Morgunblaðið - 13.05.1958, Page 1
20 síður
45. árgangur
107. tbl. — Þriðjudagur 13. maí 1958
Alvarlegar róstur í Líbanon
BEIRXJT, 12. maí — í Beirut
höfuðborg Líbanons urðu í dag
miklar róstur. Óróaseggirnir
reistu virki á götum úti og
kveiktu í olíutunnum víða um
borgina. í frétt frá Damaskus
segir, að landamærum Líbanon
og Sýrlands hafi verið lokað og
allar ferðir milli Beirut og
Damaskus verið bannaðar. Þetta
hefur hins vegar ekki verið stað-
fest í Beirut ennþá.
Seint í gærkvöldi urðu tvær
miklar sprengingar í miðbiki
Beirut, önnur rétt hjá lögreglu-
stöðinni, en hin nálægt þinghús-
inu. Ekki varð neinn mannskaði,
orsök, að einn stjórnmálaflokk-
ur landsins hefur lagzt mjög gegn
því, að Camille Chamoun forseti
verði endurkosinn til næstu
en rúður brotnuðu í húsmm á
stóru svæði. Frá deginum í dag
að telja hefur verið sett útgöngu-
bann í höfuðborginni frá sólar-
lagi til sólaruppkomu.
16 menn drepnir
Sendiráð Bandaríkjanna hefur
beðið alla bandaríska borgara að
halda sig innanhúss.
Síðustu fréttir frá olíuborginni
Tripoli, sem er næststærsta borg
landsins, benda til þess að einnig
þar hafi verið sett útgöngubann.
í Tripoli hafa undanfarna þrjá
daga verið miklar róstur, og hafa
16 manns látið lífið í þeim, en
yfir hundrað manns liggja þungt
haldnir í sjúkrahúsum. Þessar
róstur eiga rætur að rekja til
stjórnarandstöðunnar, og þær
hófust á föstudaginn eftir að
einn af ritstjórum stjórnarand-
stæðinga hafði verið myrtur.
Andstaða við forsetann
Stjórnarandstaðan hefur hvatt
til allsherjarverkfalls í landinu
til að styðja verkföllin sem hafa
verið gerð í Tripoli, Sidon, Tyre
og öðrum borgum.
Rósturnar eiga sér líka þá
fjögurra ára. Enda þótt forsetinn
hafi ekki sjálfur tekið neina end-
anlega ákvörðun í málinu, að því
Nehru
Nehru fer háðulegum
orðum um kommúnista
er sagt er, þá hafa skoðanabræð-
ur hans gefið í skyn, að hann
hafi í hyggju að biðja þingið að
kjósa sig forseta næsta kjörtíma-
bil. Hann á að láta af embætti
í ár, þar sem stjórnarskrá lands-
ins heimilar forseta ekki að sitja
tvö kjörtímabil í röð. Chamoun
verður því að koma fram stjórn-
arskrárbreytingu, og er búizt við
að hann leggi frumvarp um hana
fyrir þingið, áður en því lýkur
31. maí. Allar horfur eru á,
að slíkt frumvarp verði samþykkt.
Flokkurinn, sem á mesta sök á
óeirðunum undanfarna daga, var
í upphafi aðeins andvígur því, að
kjörtími forsetans yrði fram-
lengdur, en nú hefur hann krafizt
þess að forsetinn segi af sér þeg-
ar í stað.
Rósturnar í Líbanon þykja
nokkrum tiðindum sæta, þar sem
landið hefur jafnan verið eitt
rólegasta og friðsamasta landið
við austanvert Miðjarðarhaf.
Síöustu fregnir herma, að unn-
in hafi verið alvarleg skemmd-
arverk á olíuleiðslum frá Tripoli,
og hefur olíufélagið í írak ákveð-
ið að sfcöðva olíustrauminn.
