta allir hugsandi menn
að skilja hversu mikið er í húfi.
— Hvaða atriði hugleiða ung-
lingarnir einkum áður en þeir
velja sér ævistarf?
— Það er vitanlega einstaklings
bundið. Mjög algengt er að þeir
spyrji um launakjör, hversu langt
nám er og um námskostnað. Þeir
vilja vita um námskostnaðinn í
hlutfalli við væntanleg laun, at-
vinnumöguleika og atvinnu-
öryggi. Nútímaæska er mjög
raunsæ enda lifum við á öld
tækni og efnishyggju. Eigi að
síður gera flestir sér ljóst að laun
in ein ráða ekki úrslilum um það
hvort starfsval er vel heppnað
eða ekki. Þeir vita að áhugi þarf
að fylgja ef einhver vinnugleði
á að skapast, en án vinnugleði
verður starfið ekki hamingju-
gjafi þegar til lengdar lætur.
— Má ég spyrja spurningar,
sem ekki kemur þessu beint við
en oft er rædd: Er það rétt að
nútímaæska sé ókurteis og frökk?
— Ekki er það mín reynsla.
Yfirleitt finnst mér unglingarnir
sýna mikla prúðmennsku og í ár
finnst mér annars-bekkingar í
unglingaskólum Reykjavikur
vera sérstaklega prúðir. Spurn-
ingar unga fólksins eru yfirleitt
skynsamlegar og bornar fram í
fullri einlægni. Á ég ekki aðra
ósk betri æskunni til handa í
þessu sambandi, en þjóðfélagið
vilji veita henni alla þá aðstoð
sem vinnusálfræðin telur að
gagni verða til þess að gera starfs
valið sem auðveldast.
Sv. Þ.
Ford — Prefect
smíðaár 1955 til sölu. —
Upplýsingar veitir:
Málflutningsskrifstofan
Eggert Claessen og
C .af A. Sveinsson,
hæstaréttariögmenn,
Þórshamri, sími 1-11-71.
Gísli Einarsson
hcraðsílómslög ma Jur.
Málflutniugsskrifstofa.
i>augavegi 20B. — Sími 19631.
kristián Guðlaugsson
hæsti-rétturiögiuuður.
Skrifstofutími kl. 10—12 og 1—5.
Austurstræti 1. — Sími 13400.
Sigurgeir Sigurjónsson
hæstaréUarlögmaftur.
Aðalstræti 8. — Simi 11043.
HÖIIÐUR Ól.AFSSON
málflutningsskrifstofa.
Löggiltur dó-ntúlkur og skjal-
þýðandi 1 ensku. — Austurstræti
STEFÁN PÉTURSSON, hdi.,
Málflutningsskrifstofa.
Laugavegi 7. — Sími 14416.
Heima 13533.
Sveinbjörn Dagfinnsson
héraðsdómslögmaður
Málflutningsskrifstofa Búnaðar-
bankahúsinu, sími 19568.
Málflutniugsskrifstofa
Einar B. CuSmundsson
Guölaugur i’orláksson
Guðmumiur Pétursson
Aðalstræti 6, III. hæð.
Símai L20Ö? — J 3202 — 13602.
&AGNAR JÓNSSON
Uæstarcttarlogniaður.
Laugavegi 8. — Sími 17752.
Lögfræðistörf. — Eignaunisýsla.
T résmiðaf élag
og
IUeisfaraféiag
Reykjavikur
f
husasmiða
Árshátíð félaganna verður haldin í Sjálfstæðis-
húsinu föstud. 21. marz kl. 9 e.h.
Góð skemmtiatriði.
Aðgöngumiðar verða seldir í skrifstofu
trésmiöafélagsins fimmtudag og föstudag.
Skemmtinefndirnar.
— Bezt að auglýsa i Morgunblaðinu —
Af.s. Gullfoss
fer frá Hafnarfirði föstudaginn 21. þ.m. kl. 21.00
til Hamborgar, Gautaborgar og Kaupmannahafnar.
Farþegar eru beðnir að koma til skips eigi síðar
en klukkan 20.30.
Hf. Eimskipafélag íslands
Alúðar þakkir færi ég öllum þeim er auðsýndu mér
vináttu með heimsóknum, gjöfum og hlýjum kveðjum á
sextugsafmælinu 9. marz.
Guðrón Jóhannsdóttir,
Vallanesi.
Innilegustu hjartans þakkir færi ég öllum ættingjum,
vinum og kunningjum nær og fjær, sem á margvíslegan
hátt glöddu mig á sjötugsafmæli mínu þ. 14. febrúar sl.,
og gerðu mér daginn ánægjulegan og minnisstæðan.
Vilhelmína Sigurðardóttir Þór.
Faðir okkar og tengdafaðir
JÓN JÓNSSON
Firði, Seyðisfirði, sem lézt á heimili sínu 11. þ.m., verður
jarðsunginn frá Seyðisfjarðarkirkju n.k. föstudag kl. 2 e.h.
Börn og tengdabörn.
Jarðarför eiginmanns míns
GUÐMUNDAK VIGFCSSONAR
trésmiðs, Laugaveg 42 fer fram föstudaginn 21. marz
kl. 1.30 frá Hallgrímskirkju. Þeim sem vildu minnast hans
er bent á líknarstofnanir.
Halldóra Gunnarsdóttir.
Útför móður, tengdamóður og ömmu okkar
BJABNDÍSAB BJARNADÓTTUB
fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 21. þ.m. kl. 3 eh.
Guðrún og Edvvard Cleaver,
Inga Cleaver,
Guðrún Pétursdóttir, Magnús Karl Pétursson,
Pétur H. Maguússon.
Kveðjuathöfn um móður okkar
MABlU JÓHANNSDÓTTUB
frá Sauðholti, Laugarnesvegi 48, er andaðist þann 11.
þ.m., fer fram frá Laugarneskirkju föstudaginn 21. marz
klukkan 4.30 síðdegis. Athöfninni verður útvarpað. Jarð-
sett verður frá Kálfholtskirkju, laugardag 22. marz kl.
1.30 e.h. Þeir sem vildu fylgja austur, eru beðnir að til-
kynna það í síma 34241, og verður þeim þá séð fyrir far-
kosti.
Börn og tengdabörn.
Uppieisnarmenn segjost andirbúa
sékn