Morgunblaðið - 13.05.1958, Page 20
V EÐRIÐ
NA-kaldi, léttskýjað. — Frost í
Reykjavík í nótt, 2—4 stig.
Faðirinn
eftir Strindberg. Sjá bls. 8.
„Bjargráðiri' /ögð fram í dag
Lög sett í gær um bráðabirgðastöðvun
á tollafgreiðslum
Haukur Snsorrason
ritstfóri látinua
HAUKUR SNORRASON ritstjóri lézt í Hamborg sl. laugardags-
kvöld. Hafði hann veikzt sl. föstudag á ferðalagi, sem hann var i
i boði sambandsstjórnarinnar í Bonn. Við dauða hans er horfinn
dugmikill blaðamaður og góður drengur.
Fruruvarp ríkisstjórnar-
innar um efnahagsráð-
stafanir, mun lagt fyr-
ir Alþingi í dag og 1. um-
ræða um það fer fram á
morgun. í gær voru sett
lög um stöðvun tollaf-
greiðslna meðan þingið
fjallar um málið. Gilda
þau fram til næstu helg-
ar.
Sjálfstæðisflokkurinn fékk
frumvarpið á laugardag
Formanni Sjálfstæðisflokksins,
Ólafi Thors, var á laugardaginn
afhent frumvarp það, er ríkis-
stjórnin hyggst leggja fyrir Al-
þingi. — Hafði hann samband
við alþingismenn flokksins, sem
til náðist í bænum, og komu sér-
fræðingar, sem unnið hafa að mál
inu fyrir ríkisstjórnina, á fund
Sjálfstæðismanna á sunnudaginn.
1 gær var þingflokkurinn á stöð-
ugum fundum til að fjalla um
frumvarpið, en flokkurinn hefur
mjög nauman tíma til að athuga
mál þetta, sem ríkisstjórnin og
aðstoðarmenn hennar hafa undir-
búið mánuðum saman.
Stöðvun tollafgreiðslna
f gær kom fram á þinginu
frumvarp frá ríkisstjórninni um
hráðabirgðastöðvun á tollaf-
greiðslum. Segir þar, að dagana
13.—17. maí að báðum meðtöld-
um (þ. e. frá deginum í dag og út
vikuna) skuli tollstofnanir ekki
taka við skjölum til tollafgreiðslu
á aðfluttum vörum.
Eysteinn Jónsson fjármálaráð-
herra fylgdi frumvarpinu úr
hlaði með nokkrum orðum. Hann
sagði, að þingið myndi næstu
daga fjalla um frumvarp, sem
m. a. gerir ráð fyrir hækkun á að
flutningsgjöldum. Venja hefði
verið að stöðva tollafgreiðslur
meðan slík mál væru rædd, og
því væri frumvarp þetta fram
komið.
Ölafur Thors tók til máls. Hann
kvaðst að vísu líta svo á, að lítil
þörf væri á að samþykkja frum-
varp þetta, því að öll þjóðin hefði
vitað það mánuðum, ef ekki miss-
erum saman, að í vændum væru
örlagaríkar ráðstafanir. Hefðu
menn því reynt að fá vörur toll-
afgreiddar og losna við erlendar
Lýst ettir manni sem
yar nœrri orðinn
tyrir slysi
1 SAMBANDI við frásögn blaðs-
ins af manni þeim er sviftur var
ökuleyfi sínu til bráðabirgða.
þeim er ekið hafði á konu á gang
stétt Skólavörðustígsins, hefur
rannsóknarlögreglan beðið blað-
ið að koma orðum til manns er
nær var orðinn fyrir bílnum í
sama skiptið, en það hafa konur
upplýst er borið hafa vitni í slys-
máli margnefndrar konu.
AÐAUFUNDUR Sjáifstæðisfé-
lags ísfirðinga verður haldinn að
Uppsölum í kvöld klukkan 9 síð-
degis.
skuldir. Hins vegar kvað hann
Sjálfstæðisflokkinn ekki telja
neina ástæðu til að standa á móti
frumvarpinu, ef stjórnin vildi fá
það samþykkt. Kvað hann flokk-
inn geta fallizt á, að það væri af-
greitt í neðri deild þá þegar. Hins
vegar gerði hann fyrirvara um
afgreiðsluna í efri deild, þar sem
samkomulag hefði enn ekki tekizt
milli stjórnarinnar og stjórnar-
andstöðunnar um öll atriði varð-
andi tilhögun þingstarfa næstu
daga.
Frumvarpið var síðan afgreitt
á þremur fundum í neðri deild,
sem haldnir voru hver eftir ann-
an. Frekari umræður urðu ekki,
og málið fór ekki til nefndar. —
Skömmu síðar náðist samkomu-
SÍÐDEGIS í gær kom hingað til
Reykjavíkur vitaskipið Hermóð-
ur, skipstjóri Guðm. Thorlacius.
Var það með óvenjulegan flutn-
ing í lestinni. Þar niðri var búið
að hringa háspennusæstreng, 11
km langan, sem leggja á yfir
Dýrafjörð og Arnarfjörð.