Vill bann við al-
kvæðagreiðslu
BONN, 12. maí. — Vestur-þýzka
sambandsstjórnin fór þess á leit
í dag við stjórnlagadómstólinn í
Karlsruhe, að hann bannaði ai-
menna atkvæðagreiðslu um
kjarnavopn handa vestur-þýzka
hernum, sem fram á að fara í
Hamborg 8. júní að tilhlutun sós-
íaldemókrata, sem eru í meiri-
hluta í borgarstjórninni.
Prentsmiðja MorgunblaðsÚM
---*
Tékkneskur skíða-
kappi flýr land
AÞENU, 12. maí. — Tékkneski
kvikmyndatökumaðurinn og
skíðakappinn Jiri Koblaska, sem
er 24 ára gamall, flúði af rúm-
ensku farþegaskipi, sem var að
flytja tékkneska ferðamenn, i
höfninni í Pirevs á laugardaginn.
Hann hefur beðið um hæli sem
pólitískur flóttamaður í Grikk-
landi. Grísk yfirvöld tilkynntu,
að þau hefðu ekki enn veitt Kob-
laska hæli, en hann er nú í vörzlu
lögreglunnar.
Karamanlis
Koromanlis fékk hreinan þing-
meirihlutn í grísku kosningunum
NYJU DELHI, 12. maí — Jawa-
harlal Nehru, forsætisráðherra
Indlands, hélt í dag ræðu á stjórn
arfundi indverska Kongress-
flokksins og sagði þá m. a., að
kommúnistaflokkurinn í Indlandi
„hefðist við utan landamæra
landsins í hugsunarhætti sín«m“.
Benti hann á, að í öllum löndum
hefði heimskommúnisminn af-
skipti af innanríkismálum fyrir
tilstuðlun kommúnistaflokkanna.
Nehru minntist í ræðu sinni á
hringlanda indverska kommún-
istaflokksins í afstöðunni til
Júgóslava og kvað hann hlægi-
legan. Fyrst sendu indverskir
kommúnistar sendinefnd á nýaf-
staðna flokksráðstefnu júgó-
slavneska kommúnistaflokksins
og hafði hún meðferðis heilla-
óskir til Júgóslava. En þegar það
kom á daginn, að kommúnista-
flokkur Sovétríkjanna og lepp-
ríkja þeirra höfðu breytt um við-
horf, þá sneru indverskir komm-
únistar við blaðinu.
Á sama hátt væri stefna komm-
únista í innanríkismálum ætíð
háð erlendum áhrifum, sagði
hann.
Minnir á trúarleiðtoga
Nehru kvaðst ekki vilja taka
neina afstöðu til deilunnar milli
Júgóslava og annarra kommún-
istaríkja, en hann benti á, að
hið svokallaða „afbrot“ Júgó-
slava væri það eitt, að þeir vildu
fara sína eigin leið til kommún-
ismans. „Þetta minnir einna helzt
á trúarleiðtoga, sem er illa við
og fordæmir öll frávik frá ströng-
um rétttrúnaði", sagði Nehru.
Nú fá menn að halda hausnum
Hann benti á þá staðreynd, að
Framíi á bis 19
Gómúlka og Kadar sam-
einast um yfirlýsingu
BÚDAPEST og BÚKAREST, 13.
mai. — Gómúlka, framkvæmda-
stjóri pólska kommúnistaflokks-
ins, sem verið hefur í þriggja
daga heimsókn í Ungverjalandi,
ásamt opinberri pólskri sendi-
nefnd. fór í dag frá Búdapest til
Kúmeníu. í Búkarest var tekið
á móti hinum pólsku gestum með
virktum, og var m.a. viðstaddur
móttökuna Gherghiu Dej fram-
kvæmdastjóri rúmenska komm-
únistaflokksins.