Háspennusæstrengur þessi er í
sambandi við lagningu rafkerfis
um Vestfirðina frá Mjólkárvirkj-
un, sem taka mun til starfa í
næsta mánuði.
Landhelgismólið
MORGUNBLAÐIÐ skýrði frá því
í fyrradag, að fundur um land-
helgismálið hefði verið boðaður
kl. 4 á laugardag. Fundurinn var
haldinn á tilsettum* tíma. Sátu
hann ráðherrar, landhelgisnefnd
flokkanna og sérfræðingar. Funda
höldunum lauk kl. 6 þá um dag-
inn og hefur landhelgisnefnd
flokkanna ekki verið á fundi
síðan.
Ekkert lát á norð-
austan áttinni
ÞAÐ munu nú vera allmörg ár
síðan frostnæturnar hafa orð-
ið jafnmargar um miðjan maí-
mánuð sem nú. Frá 1. maí hefur
langsamlega flestar nætur verið
lítils háttar næturfrost hér í
Reykjavík.
Það er ekki að sjá neitt lát á
háþrýstisvæðinu yfir Grænlandi,
sem veldur þessari stöðugu norð-
anátt og kulda, sem ríkjandi hef-
ur verið að heita má óslitið frá
því um síðustu mánaðamót.
Um norðanverða Vestfirði og
allt til Austurlandsins er flesta
daga einhver snjókoma, að vísu
ekki mikil. Um hádaginn hefur
hitinn á Norðurlandi komizt lít-
ið eitt upp fyrir frostmark. 1 gær
var til dæmis 2 stiga hiti á Ak-
ureyri um nónbil, víða var hit-
inn 1—-2 stig og kaldast var 4 st.
frost á Grímsstöðum á Fjöllum.
Sólarlaust var á Norðurlandi í
gær svo þar var engin sólbráð.
Vorið 1949 var með fádæmum
kalt, vegna þrálátrar norðanátt-
ar. Vonandi er , sú saga þó ekki
að endurtaka sig nú.
lag um vinnubrögð þingsins. Var
frumvarpið þá tekið fyrir á þrem-
ur fundum í efri deild og afgreitt
sem lög.
Tilhögun þingstarfa
Gert er ráð fyrir 1. umræðu
um efnahagsmálafrumvarpið í
neðri deild á morgun. Stjórnin
hefur óskað þess, að frumvarpið
verði afgreitt sem lög á laugardag
eða aðfaranótt sunnudags. Ólafur
Thors kvað Sjálfstæðismenn
ekki vilja gefa yfirlýsingu um, að
þeir myndu, hvað sem upp kynni
að koma, fallast á, að umræðum
lyki á fyrrgreindum tíma. Hins
vegar kvað hann flokkinn ekki
hafa tilhneigingu til að draga
málið.
Jafnframt er samkomulag um,
að útvarpsumræður (,,eldhús“)
verði á þriðjudag og miðvikudag
í næstu viku.
Hér í Reykjavík verður komið
fyrir útbúnaði á Hermóði, til þess
að leggja sæstrenginn frá skip-
inu. Danskur verkfræðingur og
Eðvarð Árnason, verkfræðingur
hjá raforkumálastjórninni, fara
vestur með skipinu og stjórna
lagningu strengsins. Hann vegur
alls um 150 tonn og er gerður
fyrir 33000 volta spennu.
Yfir Dýrafjörð verður hann
lagður rétt fyrir innan Þingeyr-
ar, en þar er fjörðurinn tæpir 2
km á breidd. Þá verður hann
lagður í Arnarfjörðinn frá Tjalda
nesi, á norðurströnd fjarðarins og
í land verður háspennustrengur-
inn tekinn fyrir utan Bíldudal.
Kauptún þau sem fá eiga raf-
magn þegar háspennustrengur
þessi er kominn þar í samband,
sem væntanlega verður um leið
og Mjólkárvirkjun tekur til
starfa, eru Bíldudalur og Patreks-
fjörður.
Ráðlierrabíll
í árekstri
í GÆRDAG lenti einn af ráð-
herrabílunum í allhörðum á-
rekstri á Miklubrautinni, en
meiðsl urðu ekki á fólki. Bílstjóri
ráðherrans, Gylfa Þ. Gíslasonar,
menntamálaráðherra, mun hafa
verið einn í bílnum, sem varð
fyrir töluverðum skemmdum.
Hafði ráðherrabílnum verið ekið
á eftir vörubíl, en báðir voru á
'Miklubrautinni og óku vestur,
inn í bæinn. Við Rauðarárstíg-
inn sveigði vörubíllinn til hægri,
og þá brunaði ráðherrabíllinn
fram með hægrihlið vörubílsins
og varð árekstri ekki forðað eins
og komið var. Ráðherrabíllinn,
R-7591, hafði orðið fyrir töluverð
um skemmdum.
FÁHEYRT níðingsverk hefir
verið unnið á fuglatjörn, sem
er skammt frá Lynghól, sum-
arbústað Guðmundar frá Mið-
dal. Hafa skotmenn verið
þar á ferð. Álftahjón voru á
tjörninni, og hefir annar fugl-
inn verið skotinn til bana en
hinn barðist um vængbrotinn
svo að taka varð hann af lífi.