í sameiginlegri yfirýsingu Pól-
verja og Ungverja, sem birt var
eftir heimsókn Gómúlka, segir
m.a. að báðir aðilar séu staðráðn-
ir í að berjast gegn „endurskoð-
unarstefnunni“, sem sé mesta
hættan er nú ógni verkalýðs-
hreyfingunni. Bæði „endurskoð-
unarstefnan" og „kreddufestan"
(dogmatisminn) geri afturhalds-
mönnum auðveldara um vik að
reka undirróður og andspyrnu
gegn „sósíalismanum".
í yfirlýsingunni, sem var und-
irrituð af Gómúlka og Kadar, er
ekki vikið beinum orðum að deil-
unni milli Rússa og Júgóslava, en
stjórnmálafréttaritarar benda á,
að „enduskoðunarstefnan“ sé
stefnan sem Rússar saka Júgó-
slava um að berjast fyrir.
Ráðsfefna um
geislavirkt ryk
GENF, 12. maí. — Fulltrúar 28
ríkja, þeirra á meðal allra stór-
veldanna, hófu í dag ráðstefnu
í Genf, sem á að ræða áætlun um
alþjóðlegt eftirlit og rannsóknir
á geislavirku ryki. Ætlunin er að
fylgjast nákvæmlega með því,
hve mikið af geislavirku ryki fell
ur í öllum löndum heims á hverj-
um tíma.
AÞENU, 12. maí — í gær fóru
fram sjöttu þingkosningar í
Grikklandi eftir síðari heims-
styrjöld. Úrslitin urðu þau, að
hinn róttæki vinstri flokkur
E.D.A. vann mikið á og getur
orðið sterkur aðili á þingi. —
Þessi flokkur er hinn raun-
verulegi kommúnistaflokkur
landsins, en kommúnistaflokkur-
inn gamli var bannaður eftir
borgarastyrjöldina 1949. E.D.A.-
flokkurinn fékk 24,4% atkvæð-
anna, en kjósendur eru 4 millj.
Hann er þannig næststærsti
flokkur landsins, en stærstur er
flokkur Karamanlis, Róttæki sam
einingarflokkurinn, sem er hægri
flokkur, og hafði hann fengið
41,7% atkvæða í kvöld. Talið er
að hann fái 174 af 300 þingsætum,
og hefur hann þannig hreinan
þingmeirihluta.
En nýkommúnistarnir hafa
stóraukið áhrif sín. Þeir hafa m.
a. barizt gegn því að Atlants-
hafsbandalagið setji upp eld-
flaugastöðvar og komi fyrir
Brottnám
TÚNIS, 12. maí. — Stjórnin í
Túnis tilkynnti í kvöld, að 9
franskir hermenn hefðu komið
inn yfir landamærin frá Alsír í
morgun og haft á brott með sér
3 Túnisbúa.
Horfur Pflimlins tvísýnar
PARÍS, 12. maí — Nýir erfiðleik-
ar mættu Pierre Pflimlin í dag í
tilraunum hans til að leysa
frönsku stjórnarkreppuna, þegar
íhaldsflokkurinn ákvað að eiga
ekki ráðherra í stjórn hans.
Pflimlin hafði í drögum sínum
að ráðherralista hinnar nýju
stjórnar gert ráð fyrir fjórum
íhaldsmönnum. Stjórnmálafrétta-
ritarar í París telja ekki miklar
horfur á, að hann fái stuðning
þingsins við stjórn sína, þegar
hann leggur fram ráðherralist-
ann á morgun.
I dag ákvað Sósíalradíkali
flokkurinn að styðja stjórn
Pflimlins og sömuleiðis ákvað
þingflokkur sósíalista að veita
henni stuðning. I kvöld var ekki
vitað hvernig íhaldsmenn munu
greiða atkvæði þegar til kastanna
kemur á morgun. Ekki er talið
ósennilegt, að úrslit atkvæða-
greiðslunnar velti á því, hvaða
þingmenn sitja hjá.
Pflimlin á ekki fylgi meðal
franskra íbúa Alsírs, og í höfuð-
borginni, Algeirsborg, var ástand
ið ískyggilegt eftir að samtök
uppgjafarhermanna og ýmis önn-
ur samtök Frakka í Alsír höfðu
hótað allsherjarverkfalli um
óákveðinn tíma frá hádegi á
morgun. Forvígismenn verkfalls-
ins hyggjast mótmæla ráðherra-
lista Pflimlins með þessu móti.
Segja þeir að á listanum séu
menn með óleyfilega frjálslynd-
ar skoðanir varðandi N-Afríku.
Lacoste kvíðinn
Robert Lacoste, sem var Alsír-
málaráðherra í stjórn Gaillards,
sagði í erindi sem hann hélt í
dag, að hann óttaðist að einstök
ríki hefðu í hyggjú að vinna
Arabaríkin á sitt band á kostnað
Frakka. Kvað hann slík viðhorf
mundu þurrka burt þann sigur,
sem Frakkar hefðu þegar að hálfu
unnið í Alsír, og koma í veg
fyrir að samningsviðræður tsekj-
ust að nýju milli Frakka og
Alsírbúa.
kjarnavopnum á grískri grund.
Hefur flokkurinn tvöfaldað fylgi
sitt frá síðustu kosningum.
Frjálslyndi flokkurinn er nú
þriðji stærsti flokkur Grikklands,
en hann fékk 20,7% atkvæðanna.
Aðrir flokkar fengu samtals
13,2%.
100 uppbótasæti
Hin nýju grísku kosningalög
kveða svo á, að tveir atkvæða-
mestu flokkarnir fái um 100
uppbótasæti á þingi til að tryggja
öfluga rikisstjórn.
Karamanlis baðst lausnar fyr-
ir stjórn sína 2. marz s. 1. þegar
15 af þingmönnum hans neituðu
að styðja frumvarp um hina nýju
kosningalöggjöf. Var þá sett á
laggirnar bráðabirgðastjórn und-
ir forsæti Konstantinosar Georga
kópúlosar, sem er yfirmaður
gríska Rauða krossins. Þessi
stjórn fékk því framgengt, að
kosningalöggjöfin var samþykkt.
Ekki sigur kommúnista
Stjórnmálafréttaritarar í Aþenu
líta svo á, að ekki beri að túlka
hið aukna fylgi E.D.A.-flokksins
sem kommúnískan sigur, heldur
sem mótmæli gegn þeirri ráðstöf-
un stjórnarinnar að festa kaup-
gjald. Helztu stuðningsmenn
E.D.A. voru iðnverkamenn, skrif-
stofumenn og opinberir starfs-
menn. Þeir voru að mótmæla
hinni ójöfnu skiptingu þjóðar-
teknanna og áhugaleysi stjórn-
arinnar um velferðarmál og al-
mannatryggingar.
Stjórnmálaleiðtogar
Meðal pólitískra leiðtoga sem
enn voru sendir á þing í þessum
kosningum voru auk Karamanlis
þeir Sófókles Venizelos og
Georgos Papandreou foringjar
Frjálslynda flokksins. Einnig var
hinn ungi og framsækni foringi
Bændasamtakanna, Spýros Mark-
enzinis, kosinn á þing, en flokk-
ur hans hlaut 10,6% atkvæðanna
og fær líklega 15 þingmenn.
Helztu kosningamálin
Helztu kosningaloforðin voru
betri kjör fyrir skattgreiðendur,
bændur og verkamenn. Allir
flokkar kröfðust sjálfsákvörðun-
arréttar til handa Kýpurbúum.
Eldflaugastöðvar og kjarnavopn
á grískri grund voru mikið deilu-
mál í kosningunum. Bændasam-
tökin og E.D.A. voru andvíg
þeim, en aðrir flokkar voru þeim
meðmæltir með ákveðnum skil-
yrðum.
í kvöld voru ekki komin úrslit
úr 141 kjördæmi, en alls voru
kjördæmin 900\