Haukur Snorrason var fæddur
að Flateyri í Vestur-ísafjarðar-
sýslu 1. júlí árið 1916. Hann var
því aðeins 42 ára gamall er hann
lézt. Foreldrar hans voru Snorri
Sigfússon skólastjóri og Guðrún
AÐALFUNDUR Vinnuveitenda-
sambandsins var settur í fundar-
salnum í Hamarshúsinu í gær kl.
2,30 og var húsið þéttskipað.
Formaðurinn, Kjartan Thors,
setti fundinn og ræddi þær alvar-
legu horfur í atvinnu- og efna-
hagsmálum þjóðarinnar, sem við
blasa. — Benti hann m. a. á í
því sambandi, að 26 kaup- og
kjarasamningar a. m. k. væru
lausir í Reykjavík 1. júní nk.
Framkvæmdastjóri Vinnuveit-
endasambandsins, Björgvin Sig-
urðsson hdl., fhitti ýtarlega
skýrslu um starfsemi sambands-
ins sl. ár, og bar hún vott um
öfluga og sívaxandi starfsemi
samtakanna.
Framkvæmdastjórinn lagði
fram endurskoðaða reikninga
sambandsins og voru þeir sam-
þykktir.
Þá fóru fram nefndarkosningar.
Kosið var í allsherjarnefnd,
skattamálanefnd, iðnaðarmála-
Um fyrri helgi, er Guð-
mundur var í bústað sínum,
voru álftirnar að hreiðurgerð
í hólma í tjörninni og á föstu-
dag voru þær lifandi..
Það eru eindregin tilmæli
til manna, sem kynnu að hafa
orðið varir við skotmenn
þarna í nágrenninu, að gefa
um það upplýsingar.
eyrar, þar sem hann varð skóla-
stjóri barnaskólans. Tók Haukur
gagnfræðapróf þar en hóf síðan
verzlunarnám í Bretlandi og
lauk þar prófi frá verzlunarsam-
vinnuskóla. Réðist hann síðan til
Kaupfélags Eyfirðinga og vann
þar bæði gjaldkerastörf og að
fræðslustarfsemi í nokkur ár.
Ritstjóri Dags og Tímans
Haukur Snorrason hóf ungur
blaðamennsku. Þegar hann hætti
störfum hjá Kaupfélagi Eyfirð-
inga gerðist hann ritstjóri Dags
á Akureyri og stýrði því blaði í
rúman áratug. Þá var hann einn-
ig ritstjóri Samvinnunnar í nokk-
ur ár. Ritstjóri Tímans varð hsnn
árið 1956. Einnig gegndi hann
ýmsum opinberum störfum, átti
m.a. sæti í menntamálaráði.
Kvæntur var hann Elsu Frið-
finnsdóttur frá Akureyri og eign
uðust þau 3 börn.
Mikill harmur er kveðinn að
ástvinum Hauks Snorrasonar og
vinum hans öllum. Með honum er
horfinn ágætur og dugmikill mað
ur, sem hinn mesti sjónarsviptir
nefnd og laganefnd. — Nefndir
munu starfa í kvöld og áfram.
Kl. 11 í dag hefst fundur að nýju
á sama stað og fer þá fram stjórn
arkjör, og nefndir byrja að skila
áliti. Kl. 12.15 hefur Vinnuveit-
endasambandið boðið fundar-
mönnum til hádegisverðar að
Hótel Borg, og þar flytur Davíð
Ólafsson fiskimálastjóri ræðu um
landhelgismálið og segir fréttir
frá Genf.
I gær sátu fundarmenn síðdegis
boð félagsmálaráðherra, Hanni-
bals Valdimarssonar.
Áætlað er að fundinum ljúki á
morgun, en forseti íslands, herra
Ásgeir Asgeirsson, hefur boðið
fundarmönnum til Bessastaða kl.
17,00 þann dag.
Allmargir fulltrúar utan af
landi sitja fundinn. Fundurinn í
heild ber vott um vaxandi skiln-
ing á þörf öflugra landsamtaka
vinnuveitenda, sem standi vörð
um frjálsan atvinnUrekstur í
landinu.
Happdiættið
ALLIR Sjálfstæðismenn eru
minntir á happdrættið.
Miðar fást í skrifstofunni í
Sjálfstæöishúsinu og eru allir
Sjálfstæðismenn hvattir til að
hafa sem fyrst samband við hana.
Verum öll samtaka um að selja
miðana upp fyrir 10. júní og sýn-
um á þann hátt samtakamátt
okkar. — Happdrættisnefndin.
11 km. háspennusæstrengur
yfir Dýra- og Arnarfjörð
Önnur álftin skotin til
bana en hin vœngbrotin
Jóhannesdóttir fyrri kona hans.
Snorri Sigfússon og fjölskylda
er að. Verður hans minnzt nánar
hans fluttizt árið 1930 til Akur-hér í blaðinu síðar.
Aðalfundur Vinnuveit-
endasambandsins hafinn
Davíð Ólafsson fiskimálastjóri
flytur i dag ræðu um fland-
helgismalið